Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 28
28 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand MANSTU ÞEGAR ÉG STEIG Á SKOTTIÐ Á ÞÉR? ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ ÞÚ MUNIR ÞANN DAG ÞEGAR ÞAÐ RIGNIR ÞÁ VERKJAR MIG ENNÞÁ Í FÓTINN HANN LANGAR AÐ VITA HVORT ÞÚ EIGIR EINHVERJAR VALHNETUR SEM ÞÚ ÞARFT AÐ LÁTA BRJÓTA PRÓFAÐU ÞAÐ BARA ÉG GERI ÞAÐ HVAÐ ÆTLAR HANN AÐ PRÓFA ÉG SAGÐI HONUM AÐ EF HONUM FYNDIST LÍFIÐ ERFITT ÞÁ HEFÐI HANN GOTT AF ÞVÍ AÐ LEGGJAST NIÐUR OG HLUSTA Á GRASIÐ JÁ, HANN ER TÝPAN SEM MYNDI HEYRA ÞAÐ TALA SVONA NÚ GRÍMUR, SETTU ÓLINA UM HÁLSINN Á ÞÉR HEITI POTTURINN ÞEIRRA ER TILBÚINN ÉG VEIT, HANN SÉST ÚT UM GLUGGANN ÞAÐ FER Í TAUGARNAR Á MÉR. HEITI POTTUR NÁGRANNANA ER EKKI BEINT ÞAÐ SEM MIG LANGAR AÐ SJÁ ÚT UM SVEFNHERBERGIS GLUGGANN MINN ÆTLI ÞAU MUNI NOTA SUNDFÖT? SVONA DRAGÐU FYRIR ÁSTIN MÍN ÉG VEIT EKKI HVAÐ HÚN ER AÐ GERA HÉR EN ÞETTA GÆTI HJÁLPAÐ MÉR AÐ GLEYMA NEI, ÉG ÆTLA EKKI AÐ DETTA Í ÞÁ GRYFJU AFTUR ÞETTA VAR GOTT HJÁ ÞÉR VIÐ ÞURFUM AÐ TALA SAMAN KÓNGU- LÓAR- MAÐURINN Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnust. kl. 9. Gönguhópur kl. 10.30. Myndlist/prjónakaffi kl. 13. Bók- menntakl. kl. 13.15. Jóga kl. 18. Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.30. Helgistund kl. 10.30. handavinna kl. 12.30. Myndlist kl. 13.30. Boðinn | Tréútskurður kl. 9.05. Vatns- leikfimi kl. 9.30. Handavinna/brids kl. 13. Bingó (byrjar 12.1) kl. 13.30 og annan hvern fimmtudag en félagsvist hinn (byrjar 19.1). Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist, bókband, tölvunámskeið, hlátur og gleði kl. 15, skart- gripagerð og handav. allan daginn. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8. Leik- fimi kl. 9.05, botsía kl. 13.30. Digraneskirkja | Leikfimi kl. 11. Bænastund kl. 12. Félag eldri borgara í Kópavogi | Félagsvist í Boðanum fim. 19. jan. kl. 13.30, félagsvist í Gjábakka fös. 20. jan. kl. 20. Gleðigjafarnir syngja í Gullsmára 20. jan. kl. 14. Sturla, Guðni, Siggi og Gulli spila. Þorrablót FEBK og félagsstarfsins í Gjábakka laug. 21. jan. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Bókmenntaklúbbur kl. 14. Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefn- aður kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15, málm- og silf- ursmíði kl. 9.30, bókband kl. 13, bingó kl. 13.30, myndlistarhópur kl. 16.10. Enn eru nokkrir miðar lausir á þorrablótið á laug- ardag. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa- vinna kl. 9, ganga kl. 10. Handavinna og brids kl. 13. Jóga kl. 18. Félagsmiðstöðin Sléttuvegi 11-13 | Leik- fimi kl. 9. Dagblöð og kaffi kl. 10. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Qi gong kl. 8.10, vatnsleikfimi kl. 12, handa- vinnuhorn og karlaleikfimi kl. 13, botsía kl. 14, vöfflukaffi frá kl. 14, tónlist kl. 15, kóræf- ing kl. 16. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15. Gler kl. 9. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Bingó salnum Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safn- aðarheimili kl. 14. Billjard í Selinu fellur niður til mánaðamóta v. endurnýjunar á húsnæði. Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund kl. 10.30. Félag heyrnarlausra kl. 11. Frá hád. búta/perlusaumur. Alla þri. og fös. kl. 10.30 stafganga og létt ganga um nágrennið. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9. Leikfimi kl.09:15. Botsía kl. 10.30, Forskorið gler kl. 13, félagsvist kl. 13.30, tímapant. hár- greiðslust. s. 894-6856. Hraunsel | Qi gong kl. 10, dýnuæfingar Bjarkarhúsi kl. 11.20, glerskurður kl. 13, pílu- kast og félagsvist kl. 13.30, vatnsleikfimi kl. 14.40, fim. kl. 14, tréútskurður hefst í gamla Lækjarskóla 26. jan. kl. 14, kennari Jón Adólf Steinólfsson, s. 555-0142. Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10. Hann- yrðir kl. 13. Félagsvist kl. 13.30, kaffisala í hléi. Böðun fyrir hádegi, fótaaðgerðir, hár- snyrting. Svæðanudd uppl. í síma 894- 4054. