Morgunblaðið - 30.12.2011, Side 20

Morgunblaðið - 30.12.2011, Side 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2011 Ár hvert höld- um við upp á hátíð ljóss og friðar – jólin. Frá örófi alda hafa menn ýmist fagnað end- urkomu sól- arinnar eða fæð- ingu frelsarans, Jesú Krists, á þessum tíma árs. Jólin létta okkar lund og gera okkur mögulegt að doka dágóða stund í faðmi fjölskyldu og vina. Á jólunum uppskerum við eins og við sáum. Umbunin felur í sér frið í hjarta, ynd- islegar samverustundir með góðum kunningjum, glitrandi jólaljós og allar þær kræs- ingar sem bornar verða á borð á hverju heimili. Og hvort sem okkur líkar það betur eða verr er það kapít- alisminn, ljós friðar og frels- is, sem gerir þúsundum manna það kleift, að gleyma stund og stað í örskamma stund og njóta augnabliksins ár hvert. Uppganga markaðs- hagkerfisins hefur lyft grett- istaki í vestrænum ríkjum og gefur jólahá- tíðin – hátíð uppskerunnar – okkur tækifæri til að gleðjast yfir þeim vexti, sem kapítalism- inn færir okkur, hvort sem um andlegan vöxt eða hagvöxt er að ræða. Á jólunum snæða margir dýrindis kalkún frá Bandaríkj- unum með íslenskum kart- öflum og rauðkáli fluttu inn frá Danmörku. Síðan er drukkið franskt vín og ítalsk- ur ís snæddur. Jólagjafirnar eru margar gerðar í Asíu, sérstaklega í Kína og Indónesíu, og fluttar hingað til lands í tonnavís. Það er yndislegt til þess að hugsa að milljónir manna um gervalla veröld vinna saman við að skapa verðmæti og skiptast á vörum og þjónustu. Öll sjá þau heiminn með mismun- andi augum og hafa ólíka siði en vinna samt sem áður sam- an í gangverki markaðarins. Frjáls markaðsviðskipti hafa leitt til þess að jarð- arbúar hafa aldrei notið eins mikillar efnahagslegrar vel- ferðar og nú á tímum. Við- skipti manna á milli hafa rutt leiðina úr ánauð og gert, svo dæmi sé tekið, okkur Íslend- ingum kleift að flytja inn vörur, sem dýrt og óhag- stætt væri að framleiða hér- lendis. Verkaskipting felur það í sér að skósmiðurinn saumi ekki föt sín sjálfur, heldur ráði til þess klæðskera og að klæðskerinn kaupi frekar skó af skósmiðnum í stað þess að búa til sína eigin. Með þeim hætti er fjármagni sem og vinnuafli varið betur en ella. Við skulum hafa þessi sannindi í huga yfir jólahá- tíðina. Leiðum hugann að góðmennsku jólasveinsins, hinum sanna kapítalista, og njótum afraksturs markaðs- hagkerfisins. Hátíð kapítalismans Eftir Kristin Inga Jónsson » Það er yndislegt til þess að hugsa að milljónir manna um gervalla veröld vinna saman við að skapa verðmæti og skiptast á vörum og þjónustu. Kristinn Ingi Jónsson Höfundur er mennta- skólanemi. Almáttugi, kærleiksríki og eilífi Guð, höf- undur og full- komnari lífsins! Ég þakka þér fyrir árin öll og trúfesti þína sem varað hefur frá kyni til kyns. Þú ert í dag hinn sami og um aldir. Og það er gott að geta treyst því að þú skulir ekki yfirgefa þín elskuðu börn, sem eru þér svo óendanlega dýrmæt. Blessaðu allar minningar okkar jafnt ljúfar sem sárar. Gefðu að þær verði að perlum sem við getum tekið með okk- ur inn í nýja tíma. Dýrmætri reynslu sem við getum lært af og nýtt okkur. Hjálpaðu mér á nýju ári að rækta betur tengslin við þau öll sem ég elska og eru svo mikilvæg í tilveru minni. Blessaðu samskipti okkar og öll þau verkefni sem bíða okkar á nýju ári. Hjálpaðu mér að lifa þannig að það mætti verða þér til dýrðar, samferðafólki mínu til bless- unar og sjálfum mér til heilla. Ég þakka þér að ekkert getur slitið mig úr þínum náðarfaðmi. Gefðu að hvert andartak, æðarslag og fótmál mætti vera í takt við lífið og vilja þinn og hjálpaðu mér að missa aldrei sjónar af til- gangi mínum hér á jörð. Blessaðu framtíð íslensku þjóðarinnar. Gef ráðamönnum hennar visku og vísdóm til að leggja sig fram og leiða okkur upp úr þeim