Morgunblaðið - 03.02.2012, Síða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
Bridsdeild Félags eldri borgara
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, fimmtudaginn
26. janúar. Spilað var á 9 borðum.
Meðalskor: 216 stig. Árangur N - S:
Björn Árnas. - Auðunn Guðmundss. 258
Ásgrímur Aðalsteinss. - Jón Lárusson 257
Björn Svavarss. - Óli Gíslason 237
Magnús Oddss. - Oliver Kristóferss. 237
Árangur A - V:
Ægir Ferdinandss. - Helgi Hallgrímss. 251
Helgi Samúelsson - Sigurjón Helgason 246
Hrafnhildur Skúlad. - Guðm. Jóhannss. 227
Bjarnar Ingimars - Albert Þorsteinss 217
Bridsdeild FEB í Rvk
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 30 jan.
Spilað var á 14 borðum, meðalskor
312 stig. Árangur N-S
Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 374
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 362
Ingibjörg Stefánsd. - Elín Guðmannsd. 330
Valdimar Ásmundss. - Björn Péturss. 323
Árangur A-V
Hrólfur Guðmundss. - Karl Loftsson 393
Jón Þór Karlsson - Oddur Jónsson 344
Jórunn Kristinsd. - Sigrún Andrewsd. 343
Bergur Ingimundars. - Axel Lárusson 341
Aðaltvímenningur
Bridsfélags Reykjavíkur
Að loknum 4 kvöldum af 5 í að-
altvímenningi BR er staðan þessi í
A-riðli (% skor):
Guðjón Sigurjónss. - Vignir Hauksson 57,1
Ísak Örn Sigurðss. - Helgi Sigurðss. 56,3
Hlynur Garðarss. - Hrannar Erlingss. 55,0
B-riðill:
Stefán Stefánsson - Bergur Reyniss. 58,6.
Guðm. Baldurss. - Steinberg Ríkarðss. 58,2.
Baldvin Valdimarss. - Einar Jónsson 58,0.
Mjótt er á mununum í báðum riðl-
um og allt getur gerst.
Eldri borgarar Hafnarfirði
Þriðudaginn 31. janúar var spilað
á 18 borðum hjá Félagi eldri borgara
í Hafnarfirði, með eftirfarandi úrslit-
um í N/S:
Ólafur Ingvarss. – Óskar Ólafsson 385
Stígur Herlufsen – Sigurður Herlufsen 377
Ólafur Gíslason – Örn Einarsson 364
Albert Þorsteinss. – Ásgr. Aðalsteinss. 350
Ragnar Björnss. – Pétur Antonsson 349
A/V.
Skarphéðinn Lýðss. – Birgir Sigurðss. 391
Auðunn Guðmss. – Hlynur Antonss. 375
Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 371
Anton Jónsson – Ólafur Ólafsson 355
Tómás Sigurjónss. – Björn Svavarss. 346
Gullsmárinn
Spilað var á 13 borðum í Gull-
smára mánudaginn 30.
janúar. Úrslit í N/S:
Pétur Antonsson - Örn Einarsson 359
Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 317
Sigtryggur Ellertss. - Þorsteinn Laufdal 311
Haukur Guðbjartss. - Jón Jóhannss. 308
A/V:
Elís Helgason - Gunnar Alexanderss. 327
Haukur Guðmss. - Hrólfur Gunnarss. 315
Ármann J. Láruss. - Guðl. Nielsen 304
Ernst Backman - Tómas Sigurðss. 298
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
✝ SigurlaugJónsdóttir
fæddist að Ásólfs-
skála, Vestur-
Eyjafjöllum, 10.
júní 1916. Hún lést
á sjúkrahúsinu í
Vestmannaeyjum
13. janúar 2012.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Jón
Pálsson, f. 6.3.
1872, d. 2.2. 1930
og Þorbjörg Bjarnadóttir, f.
12.6. 1877, d. 26.12. 1965. Þau
hófu búskap að Efri-Holtum en
fluttu að Ásólfsskála árið 1914.
