Morgunblaðið - 19.01.2012, Síða 11
Vanda sig Biggi og Jón fara fimum fingrum um gítar og bassa.
bæta við að þeir geri ýmislegt annað
saman en að spila, til dæmis hafi
þeir farið á tónleika með Rolling
Stones til Bretlands árið 2007.
Þrjár ólíkar söngkonur
Á morgun, föstudag, er svo ár-
legur viðburður sveitarinnar, tón-
leikarnir. „Þeir verða í Ýmishúsinu í
Skógarhlíð og þetta verður kósí
stemning, borð og dúkar. Okkur
þykir vænt um að sjá sama fólkið
koma aftur og aftur á tónleika hjá
okkur og svo bætast alltaf einhverjir
nýir við. Aldursbil gestanna okkar
er alveg frá 16 ára upp í áttrætt,“
segja þeir og bæta við að Linda
verði ekki eina söngkonan sem ætl-
ar að stíga á svið. „Tvær aðrar söng-
konur munu heiðra okkur með nær-
veru sinni og flutningi, þær Lilja
Björk, dóttir Bigga, og líka hún Erla
Gýgja, eiginkona Stefáns. Þær eru
báðar lærðar söngkonur og þessar
þrjár konur eru allar frábærar en
með mjög ólíkar raddir, sem gerir
tónleikana fjölbreytta. Við ætlum
ekki aðeins að spila blús, heldur líka
rokk og ýmislegt annað. Við erum
búin að æfa sextán ný lög fyrir tón-
leikana, og við setjum okkar per-
sónulega svip á lögin. Í gegnum tíð-
ina hafa ólíkir listamenn gert
allskonar útgáfur af þessum stand-
ördum.“ Á efnisskránni verða m.a.
lög eins og Merry Go Round, Same
Way, Watch Out og I Loved Anoth-
er Woman eftir Peter Green. Einnig
önnur lög eins og Tired Of Your
Jive, The Thrill Is Gone, I Put a
Spell On You og Rose.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Einbeittur Stefán er lipur á hljómborðinu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
Ota Solgryn haframjöl, 500 g...... 245 298 490 kr. kg
Daloon kínarúllur, 720 g............. 789 998 1.109 kr. kg
Hunts pastas. m/ost, hvítl,751 g 239 298 319 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 19.-21. janúar verð nú áður mælie. verð
Hamborgarar m/br., 2x115 g ...... 396 480 396 kr. pk.
KF jurtakryddað lambalæri.......... 1.498 1.698 1.498 kr. kg
Svínakótelettur úr kjötborði......... 1.198 1.598 1.198 kr. kg
Fjallalambs lambasúpukjöt, fros-
ið .............................................
598 698 598 kr. kg
Fjallalambs kindahakk, frosið ..... 998 1.139 998 kr. kg
Ísfugl frosinn kjúklingur, 1/1....... 669 784 669 kr. kg
Pepsi/pepsi max, 2 l.................. 198 228 99 kr. ltr
Hagkaup
Gildir 19.-22. janúar verð nú áður mælie. verð
Holta kjúklingalundir .................. 2.238 2.798 2.238 kr. kg
Ísl. naut, 4% nautahakk ............. 1.678 2.098 1.678 kr. kg
Nautaat ribeye, skorið ................ 2.727 3.895 2.727 kr. kg
Myllu fimmkornabrauð ............... 269 399 269 kr. stk.
Myllu vínarbrauðslengja ............. 499 699 499 kr. stk.
Krónan
Gildir 19.-22. janúar verð nú áður mælie. verð
Ungnauta Roast Beef, erlent ....... 2.298 3.849 2.298 kr. kg
Ungnauta innlæri, erlent............. 2.298 3.849 2.298 kr. kg
Grísasíðu pörusteik .................... 798 998 798 kr. kg
ÍM kjúklingabringur .................... 1.998 2.498 1.998 kr. kg
Goða þorrabakki, blandaður ....... 1.443 1.698 1.443 kr. pk.
Kea soðið hangikjöt ................... 3.143 3.698 3.143 kr. kg
Pagens vanillusnúðar ................. 229 339 229 kr. pk.
Toppur blátoppur, 0,5 l ............... 99 118 99 kr. stk.
