Morgunblaðið - 02.02.2012, Page 6

Morgunblaðið - 02.02.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2012 BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Fiskgengd hefur verið stigvaxandi undanfarin ár, en ég held að þetta sé að verða það allra besta sem ég man eftir,“ segir Pétur Pétursson, skip- stjóri og útgerðarmaður á Bárði SH 81. Í fyrradag komu Pétur og áhöfn hans að landi með tæplega 24 tonn eftir að hafa dregið að- eins 3½ trossu. Um metróður er að ræða, en í fyrravetur fengu þeir á Bárði einu sinni 26 tonn á einum sólarhring en lönduðu þá tvívegis. Bárður er skráður 28.6 brúttótonn og 14.94 metrar að lengd. „Síðustu 2-3 ár hefur verið mikið og vaxandi fiskirí hérna á Breiðafirðinum og ég held að þessi vetur ætli að toppa það,“ segir Pétur. „Ég er bú- inn að gera þennan bát út síðan 2001 og man ekki eftir öðru eins og hefur það þó oft verið gott. Þú mátt skila því til Steingríms að full ástæða er til að auka þorskkvótann strax um 20-30 þúsund tonn. Þorskstofninn myndi hiklaust þola það og slík aukning myndi létta ástandið í sjávarpláss- unum og í þjóðarbúskapnum í heild.“ Lönduðu tólf tonnum úr einni trossu Þegar rætt var við Pétur í hádeginu í gær voru þeir að ljúka við að draga trossu sem þeir lögðu á þriðjudag. Tólf tonn af góðum fiski voru komin í lestarnar, 99% þorskur og einn og einn stórufsi. Stefnan hafði verið tekin í land til að landa þessum afla, en síðan ætluðu þeir út aftur til að draga tvær trossur. „Það eru ekki nema um 100 tonn eftir af kvótanum þannig að á fimmtu- dag ætlum við bara að draga eina trossu og sjá svo til hvað við gerum.“ Aflann fékk Bárður um 50 mínútur út af Ólafsvík, skammt frá Búlandshöfða. Aðspurður um afla annarra sagðist Pétur halda að allir væru að fiska vel. „Mér sýndust menn vera lengi að draga þannig að ég held að allir hafi verið að fiska. Það hefur bara verið svo mikið að gera hjá mér að það hefur ekki verið tími fyrir talstöðv- arspjall.“ Galli hversu hratt gengur á kvótann „Eini gallinn við svona mikið fiskirí er hversu hratt gengur á kvótann,“ segir Björn Arn- aldsson, hafnarstjóri í Snæfellsbæ, um aflabrögð- in frá áramótum, sem hann segir hafa verið ein- staklega góð þrátt fyrir rysjótta tíð. „Þetta hefur í för með sér að minna berst á land á öðrum tímum ársins, nema einhver ætli að auka kvótann. Ég er reyndar passlega trúaður á það, en kannski er ástæða til. Það hefur veiðst vel í öll veiðarfæri og óhætt að segja að árið byrji vel þrátt fyrir ótíð,“ segir Björn. Hann segir að bátarnir landi ýmist hjá fisk- mörkuðum eða séu í föstum viðskiptum. Verð á kíló af óslægðum þorski hefur frá áramótum yf- irleitt verið um 320-340 krónur á mörkuðunum. Hvert tonn gæti því lagt sig á um 320 þúsund krónur og róðurinn stóri hjá Bárði í fyrradag á 7,7 milljónir króna. Fiskast vel í öll veiðarfæri Þriðjudagurinn var besti dagur janúarmán- aðar og það var ekki aðeins Bárður sem kom með mikinn afla að landi. Tveir stórir línubátar með beitningavél lönduðu á Rifi eftir þriggja daga úti- veru, Rifsnesið var með 58 tonn og Örvar með 41 tonn. Magnús, sem er á þorskanetum, landaði þar 30 tonnum úr sex trossum og Ólafur Bjarnason landaði 19,5 tonnum í Ólafsvík úr fjórum trossum. Af dragnótabátum má nefna að Steinunn var með 14 tonn, Guðmundur Jensson 15, Gunnar Bjarna- son 10, Stormur 11 og Sandvík 6 tonn. „Það fiskast vel í öll veiðarfæri og menn eru jöfnum höndum á línu, netum og dragnót. Það verður stöðugt algengara að menn leggi hluta af netunum og dragi samdægurs þannig að gæðin eru framúrskarandi. Í dag virðist framhald vera á góðum aflabrögðum miðað við það sem ég heyri frá köllunum. Netin bunkuð og nú er loksins renniblíða,“ sagði Björn Arnaldsson um miðjan dag í gær. Metróður og góð byrjun á vertíðinni á Snæfellsnesi  Bárður með 24 tonn úr 3½ trossu í fyrradag  Vaxandi fiskgengd síðustu ár Ljósmynd/Björn Erlendsson Góður dagur Bárður SH var hlaðinn þegar komið var í höfn í Ólafsvík á þriðjudag með 24 tonn, lest- ar fullar og stór vertíðarfiskur á dekki. Verðmæti úr róðrinum gæti hafa verið hátt í átta milljónir. Mun