Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012 ✝ Elín GuðbjörgJóhannsdóttir fæddist á Patreks- firði 23. mars 1943. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 7. janúar 2012. Foreldrar henn- ar voru Jóhann Pétursson skpstjóri, f. 18.2. 1894 á Hvassa- hrauni á Vatnsleysuströnd, d. 1.4. 1961, og Elín Bjarnadóttir frá Stóru-Vatnsleysu í sömu sveit, f. 27.7. 1899, d. 18.7. 1982. Elín var yngst fjögurra systkina, sem öll lifa hana. Þau eru Kristín B. Jóhannsdóttir, f. 18.9. 1930, Pétur Jóhannsson, f. 31.7. 1932, og Oddbjörg Á. Jóhannsdóttir, f. 20.3. 1936. Elín giftist 18. júlí 1964 Kristni Ragnarssyni bygg- ingameistara, f. á Flateyri 22.11. 1941. Foreldrar hans voru Ragnar Jakobsson frá Æðey í Ísafjarðardjúpi og Mar- a) Harpa, f. 2002, b) Thelma, f. 2005. Þegar Elín var sjö ára gömul flutti hún með fjölskyldu sinni frá Patreksfirði fyrst til Reykjavíkur og tveim árum síðar í Sætún, Lamba- staðahverfi á Seltjarnarnesi. Barnaskólanámi lauk hún frá Mýrarhúsaskóla. Eftir barna- skóla fór hún í Kvennaskólann í Reykjavík og lauk þaðan námi 1960. Sumarstörf voru í frysti- húsi Ísbjarnarins og tvö sumur aðstoðarstúlka frk. Ragnheiðar skólastýru Kvennaskólans. Að loknu kvennaskólaprófi réð hún sig til skrifstofustarfa hjá Vinnufatagerð Íslands og síðar vann hún einnig hjá Nýju blikkmiðjunni í Ármúla og síð- ast skólaritari í Hlíðaskóla. En lengst af eftir að hún giftist Kristni vann hún við hlið hans í umsvifamiklum rekstri og sá um bókhald, launavinnslu og fleira sem að þeim rekstri sneri. Heimili þeirra Kristins stóð lengst af í Melgerði 29 í Kópavogi. Árið 1996 greinist Elín með Alzheimer og flytur á Hrafnistu 2001. Útför Elínar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 19. jan- úar 2012, og hefst athöfnin kl. 15. grét Jónsdóttir frá Ísafirði. Kristinn og Elín skildu árið 2009. Börn Elínar og Kristins eru: 1) Ragnar J. Krist- insson mat- reiðslumeistari, f. 10.11. 1964, var kvæntur Guðlaugu S. Sigurðardóttur viðskiptafræðingi, þeirra börn eru a) Viktor, f. 1984, b) Kristinn Við- ar, f. 1986, í sambúð með Aldísi Gísladóttur, c) Vera Rut, f. 1990, og d) Jakob Vífill, f. 1996. 2) Elín Birna leikskóla- kennari, f. 3.12. 1966, gift Ólafi Péturssyni málarameistara. Þeirra börn eru a) Anna Mar- grét, f. 1987, í sambúð með Hirti Sigurjónssyni, b) Eyþór Ingi, f. 1990, c) Elín Ósk, f. 1992, og d) Valberg Snær, f. 1995. 3) Jóhann Gylfi flug- stjóri, 17.1. 1973, kvæntur Helgu Garðarsdóttur heilsu- hagfræðingi, þeirra dætur eru Í dag kveð ég þig yndislega mamma mín. Þótt dauðinn sé sár var mesta sorgin þegar ég fékk fréttirnar fyrir mörgum ár- um að þú værir komin með þennan ömurlega sjúkdóm. Síð- an er ég búin að fylgjast með þér fjara út. Alltaf varstu glöð þótt þú værir löngu hætt að þekkja okkur og alltaf var hægt að fá þig til að hlæja, það þurfti bara að tala pínu dönsku. Ég á bara góðar og ljúfar minningar um þig elsku múttan mín, það var ekki erfitt að vera unglingur undir þínum verndarvæng, aldr- ei skiptirðu skapi, aldrei skammaðistu í mér, aldrei bann- aðirðu mér neitt, þú sagðir allt- af: „Ella mín, farðu bara var- lega, ég treysti þér“ og auðvitað vildi maður ekki bregðast trausti þínu. Alltaf var gott að vera í kringum þig og alltaf fann maður fyrir væntumþykju þinni og kærleika og svo hafðirðu ein- stakt umburðarlyndi. Við tvær fórum saman til Amsterdam þegar ég var 16, það var frábær ferð, mikið verslað og mikið hlegið og allir áhugaverðustu staðirnir heim- sóttir. Við fórum í fleiri svona ferðir og eru þær mér mjög kærar, takk fyrir mig mamma mín. Þú varst frábær kokkur og gerðir bestu kökur í