Morgunblaðið - 30.12.2011, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2011
Ný eyja hefur
skotið upp koll-
inum í Rauðahafi
en þar sáu fiski-
menn 30 metra
háa hraunstróka
skömmu fyrir jól,
að sögn msnbc-
vefjarins. Nú sé
eyjan risin úr sæ
en menn efist þó
um að hún verði langlíf.
Eyjan er við vesturströnd Jemens
en á svæðinu er fjöldi svipaðra eyja.
Efnið í nýju eyjunni er sagt vera að
miklu leyti gjall en vísindamenn
fylgjast grannt með henni til að átta
sig á því hvort hún verði varanleg.
Það fer eftir því hve hraungosið á
hafsbotni verður öflugt.
Haft er eftir Erik Klemetti, eld-
fjallafræðingi við Ohio-háskóla í
Bandaríkjunum, að eyjar af þessu
tagi endist oft stutt en fyrirbærið sé
ekki óþekkt. Hann nefnir Surtsey,
einnig eyju í Indónesíu, skammt frá
Krakatau og loks eyju í Tonga-
eyjaklasanum á sunnanverðu Kyrra-
hafi. kjon@mbl.is
Ný eyja
er komin
í heiminn
Gos varð á hafsbotni
í Rauðahafi fyrir jól
Loftmynd af eynni.
Niðurstöðum
kosninga í mexík-
óska ríkinu Mic-
hoacan fyrir
skömmu hefur
verið hnekkt,
meðal annars
vegna þess að
hnefaleikamaður
var með merki
Stofnanaflokks
byltingarinnar,
PRI, á brókunum þegar hann keppti
í Las Vegas 12. nóvember.
Milljónir sjónvarpsáhorfenda í
Mexíkó sáu landa sinn, Juan Manuel
Marquez, berjast við Filippseying-
inn Manny Pacquiao og sigra. En al-
ríkisdómstóll komst að þeirri nið-
urstöðu að með því að bera merki
PRI hefði Marques rekið áróður eft-
ir að kosningabaráttunni var form-
lega lokið og því brotið lög. Ef til vill
hefði hann þannig fengið einhverja
kjósendur í höfuðborg Michoacan-
ríkis, Morelia, til að kjósa PRI.
Einnig hefðu sumir frambjóð-
endur flokksins komið fram í sjón-
varpi og samanlagt væru brotin svo
stór að kjósa yrði aftur. kjon@mbl.is
Boxari með
áróður á
brókunum
Juan Manuel
Marquez
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Spenna fer nú vaxandi milli Banda-
ríkjamanna og Írana vegna hótana
hinna síðarnefndu um að loka fyrir all-
ar siglingar um Hormuz-sund við
mynni Persaflóa. Olía frá Írak, Sádi-
Arabíu, Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum (F.A.S.), Kúveit og fleiri
löndum fer um sundið sem er liðlega 50
km þar sem það er mjóst.
Vesturveldin beita nú Írana við-
skiptaþvingunum sem samþykktar
voru í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
vegna kjarnavopnadeilna en hyggjast
herða mjög þær aðgerðir á næsta ári.
Liðlega þriðjungur allra siglinga með
olíu í heiminum fer um Hormuz-sund.
Bandaríkjamenn, Frakkar og fleiri
þjóðir hafa varað Írana við, um sé að
ræða alþjóðlega siglingaleið. Floti Írana
er nú að æfingum á Hormuz en þar sást
í gær til bandarísks flugvélamóður-
skips.
200 km
Íranar hóta að loka Hormuz-sundi
Heimildir: Globalsecurity.org, Energy Information Administration
Persaflói
Ómanflói
Katar
Íran
Írak
Kúveit
Sádi-Arabía
S.A.F. Óman
Bandar Abbas
er aðalbækistöð
íranska flotans
Helstu hafnir
17%
af öllum olíu-
flutningum
heims fara
um sundið
15,5 milljónir
tonna af olíu
fara daglega
um Hormuz
Íranski flotinn
Kafbátar
Freigátur
11
3
3
Þyrlur 30
Mannafli 18,000
Tundurduflaslæðarar
Korvettur 2
Hormuz-
sund
Lögsaga
Siglingaleiðir út
og inn sundið,
hver þeirra er
um km að breidd.
Íran
U.A.E.
