Morgunblaðið - 03.02.2012, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2012
Grímuklæddir menn,
ekki glæpamenn
heldur hetjur, þeysast um
götur ... 31
»
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Skrímslið litla systir mín nefnist nýtt
íslenskt barnaleikrit sem leikhúsið
Tíu fingur frumsýnir í Norræna hús-
inu á morgun kl. 12. Verkið fjallar um
strák sem eignast litla systur og
kemst fljótlega að því að hún er ekk-
ert venjulegt barn heldur skrímsli
sem ætlar að éta mömmu hans upp til
agna og jafnvel allan heiminn. Til að
bjarga bæði mömmu sinni og heim-
inum þarf hann að ferðast gegnum
skuggalega skóga, um dimmar
drekaslóðir og alla leið út á heims-
enda. Í leiðinni lærir hann að elska
litlu systur sína.
„Hugmyndin að sýningunni byggir
á sögu sem Úlfur sonur minn sagði
mér þegar litla systir hans fæddist
fyrir þremur árum,“ segir Helga sem
leikur í sýningunni, hannar leikmynd-
ina og semur textann í samvinnu við
Charlotte Bøving sem leikstýrir sýn-
ingunni. Að sögn Helgu er sýningin
ætluð börnum á aldrinum 3-9 ára. Að-
spurð segir hún sýninguna fjalla um
afbrýðisemina en sagan er sögð sem
ævintýri. „Enda fjalla ævintýri oft
um djúpar tilfinningar,“ segir Helga
og bendir á að í ævintýrinu um Hans
og Grétu sé tekist á við stærsta ótta
barna sem er að missa foreldra sína.
Í sýningunni notast Helga aðeins
við hvítan pappír, nýja tónlist eftir
Eivör Pálsdóttur, ljós og skuggaleik-
hús til að segja söguna. „Ég býð
börnunum inn í hvítan pappírsheim
þar sem pappírinn lifnar smám sam-
an við og verður að persónum sög-
unnar,“ segir Helga sem er menntað-
ur myndlistarmaður og hefur starfað
sem brúðuleikari sl. tuttugu ár. „Í
raun má segja að í þessari sýningu
sameini ég í fyrsta sinn þetta tvennt,
því þetta er nánast eins og myndlist-
argjörningur þar sem ég er að rífa
pappírinn, bleyta hann og krumpa til
að segja söguna,“ segir Helga og
bendir á að aðstandendur sýning-
arinnar hafi á æfingaferlinu notið að-
stoðar Rene Baker, sem er þekkt
bresk brúðulistakona.
Að sögn Helgu tekur sýningin um
40 mínútur í flutningi og í framhald-
inu er boðið upp á 45 mínútna vinnu-
stofu þar sem börnum í áhorf-
endahópnum gefst tækifæri til að
skapa hluti og eigin persónur úr
pappírnum, sem notaður var í sýning-
unni, undir handleiðslu Helgu og Evu
Signýjar Berger búningarhönnuðar
sýningarinnar.
Þess má að lokum geta að sýningin
verður aðeins sýnd í Norræna húsinu
um helgar út febrúarmánuð, en strax
í mars leggur hún land undir fót. „Ég
mun leika sýninguna á Norður-
bryggju í Kaupmannahöfn á íslensku.
Í haust er ætlunin að fara með sýn-
inguna til Álandseyja og leika hana
þá á skandinavísku og næsta vetur er
stefnan svo sett á Færeyjar þar sem
ég ætla að leika hana á færeysku,“
segir Helga.
Leiksýning spunnin úr pappír
Barnaleikritið Skrímslið litla systir mín frumsýnt í Norræna húsinu á morgun
Farið verður með sýninguna í leikferð til Danmerkur, Færeyja og Álandseyja
Ævintýri „Ég býð börnunum inn í hvítan pappírsheim þar sem pappírinn
lifnar smám saman við og verður að persónum sögunnar,“ segir Helga.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Barnabókasetur, rannsóknasetur
um barnabókmenntir og lestur
barna, við Háskólann á Akureyri
verður stofnað formlega á Amts-
bókasafninu á Akureyri á morgun
kl. 12:00.
Markmiðið með setrinu er m.a.
að efla rannsóknir og fræðslu um
barnabókmenntir og lestur hér-
lendis, miðla þekkingu og upplýs-
ingum um barnabókmenntir á Ís-
landi og stuðla að sýnileika þeirra í
samfélaginu, vinna að framgangi
lestrarmenningar meðal barna og
ungmenna á Íslandi, taka þátt í al-
þjóðlegri þekkingarsköpun á
fræðasviðinu og standa fyrir mál-
þingum og stuðla að útgáfu fræði-
legs efnis á sviðinu.
Til eflingar
lesturs
Barnabókasetur
stofnað við HA
Í dag hefst í húsakynnum Crymogeu
á Barónsstíg markaður helgaður
myndlistarbókum og bókverki. Á
markaðnum, sem ber yfirskriftina
Listabókahelgi Crymogea, verða til
sýnis og sölu bækur um listamenn
og bækur eftir listamenn. Lista-
verkabækur frá ýmsum útgefendum
verða til sölu og skoðunar á mark-
aðnum. Markaðurinn stendur frá
deginum í dag og fram á sunnudag,
en á laugardag og sunnudag kl. 14
flytja myndlistarmennirnir Katrín I.
Jónsdóttir Hjördísardóttir og Ragn-
hildur Jóhanns gjörninga.
