Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 Rætt er um að auka öryggiskröfur til þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum í sumar með myndavélum, betri lýs- ingu og öflugri gæslu. Þetta segir Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum, en hann, ásamt bæjarstjóra og framkvæmdastjóra ÍBV, fékk bréf frá 100 körlum sem lýsa yfir áhyggjum af nauðgunum á þjóðhátíð. Hópurinn sendi sýslumanninum, auk Elliða Vignissonar bæjarstjóra og Tryggva Más Sæmundssonar, framkvæmdastjóra ÍBV, bréf í vik- unni þar sem þeir voru spurðir um kynferðisofbeldi á þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum og áhrif þess á fram- tíð hátíðarinnar. Í bréfunum segir m.a. að fjöldi nauðgana á þjóðhátíð síðasta sumar greini hátíðina frá öðrum fjöldaviðburðum á landinu og það hljóti að kalla á sérstök við- brögð. Þá eru bæjarstjórinn og framkvæmdastjóri ÍBV spurðir hvers vegna hluta af ágóðanum af hátíðinni sé ekki varið til áróðurs gegn nauðgunum. Auknar kröfur á þjóðhátíð  Hafa áhyggjur af fjölda nauðgana Morgunblaðið/Ómar Herjólfur Helsta samgöngutækið. Ekki hafa jafn fáir verið á vinnu- markaði frá því að vinnumarkaðs- mælingar hófust árið 1991. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar fyrir fjórða ársfjórðung á síðasta ári. Samkvæmt mælingu Hagstofunn- ar voru 175.500 manns á á vinnu- markaði, þ.e. 78,4% atvinnuþátttaka. Atvinnuþátttaka mælir hlutfall bæði þeirra sem eru starfandi og at- vinnulausir af mannfjölda og sam- kvæmt tölum mælist hún yfirleitt minni á fyrsta og fjórða ársfjórðungi. Mun meiri atvinnuþátttaka mæld- ist meðal karla en kvenna á fjórða ársfjórðungi í fyrra, 82,7% hjá körl- um en 74% á meðal kvenna.. Mælt á sex ára tímabili var at- vinnuþátttaka á fjórða ársfjórðungi mest árið 2006 en þá var hún 82,1%. Þegar litið er á tölur um atvinnuleysi mældist atvinnuleysi 6% að meðal- tali á fjórða ársfjórðungi 2011 og fækkaði bæði í hópi starfandi og at- vinnulausra. Starfandi voru 165.100 manns eða 73,7% af mannfjölda. Aðeins dregur úr langtímaat- vinnuleysi á milli ára en skilgreining Hagstofu á langtímaatvinnuleysi er að einstaklingur hafi verið atvinnu- laus í ár eða lengur. Á fjórða árs- fjórðungi í fyrra voru 2.600 sem höfðu verið svo lengi án atvinnu eða 1,5% af vinnuafli. Árið á undan voru 3.200 manns svo lengi án atvinnu eða 1,8%. sigrunrosa@mbl.is Atvinnuþátttaka í lágmarki  Minnsta atvinnuþátttaka frá því rannsóknir hófust 1991  Bæði starfandi og atvinnulausum hefur fækkað Morgunblaðið/Árni Sæberg Uppskipun Færri störf eru nú á vinnumarkaði en verið hafa í 20 ár. Aldís Hafsteins- dóttir, bæjar- stjóri í Hvera- gerði, gefur kost á sér til embættis 2. varaformanns Sjálfstæð- isflokksins en kosið verður í þá stöðu í fyrsta sinn á fundi flokksráðs í lok mars. „Skipi reyndur sveitarstjórn- armaður þetta embætti myndi slíkt án vafa styrkja og breikka forystu flokksins,“ segir Aldís í frétta- tilkynningu. Aldís hefur verið formaður sveit- arstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins í nokkur ár. Hún á