heimi. Lambalærið á sunnudögum með Skorradals-sveppasósunni klikk- aði aldrei. Ekki má heldur gleyma heitu eplakökunni eða súkkulaðikökunni sem þú áttir mjög oft inni í ísskáp til að gleðja okkur krakkana. Þú varst alltaf boðin og búin að setjast niður og læra með mér, eða hjálpa mér að sauma, þú varst mjög myndarleg í höndunum, hvort sem það var að prjóna eða sauma á mig eða dúkkurnar mínar, hún var ynd- isleg hún mamma! Ég er enda- laust þakklát fyrir það hvað þú nenntir að sækja mig og skutla mér áður en ég fékk bílpróf, það var bara einhvern veginn þannig að ég og strætó áttum ekki mikla samleið og þú skildir það bara svo vel. Þú varst best! Mikið varstu líka glöð þegar ég sagði þér að ég ætti von á mínu fyrsta barni. Mér fannst ég vera búin að bíða svo lengi eftir að fá mitt eigið barn í hendurnar, enda það skemmti- legasta sem ég gerði að passa, og núna, múttan mín, er hún Anna mín að koma með fyrsta langömmubarnið þitt í febrúar og ég loksins að fá þennan eft- irsótta titil amma. Mikið skal ég leggja mig fram um að vera góð amma eins og þú varst börn- unum okkar yndisleg amma. Veistu … ég er eiginlega búin að bíða lengi eftir að Drottinn myndi kalla þig til sín, því bara þá værirðu laus við þennan öm- urlega sjúkdóm og gætir vaknað heilbrigð hjá honum og séð loks- ins öll yndislegu barnabörnin þín sem ég veit að þú værir svo stolt af, en hefur ekki getað fylgst með í mörg ár. Með þakklæti, söknuði og gleði í hjarta kveð ég þig elsku múttan mín. Þín dóttir, Elín Birna (Ella). Elsku mamma mín. Ég sit hérna inni á hótelherbergi og er að reyna að setja einhver orð niður á blað. Það fljúga margar minningar um hugann. Bæði þegar ég var polli að skottast með þér á Kanarí eða við á leið í Skorrann. Brosið kemur líka yf- ir mig þegar ég rifja upp dönskukennsluna. Enda dansk- an lengi verið í uppáhaldi hjá þér. Eflaust hefur þér sárnað dönskuáhuginn minn. Ég var örugglega ekki besti nemandinn enda meiri áhugi á að fara í fót- bolta eða út að leika með strák- unum. Ég gæti skrifað margar blaðsíður um okkur en stundum er nóg að láta hugann reika. Stundum þarf ekki nema eitt orð; Mozartkúla. Þá kemur brosið yfir mig. Skrýtið hvað eitt orð getur fengið mann til að brosa og rifjað upp góðar minn- ingar. Ég man að við fengum okkur oft Mozartkúlu. Okkur fannst það ekki leiðinlegt að fá okkur eitthvað gott. Aðrar minningar lifa með mér og eru mér dýrmætar. Þær eiga það allar sameiginlegt að þú varst alltaf til staðar fyrir mig. Þú vildir alltaf allt fyrir alla gera. Þú varst alltaf í góðu skapi og yndisleg móðir. Er hægt að biðja um meira? Oft er talað um að viðkom- andi hafi hjartað á réttum stað og á það svo sannarlega við um þig, mamma mín. Sem foreldri varstu alltaf til staðar og studd- ir mig til dáða. Það er mér helst þakklæti og stolt að vera sonur þinn. Ég er búinn að sakna þín ótrúlega mikið síðustu ár. Ég veit að þú hefðir haft gaman af því að vera í brúðkaupinu mínu, kynnast stelpunum mínum og leika við þær í Skorranum. Eiga með okkur skemmtilegar stund- ir hvar sem er. Ég veit að ykkur stelpunum mínum hefði komið svo vel saman. Þín hefur verið sárt saknað í allri fjölskyldunni og við finnum það öll, þegar þín nýtur ekki lengur við, hversu stórt hlutverk þú lékst. Allir gátu komið til þín og þú varst fyrirliðinn í liðinu, sem leystir öll vandamál sem upp komu. Já, þú varst hornsteinninn í fjöl- skyldunni. Það má eiginlega segja að það hafi verið þú sem gerðir okkur að fjölskyldu. Þín veikindi hafa verið löng og ömurleg. Ég man fyrir nokkrum árum þegar ég kom í heimsókn á Hrafnistu og við gátum enn gert grín og hlegið