Morgunblaðið - 30.12.2011, Síða 2

Morgunblaðið - 30.12.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Bræðurnir Viktor Örn og Ásmundur Steinar Ingvarssynir, sjö ára og eins árs, þekkja mikilvægi þess að nota ávallt hlífðargleraugu í kring- um flugelda. Þeir voru ásamt foreldrum sínum að kaupa stjörnuljós og skottertur í flugeldasölu Hjálparsveitar skáta í Kópavogi. „Þetta byrjar alltaf mjög rólega. Það er tvo síðustu dagana sem er eitthvert fútt í þessu,“ sagði Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í samtali við fréttavef Morgun- blaðsins, mbl.is, í gær. Hann hvetur fólk þó til að vera tímanlega enda geti orðið þrengsli á morgun. Kristinn á von á að salan verði svipuð og í fyrra, enda sé yfirleitt fylgni á milli sölunnar fyrir jól og flugeldasölu. Bræður kaupa stjörnuljós fyrir gamlárskvöld Morgunblaðið/Ómar Mikilvægt að muna eftir hlífðargleraugunum Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Gosverksmiðjan Klettur ehf. hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta, en tilkynning þess efnis birtist í Lög- birtingablaðinu í gær. Líftími verk- smiðjunnar varð því ekki langur, fyrstu drykkirnir komu á markað 6. desember 2010. Klettur framleiddi drykkina KlettaGOS og KlettaVATN, með ýmsum bragðtegundum. Fram- leiðsla stöðvaðist nú síðsumars þeg- ar ekki tókst að fá endurfjár- mögnun. Gosverksmiðjan var fjölskyldufyrirtæki, stofnað af 25 manna hópi skyldmenna og vina. Fram kom í tilkynningu, þegar verksmiðjan var vígð í fyrra, að hug- myndin hefði vaknað þegar nokkrir einstaklingar sem höfðu um árabil starfað erlendis fluttu heim til Ís- lands og vildu leggja sitt af mörkum við uppbyggingu atvinnulífsins. Í hópnum var enginn fagfjárfestir og enginn þekktur fjárfestir. Að sögn Magnúsar Guðlaugs- sonar hrl. sem skipaður hefur verið skiptastjóri þrotabúsins er ekki um miklar eignir að ræða því stærstur hluti af vélasamstæðunni var í eigu erlenda fyrirtækisins Meeco, sem seldi fyrirtækinu hana með eign- arréttarfyrirvara. 9,5% voru fjár- mögnuð af Ergo, fjármögnunar- þjónustu Íslandsbanka, og er niður- rifsverðmæti þess hluta véla- samstæðunnar metið á um 12 milljónir kr. Eignir fyrirtækisins sjálfs, sem samanstanda að mestu af vélahlutum, eru metnar á um þrjár milljónir en skuldir á 111 milljónir. Kröfuhafar hafa nú tvo mánuði til að lýsa kröfum sínum í búið. Gjaldþrotaskipti á ársafmælinu  Fjölskyldufyrir- tæki sem fram- leiddi gos og vatn lifði ekki lengi Sala á smjöri frá MS í desember jókst um 25% milli ára. „Desember er yfirleitt toppmánuður í sölu á smjöri en núna var selt fjórðungi meira en í fyrra,“ segir Einar Sig- urðsson, framkvæmdastjóri MS. „Við höfðum búið okkur undir meiri sölu, vorum t.d. íhaldssamir að flytja út smjör sem var mjög gott því salan hefur aldrei verið eins góð og nú. Íslenski jólabakst- urinn var greinilega tekinn með trukki og dýfu,“ segir hann en að auki jókst sala á rjóma um 5% milli ára. Aukinn áhugi á matreiðslu Spurður hvernig standi á þessari miklu aukningu segir Einar að svo virðist sem fólk hafi viljað gera vel við sig í eldamennskunni um jólin. „Frá hruni höfum við orðið varir við meiri sölu á vörum sem not- aðar eru í heimamatreiðslu og -bakstur. Það er sérstaklega áberandi í kring- um hátíðirnar en þó aldrei eins og nú.