öldudal sem við höfum verið að fara í gegnum að undanförnu. Gefðu að heiðarleiki og heil- indi mætti auðkenna sam- skipti okkar og að okkur mætti auðnast að huga sér- staklega að þeim sem hallar á á einhvern hátt. Veit okkur að standa saman og efl með okkur víðsýni og umburð- arlyndi. Fyrirgefðu mér öll þau fjölmörgu skipti sem ég hef hlaupið á mig, brugðist vit- laust við eða breytt rangt gagnvart samferðafólki mínu, fjölskyldu og vinum. Hjálp- aðu mér að leitast við að gera betur frá degi til dags og lifa í kærleika og sátt við umhverfi mitt og alla menn. Hjálpaðu mér í nútíð og framtíð að leyfa þér að hafa áhrif á framkomu mína og veru alla, skoðanir, viðbrögð og verk. Og gef að áformum mínum muni framgengt verða svo framarlega að þau séu samferðafólki mínu til blessunar og þér til dýrðar. Rammaðu líf mitt inn með kærleika þínum og leyfðu mér að upplifa hann frá degi til dags. Og ég þakka þér fyr- ir að fá að taka þátt í því æv- intýri sem lífið er. Leyfðu mér að njóta þess í þínu ljósi og veit mér til þess æðruleysi og þolinmæði, þolgæði og þrautsegju. Ég bið þig algóði Guð að gefa okkur náðarár. Ár tæki- færa og uppskeru, þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. Hjálpaðu okkur að end- urmeta stöðu okkar og kenndu okkur að meta það sem gott er, hin raunverulegu gildi og gæði lífsins. Hjálpaðu okkur svo að lok- um að dýpka í þér og bera ávöxt. Fella múra öfga, for- dóma og sinnuleysis. Alls þessa leyfi ég mér, í barnslegri einlægni en fátæk- legri trú, að biðja þig, höf- undur, gjafari og fullkomnari lífsins. Í trausti þess að þú munir vel fyrir sjá. Í nafni frelsarans okkar, Jesú Krists. Bæn í tilefni nýs árs Eftir Sig- urbjörn Þorkelsson »Hjálpaðu mér í nútíð og framtíð að leyfa þér að hafa áhrif á framkomu mína og veru alla, skoðanir, viðbrögð og verk. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er rithöfundur. Inga var glaðlynd og hlý og vildi ávallt öllum vel. Gæska hennar og gjafmildi var mikil og minnumst við hennar með mikilli væntumþykju. Inga bjó mesta hluta ævi sinnar í Vesturbænum. Fyrst á Bragagötu, síðan á Víði- Inga Þorkelsdóttir ✝ Inga Þorkels-dóttir hár- greiðslumeistari fæddist 9. október 1943. Hún lést á líknardeild Landa- kots 3. desember 2011. Útför Ingu fór fram í kyrrþey 12. desember 2011. mel, þar sem hún rak hárgreiðslu- stofu á sínum tíma, og loks síðustu árin í fallegu parhúsi sínu á Reynimeln- um. Inga var mjög músíkölsk og spilaði á píanó og orgel eft- ir eyranu og naut hún þess að hlusta á góða tónlist. Við minnumst hennar syngjandi glaðri með hinum ýmsu dægur- lögum hér á árum áður og fannst henni mjög gaman að syngja og dansa, og sótti hún m.a. nám- skeið í þjóðdönsum. Það kemur því ekki á óvart að dætur hennar hafi erft þennan áhuga og hæfi- leika, Fríða sem óperusöngkona og Gréta sem danskennari. Minning Ingu er björt og um- lukin hlýju og væntumþykju. Þótt stundum hafi á móti blásið og erfiðleikar steðjað að munum við hana eins og hún var upp á sitt besta, brosandi og glöð. Það var alltaf notalegt að koma í heimsókn til hennar þar sem hún tók svo vel á móti gestum sínum og reiddi fram kaffi og kræsingar á svipstundu. Að heimsókn lok- inni vorum við oft leyst út með gjöfum og minnumst við hennar sérstaklega þar sem hún stóð í dyragættinni og horfði á eftir okkur og veifaði í kveðjuskyni. Elsku Gréta, Fríða og Jökull, við sendum ykkur innilegar sam- úðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja ykkur á erfiðum tímum. Unnur systir og börn. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar um- ræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til blaðsins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starf- semi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minningargrein“, valinn úr felliglugganum. