Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 9. J A N Ú A R 2 0 1 2  Stofnað 1913  15. tölublað  100. árgangur  2 MÍNÓTUR LÝSA HVALVEIÐUM FÆREYINGA ENN ÁST- FANGIN AF ÍSLANDI LÍFSNAUÐSYN AÐ HITTAST OG SPILA SAMAN VIÐSKIPTABLAÐ OG FINNUR.IS HLJÓMSVEITIN BLÚSBROT 10LJÓSMYNDASÝNING 32 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Sameiningarmálin hafa verið eitt klúður frá upphafi. Ef menn ætla að ná árangri í þessu verður að vinna náið með foreldrum og starfsmönn- um skólanna,“ segir Kjartan Magn- ússon borgarfulltrúi sem lagði fram fyrirspurn á fundi skóla- og frí- stundaráðs í gær til fulltrúa Besta flokksins og Samfylkingarinnar. Spurði hann hvernig standa ætti að upplýsingagjöf og samráði við foreldra og starfsmenn grunnskól- anna í Reykjavík vegna yfirstand- andi breytinga á skólahaldi, fyrst meirihlutinn treysti sér ekki til þess að eiga beint samráð við þessa hópa. Vísaði Kjartan þar m.a. til þess að Oddný Sturludóttir, formað- ur skóla- og frístundaráðs, neitaði boði foreldra í Hamrahverfi um að koma á opinn fund í næstu viku vegna sameiningar unglingastigs í Hamra- og Húsaskóla við Folda- skóla. Bendir Kjartan einnig á að sjálf- stæðismenn hafi í desember sl. lagt fram tillögu um að halda opinn fund í skóla- og frístundaráði um breyt- ingar á skólahaldi. Sú tillaga hefði verið felld. Valkostur framlengdur Vegna yfirvofandi sameiningar fór svo gott sem heill árgangur úr Hvassaleitisskóla í 8. bekk í Rétt- arholtsskóla í haust, frekar en að fara í Álftamýrarskóla. Nemendur úr Hvassaleitisskóla áttu, samkvæmt sameiningartillögu frá Reykjavíkurborg, að hafa val á milli Álftamýrarskóla og Réttar- holtsskóla. Þetta átti að skerða nið- ur í eitt ár en vegna athugasemda foreldra fékkst það tímabil fram- lengt í þrjú ár og fyrirkomulagið endurskoðað eftir það. „Þó að fólk sé að reyna að taka þessu á sem jákvæðastan hátt og gera skólann sem bestan úr því sem komið er, þá er ennþá undirliggj- andi óánægja,“ segir Birgitta Ás- grímsdóttir, formaður foreldra- félagsins í Hvassaleitisskóla. »6 Sameining klúður frá upphafi  Enn undirliggjandi óánægja, segir formaður foreldrafélags í Hvassaleitisskóla Íslendingar lögðu Norðmenn að velli, 34:32, á Evrópumótinu í handknatt- leik í gærkvöld, eftir að hafa verið undir stóran hluta leiksins. Aron Pálm- arsson og Arnór Atlason höfðu ástæðu til að fagna innilega í leikslok en Ís- land er með tvö stig eftir tvo leiki og mætir Slóveníu á morgun. » Íþróttir Sætur sigur á Noregi Reuters Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Menn eru hundfúlir yfir þessari óvirðingu sem stjórnvöld sýna okk- ur, að skrifa upp á yfirlýsingu og standa svo ekki við hana. Okkur finnst þetta raunveruleg svik,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands. Þungt hljóð var í formönnum sam- bandsins á löngum fundi í gær og lýstu þeir í ályktun miklum von- brigðum með vanefndir ríkisstjórn- arinnar á loforðum sem gefin voru við undirritun kjarasamninga. Björn segir ljóst að verkalýðs- hreyfingin geti ekki treyst stjórn- völdum. „Við semjum við oddvita ríkisstjórnarinnar en svo láta ráð- herrar yfir ákveðnum málaflokkum eins og það hafi ekkert verið talað við þá og þá þurfi þeir ekki að standa við það sem samið var um. Þetta er bara stjórnleysi.