Morgunblaðið - 30.12.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2011
ESB sendi búrókrata með hrað-pósti til Ítalíu og Grikklands
þegar lýðræðislega kjörnir leiðtog-
ar voru settir af. Endingartími
þeirra virðist þó stuttur eins og
Evrópuvaktin bendir á:
Ný ríkisstjórn íGrikklandi
hefur misst flugið
að mati Der Spiegel.
Hún stendur ekki
við gefin loforð, hef-
ur misst tiltrú al-
mennings og sund-
urlyndi einkennir
samskipti ráðherra.
Til marks um þetta
segir Spiegel, að
Grikkir hafi þurft
að ná samkomulagi
við lánardrottna
sína um 50% af-
skriftir af skuldum Grikkja fyrir
áramót en fyrirsjáanlegt sé að það
takist ekki.
Vaxtastigið veldur ágreiningi.Grikkir hafa skuldbundið
sig til að selja ríkiseignir fyrir 50
milljarða evra fyrir árið 2015 en til
þessa hafa þeir selt fyrir 1,7 millj-
arða evra. Skýringin er sú, að
stjórnvöld segjast fyrst þurfa að ná
samkomulagi um afskriftir við lán-
ardrottna.
Loforð um uppsagnir 30 þúsundopinberra starfsmanna eru
eitt allsherjar „fíaskó“. Búið er að
segja upp 1.000 opinberum starfs-
mönnum. Loforð um að skera líf-
eyri niður um 15-40% hafa ekki ver-
ið framkvæmd.
Stuðningur við ríkisstjórnina hef-ur hrapað úr 48% í 26%.
Vantrú á Papademos forsætisráð-
herra hefur aukist úr 38% í 65%.“
Og á Ítalíu gengur búrókrata-veldið ekki mikið betur, ef
marka má síðasta útboð rík-
isskuldabréfa þar.
Papademos
Búrókratar að bila?
STAKSTEINAR
Mario Monti
Veður víða um heim 29.12., kl. 18.00
Reykjavík -3 skýjað
Bolungarvík -3 skýjað
Akureyri -4 alskýjað
Kirkjubæjarkl. -2 skýjað
Vestmannaeyjar -1 snjókoma
Nuuk -12 snjókoma
Þórshöfn -1 skýjað
Ósló 1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 léttskýjað
Stokkhólmur 5 skúrir
Helsinki 5 skýjað
Lúxemborg 3 skúrir
Brussel 7 skýjað
Dublin 7 skýjað
Glasgow 5 skúrir
London 10 skýjað
París 6 skýjað
Amsterdam 7 skýjað
Hamborg 5 skúrir
Berlín 6 skýjað
Vín 5 skýjað
Moskva -2 skýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 11 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 11 skýjað
Aþena 8 léttskýjað
Winnipeg -7 þoka
Montreal -17 léttskýjað
New York -3 heiðskírt
Chicago 2 léttskýjað
Orlando 12 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:22 15:40
ÍSAFJÖRÐUR 12:06 15:05
SIGLUFJÖRÐUR 11:51 14:46
DJÚPIVOGUR 11:00 15:00
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Nokkuð hefur dregið úr fjölda fæð-
inga á landinu í ár eftir stóra ár-
ganga síðustu ár en Morgunblaðið
kannaði stöðuna á nokkrum
fæðingardeildum á landinu í gær,
þremur dögum fyrir áramót.
Búið var að skrá 4.333 fæðingar á
hádegi að sögn Guðrúnar Garð-
arsdóttur, ritara hjá Landsskrá
fæðinga. Fæðingum hefur vænt-
anlega eitthvað fjölgað síðan í gær,
auk þess sem inni í tölunni eru ein-
hverjir fleirburar. Alls fæddust
4.907 börn á síðasta ári skv. Hag-
stofu Íslands.
Færri börn fæðast í Reykjavík
Það sem af er árinu eru fæðingar
á fæðingardeildum Landspítalans,
Hreiðrinu, fæðingargangi og með-
göngu- og sængurlegudeild, 3.225
en fæðst hafa fleiri börn en þessi
tala gefur til kynna þar sem inni í
henni eru um 50 tvíburar. Í fyrra
voru fæðingarnar 3.420 og inni í
þeirri tölu 62 tvíburar að sögn Guð-
rúnar Eggertsdóttur, yfirljósmóður
á Landspítalanum.
Verulega hefur dregið úr fjölda
fæðinga á Akureyri frá árinu 2010.
