Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
Ungverska þjóðþingið hefur haftí bígerð að breyta ýmsum lög-
um í landinu eftir eigin höfði. Sumar
þeirra tillagna sem sagt hefur verið
frá koma öðrum spánskt fyrir sjónir,
eins og gengur.
ESB hefur haft í hótunum viðUngverjaland vegna fyrirhug-
aðra breytinga. Enda er Ungverja-
land í ESB og er
því ekki fullvalda
ríki að mati sam-
bandsins.
Af þessu mánokkurn
lærdóm draga. En það munu ekki
allir gera.
Örugglega ekki þeir íslenskustjórnmálamenn sem enn hafa
ekki heyrt neinar fréttir af vand-
ræðagangi evrunnar.
Ef Staksteinar mættu sín ein-hvers í Ungverjalandi myndu
þeir vísast leggjast gegn mörgum
þeirra hugmynda um breytingar
sem verið hafa í umræðunni þar
eystra.
En Ungverjar verða auðvitað aðeiga um þær seinasta orðið.
Eitt er það atriði sem ESB villekki þola að Ungverjar færi í
eigin lög. Það snýst um að skylda
forstöðumenn þýðingarmikilla
stofnana til að sverja eigin þjóðríki
trúnað þegar þeir hefja störf.
Þetta hafa íslenskir ráðherrar íraun gert í áratugi á sínum
fyrsta ríkisráðsfundi.
Ætli Össur, sem sér um minnk-unarmálin hérlendis, hafi
sagt stækkunarstjóranum frá þessu?
Veit stækkunar-
stjórinn þetta?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.1., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Bolungarvík -2 snjókoma
Akureyri 2 skýjað
Kirkjubæjarkl. 0 skýjað
Vestmannaeyjar 1 léttskýjað
Nuuk -8 snjókoma
Þórshöfn 3 þoka
Ósló -7 snjókoma
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 1 skýjað
Helsinki -2 snjóél
Lúxemborg 1 skýjað
Brussel 3 skýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 7 skúrir
London 12 skýjað
París 5 súld
Amsterdam 3 súld
Hamborg 2 skýjað
Berlín 3 heiðskírt
Vín 4 léttskýjað
Moskva -7 skýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 8 léttskýjað
Aþena 7 léttskýjað
Winnipeg -25 snjókoma
Montreal -11 léttskýjað
New York 3 léttskýjað
Chicago -10 léttskýjað
Orlando 20 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:47 16:31
ÍSAFJÖRÐUR 11:16 16:12
SIGLUFJÖRÐUR 10:59 15:54
DJÚPIVOGUR 10:22 15:55
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er búið að taka á móti tilboðum
frá bílaumboðum. Þau eru í vinnslu og
það er vinnuregla hjá okkur að gefa
aldrei upp millitíma. Við erum að
vinna í tilboðunum og gefum fyrst út
niðurstöðu þegar því er lokið. Þetta
getur tekið nokkra daga, jafnvel vik-
ur, að vinna úr tilboðunum eftir því
hversu flókið er að vinna úr þeim,“
segir Guðmundur Hannesson, for-
stöðumaður ráðgjafasviðs hjá Ríkis-
kaupum, spurður út í uppboð vegna
kaupa á ráðherrabílum.
„Ef ég man rétt er gert ráð fyrir því
að meðalkaup séu þrír bílar á ári og að
flotinn verði endurnýjaður smátt og
smátt. Það skal hins vegar tekið fram
að kaupin eru óviss. Það sem við erum
að gera er að semja um hæfa bjóð-
endur, verðlag og kjör. Síðan fara ein-
stök kaup fram þegar einstök ráðu-
neyti taka ákvörðun eða þegar
samkomulag næst innan stjórnsýsl-
unnar um hvaða bíl eigi að kaupa og
hvenær,“ segir Guðmundur.
Sex skiluðu inn tilboðum
Fram kemur á vef Ríkiskaupa að
sex bílaumboð hafi skilað inn tilboð-
um vegna útboða á ráðherrabifreið-
um í tveim flokkum, „ráðherrabifreið-
um“ og „ráðherrabifreiðum með
auknum umhverfiskröfum“.
Askja lagði fram tilboð með Merce-
des-Benz, TK Bílar ehf. með Toyota
og Lexus, Even hf. með Tesla, BLI
hf. með BMW, Brimborg ehf. með
Volvo og Hekla með Audi.
Tesla sker sig hér úr enda rafbíla-
merki frá nýrri verksmiðju á ferð.
Gísli Gíslason, stjórnarmaður í
Even hf., segir Tesluna sem lögð sé
fram í útboðinu af gerðinni Model S.
