Morgunblaðið - 19.12.2011, Side 40

Morgunblaðið - 19.12.2011, Side 40
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 353. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Tónleikum Kristjáns aflýst 2. Fannst meðvitundarlaus 3. Drengurinn fannst í Grafarholti 4. Með enga hönd á stýri »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Matthías Johannessen sendir nú frá sér ljóðabókina Söknuð. Þar glím- ir hann við sáran missi, en konu sína missti hann fyrir tveimur árum. Bók- ina segir hann hafa sprottið upp af góðum minningum. »34 Morgunblaðið/Golli Óður til gleðinnar og ástarinnar  Valdimar Guð- mundsson söngv- ari, Leifur Gunn- arsson kontra- bassaleikari og Kristján Tryggvi Martinsson píanó- leikari verða með tónleika í Gerðu- bergi í kvöld og annað kvöld kl. 20. Þeir ætla að fylla húsið af jóladjasstónum úr ýmsum áttum en Valdimar var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Korter fyrir jól í Gerðubergi  Miðasala á tónleika James Taylor og hljómsveitar sem haldnir verða í Hörpu 18. maí nk. hefst í dag kl. 12 á Harpa.is. Mikil eftir- vænting er á meðal aðdáenda hans fyr- ir tónleikunum og fjöldi fyrirspurna eftir miðum hefur komið erlendis frá. Taylor hefur snerti- fleti í poppi, þjóð- lagarokki, kántríi og soul-tónlist. Miðasala hefst á tón- leika James Taylor Á þriðjudag Suðvestan 8-15 m/s og éljagangur, léttskýjað á aust- urhelmingi landsins. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum NA-til. Á miðvikudag Austan og norðaustan 8-15 m/s, en 15-20 með S- ströndinni framan af degi. Snjókoma víða um land og slydda syðst. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 og éljagangur V-til, en léttir til eystra síðdegis. Frost víða 0 til 6 stig. VEÐUR Heil umferð var í IE-deild karla í körfuknattleik í gær- kvöldi. Tvíframlengja þurfti í Stykkishólmi til að knýja fram úrslit en Grindavík hafði betur. Það þurfti líka að framlengja í DHL-höllinni þar sem Valur varð að sætta sig við eins stigs tap. Fjölnir vann í Njarðvík, Tindastóll vann í Þorlákshöfn og ÍR vann Hauka í Hafnarfirði. Þá lagði Stjarnan lið Keflavíkur í Garðabænum. »8 Tvíframlengja þurfti í Hólminum „Breytingin hjá Njarðvík er að nú er kominn stór leikmannahópur og metnaðurinn er mjög mikill. Yngri stelpurnar æfa miklu meira en gert var áður fyrr og það er fullt af ungum stelpum sem eru að koma sterkar upp á næstu árum,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur í körfu- knattleik, en liðið er í öðru sæti þegar keppni í úrvals- deild kvenna er hálfnuð. »2 „Yngri stelpurnar æfa miklu meira“ „Ég get ekki sagt neitt um þetta núna en ef allt gengur upp er svo sem ekki ólíklegt að ég fari í ensku úrvalsdeild- ina,“ sagði Eggert Gunnþór Jónsson, knattspyrnumaður hjá Hearts í Skot- landi, um þrálátan orðróm þess efnis að hann verði næsti Íslendingurinn til þess að leika í ensku úrvalsdeildinni, jafnvel strax í næsta mánuði. „Ég veit af áhuga,“ segir Eggert. »1 Fer Eggert í ensku úr- valsdeildina? ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Undanfarin ár hafa gestir Kringl- unnar og Smáralindar verið hvatt- ir til að gefa eina gjöf í viðbót og setja hana undir jólatré verslana- miðstöðvanna. Pakkana fá svo Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Fjölskylduhjálp Íslands og kemur starfsfólkið pökkunum áfram til þeirra sem þurfa á að- stoð að halda fyrir jólin. Vilja rétta fram hjálparhönd „Reynsla okkar er ljómandi góð,“ segir Ragnhildur G. Guð- mundsdóttir, formaður Mæðra- styrksnefndar Reykjavíkur. „Hún sýnir að fólk vill gefa og rétta fram hjálparhönd. Auðvitað er misjafn sauður í mörgu fé, eins og gengur, en yfirleitt er gefið af góð- um hug,“ segir hún og útskýrir að komið hafi fyrir að fólk hafi sett óheppilega hluti í jólapakkana en slíkt sé sjaldgæft. Fjöldi pakka sé svipaður frá ári til árs. „Við biðjum fyrir mikið þakklæti til allra sem hugsa til þessa verkefnis. Það segir sig sjálft að þegar svona margir koma að þessu gengur allt miklu betur. Þá fá fleiri að njóta og þar með er tilganginum náð.“ Mikil vinna og ástúð í fallegan prjónaskap Ragnhildur segir mörg hundruð pakka safnast fyrir hver jól og er þeim pökkum, sem nefndin fær út- deilt, stillt upp í sérstakri gjafa- deild á Fiskislóð 14. Pökkum Fjöl- skylduhjálpar er dreift í þremur jóla- úthlutunum en yfir tvö þúsund fjölskyldur sem vantar jólaaðstoð eru skráð- ar. „Á Fiskislóð eru allar gjafirnar settar upp og fólk getur valið sér pakka. Það er tekið utan af sum- um pökkunum svo fólk sjái hvað er í þeim en við reynum að stilla þessu upp þannig að fólk geti gengið að gjöfunum og valið þær sem það telur henta.“ Færst hefur í aukana að skólar, íþróttafélög, fyrirtæki og félaga- samtök sendi hjálparsamtökum jólapakka. „Það virðist vera mikil stemning fyrir þessu í þjóðfélag- inu sem er mjög gott,“ segir Ragnhildur. „Margt af því sem okkur berst er óskaplega fallega unnið í höndunum. Fallegur prjónaskapur, svo sem peysur, vettlingar og húfur, sem maður sér að virkilega mikil vinna og ást- úð er lögð í.“ Fjöldi lætur gott af sér leiða  Mörg hundruð pakkar safnast fyrir jólin undir jólatrén í Kringlunni og Smáralind en þeir eru ætlaðir þeim sem þurfa á aðstoð að halda fyrir hátíðarnar Morgunblaðið/Sigurgeir S. Góðgerðarstöð Krakkarnir í Sæmundarskóla létu gott af sér leiða og pökkuðu inn leikföngum og fötum sem þeir eru hættir að nota. Pakkarnir fara til Fjölskylduhjálparinnar en annað til Mæðrastyrksnefndar og Rauða krossins. Síðustu dagana fyrir jólafrí er krökkum í 2.-10. bekk Sæmundar- skóla skipt niður á nokkrar jóla- stöðvar, t.a.m. býr ein stöðin til jólaskraut og önnur fer út í skóg og ristar möndlur, en í ár var í fyrsta sinn boð- ið upp á góðgerðar- stöð. „Þessi hug- mynd kom upp í fyrra að láta gott af okkur leiða og það heppnaðist óskaplega vel,“ segir Eygló Friðriksdóttir skólastjóri. „Foreldrarnir sendu leikföng og fatnað sem börnin eru vaxin upp úr og krakkarnir flokkuðu þetta. Því sem var heillegast og fallegast var pakkað inn í pappír sem þau skreyttu sjálf og merktu og fara þeir í Fjölskylduhjálpina. Annað fer í Rauða krossinn og til Mæðra- styrksnefndar. Við fengum mjög mikið, miklu meira en við bjugg- umst við.“ Gömul föt og leikföng GÓÐGERÐARSTÖÐ Í SÆMUNDARSKÓLA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.