Morgunblaðið - 18.01.2012, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2012
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Matvæla- og
veitingafélag Íslands
MATVÍS auglýsir almennan félagsfund
miðvikudaginn 18. janúar kl. 15.30 á
Stórhöfða 31, gengið inn Grafarvogsmegin.
Málefni fundarins eru:
1. Forsendur kjarasamninga 2012.
2. Tilraunaverkefni í ferðaþjónustu.
3. Önnur mál.
Til leigu
Til leigu
Íbúðarhúsið á Hofi í Vopnafirði ásamt lóð er
til leigu frá 1. febrúar 2012.Til greina kemur
að leigja einnig jarðarafnot þ.e. útihús, tún
og beitarhaga.
Hof er staðsett um 17 km frá Vopnafirði.
Húsið er 280 fm að stærð á þremur hæðum
og er í mjög góðu ásigkomulagi og með
stórum sólpalli. Ræktað land er um 14 ha
skv. skráningu í fasteignaskrá. Á jörðinni er
góð hlaða, 141 fm að stærð. Girðingar eru í
allgóðu ástandi. Jörðin hentar vel fyrir hesta-
menn, fjárbændur og annan minni búskap.
Jörðin er ekki leigð til ábúðar eins og hún er
skilgreind í ábúðarlögum nr. 80/2004.
Nánari upplýsingar um húseignina og
jörðina má nálgast á Biskupsstofu í síma
528 4000 eða hjá Stefáni Má Gunnlaugssyni
í síma 867 3396.
Skriflegum tilboðum skal skilað til kirkju-
málasjóðs, Biskupsstofu, Laugavegi 31, 150
Reykjavík eigi síðar en 31. janúar 2012. Senda
má tilboð á netfangið kirkjan@kirkjan.is.
Félagslíf
I.O.O.F.7.19218017 E.I*
HELGAFELL 6012011819 VI
GLITNIR 6012011819 I
I.O.O.F. 919201188 E.I.*
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20:00
Hús Guðs verður að hreinsa
Ræðumaður: Bjarni Gíslason.
Annað efni: Karl Jónas Gíslason.
Allir hjartanlega velkomnir.
Föndurkvöld kristniboðsf.
kvenna fimmtudag kl. 20.
Smáauglýsingar 569 1100
Ferðalög
Costa Brava - Playa de Aro
Gullna ströndin, fyrir fjölskylduna í
sumarleyfið.
starplus.is og starplus.info
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu íbúð
með gistiaðstöðu fyrir 6-7 manns.
Fullbúin íbúð, gott verð.
Upplýsingar í síma 690-4899.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Óska eftir
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og
endurvinnslu.
Fannar verðlaunagripir, Smiðju-
vegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - s. 551 6488.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ
Teg. 100161 - léttfylltur og sérlega
mjúkur á kr. 2.500, buxur í stíl á kr.
1.000.
Teg. 9065 - léttfylltur og flottur í B C
skálum á kr. 2.500, buxur í stíl á
kr. 1.000.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18.
Þú mætir - við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
FLOTTIR OG
FRÁBÆRIR
Teg. 8115 - Léttfylltur og flottur í B C
skálum á kr. 4.600, buxur í stíl á kr.
1.995.
Teg. 59100 - Léttfylltur og mjúkur í
B C skálum á kr. 4.600, buxur í stíl á
kr. 1.995.
Teg. 6581 - Þunnur og haldgóður í
C D E skálum á kr. 4.600, buxur í stíl
á kr. 1.995.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18.
Þú mætir - við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Teg. 38122
Vandaðir dömuökklaskór úr leðri og
fóðraðir. Litur: Svart. Stærðir: 36-40.
Verð: 18.900.
Teg. 1219
Flott lág stígvél úr leðri fyrir dömur.
Fóðruð og með góðan sóla .
Litir: Svart og brúnt. Stærðir: 37-40.
Verð: 17.950.
Teg. 7442
Vandaðir ökklaskór úr leðri fyrir
dömur. Fóðraðir og með góðan sóla.
Litur: beige. Stærðir: 37-40.
Verð: 18.600.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bátar
Til sölu sportbátur Skilsø Arctic
Skilsø Arctic árgerð 2006. Fullkomin
siglingatæki, eldavél, 2 ísskápar,
svefnpláss fyrir 4-6. Vél Volvo Penta
310 hö., keyrð 400 klst. 4 manna
björgunarbátur og margt fleira. Verð
25 millj. Upplýsingar í síma 821 8428.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '11.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Auris '11.
8637493/5572493.
mbl.is
Í dag er til moldar borin
elskuleg vinkona okkar Sigur-
veig Sigvaldadóttir eftir hetju-
lega baráttu við illvígan sjúk-
dóm. Lífið er oft á tíðum svo
óútreiknanlegt og ósanngjarnt.