Sigurlaug var ellefta í röð þrett-
án barna þeirra. Þau voru: Mar-
grét, Guðbjörg, Sigurður, Páll,
Þórarinn, Jón, Ingibjörg, Sigur-
1953. Sonur þeirra er Grétar, f.
11.12. 1987, í sambúð með Heiðu
Ingólfsdóttur, f. 7.9. 1991. b)
Guðjón, f. 4.1. 1968. c) Jóna
Gréta, f. 3.9. 1984, í sambúð með
Sverri M. Jónssyni, f. 10.4. 1981.
Sonur þeirra er Guðjón Týr, f.
9.8. 2010.
Sigurlaug sinnti bústörfum á
heimili foreldra sinna þar til
hún flutti til Vestmannaeyja og
fór að vinna í Hraðfrystistöð
Einars Sigurðssonar. Eftir fæð-
ingu Jónu var Sigurlaug heima-
vinnandi, en eftir lát Guðjóns
1968 fór hún að vinna hjá Ís-
félagi Vestmannaeyja. Gosárið
1973 vann hún í nokkra mánuði í
fiskvinnu í Kópavogi, en fór aft-
ur í Ísfélagið þegar hún flutti
aftur heim og vann þar til
starfsloka um sjötugt. Sigurlaug
var félagi í Slysavarnadeildinni
Eykyndli.
Útför Sigurlaugar var gerð
frá Landakirkju í Vestmanna-
eyjum 28. janúar 2012.
björg, Einar, Einar,
Ólafur og Kristín.
Sigurlaug flutti
til Vestmannaeyja
árið 1941, og giftist
þar 7.1. 1945, Guð-
jóni Péturssyni,
vélvirkja frá
Lambafelli, A-
Eyjafjöllum, f. 18.6.
1915, d. 14.10.
1968. Hann var son-
ur hjónanna á
Lambafelli, Péturs Hróbjarts-
sonar og Steinunnar Jónsdóttur.
Sigurlaug og Guðjón eignuðust
eina dóttur: Jónu, f. 26.9. 1944,
gift Grétari Þórarinssyni, f.
14.8. 1941, og eiga þau þrjú
börn: a) Sigurlaug, f. 11.6. 1962,
gift Stefáni Ó. Jónassyni, f. 9.12.
Í dag kveð ég ömmusystur
mína Sigurlaugu eða Laugu eins
og hún var alltaf kölluð. Það var
mjög kært á milli ömmu minnar
og Laugu frænku þrátt fyrir
mikinn aldursmun. Þannig
myndaðist líka einstakt samband
milli fjölskyldu minnar og
Laugu. Ég á margar góðar
minningar um Laugu frænku.
Hún dvaldi oft hjá okkur þegar
hún kom til Reykjavíkur og
þannig tengdumst við sterkum
böndum. Ég man eftir því hvað
mér fannst gaman þegar hún var
hjá okkur í Stuðlaselinu og beið
ég þess með eftirvæntingu að
hún vaknaði á morgnana því það
var svo notalegt að vera í kring-
um hana.
Þegar ég heimsótti Laugu til
Eyja tók fjölskylda hennar alltaf
hlýlega á móti mér. Á unglings-
árum fórum við frændsystkinin
nokkrum sinnum á þjóðhátíð en
þá stóð íbúð hennar tilbúin fyrir
okkur og á meðan dvaldi hún í
Reykjavík. Þetta lýsir Laugu vel
því hún hafði svo gaman af því
að gleðja aðra. Eftir að ég flutti
vestur til Ólafsvíkur heyrðumst
við oft í síma og spjölluðum um
daginn og veginn. Mér hefur
alltaf þótt mjög vænt um hana
Laugu mína. Hún var glæsileg
kona, alltaf vel til höfð og hélt
sér vel enda leit ég á hana sem
yngri manneskju. Að lokum vil
ég þakka Laugu fyrir allt en hún
var stór hluti af lífi mínu.