saman. Alltaf sagðir þú „Jósi minn“ þegar ég sagði einhverja vitleysu og fékk þig til að hlæja. En heilsunni hrakaði og undir lokin varst þú mest í rúminu þínu, með lokuð augun. Mér fannst mjög erfitt að horfa upp á þennan ömurlega raunveru- leika, mér leið ekki vel eftir slíka heimsókn. Þó svo heim- sóknum mínum hafi fækkað undir lokin varst þú alltaf í hjarta mínu og ég hugsaði til þín á hverjum degi. Ég veit að þú skilur mig. Elsku mamma mín, ég veit að þér líður vel núna og fylgist með okkur öllum. Við söknum þín ótrúlega mikið, guð verði með þér. Þinn sonur, Jóhann Gylfi. Í dag kveð ég móður mína El- ínu G. Jóhannsdóttur sem lést eftir löng veikindi. Mamma var kærleiksrík og gefandi kona sem hugsaði meira um okkur börnin en sjálfa sig. Hún hætti að vinna er hún gifti sig til að hugsa um heimilið, hún hafði unnið skrifstofustörf eftir kvennaskólapróf. Hún fór ung í húsmæðraskóla til Danmerkur og var hún frábær kokkur og kökugerðarkona. Hún hafði yndi af eldamennsku og bakstri og alltaf tilbúin að baka fyrir okkur börnin. Vegna starfa föður okk- ar var húsnæði okkar oft lagt undir og oft var flutt þegar við vorum yngri og millilendingar oft hjá Elínu ömmu á Klepps- vegi 38. Það var yndislegt að búa hjá ömmu. Þegar pabbi hóf meistaranám fór mamma að vinna hálfan daginn í Nýju blikksmiðjunni í nokkur ár. Eft- ir að pabbi hóf framleiðslu á sumarhúsum sá hún um bókhald og eldaði fyrir vinnuflokkana. Foreldrar okkar áttu mjög gott hjónaband sem einkenndist af virðingu og vináttu og voru hlut- verkin á hreinu, mamma eldaði, þvoði, þreif og sinnti þörfum okkar barnanna, pabbi vann og sá um annað sem þurfti að gera en fékk þó það hlutverk að grilla eftir að grillið kom til sögunnar. Mamma var yndisleg amma og var hún mikið með barna- börnin og passaði elstu barna- börnin mikið, hún fór með þau í Skorradalinn og oft keypti hún eitthvað fallegt handa þeim án tilefnis. Barnafjöldinn óx hratt og fékk mamma fyrstu fimm barnabörnin á sex árum. Pabbi og mamma fóru mikið til Kanarí á veturna, það var sumarfrí þeirra vegna vinnu pabba og var Elín amma, sem bjó hjá okkur síðustu sex árin sín, þeim til halds og trausts. Þegar mamma veiktist kom mér mjög á óvart hversu pabbi reyndist æðrulaus, skilningsrík- ur og þolinmóður við hana. Hann fór að elda og þvo þvotta ásamt ýmsu sem hann var ekki vanur að gera og við héldum að hann kynni ekki, einnig var hann duglegur að drífa sig í Skorrann með hana. Margir vin- ir hurfu, gátu eða kunnu ekki að höndla veikindi mömmu, en einn vinahópur stendur upp úr, það er sundlaugarhópurinn úr Garðabæ sem fór í margar ferð- ir með þeim bæði innanlands og utan og aðstoðaði þau, þá sér- staklega Gilla og Guðjón og Ás- gerður og Óli. Einnig hafa vin- konur mömmu, þær Gunna Gísla, Edda Gerður, Bjartey, Dísa og Guðrún H., verið mjög tryggar og yndislegar við hana sl. ár. Pabbi eignaðist aftur líf eftir að mamma var okkur horf- in andlega þegar hann kynntist Huldu Ólafsdóttur, það var okk- ur mikill léttir og gleði, og tóku fjölskyldur okkar barnanna henni fagnandi. Þau giftu sig á síðasta ári og hafa búið sér fal- legt heimili í Reykjavík og sum- arhús í Reykjarskógi. Síðustu árin hefur mamma ekki þekkt neinn eða sýnt nein viðbrögð við heimsóknum okkar á Hrafnistu. Við aðstandendur viljum þakka starfsfólki á 4B á Hrafnistu í Hafnarfirði innilega fyrir frá- bæra umönnun sl. 11 ár. Með söknuði kveð ég þig elsku mamma. Þinn sonur, Ragnar Jakob (Raggi). Elsku besta amma okkar. Þegar við systkinin hugsum um allar minningarnar sem við eig- um um þig kemur svo mikið upp í hugann að við vitum ekki hvar við eigum að byrja. Þú