Morgunblaðið - 19.01.2012, Page 12
Ljósmynd/Gísli Ólafsson
Í heyskap! Konur raka hey við spennistöðina, þar sem Þingvallastrætið er
nú. Myndin prýðir einn seglanna sem bæjarbúar fá að gjöfi. Hana tók Gísli
Ólafsson (1910-2006), lengi yfirlögregluþjónn og kunnur áhugaljósmyndari.
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Bryndís Rún Hansen, sundkona úr
Óðni, var kjörin íþróttamaður Ak-
ureyrar 2011. Niðurstaðan var
kynnt í hófi Íþróttabandalags Ak-
ureyrar á Hótel KEA síðdegis í gær.
Þetta er þriðja árið í röð sem
Bryndís Rún verður fyrir valinu í
kjörinu. Sundkonan býr nú í Noregi
þar sem hún nemur og æfir. Bryn-
dís, sem á síðasta ári setti fimm Ís-
landsmet, vann fimm Íslandsmeist-
aratitla og einn norskan
meistaratitil, er á 19. ári.
Oddur Gretarsson, leikmaður
með Akureyri – handboltafélagi,
varð annar í kjörinu líkt og í fyrra en
þriðji árið þar áður.
Helga Hansdóttir, 18 ára júdó-
kona úr KA, varð í þriðja sæti.
Svo skemmtilega vildi til að yngri
bróðir Helgu, Jón Smári, fékk einnig
viðurkenningu í gær. Hann var val-
inn fimleikamaður ársins á Ak-
ureyri. Jón Smári er aðeins 11 ára.
Til gamans má geta þess að faðir
þeirra systkina, Hans Rúnar
Snorrason, varð á árum margfaldur
Íslandsmeistari í júdói.
Þrír hlutu að vanda viðurkenn-
ingu Íþróttaráðs Akureyringar fyrir
mikið og gott starf að íþrótta-, æsku-
lýðs- og félagsmálum í bænum. Að
þessu sinni voru það Þórarinn B.
Jónsson, Þóroddur Hjaltason og
Fríða Pétursdóttir.
Akureyri fagnar 150 ára kaup-
staðarafmæli í ár, eins og greint var
frá í blaðinu í gær. Þar var nefnt að
fólk er hvatt til þess að senda afmæl-
isbarninu kort og það gerði m.a.
Auður Guðjónsdóttir, Strandgötu
41, á kynningarfundi í Minjasafninu
í gær. Auður var einni fulltrúi eldri
borgara á fundinum, og las þessa
frumsömdu vísu úr kortinu:
Eðalbærinn Akureyri
eyrin fríðust muntu tíðast,
enginn staður mun þér meiri
meðan lýðir dafna blíðast.
Í tilefni afmælisins sendir bæj-
arfélagið inn á hvert heimili litla
gjöf; segul með gamalli, stór-
skemmtilegri mynd. Segulinn er til-
valið að festa á ísskápinn. Nokkrar
myndir voru valdar og tilviljun hver
fær hverja þeirra. Kannski kemst í
tísku að býtta …
Hafin er undirskriftasöfnun gegn
tillögu að deiliskipulagi fyrir Drottn-
ingarbrautarreit – svæðið sunna og
neðan við Bautann, inn fyrir umferð-
armiðstöð.
Í tillögunni er gert ráð fyrir
töluverðri byggð; húsnæði undir
íbúðir, verslanir, þjónustufyrirtæki
og stofnanir. Nýjar íbúðir verða
meðfram Drottningarbraut og við
Hafnarstræti skv. tillögunni. Þá er
gert ráð fyrir hótelbyggingu syðst á
reitnum og nýrri aðkomugötu, húsa-
götu, samsíða Drottningarbraut.
Norðanmenn eru ekki vanir að
monta sig. Þess vegna er sjálfsagt að
segja frá því hér að vefur Akureyrar
– www.akureyri.is – þykir besti vef-
ur sveitarfélags á Íslandi. Innanrík-
isráðuneytið tilkynnti það í gær og
veitti bænum viðurkenningu. Vefur
Tryggingastofnunar var valinn besti
ríkisvefurinn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bryndís best Helga Hansdóttir, júdókona úr KA, sem varð í 3. sæti, Bryndís Rún Hansen úr Óðni og Katrín Emma
Jónsdóttir, unnusta Odds Grétarssonar úr Akureyri – handboltafélagi. Hann varð í 2. sæti en er nú á EM í Serbíu.
Bryndís best
þriðja árið í röð
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Engin vandamál hafa komið upp
vegna siglinga skemmtiferðaskipa
við Ísland en yfirvöld hafa frekar
áhyggjur lendi slík skip í óhöppum
við Grænland.
Ekki hefur þótt ástæða til þess
að grípa til leiðastjórnunar
skemmtiferðaskipa við Ísland nema
fyrir Suðvesturlandi með siglinga-
öryggi í huga. Samkvæmt reglu-
gerð um afmörkun siglingaleiða,
svæði sem ber að forðast og til-
kynningaskyldu skipa fyrir Suð-
vesturlandi hafa farþegaskip heim-
ild til þess að sigla þar inn á
afmarkað svæði frá 1. maí til 1.
október. Um er að ræða Selvogs-
bankasvæðið sunnan við breidd-
argráðuna 63°45’ N eða frá Dyr-
hólaey, suður fyrir Surtsey, upp að
Reykjanesi, með vestanverðum
Reykjanesskaga og inn á Faxaflóa,
en skipstjórnendum er skylt að til-
kynna ferðir skipa á svæðinu.