“ Þá segir hann aukinn áhuga á mat- reiðslu einnig hugsanlega skýr- ingu. „Ef við lítum á sjónvarps- dagskrána og dagblöðin hefur aldrei verið jafnmikið af efni um matreiðslu og nú.“ Að sögn Einars hefur smjör- neysla á Íslandi, sem og almennt í Evrópu, aukist undanfarin ár og má rekja það til breytts viðhorfs í garð náttúrulegrar fitu. ylfa@mbl.is Sala á smjöri fyrir jólin jókst um 25% milli ára Smjör Gott í elda- mennskuna. „Hún er ekki farin að skella á af nein- um þunga ennþá, en hins vegar sjáum við fleiri tilkynningar um inflúensulík einkenni,“ segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir, aðspurður hvort árstíðabundna inflúensan sé byrjuð að dreifa sér. Fyrsta inflú- ensutilfelli vetr- arins var staðfest á veirufræðideild Landspítalans fyrir um mánuði, í lok nóvember, en það greindist í ís- lenskum ferðamanni sem var að koma frá Suður-Asíu. Flensan kemur gjarnan fyrst upp á höfuðborgarsvæðinu en dreifist svo smám saman í norður og austur í aðra landshluta. Haraldur segir að útbreiðslan virðist fara rólega af stað en munstrið sé kunnuglegt. „Þetta gerist alltaf svona, fyrst koma nokkur tilfelli en svo fer þetta að snaraukast. Það hefur ekki gerst ennþá en má búast við því hvað úr hverju.“ Landlæknisembættið fylgist vel með gangi bólusetninga og eru þær á góðu róli að sögn Haraldar. una@mbl.is Flensan fer rólega af stað  Má búast við því að tilfellum snarfjölgi Haraldur Briem „Áramótaveðrið verður alveg þokkalegt, milt og gott framan af gamlársdegi. Það er spáð sunnan- eða suðvestanátt, 5-10 m/sek.,“ seg- ir Árni Sigurðs- son, veðurfræð- ingur á Veður- stofu Íslands. „Það verða einhverjar skúrir suð- vestan- og vestanlands, jafnvel él, því það fer að frysta á gamlárskvöld. En það verður bjartviðri um norðan- og austanvert landið.“ Árni segir að þótt ganga muni á með éljum á suð- ur- og vesturhluta landsins muni þeim slota og á milli koma stjörnu- bjartir kaflar. annalilja@mbl.is Þokkalegasta veður, él sunn- an- og vestantil Áramót Éljagang- ur verður víða. Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - www.benni.is Sérfræðingar í bílum BFGoodrich JEPPADEKK Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Meira en 40% allra frétta í íslenskum prentmiðlum á árinu sem er að líða birtust í Morgunblaðinu og rúmt 31% frétta á netmiðlum var á mbl.is, sem er jafnframt sá fjölmiðill lands- ins sem birti flestar fréttir, eða 25.860. Þetta kemur fram í úttekt áramótablaðs Viðskiptablaðsins. Netmiðlar birtu flestar fréttir, eða 82.802, í prentmiðlum voru 58.882 fréttir og ljósvakamiðlar fluttu 21.572 fréttir árið 2011. Stjórnmálamenn verma efstu sæt- in á lista yfir helstu viðmælendur ljósvakamiðla. Oftast var talað við Steingrím J. Sigfússon, Jóhanna Sigurðardóttir er í öðru sæti og Ög- mundur Jónasson í því þriðja. Af þeim 20 sem mest er talað við eru 15 karlar og fimm konur. Helstu um- fjöllunarefni fjölmiðla á árinu voru stjórnarflokkarnir Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Samfylkingin. Morgunblaðið og mbl.is í sérflokki í fréttafjölda 2011 Fjöldi frétta 30.000 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 DV Frétta- blaðið Morgun- blaðið mbl.is visir.is dv.is ruv.is Prentmiðlar Netmiðlar 7.571 19.471 24.252 25.860 18.102 6.737 14.072

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.