Mikil spenna
við Persaflóa
Bandarískt flugmóðurskip við Hor-
muz þar sem Íransfloti er að æfingum
Aðrar hafnir?
» Fullyrt er að Sádi-Arabar og
fleiri þjóðir við Persaflóa kanni
nú leiðir til að flytja olíu út frá
öðrum höfnum, líklega við
Rauðahaf.
» Bandaríkin hafa að jafnaði
herskip á Persaflóa, ekki síst
til að tryggja olíuflutninga.
» Truflanir á olíusiglingum
gætu haft slæm áhrif á efna-
hagsmál í heiminum.
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Kristnir menn í Nígeríu, nær helm-
ingur þjóðarinnar, óttast nú mjög um
sinn hag vegna hryðjuverka ofstæk-
isfullra múslíma í hreyfingunni Boko
Haram. Um 40 manns féllu í árásum
sem gerðar voru á kirkjur og fleiri
staði um jólin, í fyrradag var fleygt
sprengju inn í skóla, nokkur lítil börn
særðust.
Leiðtogum kristinna finnst að músl-
ímaklerkar beiti sér ekki nógu mikið
gegn ofstækinu, þeir bregðist hlutverki
sínu. BBC hefur eftir Ayo Oritsejafor,
formanni Sambands hvítasunnusafn-
aða í Nígeríu, að margir líti nú á árás-
irnar sem atlögu gegn öllu kristnu fólki
í landinu. Hann segist ekki hvetja til
hefndarárása „en kristnir menn ættu
að vernda sig... með öllum ráðum“.
En hvaða samtök eru Boko Haram?
Þau voru stofnuð 2002 til að boða bók-
stafstrú íslamista og nafnið mun
merkja „Vestræn fræðsla er bönnuð“.
Markmiðið er að gera sharia-lög ísl-
ams að lögum allrar Nígeríu, ekki
bara í norðurhlutanum þar sem músl-
ímar eru þorri íbúa.
Ránsfeng deilt út meðal fólks
Andstaða hefur lengi verið meðal
íbúanna í héruðum múslíma við að láta
börnin ganga í ríkisskóla. Boko Ha-
ram stofnaði því eigin skóla sem hafa
notið vinsælda meðal fátæklinga enda
öll opinber þjónusta nígerískra stjórn-
valda, þ. á m. skólar, í skötulíki. Sam-
tökin hafa einnig rænt banka og deilt
þýfinu meðal íbúanna.
En frá 2009 hafa Boko Haram gert
fjölda árása á lögreglustöðvar og eru
nú talin standa fyrir árásunum á
kristna. Samtökin eru grunuð um
samstarf við al-Qaeda.
Sprengja kirkjur og skóla í Nígeríu
Markmið íslamistahópsins Boko Haram er að koma á sharia-lögum íslams í landinu öllu
Boko Haram Nokkrir liðsmenn, gráir fyrir járnum og huldir blæjum.
Tvær fylkingar
» Æðstu embættum hefur að
jafnaði verið skipt milli helstu
trúarfylkinga í landinu. En oft
hefur komið til átaka síðustu
árin og hundruð manna fallið.
» 160 milljónir manna búa í
Nígeríu. Um 90.000 hafa flúið
heimili sín í norðausturhluta
landsins vegna árásanna.
Kim Jong-un var í gær opinberlega hylltur í
Norður-Kóreu sem „æðsti yfirmaður „flokksins,
ríkisins og hersins“ á útifundi um milljón manna
í Pjongjang að lokinni útför föður hans, Kim
Jong-ils. Kim Yong-nam, sem að nafninu til er
næst-æðsti valdamaður landsins, sagði að harm-
urinn vegna fráfalls föðurins myndi nú breytast í
afl sem yrði „þúsund sinnum öflugra undir for-
ystu félaga Kim Jong-uns“. Háttsettur hershöfð-
ingi, Kim Jong-gak, ávarpaði einnig mannfjöld-
ann og sagði að herinn myndi þjóna hinum nýja
leiðtoga og ljúka „Songun-afrekum hins mikla
leiðtoga, Kim Jong-ils“. Songun er heitið á þeirri
stefnu að herinn, með sína 1,1 milljón liðsmanna,
skuli ávallt hafa forgang í útgjöldum ríkisins.
Kim Jong-un tekur formlega við æðstu völdum í N-Kóreu að föður sínum látnum
Reuters
Þjóðin verði „þúsund sinnum“ öflugri