Guðrún Anna Oddsdóttir.
Sigurlaug
Jónsdóttir
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Fornbókabúð á vefnum
30% afsláttur
20. jan. til og með 7.feb.
www.gvendur.is
Dýrahald
Cavalier King Charles Spaniel
til sölu
Erum með yndislega Cavalier til sölu.
Frábærir fjölskylduhundar. Uppl. í
síma 566 8417, www.dalsmynni.is.
Bjóðum raðgeiðslur Visa og Master-
card. Hundaræktun með leyfi.
Yndislegir silky terrier strákar
til sölu, tilbúnir til afhendingar í lok
feb. Afhendast örmerktir, heilsufars-
skoðaðir og með ættbók frá Rex. For-
eldrar heilsuhraustir og sýndir.
Aðeins góð heimili koma til greina.
Nánari upplýsingar í síma 696-9744 -
Karólína.
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu ýmsar gerðir sumar-
húsa við Akureyri og á Akureyri.
Upplýsingar á www.orlofshus.is.
Leó, sími 897 5300.
Hvataferðir, fyrirtækjahittingur,
óvissuferðir, ættarmót
Frábær aðstaða fyrir alla hópa.
Líka fjölskyldur. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Hljóðfæri
Hljómfagur flygill
Til sölu er vandaður svartur Estonia
flygill, 168 cm, smíðaður árið 2003,
vel viðhaldið og eins og nýr. Sérlega
gott hljóðfæri. Ásett verð 2,5
milljónir, athuga skipti á píanói.
Hafið samband við Hilmar í síma
696 8442.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og
endurvinnslu.
Fannar verðlaunagripir, Smiðju-
vegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - s. 551 6488.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Tek að mér ýmis smærri
verkefni
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Vinur minn Gissur er fallinn
frá, að honum er mikill mann-
skaði.
Ég kynntist Gissuri þegar ég
var í sveit hjá fólkinu mínu á
Gissur Þórður
Jóhannesson
✝ Gissur ÞórðurJóhannesson
fæddist 13. desem-
ber 1928 á Herjólfs-
stöðum í Álftaveri.
Hann lést á hjarta-
deild Landspítalans
16. janúar 2012.
Gissur var jarð-
sunginn frá
Þykkvabæjar-
klausturskirkju 28.
janúar 2012.
Þykkvabæjar-
klaustri. Álftaverið
varð mín sveit og ég
var svo lánsöm að
eignast vini í því góða
fólki sem þar bjó og
býr. Verið hefur lifað
af sambýli við Kötlu
sem reglulega hefur
skvett úr skálum reiði
sinnar og sent íbúum
þess jökulhlaup og
gjósku, skemmt land-
gæði en jafnframt mótað hið ein-
staka landslag sem prýðir þessa
sveit. Katla er vissulega ógnvaldur,
íbúarnir þekkja hana og afleiðingar
hennar vel enda hefur saga hennar
lifað með þeim mann fram af
manni. Hún truflar hins vegar
ekki daglegt líf þeirra né eru þeir
sífellt að ræða hana. Í jarðlögum,
á yfirborði lands og í byggðasög-
unni er saga Kötlugosa skráð, en
hún er líka greypt í minni íbúanna.
Gissur þekkti sögu Kötlu vel og
lagði sig fram um að skilja og
finna ummerki um hana með því
að fara rannsóknarleiðangra frá
sjó til jökla. Hann var óbilandi for-
vitinn og alltaf tilbúinn að ræða at-
huganir sínar og miðla af þekk-
ingu sinni.
Þegar ég safnaði örnefnum í
Álftaveri í tengslum við lokarit-
gerð mína við Háskóla Íslands
leitaði ég til þeirra Veringa sem
gjörst þekktu til, Gissur var einn
þeirra. Hann fór með mér um land
Herjólfsstaða og víðar að skrá og
skýra örnefni. Það var ógleyman-
legt að læra t.d. hvar bestu mel-
torfurnar voru og hvernig þær
höfðu flust til, hvar sofnhúsið sem
brann stóð og hve hátt upp í
Langasker Kötluhlaupið hafði náð,
ummerkin sáust enn í mosanum.