varst alveg einstök kona og kemur alltaf til með að eiga algjörlega sérstakan sess í huga okkar. Þrátt fyrir að þú hafir verið veik í mörg ár hafa minn- ingarnar ekki fölnað. Þegar við rifjum upp tímana okkar með þér þá stendur það rosalega hátt hjá okkur þegar við fórum með ykkur afa í Skorradalinn, vá þvílíka gleðin sem það var að fara með ykkur þangað, berja- og sveppatínslan er nokkuð sem aldrei gleymist eða bátsferðirnar þar sem ýms- ar vatnaíþróttir komu oft við sögu. Þegar við komum svo blaut og köld í land beiðst þú með heitt kakó til að ylja okkur eftir ferðina. Hvað það var líka alltaf gam- an að koma til ykkar á Kópa- vogsbrautina og á Smáraflötina í pössun, þar var alltaf fullt af dóti til að leika sér með, lita- bækur og litir og svo passaðir þú alltaf upp á að taka upp á spólur uppáhaldsteiknimyndirn- ar okkar eða annað sem þú hélst að við hefðum gaman af. Þegar við sem fullorðið fólk hugsum til þín þá kemur upp í hugann hvað þú varst ákveðin, sterk, góð, yndisleg, með ráð í öllum vanda, falleg kona og allt- af tilbúin til að hjálpa öllum án þess að vilja fá nokkuð í staðinn. Þú varst og verður alltaf besta amma sem hægt er að eiga. Þú varst okkur sönn fyr- irmynd og vonandi náum við, þegar þar að kemur, að miðla einhverju af þínum kærleika til barnanna okkar og gert þeim kleift að upplifa sömu hluti og við upplifðum með þér. Takk fyrir að vera alltaf til staðar, fyrir að vera eins mögn- uð og þú varst, takk fyrir ógleymanlegar minningar. Hvíldu í friði elsku amma. Þín barnabörn, Viktor, Kristinn Viðar, Vera Rut og Jakob Vífill. Fallin er frá elskuleg svilkona mín Elín Jóhannsdóttir. Það var viss spenningur þegar Kristinn, yngsti bróðir mannsins míns, kynnti fyrir okkur fallegu kær- ustuna sína. Við vorum báðar að vestan og höfðum báðar verið í Kvennó, þar áttum við strax eitthvað sameiginlegt. Það er ekki sjálfgefið að tilvonandi svil- konur verði vinkonur en sú varð raunin. Við Ella urðum strax vinkonur. Hún ljúf og einstak- lega hláturmild, sannkallaður gleðigjafi. Þegar á leið og börn- in fæddust urðum við ennþá nánari og samgangur milli heim- ilanna mikill. Segja má að börn- in okkar hafi alist upp saman. Við ferðuðumst um landið og þegar þau Kristinn voru búin að koma sér upp sælureitnum í Skorradal vorum við þar tíðir gestir. Þá var Ella mín í essinu sínu, hún elskaði að hafa gesti og þau góðir gestgjafar. Í þá daga var ekki gemsinn til þess að kanna aðstæður, bara keyrt af stað í Skorrann með börnin og gist ef vel stóð á. Þá var líka alltaf gott veður! Börnin nutu sín og ekki síst þegar Kristinn frændi þeirra fór með með þau á báti út á Skorradalsvatn. Þetta var yndislegur tími sem við njótum núna að hugsa til. Ella var einstaklega handlag- in og listræn, hafði auga fyrir nýtískulegum hlutum og kunni að raða saman gömlu og nýju. Við brölluðum margt saman og hjálpuðumst að þegar mikið stóð til. Í mínum huga var hún eins og litla systir mín, enda vorum við oft spurðar að því hvort við værum systur. Vorum báðar hæstánægðar með það. Ella var fædd og uppalin á Patreksfirði og átti sterkar ræt- ur þar en flutti ung hingað suð- ur eins og sagt var. Alla tíð tal- aði hún um Patró og vinina þar með mikilli hlýju. Ég á líka ætt- ir að rekja til Tálknafjarðar og þekkti Eysteinseyri þar sem hún dvaldi með fjölskyldu sinni flest sumur sem barn. Þar var hennar draumaland. Æskuvin- konurnar frá Patró hafa sýnt henni mikinn kærleik og vináttu í veikindum hennar. Í mörg ár hafa veikindin herj- að og sá tími verið fjölskyldunni erfiður. Hún hefur allan tímann verið umvafin kærleika þeirra. Það var svo sárt þegar ljóst