Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Um tuttugu umferðaróhöpp olíu- flutningabíla hafa ratað í fréttirnar síðustu tíu árin og í helmingi tilvika lak olía út í umhverfið. Í engu tilviki virðast hafa orðið alvarleg umhverf- isspjöll. Betur fór en á horfðist í vikunni þegar olíuflutningabíll valt í hálku í Hestfirði við Ísafjarðardjúp. 25 þús- und lítrar af bensíni láku úr tanki bílsins en útlit er fyrir að megnið hafi náðst upp. Áætla má að um áttatíu olíu- flutningabifreiðir séu í rekstri hér á landi, á höfuðborgarsvæðinu og í bæj- um úti um landið. Akstur með elds- neyti á þjóðvegum hefur aukist vegna þess að stærri hluti flutninganna hef- ur færst af sjó upp á land. Í reglugerð um flutning á hættu- legum farmi á landi eru ströng ákvæði um búnað, merkingar og rétt- indi ökumanna. Eru þetta svokall- aðar ADR-reglur sem ættaðar eru frá Evrópusambandinu. Heimildir eru einnig til að tak- marka flutninga á hættulegum efnum um ákveðin svæði. Þannig hefur lög- reglustjórinn í Reykjavík bannað eldsneytisflutninga um Hvalfjarð- argöng á mestu annatímum. Flutn- ingar eru ekki bannaðir um önnur jarðgöng og ekki um þjóðvegi sem liggja nálægt vatnsverndarsvæðum. Strangari vinnureglur Olíudreifing, sem annast birgða- hald og olíudreifingu fyrir N1 og Olís, hefur vinnureglur sem ganga lengra en hinar opinberu reglur. Hörður Gunnarsson forstjóri segir að reynt sé að aka ekki út frá þéttbýlisstöðum á kvöldin og nóttunni og ekkert frá miðnætti til sex á morgnana. Reynsl- an sýni að það sé hættulegasti tími sólarhringsins. Þá hafi verið dregið aðeins úr hraða bílanna, niður fyrir lögleyfðan hámarkshraða. Loks nefnir Hörður að í samvinnu við tryggingafélag Olíudreifingar hafi verið unnið að skráningu á óhöppum til að draga úr óhöppum í framtíðinni. Telur hann að það hafi þegar skilað árangri. Þrátt fyrir allar öryggisreglur verða slys í umferðinni, eins og dæm- ið úr Hestfirði og önnur slík á und- anförnum árum sýna. Í hættumati sem gert var fyrir fá- einum árum segir að gera megi ráð fyrir því að á 50 ára fresti lendi olíu- flutningabíll í umferðaróhappi á Suð- urlandsvegi, innan vatnsvernd- arsvæðanna. Einnig er talið að vænta megi tveggja umferðaróhappa á ári þar sem ökutæki með stóra eldsneyt- isgeyma eigi hlut að máli. Það er alvarlegt mál þegar olíubíll veltur og olía fer að leka. Sprengi- hætta getur skapast og hætta á um- hverfisslysi. Þá þarf gjarnan að loka mikilvægum þjóðvegum um lengri eða skemmri tíma. Fyrstu viðbrögð geta skipt miklu máli. Olíufélögin eru með sérfræðinga til að bregðast við og aðstoða viðbragðsaðila á stöðunum og taka síðan við til að hreinsa upp ol- íu og eftir atvikum mengaðan jarð- veg. Hörður segir að Olíudreifing hafi samvinnu við Umhverfisstofnun og starfsmenn þess séu hluti af við- bragðsteymi stofnunarinnar. Starfs- menn fyrirtækisins fara reglulega á námskeið til að vera betur í stakk búnir til að takast á við verkefnin. Eitt alvarlegt umferðaróhapp á ári Morgunblaðið/Margrét Þóra Hreinsun Um 10 þúsund lítrar af bensíni láku úr olíubíl sem valt út af veg- inum í Ljósavatnsskarði. Mikið verk var að hreinsa upp eftir óhappið. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 Umferðaróhöppin sem olíubílar hafa lent í undanfarin ár eru flest minniháttar. Mörg má rekja til hálku eða slæmra vega. Tvö til þrjú þúsund lítrar af svartolíu láku niður eftir að ol- íubíll valt í lausamöl á Hólma- hálsi við Eskifjörð í október 2008. Í júlí 2006 fór olíubíll út af veginum í Ljósavatnsskarði. Tal- ið var að 10 þúsund lítrar af eldsneyti hefðu lekið úr bílnum. Í ágúst sama ár valt bíll í Jök- ulsárhlíð þegar kantur vegarins gaf sig. Eitthvert eldsneyti lak niður. Sama var upp á teningnum þegar olíubílar ultu út af slæm- um vegarkafla í Bitrufirði á Ströndum með tveggja ára millibili í byrjun síðasta áratug- ar. Vegurinn bar ekki þunga bílanna. Hálka og slæmir vegir OLÍA LAK ÚR BÍLUM Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, segir að það hafi átt sér stað breytingar á skipuriti bæj- arins í fyrra og þær breytingar í raun ekki tekið að fullu gildi, þegar spurt er hvað átt sé við með því að tala um breytingar á stjórnsýslu. Bæjarfulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og Lista Kópavogs- búa, nýfallins meirihluta í Kópavogi, sendu í fyrradag frá sér yfirlýsingu þar sem segir að erfitt hafi reynst fyrir Guðrúnu Pálsdóttur bæjar- stjóra að fylgja eftir breytingum á stjórnsýslu bæjarins og því ljóst að annar einstaklingur þyrfti að taka við því verkefni. Guðríður vill ekki vilja tjá sig um starfslok bæjarstjórans og segir það hafa orðið að samkomulagi bæjar- fulltrúanna að gera það ekki. Aðspurð segir hún innleiðingu á fyrrgreindum breytingum ekki enn lokið. „Það þarf að flytja verkefni á milli starfs- manna og mögu- lega endurskoða kjör og fleira.