Við Gissur urðum miklir mátar.
Áhrif Kötlugosa á samfélag
urðu síðar eitt af mikilvægum
verkefnum mínum við háskólann.
Þá var enn leitað til Veringa og
Gissurar. Hann varði tímunum
saman með mér og framhaldsnem-
um mínum, ósínkur á tíma sinn,
hvort sem var úti í náttúrunni eða í
notalegu eldhúsinu á Herjólfsstöð-
um, þar sem Sigurlaug bar fram
kaffi og meðlæti, hádegis- og
kvöldmat því heimsóknin dróst á
langinn. Gestrisnin og áhuginn á
að deila þekkingu og hugleiðingum
var takmarkalaus. Gissur hafði
ákveðnar skoðanir, læddi þeim
fram, leit svo á mann kankvís og
hló þessum dillandi hlátri. Hann
var stríðinn og svo ótrúlega glett-
inn.
Gissur var sérstaklega athugull
og fróður, einn af bændum lands-
ins sem eru svo miklir kunnáttu-
menn án þess að hafa gengið hinn
formlega menntaveg. Maður kom
aldrei að tómum kofanum, hann
þekkti umhverfi sitt, hafði óbrenn-
andi áhuga á því, las allt sem hann
komst yfir um náttúruna og sög-
una, og kunni. Með því að tengja
lýsingar og nákvæma þekkingu á
umhverfi sínu gat hann lýst í smá-
atriðum hvar Kötluhlaup höfðu
farið, hvað stóð upp úr og hvaða
leið íbúar völdu til að komast í
öruggt skjól fyrir hlaupinu sem
var yfirvofandi. Það var eins og
hann hefði horft á þetta með eigin
augum. Hann hlustaði vel á þá
sem höfðu upplifað gosið 1918 og
tileinkaði sér þá þekkingu allt frá
barnsaldri. Gissur hræddist ekki
Kötlu en hann langaði ekki að hún
kæmi.
Ég þakka mínum kæra vini all-
ar gæðastundirnar og sendi Sig-
urlaugu og fjölskyldunni mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Guðrún Gísladóttir.
Til minningar um góða vin-
konu.
Ljúfar voru stundir
er áttum við saman.
Þakka ber Drottni
allt það gaman.
Skiljast nú leiðir
og farin ert þú.
Við hittast munum aftur,
það er mín trú.
Hvíl þú í friði
í ljósinu bjarta.
Ég kveð þig að sinni
af öllu mínu hjarta.
(Maren Jakobsdóttir.)
Með þessum ljóðlínum vil ég
minnast Gunnu mágkonu minnar
og þakka henni fyrir þær stundir
sem við áttum saman í þessu jarð-
ríki.
Börnum Gunnu og öðrum ást-
vinum votta ég mína dýpstu sam-
úð og ég bið guð að styrkja þau í
sorg sinni.
Minning um einstaka konu mun
lifa í huga mér um ókomna tíð.
Elísabet Sigurðardóttir
(Elsa.)
Guðrún
H. Magn-
úsdóttir
✝ Guðrún Halldóra Magn-úsdóttir fæddist 25 júlí
1940. Hún lést 15. janúar 2012.
Útför Guðrúnar hefur farið
fram í kyrrþey.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Neðst
á forsíðu mbl.is má finna upp-
lýsingar um innsending-
armáta og skilafrest. Einnig
má smella á Morgunblaðs-
lógóið efst í hægra horninu og
velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir
birtingu á útfarardegi þarf
greinin að hafa borist á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, jafnvel
þótt grein hafi borist innan
skilafrests.
Undirskrift | Minning-
argreinahöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín undir
greinunum.
Minningargreinar