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti og greinar sem sendar eru á aðra miðla eru ekki birt- ar. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá not- andasvæðið virkt. ✝ Pálína fæddistá Folafæti í Ísafjarðarsýslu 27. júní 1925. Hún lést 19. desember 2011. Foreldrar Pál- ínu voru: Jón Guð- jón Kristján Jóns- son, f. 23. ágúst 1892 á Skarði á Snæfjallaströnd, N- Ís., d. 30. sept. 1943 og Halldóra María Kristjánsdóttir, f. 19. mars 1892 í Laugalandsseli, Nauteyrarhr., N-Ís., d. 19. maí 1944. Systkini Pálínu voru: Hall- fríður Kristín, f. 1920, d. 1985, Bjarney Guðrún, f. 1921, Kristín Guðrún, f. 1928, Halldóra Mar- grét, f. 1930, d. 1965, Hermann, f. 1931, d. 1932, Kristinn Jón, f. 1934, d. 2003 og Höskuldur, f. 1937. Pálína giftist 26. júlí 1946 Guðmundi Sigurðssyni, f. 1916, d. 1980. Börn þeirra eru: 1) Sig- urður Hróar, f. 1947, búsettur í Reykjavík. Hann á þrjú börn. 2) Jón, f. 1949, búsettur á Seyðisfirði. 3) Þór- bergur Austri, f. 1954, búsettur á Nýja-Sjálandi. Hann á þrjú börn. 4) Hermann Vestri, f. 1955, bú- settur í Reykjavík. Hann á tvö börn. 5) Einar Hólm, f. 1961, bú- settur á Seyðisfirði og 6) Sig- urjón Þórir, f. 1965, búsettur á Seyðisfirði. Hann á þrjú börn. Pálína verður jarðsungin frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 30. desember 2011, og hefst athöfn- in kl. 14. Hún Pálína tengdamóðir mín hefur nú kvatt þennan heim. Hún var á margan hátt óvenjuleg kona, svo blíð og góð en þó svo hörð ef henni fannst á lítilmagn- anum brotið. Ég og Svava vin- kona mín komum til Seyðisfjarð- ar sumarið 1976 til að vinna í fiski. Það æxlaðist þannig að við Hermann rugluðum saman reyt- um og ég fór að venja komur mínar í Wathnes-húsið. Ég man enn þegar ég kom fyrst hvað hún Pálína var hlý og yndisleg og hvað hún tók vel á móti mér. Kannski var ég fyrir henni dótt- irin sem hún hafði aldrei eignast enda reyndist hún mér eins og besta mamma. Í Wathnes-húsinu bjuggu Pál- ína og Guðmundur. Oftar en ekki voru heima við fjórir eða fimm synir þeirra og í eldhúsinu var Pálína og veitti stöðugt eins og hún ætti nægtaborð sem aldrei þryti. Eldhúsborðið var stórt en samt var þar yfirleitt þétt setið. Í kaffitímum mættu flestir bræð- urnir með vini sína og við komum oft úr frystihúsinu tvær til þrjár og við borðsendann sat Guð- mundur og var hrókur alls fagn- aðar. Þarna voru iðulega 8 til 10 manns og stundum fleiri. Þau voru svo félagslynd hjónin og nutu þess að fá fólk í heimsókn. Mér fannst alltaf og finnst enn í dag ótrúlegt afrek hjá ykkur að ala upp sex syni sem hver um sig taldi að hann væri nafli alheims- ins. Drengirnir voru talsvert fyr- irferðarmiklir og stríðnir, en allt- af tókstu minn málstað. Á nægtaborðinu hjá þér var ævin- lega nógur matur og í minning- unni varstu yfirleitt að undirbúa eða framreiða mat. Það væri gaman að hafa tölu á öllum þeim kleinum sem þú steiktir eða þá pönnukökunum sem þú bakaðir. Allt hvarf þetta eins og dögg fyr- ir sólu og þú varst ánægðust ef þú gast veitt öðrum. Þú varst ein- stök manneskja svo hjartahlý og gefandi. Alltaf komu aðrir á und- an þér í röðinni. En samt hafðir þú sterkar skoðanir og varst mikil kvenréttindakona og lagðir ríka áherslu á að jafnræði væri með okkur Hermanni og varst alltaf tilbúin að aðstoða og hlusta. Þegar kom að ömmuhlut- verkinu varstu í essinu þínu. Þú varst frábær amma stelpnanna minna, alltaf tilbúin að passa og allt var látið eftir þeim. Ef þær vildu grjónagraut eða pönnukök- ur var það bara útbúið í róleg- heitunum og ef við foreldrarnir settum út á þessa eftirlátssemi, fengum við gjarnan að heyra, hvað –stelpurnar langaði í þetta og þetta var nú það minnsta sem ég gat gert. Ég sakna dillandi hlátursins og það gera eflaust fleiri. Þú hafðir þennan smitandi hlátur