Það sem af er ári hefur 391 kona
fætt þar, þar af eru fjórar tvíbura-
fæðingar og því alls fædd 395 börn á
Akureyri í ár. Á sama tíma í fyrra
voru 511 fæðingar og urðu alls 515
að sögn Ingibjargar Jónsdóttur,
yfirljósmóður á Sjúkrahúsinu á
Akureyri. Að meðaltali hafi fæðst
um 430 börn á Akureyri síðustu 20
árin og árið í ár verði því undir með-
altalinu. Hún segir ekki óeðlilegt að
aftur dragi úr fæðingum eftir svo
stór ár sem 2009 og 2010 voru og
þetta komi þeim því ekki á óvart.
Væntanleg nýársbörn?
Fæðingum hefur einnig fækkað á
Akranesi eftir metár í fyrra þegar
fæðingar voru 360. Í ár stefnir í að
þar fæði 300 konur en skráðar fæð-
ingar eru 299, þar af þrjár tvíbura-
fæðingar, og tvö til þrjú börn eru á
leið í heiminn næstu daga.
Í Neskaupstað hefur fæðingum
fækkað nokkuð frá fyrra ári. Þá
fæddust 87 börn en nú við lok árs
hafa fæðst 63 börn. Engir fleirburar
fæddust þar á tímabilinu.
Á Ísafirði fjölgar lítið eitt. Þar
hafa 59 börn fæðst í ár en eitt eða
tvö gætu bæst við í lok árs. Í fyrra
fæddust þar 55 börn.
Alltaf er eitthvað um heimafæð-
ingar og í ár er búið að skrá um 93
yfir landið en í fyrra voru þær 83.
Færri börn fæðast í ár eftir
aukningu á undanförnum árum
Heimafæðingum fjölgar milli ára og þegar eru skráðar 93 á landinu öllu
Morgunblaðið/Kristinn
Nýfædd Íslendingum fjölgar ekki eins hratt í ár og síðustu ár.
Andri Karl
andri@mbl.is
Heildarvelta í viðskiptum með
kreditkortum frá Visa jókst í októ-
ber, nóvember og desember þessa
árs ef miðað er við sömu mánuði í
fyrra. Mest var aukningin í október
og það í öllum flokkum. Bendir það
til að jólaverslunin hafi hafist óvenju
snemma þetta ár.
Valitor birti í gær svonefnda Val-
itor-vísitölu sem sýnir þróun kredit-
kortaviðskipta undanfarna mánuði.
Margt athyglisvert má sjá úr þeim
tölum, ekki síst þegar veltan er bor-
in saman við sömu mánuði í fyrra.
Þannig má sjá, að notkun ís-
lenskra Visa-kreditkorta erlendis
var 20,7% meiri í október á þessu ári
en því síðasta og 13,8% meiri í nóv-
ember á þessu ári en sama mánuði í
fyrra.
Lítið keypt í desember
Þegar aðeins er skoðuð velta í
matvöruverslunum og stórversl-
unum sést bersýnilega að Íslend-
ingar voru tímanlega á ferðinni þeg-
ar kom að innkaupum fyrir jól. Ef
bornir eru saman október í ár og í
fyrra má sjá að 23,1% aukning var á
veltunni milli ára. Í nóvember nam
aukningin tæpum tólf prósentum en
dróst hins vegar saman um heil
17,4% í desembermánuði.
Svipuð þróun var þegar litið er til
matvöru, eldsneytis og áfengis en
aukningin í október milli ára nam
22,4%, í nóvember 12,5% en veltan
dróst saman um rúm átta prósent í
desember. Þetta er ekki síst athygl-
isvert þegar litið er til þess að velta í
áfengisverslunum jókst um tæp átta
prósent milli desembermánaða, og
um rúm fjögur prósent á sölustöðum
eldsneytis.
Samdráttur í desember
Þegar litið er til heildarveltu
Visa-kreditkorta innanlands má sjá
að hún jókst um 17,2% milli október
sl. og á síðasta ári, um 8,7% í nóv-
ember en 3,9% milli desember í ár
og fyrra. Þá er miðað við tímabilið
frá 22. hvers mánaðar til 21. næsta
mánaðar. Þegar hins vegar er skoð-
að tímabilið 1.-24. desember má sjá
að 4,5% samdráttur varð milli ársins
í ár og fyrra.
Jólaverslunin hófst óvenju snemma
Töluverð aukning í veltu íslenskra
kreditkorta utanlands síðustu mánuði