sæti í stjórn Sam- bands íslenskra sveitarfélaga auk þess að hafa verið bæjarstjóri í Hveragerði í tæp sex ár. Þá hefur hún gegnt fjölda annarra embætta bæði heima í héraði sem utan. Býður sig fram sem 2. varaformaður Aldís Hafsteinsdóttir KONJAK náttúruleg hjálp við ofþyngd Það er auðvelt að taka ákvörðun um að losa sig við umfram þyngd en það er öllu erfiðara að koma sér af stað. Kannski hefur baráttan við aukakílóin varað í áraraðir án þess að gerðar hafi verið þær breytingar á martaræði og hreyfivenjum sem við vitum að eru nauðsynlegar. Það er mikil vinna að ná af sér umframþyngd en ávinn- ingurinn er svo sannarlega fyrirhafnarinnar virði. Þegar KONJAK er notað samhliða léttu mataræði má auka þyngdartap um allt að 60%. Það þýðir að fyrir hvert kíló sem þú missir af eigin rammleik getur þú með hjálp KONJAK misst allt að 1,6 kg. Þannig getur KONJAK hjálpað til við að viðhalda hvatningunni sem nauðsynleg er til að ná árangri. Hvað er KONJAK KONJAK er ný grenningarvara fyrir fullorðna í ofþyngd. KONJAK inniheldur náttúrulegar trefjar, þær fyrstu sem sérfræðingar Matvælaöryggisstofnunar Evrópu hafa viðurkennt sem fæðubótarefni sem raunverulega flýtir þyngdartapi. Trefjarnar heita glucomannan og eru unnar úr konjak plöntunni sem vex í Asíu. Glucomannan eru vatns- uppleysanlegar trefjar sem eru þeim eiginleikum búnar að þær geta dregið til sín 2-300 falda þyngd sína af vatni. Þegar töflurnar leysast upp í maga mynd- ast því massi sem fyllir upp í magann og flýtir fyrir seddu tilfinningu. Hvernig þú nærð hámarks árangri með KONJAK Það er mikilvægt að borða reglulega og muna eftir millimáltíðunum – einkum þegar tekin eru inn grenn- andi fæðubótarefni. Frekar 6 smáar máltíðir yfir daginn en 3 stórar. Ef ekki er borðað reglulega er hætta á að blóðsykurinn lækki sem leiðir til þess að sætuþörfin tekur völdin. KONJAK innheldur einnig krómíum pikkólínat sem hjálpar til við að slá á sætu- þörfina. Hvernig KONJAK er notað KONJAK töflurnar eru teknar 30 mínútum fyrir hverja af þremur aðalmáltíðum dagsins ásamt 1-2 glösum af vatni. Dagsskammturinn er 2 töflur þrisvar á dag. Þegar töflurnar leysast upp í vatni fylla þær upp í magann sem gerir það að verkum að við verðum fyrr södd og getum því ekki borðað sama magn og áður. Það er staðreynd sem studd er af rannsóknum! Auk áhrifa á matarlyst og blóðsykur hefur KONJAK einnig jákvæð áhrif á meltinguna. KONJAK er selt í mánaðarpakkningum sem innihalda 180 töflur. Í pakkanum er einnig lítið ílát undir töflur sem þú notar þegar þú ert á ferðinni, ásamt bæklingi með góðum ráðum sem gefa þyngdartapinu byr undir báða vængi. Glæný grenningarvara, viðurkennd af sérfræðingum EFSA*, nú fáanleg á Íslandi VIÐUR- KENNT AF EFSA Umboðsaðili KONJAK á Íslandi er Gengur vel ehf. KONJAK fæst í apótekum, heilsuhillum stórmarkaða, helstu heilsu- búðum og á www.femin.is. KONJAK er grenningarvara fyrir fullorðna í ofþyngd sem nota á samhliða léttu mataræði. * EFSA (Matvælaöryggisstofnun Evrópu) Fréttatilkynning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.