Morgunblaðið - 30.12.2011, Síða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
8 5 4
6 3
1
3 8 2
5
2 5 1
6 8 7 3
1 4 5 2
7 2 6 4
6
1 4
9 3
6 1 9 7
9 3 4 7 6 2
7
4 3
6 8 2
8 1 2
2 4
9 6 4
1 7
8
5 3 7 9
1 6
7 4 6
5 2
1 3 2 8
7 6 8 9 3 5 4 1 2
5 1 2 4 6 7 8 9 3
9 4 3 2 1 8 5 7 6
6 8 7 5 9 2 3 4 1
4 3 9 6 8 1 2 5 7
2 5 1 3 7 4 6 8 9
1 7 5 8 2 3 9 6 4
3 9 4 7 5 6 1 2 8
8 2 6 1 4 9 7 3 5
1 5 6 9 3 2 4 7 8
7 4 8 5 1 6 9 3 2
2 9 3 4 8 7 5 1 6
4 3 2 1 9 8 7 6 5
8 7 1 6 5 4 3 2 9
9 6 5 2 7 3 1 8 4
3 1 4 8 2 5 6 9 7
5 2 9 7 6 1 8 4 3
6 8 7 3 4 9 2 5 1
1 9 5 7 6 2 4 8 3
4 3 2 1 8 5 6 7 9
7 6 8 3 4 9 1 5 2
2 5 7 9 1 3 8 6 4
8 1 6 2 7 4 9 3 5
3 4 9 8 5 6 2 1 7
5 7 4 6 2 1 3 9 8
6 2 3 5 9 8 7 4 1
9 8 1 4 3 7 5 2 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 30. desember,
364. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Fyrir margt löngu var Víkverji áskemmtun á Hótel Sögu og
þegar út var komið var útlitið eins
og í gærmorgun. Bíllinn var á kafi í
snjó og auk þess hafði snjó verið rutt
upp að honum við hreinsun Brynj-
ólfsgötu. Víkverji sá fram á að verða
hreinlega úti en þá komu vaskir KR-
ingar til bjargar og hreinlega báru
bílinn út á götuna. Síðan hefur Vík-
verji alltaf keypt KR-flugelda til
styrktar barna- og unglingastarfi fé-
lagsins. Bæjarins besti hefur auk
þess alltaf verið hagstæðastur.
x x x
Gegndarlaus áróður fyrir flug-eldasölu björgunarsveitanna er
ástæða þessarar upprifjunar. Starf
björgunarsveitanna verður aldrei
fullþakkað og sama á við um barna-
og unglingastarf íþróttafélaga lands-
ins. Nánast einu tekjur íþróttafélag-
anna á þessum árstíma eru vegna
flugeldasölu og áður hélt hún þeim
gangandi fram á vor. Hlutur þeirra í
þessari samkeppni hefur samt stöð-
ugt minnkað og má ætla að björg-
unarsveitirnar séu með um 80% söl-
unnar. Þrengt er að íþrótta-
félögunum úr öllum opinberum
áttum og Víkverja fannst það dóm-
greindarleysi þegar ritstjóri Kast-
ljóss Rúv, sem vill láta taka sig al-
varlega, tók þátt í fallhlífarstökki og
sýndi tilburði sína í lofti í fyrrakvöld
til að árétta mikilvægi flugeldasölu
fyrir björgunarsveitirnar.
x x x
Stjórnendur Samherja á Akur-eyri, eins umsvifamesta sjávar-
útvegsfyrirtækis landsins, styðja vel
við bakið á íþróttafélögum nyrðra.
Reksturinn hefur gengið vel og und-
anfarin fjögur ár hefur fyrirtækið
styrkt ýmis samfélagsverkefni á
Eyjafjarðarsvæðinu og einkum
barna- og unglingastarf íþrótta- og
æskulýðsfélaga. Í fyrradag veitti
fyrirtækið 75 milljónir króna til
þessara verkefna, en Víkverji hefur
ekki heyrt af neinum ríkisstarfs-
manni renna sér á skíðum norðan
heiða í tilefni þessa rausnarlega
framtaks.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 svipuð, 4 lófatak,
7 úthlaup, 8 þurrkuð út, 9
kvendýr, 11 dauft ljós, 13
ókeypis, 14 lina, 15 þurrð, 17
skran, 20 óhræsi, 22 losar
allt úr, 23 afturelding, 24 sér
eftir, 25 nam.
