Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 Orð dagsins: Verið því óhræddir, þér eruð meira verðir en margir spörvar. (Mt. 10,31.) Krossgáta Lárétt | 1 peningaupphæð, 4 vextir, 7 írafár, 8 mettar, 9 söngrödd, 11 bragð, 13 fjarski, 14 nói, 15 asi, 17 biblíunafn, 20 bókstafur, 22 púði, 23 gufa, 24 hlaupa, 25 ránfuglinn. Lóðrétt | 1 dýr, 2 hárflóki, 3 tóma, 4 skorið, 5 afkom- andi, 6 ákveð, 10 höndin, 12 þvaður, 13 leyfi, 15 hestur, 16 ávöxtur, 18 búa til, 19 húsdýrið, 20 una, 21 læra. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skynsemin, 8 tólið, 9 gamla, 10 jór, 11 grafa, 13 afrek, 15 pláss, 18 slóði, 21 tík, 22 plagi, 23 álkan, 24 slagharpa. Lóðrétt: 2 kólga, 3 niðja, 4 eigra, 5 ilmur, 6 stag, 7 rask, 12 fis, 14 fól, 15 pípa, 16 áfall, 17 sting, 18 skána, 19 ósköp, 20 inna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 19. janúar 1903 Þýski togarinn Friederich Al- bert strandaði á Skeiðarár- sandi. Áhöfnin komst öll í land en hraktist síðan um sandinn í tvær vikur og þrír menn fórust. Árið eftir var byggt skipbrotsmannaskýli á sandinum, hið fyrsta hér- lendis, að frumkvæði Ditlevs Thomsens ræðismanns. 19. janúar 1942 Sjötíu manna sveit breskra hermanna lenti í hrakningum í fjallgöngu á leið frá Reyðar- firði til Eskifjarðar og urðu átta þeirra úti. 19. janúar 1957 Kristján Eldjárn þjóðminja- vörður varði doktorsritgerð sína um kuml og haugfé í heiðnum sið á Íslandi. 19. janúar 1960 Bókaverslun Sigfúsar Ey- mundssonar við Austurstræti var opnuð í nýju húsnæði. Sigfús hóf sölu bóka árið 1872 og verslunin hafði verið á þessum stað síðan 1920. 19. janúar 1982 Geysir í Haukadal gaus fimmtíu metra gosi eftir að fjörutíu kíló- grömm af sápu höfðu ver- ið sett í hann. „Stórkostleg- asta gos í áratugi,“ sagði Morgunblaðið. 19. janúar 2002 Farþegaþota frá Virgin Atl- antic lenti á Keflavíkurflug- velli með 358 farþega vegna sprengjuhótunar sem rituð var á spegil. Ekkert grun- samlegt fannst. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Ég hef engin sérstök áform um veisluhöld, enda er ég ekki mikil afmælistýpa og hef meira gaman af því að mæta í annarra manna afmæli. Hélt síð- ast upp á daginn er ég var fertugur þannig að það hlýtur að fara að styttast í næstu veislu,“ segir Hilmar Oddsson, kvikmyndaleikstjóri og rektor Kvikmyndaskóla Íslands, sem fagnar 55 ára af- mæli sínu í dag. Hann segir helsta markmiðið núna að ná sér upp úr flensupest undanfarinna daga. Hilmar segist reyna að taka það rólega heima fyrir og ofreyna sig ekki, þó að nóg sé að gera í tengslum við Kvikmyndaskólann. „Við eigum ennþá eftir að tryggja skólanum farsæla framtíð. Enn er mörgum spurningum ósvarað og ég sef ekki rólegur fyrr en ég kem skólanum í höfn til lengri tíma. Við erum með bráðabirgðasamn- ing sem við vonumst til að geti orðið að langtímasamningi. Þetta er barningur og verður eitthvað áfram, en ég er bjartsýnn,“ segir Hilm- ar og bendir á að frábærar viðtökur á mynd Baltasars, Contraband, í Bandaríkjunum sýni hvers íslensk kvikmyndagerð sé megnug. Þetta sýni einnig þörfina á kvikmyndanámi hér á landi, einu helsta list- og tjáningarformi samtímans. bjb@mbl.is Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri 55 ára Styttist í næstu veislu  Ívar Guðmundsson blaðamaður hefði orðið hundrað ára í dag, 19. janúar. Ívar var blaðamað- ur og síðan fréttaritstjóri á Morgunblaðinu í 17 ár. Ívar var einnig upphafsmaður dálksins Víkverja, sem enn lifir góðu lífi í Morgunblaðinu. Ívar starf- aði um árabil hjá Sameinuðu þjóðunum og var ræðismaður Íslands í New York eftir að hann sett- ist í helgan stein. Hann lést 2. júní 1996. „Blaðamennskan var mín fyrsta ást og sú ást hefur aldrei dvínað,“ skrifaði Ívar í grein, sem birtist á 70 ára afmæli Morgunblaðsins 2. nóv- ember 1983. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Mikið er fengið með viðræðum við fjölskylduna. Byggðu þig upp fyrir framtíð- ina. Þú átt allt gott skilið. (20. apríl - 20. maí)  Naut Stjörnurnar munu varpa skini sínu á gersemar lífs þíns – fólkið sem þín vegna leggur lykkju á leið sína. Leitaðu ráða þér eldri og reyndari og þá áttu auðveldara með að taka af skarið. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Hindranir dagsins í dag eru ímynd- aðar eða að minnsta kosti miklu auðveldari viðureignar en þú hefðir haldið. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Ef þú gengur ekki fram fyrir skjöldu og tekur af skarið munu hlutirnir danka áfram uns allt er orðið um seinan. Gerðu vini tilboð sem hann getur ekki hafnað. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú leiðist inn í furðulegar aðstæður. Ef vinnan gerir þig leiðinlega/n er eitthvað að og þú ættir að skipta um starfsvettvang. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú átt auðvelt með að nálgast fólk. Mörg vandamál munu hverfa ef þú einbeitir þér að því sem er satt og rétt í stöðunni. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er svo sem ekkert skemmtilegt að verða að skipuleggja alla hluti út í æsar. Ekk- ert virðist þér ofviða og þú hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þið eigið að láta einskis ófreist- að til þess að skipuleggja betur tíma ykkar, því eins og er stefnir allt í óefni. Sýndu skiln- ing á kvíða annarra. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Samskipti við ástvini eru eilítið stirð í dag og tjáskipti dálítið þvinguð. Aðrir sjá að þú hittir naglann á höfuðið. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er nú svo komið að ákvarð- anir um smæstu hluti vefjast fyrir þér. Ef eitthvað veldur þér áhyggjum talaðu þá um það. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Eins og það er gott, þegar menn hjálpast að, getur það stundum orðið til traf- ala, þegar of margir koma að verki. Notaðu tækifærið og farðu í ræktina. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Að gera alltaf það sama og búast við nýjum niðurstöðum er ein hlið á geðveiki. Eitthvað óvænt og örvandi mun gera daginn ánægjulegan. Stjörnuspá Sudoku Frumstig 5 2 9 4 8 1 9 5 3 1 2 7 8 3 9 2 1 9 7 1 9 5 8 7 3 9 1 6 5 6 4 2 6 1 8 5 9 3 1 6 5 9 4 4 8 1 5 1 2 3 5 7 8 3 3 6 2 5 2 8 7 5 1 6 4 2 9 7 1 8 3 9 2 5 6 1 9 2 7 8 1 5 4 6 3 6 8 1 3 4 9 5 7 2 4 5 3 7 6 2 8 9 1 7 6 2 5 9 1 3 8 4 1 9 5 4 3 8 6 2 7 8 3 4 2 7 6 1 5 9 3 4 9 6 5 7 2 1 8 2 7 6 1 8 3 9 4 5 5 1 8 9 2 4 7 3 6 2 5 6 7 9 8 1 4 3 8 7 1 4 5 3 9 2 6 3 9 4 1 2 6 8 7 5 9 2 8 6 7 1 3 5 4 7 4 5 8 3 2 6 9 1 1 6 3 5 4 9 2 8 7 5 3 2 9 6 7 4 1 8 6 1 7 2 8 4 5 3 9 4 8 9 3 1 5 7 6 2 7 9 6 5 2 4 3 8 1 8 3 1 7 6 9 4 5 2 2 4 5 8 3 1 6 7 9 9 5 4 3 7 2 1 6 8 3 2 7 6 1 8 5 9 4 1 6 8 9 4 5 2 3 7 6 1 9 4 8 3 7 2 5 5 7 2 1 9 6 8 4 3 4 8 3 2 5 7 9 1 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 19. janúar, 19. dagur ársins 2012 Sagt var frá því um helgina aðungur íslenskur selur hefði synt alla leið frá Íslandi að strönd bæjarins Skegnes í Lincoln-héraði á Englandi. Vonast menn nú til að geta flogið með selinn, sem er urta og hefur hlotið heitið Eve, til Ís- lands og sleppt honum