“ Í sumum tilfell- um þurfi breytt vinnubrögð segir Guðríður og hafnar aðspurð því að frekari uppsagnir á starfsfólki hafi verið fyrirhugaðar. „Þetta lýtur ekki að því. Það standa ekki fyrir dyrum neinar kollsteypur,“ segir Guðríður heldur þurfi að fylgja eftir þeim ákvörðunum sem þegar hafa verið teknar. Það sé auðvitað ekki hægt að útiloka að það geti einhverjar frekari skipulagsbreytingar verið framundan. „En það er ekkert í líkingu við það sem var fyrir ári.“ Hvað myndun nýs meirihluta varðar segir Guðríður enn sem kom- ið er aðeins óformlegar þreifingar í gangi og stöðuna í raun óbreytta. sigrunrosa@mbl.is Þarf eftirfylgni með ákvörðunum Guðríður Arnardóttir  Innleiðingu á breytingum í skipuriti ólokið Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.isár drekans Heilsumeðferð · opnar orkuflæði · slökun · losar um spennu og kvíða · dregur úr verkjum · styrkir líkamann · o.fl. Jafnvægi fyrir líkama og sál Skúli Hansen skulih@mbl.is Fjörugar pallborðsumræður um stefnu stjórnmálaflokkanna í sjávarútvegsmálum fóru fram í Iðnó síðdegis í gær. Umræð- urnar voru liður í árlegum markaðsdegi Ice- land Seafood International og tóku þing- mennirnir, Bjarni Benediktsson, Björn Valur Gíslason, Ólína Þorvarðardóttir og Gunnar Bragi Sveinsson, þátt í þeim. Þór- hallur Gunnarsson fjölmiðlamaður stýrði umræðunum. „Það eru auðvitað rekstrarlegar forsendur sem verður að horfa til í því samhengi og ég held að það sé ágætt að byrja á að velta því fyrir sér hvort 25 ár geti verið nóg en það fer auðvitað eftir því hvernig endurskoð- unarákvæðið spilar saman með lengd nýt- ingarsamningsins,“ sagði Bjarni Benedikts- son, formaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður hversu langan nýtingarsamning hann vildi sjá gerðan. Bjarni gagnrýndi einnig hugmyndir um auðlindasjóð og sagði þær byggðar á misskilningi. Óvissan skaðar greinina mest „Það sem skiptir mestu máli er að við sjáum til framtíðarinnar og það er ekki síð- ur það sem þarf að leysa, óvissan sem er bú- in að vera hérna í mörg ár og er áfram á meðan að menn geta ekki svarað þessum lykilspurningum, hún er að fara að skaða greinina mest og þessi eilífa umræða um að það séu einungis bófar og ræningjar í þess- ari grein, hún er algjörlega óþolandi,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, í umræðunum í gær. Gunn- ar benti jafnframt á að byggðavandamálið yrði ekki leyst með því að láta einstaka bæi eða sveitarfélög fá nokkurra þúsunda tonna kvóta. Að hans sögn þyrfti að styrkja innviði þessara samfélaga og skapa nýtt umhverfi í þeim ef ætlunin væri að fá til baka það unga fólk sem farið hefði suður að læra. „Ef við skoðum í fullri sanngirni þá um- ræðu sem átt hefur sér stað síðustu misseri hefur hún í raun og veru verið þannig að það hefur alltaf verið keyrt á einhvern áróð- ursvegg,“ sagði Ólína Þorvarðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, og ásakaði um leið hagsmunaaðila um að hafa sett sig upp á móti öllum tillögum sem fram hefðu komið í umræðunni og sagði þá hafa misfarið með þau tækifæri sem þeir hefðu fengið til þess að taka þátt í henni. Sameiginlegt átak Eitt af helstu málefnunum sem rædd voru á pallborðsumræðunum var það hvort stjórnvöld ættu að aðstoða við sameiginlegt kynningarátak á sviði sjávarútvegs. Allir þátttakendurnir virtust meira og minna sammála um að slíkt væri eðlilegt en þau lögðu þó öll áherslu á að sjávarútvegsfyr- irtækin yrðu sjálf að hafa frumkvæðið að slíku átáki. „Auðvitað á hið opinbera að taka þátt í markaðssetningu sjávarútvegsins og afurð- anna, en það verður ekki leitt öðruvísi en af sjávarútveginum sjálfum,“ sagði Björn Val- ur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, að- spurður hvort hið opinbera ætti að aðstoða við kynningarátak á íslenskum sjávarútvegi. Þingmenn deildu um sjávarútveg Morgunblaðið/Kristinn Pallborðsumræður Fjörugar umræður mynduðust í Iðnó í gær þegar þingmenn tóku þátt í kappræðum um stefnu flokkanna í sjávarútvegsmálum og svöruðu síðan spurningum úr sal.  Formaður Sjálfstæðisflokksins velti fyrir sér 25 ára nýtingarsamningi  Þingmaður Framsóknar- flokksins sagði óvissuna valda mestu tjóni  Voru öll sammála um markaðs- og kynningarátak

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.