Lóðrétt | 1 mánuður, 2 hlíf-
ir, 3 úrræði, 4 útungun, 5
sár, 6 erfiðar, 10 tákn, 12
umdæmi, 13 skip, 15 dramb,
16 snákur, 18 ótti, 19 kjarni,
20 ókyrr, 21 baldin.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hrekkvísi, 8 afber, 9 lævís, 10 píp, 11 skima, 13 afræð,
15 stekk, 18 stæra, 21 agn, 22 stirð, 23 álkan, 24 ástleitni.
Lóðrétt: 2 rebbi, 3 karpa, 4 vilpa, 5 Sævar, 6 haus, 7 ósið, 12
mók, 14 fát, 15 sess, 16 efins, 17 kaðal, 18 snáði, 19 æskan, 20
asni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Grandhrærivélin. N-AV.
Norður
♠G963
♥D
♦ÁK82
♣G1082
Vestur Austur
♠ÁKD ♠107
♥ÁKG ♥65432
♦D1043 ♦G5
♣K43 ♣Á975
Suður
♠8542
♥10987
♦976
♣D6
Suður spilar 2♠.
Hollendingarnir Bas Drijver og Sjo-
ert Brink nota 9-12 punkta léttgrand á
hagstæðum hættum. Skiptingin á
strangt tekið að vera jöfn, en hver
nennir að bíða eftir nákvæmlega réttu
spilunum. Ekki sjóarinn Brink, alla
vega. Hann var í norður og opnaði á
grandi, þrátt fyrir staka ♥D.
A-V voru Chris Willenken og Mich-
ael Rosenberg, liðsmenn bandarísku
sveitarinnar í Sport Accord mótinu.
Willenken passaði og Drijver hóf flótt-
ann með 2♣, hálitaspurningu. Kom þá
til kasta Rosenbergs með kólguna.
Hann doblaði – pass og pass til suðurs.
Drijver redoblaði í flóttaskyni og
Brink galdraði fram frumlegt svar: 2♥
á einspilið! Nú doblaði austur, Brink
SOS-redoblaði, Drijver sagði 2♠ og all-
ir pass! Tveir niður, en hinum megin
unnu Hollendingar 4♥ í A-V.
30. desember 1880
Gengið var á ís úr Reykjavík
út í Engey og Viðey og upp á
Kjalarnes. Þetta var mikill
frostavetur.
30. desember 1887
Bríet Bjarnhéðinsdóttir flutti
fyrirlestur um kjör og réttindi
kvenna. „Þetta er í fyrsta sinn
sem kvenmaður hér á landi
heldur opinberan fyrirlestur,“
sagði í Fjallkonunni. „Munu
fæstir hafa búist við jafn góðri
frammistöðu af sjálfmennt-
uðum kvenmanni,“ sagði í Ísa-
fold.
30. desember 1935
Níu manns fórust er eldur
kom upp á jólatrésskemmtun í
samkomuhúsi ungmenna-
félagsins í Keflavík. Um 190
manns komust út, þar af
nokkrir slasaðir. „Hryllilegur
stórbruni,“ sagði Morgun-
blaðið. Þetta var sagt mesta
manntjón í eldsvoða á síðari
árum.
30. desember 1980
Landflótta Frakka, Patrick
Gervasoni, var vísað úr landi
eftir miklar deilur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Það er nú ekki mikið. Bjóða fólki upp á kaffi og
kökur og kannski rauðvínstár þegar líður á kvöld-
ið,“ segir Anna K. Kristjánsdóttir vélfræðingur
um hvernig hún fagnar sextugsafmæli sínu í dag.
Hún stefnir að því að slappa af með kisum sínum,
nánustu ættingjum, vinum og kunningjum „eða
þeim sem vilja þekkja mig“.
Anna starfar hjá Orkuveitu Reykjavíkur við
stjórnstöð vatns. „Ég er í fríi þessa dagana þótt
það sé allt vitlaust að gera.“ Utan vinnunnar segist
hún á kafi í félagsmálum eins og transmálefnum
en einnig í mannréttindamálum og er virk innan
Íslandsdeildar Amnesty International og hlaupandi upp um öll fjöll á
sumrin. Þegar tími gefst frá vinnu og félagsmálum dettur Anna í bók-
lestur. „Ég er eitthvað farin að letjast í pólitíkinni en bækurnar mínar
eru alltaf klassískar. Ég les aðallega þjóðlegan fróðleik og ættfræði
en er lítið að lesa skáldsögur.“
Anna skreppur líka af og til á sjóinn, til að viðhalda þekkingu, og
fer þá aðallega á millilandaskip. „Það liggur við að maður sé farinn að
bíða eftir að fara á eftirlaun til að geta sinnt öllum áhugamálunum,
þótt vinnan sé reyndar áhugamál út af fyrir sig.“ sigrunrosa@mbl.is
Anna K. Kristjánsdóttir vélfræðingur 60 ára
Upp um öll fjöll á sumrin
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
30. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.51 0,9 10.10 3,6 16.26 0,9 22.34 3,4 11.22 15.40
Ísafjörður 5.53 0,5 12.05 1,9 18.34 0,5 12.06 15.05
Siglufjörður 2.25 1,0 8.12 0,3 14.40 1,1 20.48 0,2 11.51 14.46
Djúpivogur 0.54 0,3 7.09 1,8 13.28 0,5 19.24 1,7 11.00 15.00
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Í lífinu er mikilvægt að gæta jafn-
vægis. Allir þurfa ást og allir eru færir um að
gefa hana. Fáðu hlutlausan aðila til aðstoðar
því hann sér málið öðrum augum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Dagurinn í dag er ákjósanlegur til þess
að gera langtímafjárhagsáætlanir. Rétt mat-
aræði, útivist og hreyfing gera kraftaverk.