hér. x x x Það yrði ekki í fyrsta skipti, semselur yrði fluttur til Íslands frá þessum slóðum. Víkverji veit um tvö tilfelli frá níunda áratug lið- innar aldar. Snemma árs 1981 var hringanóri fluttur frá Hollandi til Akureyrar þar sem honum var sleppt í Pollinn. Hringanórinn fannst þar sem hann hafði villst inn í skipaskurð. Hringanórar sjást sjaldan við Holland og fylgdi frétt af málinu í Morgunblaðinu að þetta væri aðeins tíundi selurinn af þess- ari tegund, sem þar fyndist frá 1880. x x x Rúmu árið síðar, haustið 1982,var aftur fluttur hingað selur, sem talinn var á villigötum í Hol- landi. Hollenskir náttúruvernd- armenn fylgdu honum til Íslands. Hann hafði viðkomu í Reykjavík á leið sinni til Akureyrar þar sem honum var sleppt í Pollinn. x x x Í frétt um málið segir að ekki hafigengið þrautalaust að fá selinn tollafgreiddan. Óttast var að hann gæti borið með sér hundaæði eða gin- og klaufaveiki og mun kassinn, sem hann var fluttur í, hafa verið brenndur á björtu báli eftir að sel- urinn var kominn í sjóinn. x x x Ekki fylgir sögunni hvort selirþessir hafi hafið ævina við Ís- landsstrendur áður en þeir héldu sjóleiðina til hins mjúka og flata Hollands, en í fréttinni af áð- urnefndri Evu kveðast starfsmenn Natureland, en svo nefnist griða- staður fyrir seli í Skegnes, ekki vita um nokkurn sel, sem synt hafi jafnlangt í vitlausa átt og Eve. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is (3) Sveitakeppni með Rubens. S-Allir. Norður ♠Á8 ♥D10872 ♦D10 ♣D652 Vestur Austur ♠652 ♠KDG109743 ♥3 ♥64 ♦K963 ♦752 ♣G9843 ♣– Suður ♠– ♥ÁKG95 ♦ÁG84 ♣ÁK107 Suður spilar 6♥ dobluð. Við erum stödd í miðri sveitakeppni undir leiðsögn Jeffs Rubens og lesand- inn er nú í suður. Þú opnaðir þungt á 1♥ og makker stökk í 4♥. Austur kom inn á 4♠, þú sagðir 5♠ í leit að sjö, en makker sló af í 6♥. Þá doblar austur, greinilega til stunguleit. Makker hans er með á nótunum og kemur út með ♣3. Austur trompar og spilar tígli um hæl. Á að svína? Rubens: „Það er freistandi að svína og reyna þannig að vinna spilið, en því í ósköpunum skyldi austur fara að taka upp á því að spila frá ♦K af fúsum og frjálsum vilja? Frá hans bæjardyrum gæti vestur hæglega verið með ♦G og þá þarf enga blekkingu til að hnekkja slemmunni. Nei – sættu þig við örlögin og dragðu úr tjóninu með því að drepa á ♦Á.“ Þetta væri erfitt við borðið. Aldarafmæli Flóðogfjara 19. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 2.37 3,3 9.04 1,2 15.05 3,1 21.25 1,1 10.47 16.31 Ísafjörður 4.50 1,8 11.15 0,6 17.04 1,7 23.32 0,5 11.16 16.12 Siglufjörður 0.35 0,4 7.00 1,1 13.13 0,2 19.49 1,0 10.59 15.54 Djúpivogur 5.59 0,6 11.58 1,5 18.09 0,4 10.22 15.55 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3 Rf6 5. d3 a6 6. Rbd2 Ba7 7. 0-0 0-0 8. He1 d6 9. Bb3 Be6 10. Bc2 He8 11. Rf1 d5 12. exd5 Bxd5 13. Re3 Dd7 14. Rxd5 Rxd5 15. Rh4 He6 16. Dh5 Rf6 17. Dg5 h6 18. Df5 Re7 19. Df3 Rfd5 20. Be3 Rxe3 21. fxe3 c6 22. Hf1 Hf8 23. Kh1 g6 24. d4 Bb8 25. Had1 Dd6 26. Be4 exd4 27. g3 De5 28. Bc2 dxe3 29. De2 Rd5 30. Rf3 Dh5 31. Kg2 Dg4 32. Kh1 Ba7 33. c4 Rf6 34. Kg2 Rh5 35. Rd4 Dxe2+ 36. Rxe2 He7 37. b4 Kg7 38. Hd6 Bb8 39. Hd3 Rf6 40. Bd1 Rg4 41. Rd4 Staðan kom upp á Skákþingi Reykjavíkur, Kornax-mótinu, sem stendur yfir í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Alþjóðlegi meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2.470) hafði svart gegn Jóhönnu Björgu Jó- hannsdóttur (1.874). 41. … e2! 42. Bxe2 Re3+ og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.