svo að allir hlógu ósjálfrátt með, enda varstu í fámennum hópi þeirra sem oft var boðið á sýn- ingar hjá leikfélaginu svo áhorf- endur gætu gleymt sér og hlegið með þér. Svo hafðir þú líka tíma til að stunda vinnu á sjúkrahús- inu, vera í kvenfélaginu og syngja í samkórnum Bjarma og svo varstu mörg ár í kirkjukórn- um. Pálína, þú varst stórbrotin kona. Við vissum öll hvert stefndi undir lokin, en samt er það svo óvænt, svo sárt. Ég veit að þú ert nú hjá himnaföðurnum og líður vel, því loksins eftir 31 ár hittirðu Guðmund aftur og þið sláið upp veislu og bjóðið öllum að nægta- borðinu ykkar. Þórhildur Elfarsdóttir. Elsku hjartans amma okkar, það er erfitt að kveðja þig. Við söknum þín svo mikið og þú átt sérstakan stað í hjarta okkar. Þú hefur alltaf verið til staðar og gefið þér tíma fyrir okkur. Við komum ósjaldan í heim- sókn til þín á spítalann þegar þú vannst þar í eldhúsinu. Við feng- um að fara með þér með mat- arvagninn upp á deild til gamla fólksins. Þú sagðir að það gleddi gamla fólkið að sjá ungt fólk. Þú hvattir okkur áfram, að sækja okkur menntun. Þú trúðir því að nú væri tækifæri fyrir ung- ar konur, tækifæri sem þú fékkst ekki, svo sem að velja þér mennt- un og starf eftir áhugasviði. Þú varst vel lesin og vel að þér í sam- félagsmálum, og þótt að við vær- um börn varstu alltaf tilbúin að ræða þau og önnur fullorðins málefni við okkur ef við sýndum því áhuga. Okkur fannst auðvitað að þú tækir mikið mark á okkur! Yfirleitt fóru þessar umræður fram við eldhúsborðið hjá þér. Við ræddum um lífið og tilveruna og stundum dauðann líka. Það var ekkert sem þú varst ekki tilbúin að spá í með okkur. Oft var gripið í spil. Þegar okkur langaði að spila var spilað aftur og aftur; kasínu, kvikk, veiðimann og þjóf. Það vildi svo skringilega til að við unnum í langflestum tilvikum. Stundum stóðum við yfir pottunum með þér á meðan þú varst að elda bara af því það var svo gott að vera í kringum þig. Það var helst í kringum uppvaskið sem við átt- um það til að láta okkur hverfa, en þú pirraðir þig ekkert á því. Oft þurftir þú að elda marga rétti þar sem við höfðum sitt hvora skoðunina á því hvað ætti að vera í matinn. Við þrættum til dæmis oft um hvor væri betri; makkarónugrautur eða hrís- grjónagrautur. Enginn gerði betri grauta en þú, amma. Ekki má heldur gleyma pönnukökunum, þær voru alveg dásamlegar, enda var vinsælt að fá að koma með okkur í heimsókn til þín. Uppi í skáp voru til súkku- laðidropar og í frystinum ísblóm. Þú mættir á allar samkomur sem við buðum þér á og við viss- um hvar þú varst í salnum því einstaki hláturinn þinn hljómaði í gegn: tíhíhíhí. Eins varstu alltaf til í ævintýri með okkur, ófáar fjallgöngur voru farnar upp brekkuna hjá Wathnes-húsinu, þar settumst við með nesti við lækinn og létum okkur dreyma. Elsku amma, það var svo nota- legt þegar við systurnar fengum að gista hjá þér. Þú fylltir rúmið af hitapokum til að tryggja að okkur yrði ekki kalt. Síðan fórstu með kvöldbænirnar, sagðir sögur eða fórst með þulur fyrir okkur. Þú kenndir okkur svo margt fal- legt og gott sem við búum að í dag. Þegar börnin okkar skríða upp í faðminn okkar segjum við við þau: „Elsku hjartað hennar mömmu sinnar“, rétt eins og þú sagðir alltaf elsku hjartað hennar ömmu sinnar við okkur. Þú hefur leiðbeint, huggað, glatt og síðast en ekki síst hlustað á okkur og verið okkar besti vin- ur. Það dýrmætasta sem þú gafst okkur var tíminn þinn. Við sökn- um þín sárt en vitum að þú ert komin á góðan stað þar sem ein- hver mun hugsa um þig eins og þú hugsaðir um okkur. Þú varst ekki bara sú besta amma sem hægt er að hugsa sér, heldur sú allra ynd- islegasta manneskja sem við vit- um um. Elfa Hermannsdóttir og Líney Hermannsdóttir. Pálína Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.