Verið viss um hvað þið viljið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert með augun opin fyrir ást-
arævintýrum eða spennandi dægrastyttingu.
Leyfið öðrum að njóta með ykkur; það er
miklu skemmtilegra og gleður það vini ykkar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Fólkið sem þú rekst á virðist tala bara
til að geta hlustað á sjálft sig og reynir sífellt
að sýnast betra en náunginn. Reyndu ekki að
leysa vanda allra.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft að berjast fyrir sjálfstæði þínu
bæði heima fyrir og í vinnunni. Settu skoð-
anir þínar fram með greinargóðum hætti.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Sýndu sérstaka varúð í umferðinni,
hvort sem þú ert á bíl, gengur eða hjólar.
Sambandið er á hreinu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert að breyta um lífsstíl. Treystu
innsæi þínu en hafðu jafnframt í huga að vin-
ur þinn vill vel.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Óvæntur gestur veitir þér nýja
sýn á mál sem þú hefur lengi verið að glíma
við. Vertu fyrri til að rétta fram sáttahönd, því
sjaldan veldur einn þá tveir deila.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú veist hvað er best fyrir þig og
þar af leiðandi hvað er best fyrir aðra – þó að
þeir komi kannski ekki auga á það. Láttu
óþolinmæðina ekki ná tökum á þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þótt þér mistakist eitthvað einu
sinni, er ekki þar með sagt að þú getir ekki
reynt aftur síðar. Kepptu við sjálfa/n þig og
þú munt nýta alla þína hæfileika.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú finnur að öllum líkindum til
árásargirni í dag. Vertu raunsæ/r og sann-
gjarn/gjörn um leið svo allt fari vel.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ekki er allt gull sem glóir og þú græðir
á því að skoða hlutina. Hver segir að maður
megi ekki gera ekki neitt í einhvern tíma?
Stjörnuspá
Björn H. Karls-
son, bóndi Smá-
hömrum, verður
áttræður í dag,
30. desember.
Hann verður
ekki heima á af-
mælisdaginn.
80 ára
1. c4 g6 2. g3 Bg7 3. Bg2 c5 4. Rc3 Rc6 5.
Rf3 e5 6. a3 Rge7 7. 0-0 d6 8. b4 0-0 9.
bxc5 dxc5 10. Bb2 Be6 11. d3 h6 12. Re1
Dd7 13. Rc2 Had8 14. Re3 b6 15. Red5
Rd4 16. e3 Rdf5 17. a4 Rd6 18. De2
Hfe8 19. Hfe1 Rc6 20. Kh1 Bg4 21. Df1
e4
Staðan kom upp í 1. deild fyrri hluta
Íslandsmóts skákfélaga sem fór fram í
Rimaskóla sl. haust. Hjörvar Steinn
Grétarsson (2.442) hafði hvítt gegn
danska alþjóðlega meistaranum Nikolaj
Mikkelsen (2.384). 22. Rxe4! Rxe4 23.
Bxg7 Rd2 24. Bc3! Rxf1 25. Rf6+ Kf8
26. Rxd7+ Bxd7 27. Hxf1 Re5 28. Bxe5!
Hxe5 29. Ha3 hvítur er nú sælu peði yfir
í endatafli. 29. … He6 30. Hb1 Bc6 31.
Hbb3 Bxg2+ 32. Kxg2 h5 33. a5 Kg7
34. h4 Hdd6 35. Kf3 Kf6 36. axb6 Hxb6
37. Hxb6 axb6 38. Ha7 og hvítur inn-
byrti vinninginn nokkru síðar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.