meiri afli barst á land í þremur höfnum Snæfellsbæjar í janúarmánuði en í sama mánuði í fyrra og nemur aukningin rúmum 950 tonnum; 3712 tonn í janúar í ár á móti 2761 tonni í janúar í fyrra. Í nýliðnum mánuði var landað 1394 tonn- um í Ólafsvík og nam aukningin 444 tonn- um. Í Rifi var landað 2080 tonnum í janúar í ár og nam aukningin 506 tonnum. Samdráttur var í lönduðum afla á Arnar- stapa sem nam 142 tonnum, en fáir leggja þar fast upp yfir vetrartímann, frekar að menn landi þar leggist veðrið í langvinna norðanátt. Mikil aflaaukning í Rifi og Ólafsvík GÓÐ VERTÍÐARBYRJUN Í SNÆFELLSBÆ Nú um mánaðamótin þurfa heimilin í landinu að greiða kortareikninga sem stofnað var til fyrir jólin. Mikið var verslað í jólamánuðinum því samkvæmt yfirliti frá Seðlabankan- um voru útgjöld heimilanna um 9 milljörðum meiri í desember en í nóvember. Í desember námu heildarúttektir á debet- og kreditkortareikningum landsmanna um 68,5 milljörðum króna, en í nóvember námu úttekt- irnar 59,6 milljörðum. Samkvæmt tölunum var jólareikningurinn í ár um tveimur milljörðum hærri en reikningurinn fyrir jólin 2010, en það er um 3% aukning. Aukningin er meiri í úttektum erlendis en inn- anlands. Þeir sem eiga í erfiðleikum með að greiða jólareikningana hafa að- allega tvær leiðir til að komast í gegnum vandann. Annars vegar að skipta reikningnum og hins vegar að draga úr útgjöldum eftir jólin. Ekki fengust upplýsingar um hversu mikið er um að fólk skipti jólareikningnum í fleiri en eina greiðslu. Tölur Seðlabankans sýna hins vegar að heimilin draga veru- lega úr útgjöldum eftir jólin. Í des- ember árið 2010 nam heildarúttekt á debetreikningum 40,3 milljörðum króna, en í janúarmánuði lækkuðu útgjöldin niður í 25,7 milljarða. Hins vegar jukust úttektir á kreditkort- areikningum um tvo milljarða á milli þessara mánaða. Jólareikningurinn var 9 milljarðar  68,5 milljarðar á kortin í desember „Það er hringt í mig á föstudags- kvöldi frá Valitor og ég spurður hvort ég sé staddur í Bandaríkj- unum, sem ég var ekki. Þá kemur í ljós að það er ein- hver að versla út á kreditkortið mitt úti í Banda- ríkjunum og þeir stoppa það,“ seg- ir Stefán S. Stef- ánsson tónlist- armaður. Alls var hátt í hálf milljón króna tekin út af kort- inu en þegar Stef- án kom á skrifstofu kortafyrirtæk- isins á mánudag kom í ljós að byrjað var að versla út á annað kort sem hann átti og voru færslurnar komn- ar upp í nokkur hundruð þúsund. „Þá kemur í ljós að einhver hafði verið með afrit af kortinu þannig að segulröndin hafði verið afrituð líka. Það eru víst einhver apparöt sem menn nota sem afrita kortin alger- lega, segulröndina og númerin. Svo skilst mér að þetta gangi kaupum og sölum á netinu,“ segir hann. Stefán hafði verið í námsferð til Boston með Tónlistarskóla Árbæjar, þar sem hann er skólastjóri, í sept- ember og hefur kortið líklega verið afritað þá. Hann getur hins vegar ekki ímyndað sér hvar það gæti hafa verið þar sem hann hafi aðeins notað kortin á fjölförnum stöðum. „Þetta þýðir að núna hefur öllum kortunum mínum verið lokað og það eru alls konar óþægindi sem fylgja þessu,“ segir Stefán. Korthafinn fær endurgreitt Bergsveinn Sampsted, fram- kvæmdastjóri kortalausna Valitors, segir að kortasvik af þessu tagi séu ekki algeng en þau þekkist þó. „Það sem gerist er að viðkomandi er að greiða og einhver búnaður hef- ur verið settur við afgreiðslutækið og þær upplýsingar sem eru á seg- ulröndinni eru afritaðar,“ segir hann en einnig séu dæmi um að slíkur búnaður sé settur á hraðbanka. Síð- an er búið til kort með upplýsing- unum og það sett í notkun. „Þegar korthafinn mótmælir þessum færslum þá fer verndarkerfi í gang sem verndar hann fyrir svona skakkaföllum. Málið fer þá í rann- sókn og korthafinn fær endurgreitt á meðan. Sé um sviksamlegar færslur að ræða er korthafinn laus allra mála og ber ekki skaða af,“ seg- ir Bergsveinn. kjartan@mbl.is Svik með afrituðum kortum  Korthafar bera ekki skaða af kortasvindli Stefán S. Stefánsson Meirapróf Næsta námskeið byrjar 8. febrúar 2012 Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.