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl. 8.50, morgunandakt kl. 9.30, leikfimi kl. 10, spjall- hópur Þegar amma var ung kl. 10.50, söng- hópur kl. 13.30, línudans Ingu kl. 15. Kynn- ing á Gardavatnsferð kl. 13.30 á föstudag. Íþróttafélagið Glóð | Ringó kl. 17. Línu- dans hópur III kl. 18, hópur IV (byrjendur) kl. 19 í Kópavogsskóla. Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi kl. 09:30. Listasmiðja á Korpúlfsstöðum kl. 13:30. Laugarneskirkja | Einar Clausen söngvari syngur kl. 14. Sigurbjörn Þorkelsson leiðir stundina og hefur stutta hugvekju. Kaffi og kökur. Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9. Botsía kl. 10. Leirlist kl. 9/13. Vesturgata 7 | Setustofa kl. 9. Handavinna kl. 9:15. Tiffany’s kl. 9:15. Leikfimi kl. 10:30. Kertaskreytingar/kóræfing kl. 13. Kaffiveit- ingar kl. 14:30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók- band og postulín kl. 9, morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 10, handavinna kl. 9, spilað/ stóladans 13, kvikmyndasýningar annan hvern fimmtudag kl. 13.45. Hjálmar Freysteinsson læknirfrétti að Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefði verið skor- inn upp við botnlangabólgu. Hann stóðst ekki mátið: Til að gá hvernig Guðbjarti geðjist hinn nýi siður væri við botnlangabólgunni betra að skera hann niður. Sjálfur er Hjálmar sestur í helgan stein, en þó fullfrískur og í fanta- formi – eða næstum því: Enn er ég fær í flestan sjó og fábreytt sjúkraskráin. Eitthvað er farin að eldast þó önnur stóratáin. Hallmundur Kristinsson sendi hon- um kveðju á Leirnum, póstlista hag- yrðinga, af þessu tilefni: Undir hrörnun þú ekki munt hallur þótt Ellin af tánni fái sér bita, en þegar þú ferð að eldast allur ættirðu strax að láta okkur vita! Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum segist ólatur að fara á hestbak en lat- ur til göngu og yrkir til Hjálmars: Á skíðum Hjálmar skemmtir sér skyldu tel að minna á. Engu þarna aftur fer þó ellihrum sé stóratá. Og hann bætir við: Stóru tærnar eru að eldast ævigangan feikna stíf. Inn á leirinn má þó meldast milli tánna er ennþá líf. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af stórutá og botnlanga Tillögur Jóns Bjarnasonar fyrr- verandi sjávar- útvegsráðherra Nú bregður svo við að fyrrverandi sjávar- útvegsráðherra lét af ráðherraembætti vegna hreinnar óvildar sökum afstöðu hans til ESB-aðildar. Einnig var það líka vegna þess hversu víðtækt samráð og góða samvinnu hann vildi hafa um sjávarútvegsmálin. Að því er virðist fljótt á lit- ið vildi hann að erlend- ir aðilar gætu í versta falli átt 33% við þær aðstæður að um algjöra sjóð- þurrð væri að ræða til þess að halda mætti rekstri (útgerð) áfram. Mér finnst persónulega að 25% eða 1⁄4 væri í raun yfirdrifið nóg og þá hvort ekki mætti leita frekar til ríkis, lífeyr- issjóða eða á almennan markað. t.d. í kauphöll líkt og Steingrímur J. legg- ur til við einkavæðingu Landsbank- ans. Það bendir allt til þess að rík- isstjórn VG og Samfylkingar sé á sömu vegferð og fyrri ríkisstjórnir hvað varð- ar einkavæðingu bank- anna, þótt kjósendur hafi að öllum líkindum vænst annars. Það hafa bæst við sex ný framboð fyrir næstu kosningar. En það er líklega ekki furða eftir það sem er á undan gengið. Þá er bara að sjá hvað þessir nýju flokkar eru að boða. Hvort þeir eru með grímu og séu í raun hallir undir einkavæð- ingu bankanna líkt og fyrrverandi stjórn- málamenn eða hvort þessir nýju flokkar eru fulltrúar þjóðarinnar allr- ar og sætti sig við EES? Sem sé hvort þessi nýju framboð eða flokkar virði alþjóðalög sem banna hægri öfgar hvað varðar bankana, einkavæðingu þeirra og svo hvað varðar einnig aðra þætti í þjóðlífinu. Kristján Snæfells Kjartansson. Velvakandi Ást er… … þegar þú ert litli engillinn hans og hann er litli púkinn þinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.