„Þetta er mikið tækniundur. Ein
útfærslan fer 500 km á rafhleðslunni.
Hann er með gríðarmikið innanrými
enda er farangursrými bæði í húdd-
inu og í skottinu ... Viðhald dettur nið-
ur um tvo þriðju hluta vegna þess að
það eru aðeins tveir mótorar aftan í
bílnum. Honum fylgir átta ára ábyrgð
frá framleiðanda og er ábyrgðin óháð
akstri. Þetta er einn umhverfisvæn-
asti bíllinn í sínum flokki sem völ er á.
Má segja að þetta sé eini 100% græni
bíllinn sem er hægt að bjóða upp á í
þessum flokki. Bíllinn er hannaður frá
grunni sem rafbíll og er svo rúmgóður
að hann fellur í báða flokkana, sem
ráðherrabifreið og ráðherrabifreið
með auknum umhverfiskröfum.“
– Hvað kostar bíllinn?
„Við fáum fyrsta bílinn í sumar.
Verðið fer eftir því hvort virðisauka-
skattur er lagður á bílinn eða ekki.
Vonir okkar standa til að hann verði
ekki dýrari en sambærilegur bensín-
bíll. Það eru nokkrar útgáfur af Tesla,
Model S. Þær fara 260, 370 og 500 km
á einni rafhleðslu. Við erum að vonast
til að verðið verði á bilinu frá 8 og upp
í 12 milljónir króna eftir útfærslu.
Þetta er lúxusbíll, eins og BMW-500
týpan eða Audi. Slíkir bílar kosta nú á
bilinu 12 til 14 milljónir. Við verðum
því ekki dýrastir.
Ég hugsa að það yrði erfitt að fá bíl
sem uppfyllir skilyrði Ríkiskaupa um
hröðun og öryggisbúnað á undir tíu
milljónum króna. Verðið á nýjum
bensínbílum í stærri flokki hefur
hækkað mikið eftir gengishrunið.“
Olían kvödd
Gísli bendir á kosti rafmagnsins.
„Í því er fólginn gríðarlegur sparn-
aður að þurfa ekki stöðugt að vera að
setja bensín á bílinn. Í staðinn yrðu
ráðherrarnir að nota 100% íslenska
orku. Það hlýtur að vera markmið í
sjálfu sér.“
Spurður nánar út í uppboðið svarar
Gísli því til að samningur Ríkiskaupa
sé til þriggja ára en að ekki sé kveðið
á um fjölda bifreiða. Nú séu átta til
níu ráðherrabílar í notkun sem ætla
megi að verði endurnýjaðir, í ljósi
uppsafnaðrar þarfar frá efnahags-
hruninu. „Hugsunin er væntanlega sú
að skipta út sem flestum bílum fyrir
umhverfisvæna bíla. Þannig að í mín-
um huga hljóta þeir að skipta út öllum
bílunum á þriggja ára tímabili.“
Snúran í ráðherrabíla?
Tilboðsgjafi í útboði fyrir ráðherrabifreiðar býður fram rafbíl Kostar á bilinu
8 til 12 milljónir Lúxusbifreiðar sem uppfylla kröfur hafa hækkað mikið í verði
Ljósmynd/Tesla Motors
Rafknúin Tesla-rafbifreið af gerðinni Model S. Verðið er frá 8 milljónum.
Sigurður Ingi Friðleifsson,
framkvæmdastjóri Orkuseturs,
segir það „vissulega myndu
verða táknrænt skref“ ef ráð-
herrabílar yrðu rafmagns-
væddir.
„Það yrði þó að vera byggt á
skynsamlegu mati, frá
umhverfislegu og þjóðhagslegu
sjónarhorni. Ráðherrabílarnir
eru í dýrari flokki og þar er
samkeppnishæfni rafbíla betri.
Almennt tel ég langmikil-
vægast að stuðlað sé að betri
nýtingu á núverandi orkugjöf-
um.
Á fundi mínum með Ríkis-
kaupum setti ég fram tvær at-
burðarásir. Annars vegar til-
lögur um neyslugrennri bíla,
lúxusbíla sem eyða jafnvel
helmingi minna en eldri gerðir.
Það má gera stórkostlegar
breytingar á ráðherraflotanum
án þess að breyta um orku-
gjafa. Í öðru lagi kynnti ég nýja
orkugjafa, metan og rafmagn.
Þær öryggiskröfur sem gerð-
ar eru til ráðherrabíla flækja
málið, þar með talið kröfur um
öryggisrúður og mikla hröðun,“
segir Sigurður Ingi.
Rafvæðingin yrði táknræn
FORDÆMISGILDIÐ