Hvers vegna eru allar þessar
byrðar lagðar á sama fólkið? Það
eru ekki nema nokkrir mánuðir
Sigurveig María
Sigvaldadóttir
✝ SigurveigMaría Sig-
valdadóttir fæddist
á Svalbarðsseli í
Þistilfirði hinn 17.
apríl 1942. Hún lést
hinn 8. janúar síð-
astliðinn.
Útför Sig-
urveigar Maríu fór
fram frá Akureyr-
arkirkju 16. janúar
2012.
síðan Veiga eins og
hún alltaf var kölluð
missti manninn sinn
Sigfús úr sama
sjúkdómi, og þá
eins og ævinlega
stóð hún eins og
klettur og ætlaði
svo sannarlega að
hafa sigur í sinni þá
þegar erfiðu bar-
áttu. Það var ekki
stíllinn hennar
Veigu að gefast upp þrátt fyrir
allt mótlætið, en nú er hvíldin
komin. Við sem eftir sitjum get-
um þó glaðst yfir ljúfum minn-
ingum um góða konu sem gott
var að eiga að.
Vinátta okkar hófst þegar
börnin okkar Hanna Lára og
Halldór fóru að vera saman og
það bar aldrei skugga á þá vin-
áttu. Við höfum fagnað saman
litlu gullmolunum okkar þremur,
sem nú sjá á eftir ömmu sinni og
eru nýbúin að kveðja afa Fúsa.
Þau Veiga og Fúsi voru um
margt ólík en samhent um allt
sem sneri að fjölskyldunni og
ekki síst barnabörnunum sem nú
hafa á skömmum tíma misst
mikið, en eiga góðar minningar
um ástríki og umhyggju ömmu
sinnar og afa.
Veiga var mikil atorkukona og
handavinnan hennar einstök,
myndarskapurinn leyndi sér
ekki hvort sem hún saumaði eða
prjónaði, um það vitna allar flík-
urnar sem hún sendi frá sér.
Ekki var handbragðið síðra á
listmunum úr öðrum efnum,
könnur, skálar og ýmis glerverk
bera vandvirkni hennar og hag-
leik fagurt vitni.
Veiga og Fúsi ferðuðust mikið
um landið og nutu landsins og
ferðirnar eru ófáar sem farnar
voru á þeirra frábæru bílum og
núna seinast í „Stássinu“. Síð-
ustu árin voru heilu sumrin lögð
undir ferðir um landið og alltaf
voru þau í hópi góðra vina. Þessi
smitandi áhugi á þeirra á hús-
bílaferðum um landið varð til
þess að við Ásta létum tilleiðast
og festum líka kaup á húsbíl og
þegar þar að kom var ekki betri
ráðgjafa að finna en þau heið-
urshjón.
Þetta hefur verið erfiður tími
fyrir syni þeirra og fjölskyldur,
mikill missir á stuttum tíma og
erfitt að ganga í gegnum mikil
veikindi og allt sem þeim fylgir á
svona stuttum tíma. Til þeirra
allra sendum við okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Hér skilur leiðir, en minningin
um góða og dugmikla konu lifir.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði er frá.
(Vald. Briem)
Með þessum orðum kveðjum
við Sigurveigu Sigvaldadóttur og
biðjum henni blessunar.
Ásgeir og Ásta.
Við kynnumst
Kollu árið 2003 þegar
hún tók að sér að
gæta Antoníu Huldar sem þá var
þriggja mánaða gömul. Kolla átti
engan sinn líka og reyndist hún
fjölskyldunni okkar afar vel og er-
um við þakklát fyrir það. Þegar
við kynntumst Kollu var hún kom-
in á eftirlaunaaldur en vildi gjarn-
an gera áfram gagn sem hún
sannarlega gerði. Hún taldi ekki
eftir sér ýmis húsverk og hefur
Kolbrún
Magnúsdóttir
✝ Kolbrún Magn-úsdóttir fæddist
á Akureyri 5. sept-
ember 1936. Hún lést
28. desember 2011.
Útför Kolbrúnar
fór fram frá Ak-
ureyrarkirkju 9. jan-
úar 2012.
fatnaður fjölskyldunn-
ar aldrei verið jafn vel
straujaður og þennan
vetur. Kolla var af-
skaplega nýtin kona,
vildi engum skulda
neitt og lítið þiggja. At-
hugul var hún og
kenndi Antoníu að taka
eftir ýmsum litlum at-
riðum í umhverfinu.
Þolinmæði hennar virt-
ist oft takmarkalaus og
gat hún staðið með Antoníu í
glugganum og horft út eða hlustað
eftir fuglahljóðum tímunum sam-
an. Kolla gerði líf okkar ríkara og
erum við þakklát fyrir að hafa
kynnst þessari einstöku konu.
Fjölskyldu Kollu færum við
innilegar samúðarkveðjur.
Hildur Ösp, Ketill
og Antonía Huld.