Morgunblaðið - 19.01.2012, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 2012
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Ef hægt er að lýsa umdeildri
stefnu eða hefð sem ristir djúpt í
sál heillar þjóðar án þess að draga
sérstaklega fram jákvæðar eða
neikvæðar hliðar hennar kemst
Færeyingurinn Regin W. Dalsga-
ard nærri því í sýningu sinni 2 mí-
nótur sem sýnd er í Norræna hús-
inu og verður uppi til 12. febrúar.
Sýningin er upplifun hans á
grindhvalaveiðum Færeyinga og
myndir hans varpa einstöku ljósi
á þessa fornu hefð Færeyinga.
„Í okkar framsækna og nútíma-
lega samfélagi er skrítið að hugsa
til þess að við erum fræg um allan
heim fyrir veiðar á grindhval. Það
sem gerir veiðarnar sérstakar er
að það taka allir þátt í þeim, hvort
sem það eru læknar, lögfræðingar
eða afgreiðslufólk í verslun, ekki
bara sjómenn og fiskvinnslufólk,“
segir Regin. Veiðarnar eru með
nokkuð sérstöku sniði en þær fara
þannig fram að þegar einn bátur
kemur auga á hóp hvala er kallað
á fleiri báta til að reka hvalina
upp í fjöru þar sem hópur fólks
tekur á móti þeim og veiðir þá í
fjöruborðinu.
Skjótum ekki sendiboðann
„Mér finnst mikilvægt að segja
frá veiðnum eins og þær eru í
myndum mínum. Ekki taka af-
stöðu með eða móti. Það er auð-
velt að setja sjálfan sig í dóm-
arasæti og gefa öðrum hvorum
málstaðnum vægi en miklu erf-
iðara að sýna umheiminum veið-
arnar á hlutlausan hátt og mér
finnst mér hafa tekist það enda
nota bæði stuðningsmenn veið-
anna myndirnar til þess að sýna
fram á að þær séu mannúðlegar
og andstæðingar þeirra til að
sýna fram á ómannúðlega meðferð
á hvölum og grimmdina í veið-
unum.“
Regin hefur ásamt því að setja
upp ljósmyndasýningu sína í Fær-
eyjum, Danmörku og á Íslandi
gefið út bókina I’m Just a Mes-
senger sem fjallar um veiðarnar
frá sjónarhóli sögumannsins sem
segir einungis söguna eins og hún
birtist honum. Regin er mikið í
mun að vera einungis sendiboðinn
og láta áhorfandann um að taka
sjálfur afstöðu til veiðanna.
Nafn sýningarinnar 2 mínótur
segir Regin vera tilkomið vegna
ofsans eða ákafans sem á sér stað
við veiðarnar. „Það voru 107 hvalir
drepnir á sjö mínútum þegar ég
tók myndirnar og nafnið er skír-
skotun í ákafann.“
„Ég er með viðskiptamenntun
og er forstjóri í eigin fyrirtæki
Globi sem er upplýsingatækni-
félag. Þá er ég einnig sjóðstjóri
hjá Færeyska framkvæmdasjóðn-
um,“ segir Regin spurður um fjöl-
breyttan bakgrunn sinn en í dag
stundar hann meistaranám í ljós-
myndun hjá New York Institute of
Photography. „Ljósmyndaáhuginn
byrjaði einfaldlega sem áhugamál
en í dag mætti segja að ég væri
atvinnumanna áhugaljósmyndari.
Ég hef verið að taka ljósmyndir
fyrir blöð og tímarit og núna sett
upp ljósmyndasýningu. Ég er enn
forstjóri og sjóðstjóri þó svo að ég
sé farinn að hafa tekjur af ljós-
myndunum mínum. Það er því nóg
að gera hjá mér enda gengur
reksturinn hjá mér vel og ég er
m.a. í viðskiptum við íslensk fyr-
irtæki.“
Hlutlaus frásögn í myndum
Hvalveiðar Frá grindhvalaveiðum í Færeyjum þar sem hópur fólks safnast saman í fjörunni þangað sem hvalirnar eru reknir og veiddir af viðstöddum.
Veiðimaður Blóði drifinn hval-
veiðimaður eftir veiðar í fjörunni.
Veiðar Bátar reka grindhvalinn upp í fjöruna þar sem hraustir menn taka á
móti þeim og tekur oft ekki nema 5 til 10 mínútur að drepa 100 hvali.
Vinnsla Grindhvalurinn skorinn
niður og afrakstrinum skipt.
Ljósmyndasýn-
ingin 2 mínótur
lýsir hvalveiðum
Færeyinga
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Tónlist er þeim töfrum gædd að hún sam-
einar fólk í takt og tóni sama hvaðan í ver-
öldinni við erum. Á erfiðum tímum leita
margir í tónlistina til að létta sér lundina,
sérstaklega á átakasvæðum veraldar, og í
kjölfar efnhagsólgu Vesturlanda. Tónlist-
armaðurinn Michael Dean Óðinn Pollock,
sem gerði garðinn frægan með Utangarðs-
mönnum á sínum tíma, hefur verið ötull við
að gefa út tónlist á netinu en hann sækir
innblástur í tónlist sína frá öllum heimsins
hornum og undirstrikar þannig á einstakan
hátt hvað mannfólkið er bæði margbrotið en
um leið svo ofboðslega líkt bæði í smekk og
skapi.
„Ný breiðskífa eftir mig kemur út í febr-
úar og heitir Universal Roots sem er skír-
skotun í uppruna tónlistarinnar sem kemur
alls staðar að. Í raun og veru má segja að
tónlistin, sem við viljum kalla Americana,
rokk og ról, kántrí eða þjóðlagatónlist, er
blanda frá öllum heimsins hornum. Banda-
rísk tónlistarmenning gerir það vel að
blanda saman tónlist frá öllum heimsálfum,“
segir Michael aðspurður um nýja plötu sína
en nýlega kom út fjögurra laga plata með
tónlist eftir hann og Sigurð Sigurðsson
munnhörpuleikara sem betur er þekktur
sem Siggi Sig.
Nýir og spennandi tímar
Nýja platan kemur til að byrja með ein-
ungis út á tölvutæku formi og er það til
marks um breytta tíma í tónlistariðnaðinum.
„Nú erum við komin inn á 21. öldina
og þetta er allt annar leikur en þegar ég
byrjaði. Ég fagna þeirri breytingu. Tónlistin
sjálf breytist voðalega lítið, hún er eins og
spírall sem bara bætist við en hún hverfur
aldrei. Ég ef verið bæði í bóka- og tónlist-
argeiranum og hef gaman af því að sjá
hvernig fólk nálgast tónlist. Þetta er allt
annar leikur í dag því það er hægt að snið-
ganga gömlu risaeðlurnar sem stýrt hafa
markaðnum. Nú fer þetta allt eftir því
hversu góð tónlistin þín er og hversu dug-
legir menn eru að koma sjálfum sér á fram-
færi.“
Michael segir að ekkert hafi verið rætt um
að gefa út plötuna á öðru formi en tölvu-
tæku en hátt í tuttugu tónlistarsíður munu
hýsa hana, m.a. tonlist.is og Gogoyoko.
Sækir innblástur í alla heimsins tónlist
Morgunblaðið/Frikki
Tónlistarmaðurinn Michael Dean Óðinn Pollock gefur út nýja breiðskífu í febrúar.