Nóatún
Gildir 19.-22. janúar verð nú áður mælie. verð
Ungnautafille úr kjötborði ........... 3.568 4.198 3.568 kr. kg
Lambalæri úr kjötborði ............... 1.499 1.598 1.499 kr. kg
Laxaflök beinhrei. úr fiskborði ..... 1.699 1.948 1.699 kr. kg
Ungnauta hamborgari, 90 g........ 169 185 169 kr. stk.
SS folaldaframp. reyktur ............. 798 998 798 kr. kg
SS folaldasaltkjöt m/beini.......... 774 968 774 kr. kg
Iceland súkkulaðiterta ................ 419 698 419 kr. stk.
Emmess ísblóm m/berj., 4 í pk. .. 398 538 398 kr. pk.
Þín verslun
Gildir 19.-22. janúar verð nú áður mælie. verð
Ísfugl kjúkingabringur ................. 2.199 2.749 2.199 kr. kg
MS heimilisjógúrt jarðarberja ...... 225 247 225 kr. ltr
Toppur sítrónu, 2 l...................... 198 289 99 kr. ltr
Viking pilsner, 0,5 l .................... 98 145 196 kr. ltr
MS kotasæla, 200 g .................. 159 179 795 kr. kg
Kornmo hafrakex, 225 g............. 165 209 734 kr. kg
Maryland súkkulaðikex, 172 g .... 139 159 808 kr. kg
Helgartilboðin
Morgunblaðið/ÞÖK
Egill Viðarsson heldur hádegisfyr-
irlestur um MA-rannsókn sína í þjóð-
fræði á morgun. Fyrirlesturinn verður
haldinn við tónlistardeild LHÍ Sölv-
hóli og hefst klukkan 12.
Erindið ber heitið Höfundarréttur,
þjóðlög og eignarhald á menningu:
Deilurnar um Vísur Vatnsenda-Rósu.
En MA rannsókn Egils fjallaði um
deilur sem spunnust í kringum lagið
Vísur Vatnsenda-Rósu við lok síðustu
aldar og upphaf þessarar. Málið hófst
þannig að Jón Ásgeirsson tónskáld
tók þjóðlagið Enginn lái öðrum frekt,
sem finna má í þjóðlagasafni séra
Bjarna Þorsteinssonar, og vann úr því
stærra verk, lagið sem Íslendingar
þekkja sem Vísur Vatnsenda-Rósu.
Lagið var gefið út í ýmsum útgáfum,
en árið 1995 gerði Jón athugasemd
við notkun lagsins í myndinni Tár úr
steini þar sem hann taldi að brotið
hefði verið á höfundarrétti sínum.
Það olli deilum milli hans og Hjálm-
ars H. Ragnarssonar, tónlistarstjóra
myndarinnar, sem enduðu með því að
STEF lét sérfróða menn á sínum
snærum vinna mat á eignaraðild Jóns
að laginu. Niðurstaðan varð sú að
Jón ætti 10/12 hluta þess, og því
mætti kalla það tónverk eftir hann.
Þetta mat varð mjög umdeilt og fleiri
deilur spruttu í kjölfarið, m.a. við
Björk Guðmundsdóttur og Stefán S.
Stefánsson. Þessar deilur verða rakt-
ar og skoðað verður hvernig þær end-
urspegla og varpa ljósi á vandamál
sem bundin eru við höfundarrétt í
víðara samhengi.
Egill Viðarsson er 27 ára þjóðfræð-
ingur og tónlistarmaður. Hann lauk
BA-prófi í heimspeki frá Háskóla Ís-
lands árið 2008 og meistaraprófi í
þjóðfræði árið 2011. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir á fyr-
irlesturinn.
Endilega …
… kynnið ykkur reglur um þjóð-
lög og eignarhald á menningu
Þjóðfræðingur Egill Viðarsson.
Á LEIÐ TIL ÚTLANDA
Ábyrgðar og þjónustuaðilar innanlands:
Optical Studio Smáralind og
Optical Studio Hafnargötu/Keflavík
GLERAUGNAVERSLUN
Í FRÍHÖFN, LEIFSSTÖÐ
• Öll algengustu gleraugu útbúin á 15 mínútum
• Linsur: daglinsur og mánaðarlinsur • Sjónmælingar
• Sólgleraugu: Ray Ban, Oakley, Chanel, Prada og fl.