var að Alzheimer-sjúkdómurinn hafði heltekið Ellu. Hana sem var svo dugleg og hjálpsöm við alla og mátti ekkert aumt sjá. Sárt var að upplifa að finna ekki andlega nálægð, að handtakið er ekki lengur endurgoldið og að ná ekki til vinkonunnar með röddinni, geta ekki sungið sam- Elín G. Jóhannsdóttir Ég á margar góðar minningar um hann Einar. Hann var mjög indæll maður og ég sé eftir því að hafa ekki farið með honum oftar að veiða. Hann var algjör snill- ingur að veiða. Ég vona að þú haf- ir það gott þarna uppi. Guð blessi þig. Þinn frændi, Ástþór Andri. Upp er runninn sá dagur sem ég hef kviðið hvað mest fyrir, í dag geng ég síðustu sporin með yndislegum vini sem kvaddi okk- ur alltof snemma. Elsku Einar minn. Það er svo margt sem mig langar að segja við þig en verð að láta þetta nægja, ég hef þekkt þig hálfa æv- ina, þú hefur tekið þátt í flestum af mínum stærstu atburðum og skipti engu máli hvar þeir voru haldnir, alltaf mættir þú á svæðið. Þú ferðaðist hundruð km til að koma í útskriftina mína, mættir hálfslappur í barnaafmælin og Einar Laverne Lee ✝ Einar LaverneLee fæddist í Reykjavík 18. mars 1971. Hann lést á heimilinu sínu 4. janúar 2012. Útför Einars fór fram fimmtudag- inn 12. janúar 2012 frá Fossvogs- kirkju. varst afar veikur í síðasta vinajóla- boði. Strákarnir mínir hafa umgengist þig alla ævina og ég veit að þeir geta ekki ímyndað sér veisl- ur, boð eða spila- kvöld hjá okkur án þess að Einar komi. Þú varst alltaf boðinn og búinn til að gera allt fyrir vini þína og varst vinur í raun. Ég á mikið eftir að sakna rök- ræðna okkar um öll heimsins málefni og þá sérstaklega menntakerfið og heilbrigðiskerfið á Íslandi, við vissum alltaf hvern- ig best væri að hafa hlutina og skildum oft ekki í því hvers vegna við værum einfaldlega ekki við stjórnvölinn. Ég hef notað síðustu daga til að rifja upp öll árin okkar saman og gæti skrifað heila ritgerð um þau og hlustað á öll lögin okkar sem eru nú orðin frekar mörg. Með trega og sorg í hjarta segi ég ekki bless, heldur sjáumst síð- ar. Elsku Helga, Heiðar, John, Susan, Rakel, Edda Gunna, Heið- ar Andri og aðrir aðstandendur, ég sendi ykkur innilegar samúð- arkveðjur með von og trú í hjarta að honum líði betur á nýjum stað og fáist við ný ævintýri. Kveðja, Júlía og börn. Mig langar að minnast Einars með nokkrum orðum. Einar var einstaklega góður maður sem vildi öllum vel, hann var skemmti- legur og vinmargur og það var ávallt gleði og glens þar sem hann var. Ég kynntist Einari þegar hann og Rakel systir fóru að vera saman, þau voru ung og Rakel var með Þórð sinn pínulítinn og Ein- ari þótti ekkert sjálfsagðara en að ganga honum í föðurstað. Ég veit að Þórði þótti alla tíð óskaplega vænt um Einar og tengdist hon- um á sérstakan hátt, Þórður leit á hann sem pabba sinn. Í gegnum Einar kynntist ég fjölskyldunni hans í Mississippi og á ég þaðan góðar minningar sem ég á allar honum að þakka. Einar var mér eins konar „stóri bróðir“ og áttum við oftar en ekki löng samtöl um heima og geima og það var oft vakað langt fram- eftir bara til að spjalla. Einar og Rakel skildu og við það minnkaði sambandið. Einar gekk í gegnum mikil veikindi sem að lokum tóku hann frá okkur. Hann var ekkert sér- lega kvartsár en nú undir lokin var honum farið að líða verulega illa og var orðinn þreyttur. Hann hefur nú fengið hvíld og er laus við verki og vanlíðan. Með trega kveð ég þig elsku vinur, þú átt sérstakan stað í hjarta mínu. Fjöl- skyldunni hér heima og í Missis- sippi sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ásdís M. Finnbogadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.