Margrét Áskelsdóttir kynningar-
stjóri Crymogeu setur markaðinn
upp. Hún segir að á markaðnum
verði ýmis bókverk til sýnis og sölu
sem telja megi einstök og eins lista-
verkabækur sem margar hafi ekki
sést árum saman. „Mörg af þeim
verkum sem við verðum með á
markaðnum vekja spurningar um
hvar mörkin liggja á milli bókar og
bókmverks, en þetta er markaður
helgaður myndlistarbókum og bók-
verki, sem ég nota sem samheiti yfir
myndverk sem tengjast bókum að
formi eða hugtaki.“
Morgunblaðið/RAX
Bókverk Margrét Áskelsdóttir
kynningarstjóri Crymogeu.
Listabóka-
helgi
Crymogea
Markaður helg-
aður myndlistarbók-
um og bókverki
Íslenski saxófónkvartettinn
heldur tónleika í sal Tónlistar-
skólans í Garðabæ við Kirkju-
lund á morgun kl. 13.00. Flutt
verða verk eftir Giovanni Gabr-
ieli, Jean Baptiste Singelée,
Jean River, Astor Piazolla og
Karólínu Eiríksdóttur. Með-
limir Íslenska saxófón-
kvartettsins eru Vigdís Klara
Aradóttir á sópran-saxófón,
Sigurður Flosason á alt-
saxófón, Peter Tompkins á tenór-saxófón og Guido
Bäumer á barítón-saxófón. Saxófónnemendur úr
Tónlistarskóla Garðabæjar verða sérstakir gestir á
tónleikunum og leika með í einu verkanna.
Tónlist
Tónverk fyrir
saxófónkvartett
Sigurður
Flosason
Valgerður Freeland Sigurðar-
dóttir opnar sína fyrstu einka-
sýningu í Gallerí 002 að Þúfu-
barði 17 á morgun kl. 14.
Viðfangsefni sýningarinnar
eru þrjú, en mynda eina heild.
Um er að ræða abstrakt og fíg-
úratíf málverk, ljósalampa og
plánetur sem lýsa í myrkri og
loks risaeðluinnsetningu með
150 risaeðlum sem Valgerður
safnaði á síðasta ári. Valgerður
hreppti fyrsta sætið í Skúlptúrkeppni Íslands
undir lok síðasta árs en í verðlaun var að sýna
fyrstu sýningu ársins 2012 í 002 Gallerí. Sýningin
er aðeins opin á morgun og hinn milli kl. 14 og 17.
Myndlist
150 risaeðlur í
Gallerí 002
Valgerður Free-
land Sigurðardóttir
Möguleikhúsið sýnir barna-
leikritið Prumpuhólinn í
Gerðubergi sunnudaginn 5.
febrúar kl. 14. Leikritið fjallar
um stúlkuna Huldu sem kynn-
ist Steina, kátum tröllastrák.
Hann sýnir henni hól sem gef-
ur frá sér dularfull hljóð og
segir hólinn vera pabbi sinn. Sá
hafi lent í sólargeisla og orðið
að steini eftir að hafa borðað
hundasúrugraut. Leikstjóri er
Pétur Eggerz sem jafnframt leikur annað tveggja
hlutverka á móti Önnu Brynju Baldursdóttur.
Sýningin er ætluð áhorfendum á aldrinum tveggja
til 10 ára og tekur 45 mínútur í flutningi.
Leiklist
Möguleikhúsið
sýnir Prumpuhól
Pétur Eggerz og
Anna Brynja
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Leikfélagið Hugleikur frumsýnir í
dag nýtt íslenskt leikrit er nefnist Sá
glataði. Sigríður Lára Sigurjóns-
dóttir skrifaði verkið eftir spuna-
vinnu leikhópsins
með dæmisögur
Jesú úr Biblíunni.
Líkt og oft áður í
sýningum Hug-
leiks er tónlist
fyrirferðarmikil
og er Þorgeir
Tryggvason tón-
listarstjóri. Þau
Ágústa Skúla-
dóttir leikstjóri
áttu þá hugmynd að Hugleikshópur-
inn skapaði verk út frá dæmisög-
unum.
„Okkur þótti þetta spennandi efni-
viður,“ segir Ágústa. „Við byrjuðum
á rannsóknarvinnu í tvær, þrjár vik-
ur og vorum fyrst með 29 sögur. Við
lékum okkur með frásagnar- og leik-
aðferðir, til að sjá hvaða leið við vild-
um fara. Fyrir valinu varð að búa til
verk sem væri sjálfstæð heild og í
framhaldi af því skrifaði Sigríður
Lára leikrit sem lagt var af stað í að
sviðsetja. Sagan um týnda soninn er
rauði þráðurinn í verkinu. Í upphafi
biður sonurinn, Lúkas að nafni, um
föðurarf, lofar að kasta honum ekki á
glæ og heldur síðan að heiman eftir
að hafa lofað að koma fljótt aftur.
Hann þarf að finna týnda sauðinn.
Þetta ferðalag spannar langan tíma
og er æði viðburðaríkt.“
Á ferðalaginu lendir týndi sonur-
inn í þrekraunum og honum mæta
bæði harmur og gleði. Ágústa segir
að hann „fari gegnum níu dæmisög-
ur á þessu ferðalagi“. Hann er til að
mynda verkamaður í víngarði og
vinnur sem þjónn hjá harðlyndum
kaupmönnum.
„Leikhópurinn bregður sér í ýmis
hlutverk, sem þau góðmenni og ill-
menni sem Lúkas rekst á á ferðalag-
inu, og öll syngja þau sem englar,“
segir Ágústa.
Leikritið Sá glataði er sýnt í hús-
næði Hugleiks að Eyjaslóð 9.
Sagan um týnda soninn er
rauði þráðurinn í verkinu
Hugleikur
frumsýnir nýtt
íslenskt leikrit
Í Þeim glataða „Við höfðum úr mörgum merkilegum dæmisögum að moða,“ segir Ágústa Skúladóttir leikstjóri.Ágústa Skúladóttir