Reglugerðin nær einnig til Fugla-
skerjasvæðisins og Syðra-
Hraunssvæðisins. Sigling fyrir
Reykjanes að og frá höfnum við
Faxaflóa fer ýmist um innri eða
ytri siglingaleið og má sigla far-
þegaskipum óháð stærð um innri
leiðina frá 1. maí til 1. október.
Góðar siglingaleiðir
Baldur Bjartmarsson, for-
stöðumaður rekstrarsviðs Sigl-
ingastofnunar, áréttar að stjórn-
endum skemmtiferðaskipa beri að
fara að alþjóðlegum lögum um sigl-
ingar. Þeir séu með fullkomin
tölvusjókort eða pappírssjókort auk
þess sem hafnsögubátar fylgi þeim
gjarnan til hafnar. Hann bendir á
að siglingaleiðir við landið séu til-
tölulega góðar og hreinar fyrir utan
Breiðafjörð og Reykjanes, en vissu-
lega geti menn lent í vandamálum
fari þeir of nálægt landi.
Hættunni boðið heim
Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri
Faxaflóahafna, segir að óraunhæft
sé að hægt sé að rýma stærstu
skipin á skömmum tíma og því velti
menn því fyrir sér hvort skipin séu
orðin of stór eða hvort takmarka
þurfi fjöldann í þeim.
Halldór Nellett, skipherra og
framkvæmdastjóri aðgerðasviðs
hjá Landhelgisgæslunni undanfarin
ár, segir að í fyrsta lagi sé til stað-
ar neyðaráætlun í hverju skipi
komi upp staða eins og í skemmti-
ferðaskipinu Costa Concordia við
Ítalíu fyrir helgi. Í öðru lagi sé að-
gerðaáætlun í landi og ýmsir komi
þá að björgunarmálunum undir
stjórn Landhelgisgæslunnar. Hann
bendir á að ekki sé auðvelt að koma
yfir 4.000 manns frá borði á
skömmum tíma og bætir við að
flestar þjóðir hafi miklar áhyggjur
af svona stórslysum. Bestu að-
stæður hafi verið við eyjuna Giglio,
gott veður og enginn sjógangur.
Litlir bátar hafi getað lagst upp að
skipinu en það væri ógerlegt í mikl-
um sjógangi. Þá tæki það öfl-
ugustu þyrlur nokkra daga að
losa 4.000 manns. Helst óttuðust
menn slys í ísnum við Grænland
og því hefði Landhelgisgæslan
lagt til að skemmtiferðaskip sem
sigldu norður með ísröndinni að
Svalbarða yrðu að sigldu
tvö og tvö saman. „Fé-
lögin geta samræmt
ferðirnar,“ segir
hann.
Óttast helst óhöpp við Grænland
Landhelgisgæslan vill að skemmtiferðaskip á leið norður með ísröndinni við Grænland sigli tvö
og tvö saman Góðar siglingaleiðir við Ísland og engin vandamál komið upp vegna siglinganna
Reuters
Costa Concordia Skemmtiferðaskipið steytti á skeri við ítölsku eyjuna
Giglio með þeim afleiðingum að skipið lagðist á hliðina sl. föstudagskvöld.
Komum skemmtiferðaskipa til
landsins hefur fjölgað jafnt og
þétt undanfarin ár, þar til í
fyrra. Langflest skipin koma til
Reykjavíkur og voru 68 komur á
liðnu ári með um 63.000 far-
þega en 74 skip voru með um
70.000 farþega árið 2010.
„Það hefur aldrei verið neitt
vandamál,“ segir Ágúst Ágústs-
son, markaðsstjóri Faxaflóa-
hafna, en rifjar upp að
skemmtiferðaskipið Aida með
um 3.400 manns hafi reyndar
ekki getað lagst að bryggju við
Skarfabakka sl. sumar vegna
veðurs. „Þeir tóku enga áhættu
og biðu í níu tíma hérna fyrir
utan.“
Ekkert skemmtiferðaskip fær
að koma inn í Reykjavíkurhöfn
nema taka lóðs. Ágúst segir að
sumir hafi kvartað yfir kostn-
aðinum sem því fylgi en gerir
ráð fyrir að hinir sömu séu sátt-
ari við allar varúðarráð-
stafanir í ljósi slyssins
við Ítalíu fyrir helgi.
Eins megi gera því
skóna að skerpt verði
á umræðunni um ör-
yggi og kröfur og eft-
irlit verði hert þar
sem skemmti-
ferðaskip fari
um í heim-
inum.
Stöðugt fleiri
skipakomur
FAXAFLÓAHAFNIR
Ágúst
Ágústsson
Syðra Hraun
Fuglaskerja-
svæði
63°45 N
NV af Garðskaga
SV af
Reykjanesi
Ytri leið
Innri leið
Tilkynningaskylda
Selvogsbankasvæði
Surtsey
Heimaey
Garðskagi
Dyrhólaey
24°V 22°V 20°V
Leiðastjórnun skipa
á siglingaleiðum undan suðvesturströnd Íslands
Svæði sem
ber að forðast
Grunnkort/Loftmyndir ehf.