“ Endurskoðun kjarasamninga á að vera lokið 20. janúar og hafa þrjú af aðildarfélögum SGS lýst því yfir að þau vilji að kjarasamningum verði sagt upp. Samninganefnd Flóafélag- anna; Eflingar, Hlífar og VSFK samþykkti hinsvegar á fundi í gær- kvöld einróma ályktun þar sem veitt var umboð til framlengingar kjara- samninga. Á fundinum voru stjórnvöld engu að síður gagnrýnd harðlega fyrir að vinna gegn markmiðum samning- anna um stöðugleika og atvinnuupp- byggingu og grafa undan langri hefð fyrir árangursríku samstarfi aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda. „Það vantraust sem stjórnvöldin bera fulla ábyrgð á verður ríkjandi áfram þar til stjórnin stendur að fullu við þau fyrirheit sem gefin voru við síðustu kjarasamninga.“ Dýrmætar kauphækkanir Hjá Einingu-Iðju, sem Björn er formaður fyrir, var einnig kosið með framlengingu kjarasamninga. „Við metum það svo að það sé skárri kost- urinn því 1. febrúar koma dýrmætar kauphækkanir sem fólki munar um. Þrátt fyrir vanefndir ríkisstjórnar- innar hafa atvinnurekendur staðið við það sem við sömdum um.“ Óánægja með svikin loforð stjórnvalda  Vilja samt framlengingu samninga  Atvinnurekendur hafi staðið við sitt  Svo kann að fara að senn verði minnst einn ráð- herrabíll knú- inn rafmagni. Ríkiskaup stóðu fyrir út- boði vegna kaupa á ráðherra- bifreiðum og vinna nú úr til- boðum bílaumboðanna. Sex umboð sendu tilboð og var um- boðið Even hf. meðal þeirra. Rætt er við Gísla Gíslason, stjórn- armann hjá Even, í Morgun- blaðinu í dag og kemur þar fram að rafbíllinn Tesla Model S kosti á bilinu 8 til 12 milljónir króna. Hann telur að endurnýja þurfi 8 til 9 ráðherrabíla á næstu árum og áætlar að kostnaður við hverja bifreiða sé um og yfir tíu milljónir. Endurnýjunin kosti því milljónatugi. »8 Ráðherrum býðst rafknúin drossía  Landhelgisgæslan hefur lagt til að skemmtiferðaskip, sem leggi leið sína til Grænlands og norður að Svalbarða, sigli tvö og tvö saman til þess að auðveldara sé að bregðast við stórslysi. Halldór Nellett, skipherra og framkvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá Landhelgisgæslunni undanfarin ár, bendir á að ekki sé auðvelt að koma yfir 4.000 manns frá borði á skömmum tíma svo langt frá stjórn- stöð í Reykjavík og því þurfi að setja reglur um ferðirnar. »12 Skemmtiferðaskip sigli tvö saman Slys Costa Concordia á hliðinni skammt frá ítölsku eyjunni Giglio. Miðstjórn Samiðnar kemur saman í dag og þar verður tekin sameiginleg ákvörðun um afstöðu til framlengingar kjarasamninga. Formannafundur ASÍ verður einnig haldinn í dag, þar sem félögin hafa samráð sín á milli, en endanleg ákvörðun um endurnýjun kjarasamninga eða uppsögn er í höndum samninganefndar ASÍ og viðsemjendanna í svonefndri for- sendunefnd. Sú ákvörðun þarf að liggja fyrir í síðasta lagi fyrir kl. 16 á föstudaginn þegar endurskoðun kjarasamninga á að vera lokið. Þarf að liggja fyrir á morgun FUNDAÐ VERÐUR ÁFRAM UM KJARASAMNINGA Í DAG –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.