SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Síða 6
6 8. janúar 2012
Abdoulaye Wade hefur gegnt embætti forseta Sene-
gal síðan árið 2000. Wade, sem lengi hefur sinnt
stjórnmálum, er þriðji forseti landsins síðan það
hlaut sjálfstæði frá Frakklandi árið 1960. Hann hefur
verið formaður Lýðræðisflokks Senegals frá stofnun,
1974, lengstum í stjórnarandstöðu. Hann bauð sig
fyrst fram til forseta 1978, en náði loks takmarki
sínu í fjórðu tilraun.
Talið er að Wade sé fæddur í september árið 1926
og sé því 85 ára, en því hefur raunar verið haldið
fram að hann sé enn eldri. Heimildir um slíka tölfræði
eru ekki taldar mjög traustar í landinu þannig að
enginn getur fullyrt með vissu um aldur forsetans.
Wade er lögfræðingur og hagfræðingur, menntað-
ur í Frakklandi. Eiginkona hans er Viviane Wade og
eiga þau tvö uppkomin börn, sem bæði starfa náið
með föður sínum.
Forsetinn hefur verið gagnrýndur fyrir ýmsilegt,
m.a. fjáraustur. Wade var t.d. fordæmdur þegar hann
lét reisa 49 metra háa bronsstyttu, Endurreisn Afr-
íku, sem vígð var 2010 og kostaði andvirði nærri 3,4
milljarða króna að sögn AP fréttastofunnar á þeim
tíma. Ekki dró úr gagnrýninni þegar forsetinn til-
kynnti að hann ætti rétt á 35% þeirra tekna sem til
yrðu vegna ferðaþjónustu á staðnum, vegna þess að
hugmyndin frábæra að styttunni væri hans.
Fregnir á sínum tíma hermdu að nærri 50 Norður-
Kóreubúar hefðu verið fluttir inn til þess að vinna að
gerð styttunnar, vegna sérþekkingar þeirra í með-
höndlun á bronsi.
Reisti minnismerki fyrir 3,4 milljarða
Abdoulaye Wade forseti Senegal er talinn 85 ára en
stefnir galvaskur að endurkjöri í næsta mánuði.
Tónlistarmaðurinn Youssou N’Dourhefur fyrir löngu sungið sig inn íhjörtu Senegala og reyndar tónlistar-unnenda víða um heim. Hann hefur
árum saman verið talsmaður umbóta í heima-
landi sínu og upplýsti í vikunni að hann hefði
ákveðið að bjóða sig fram í forsetakosningum í
næsta mánuði.
N’Dour, sem er 52 ára, tilkynnti framboðið á
eigin útvarps- og sjónvarpsstöð og margir bíða
spenntir eftir því hvort frami hans í pólitík
verður jafn mikill og í músíkinni.
Tónlistarmaðurinn hefur mjög gagnrýnt for-
seta Senegal, Abdoulaye Wade, fyrir fjáraustur
til ýmissa gæluverkefna á meðan atvinnuleysi í
landinu er gríðarlegt og meðallaun þeirra sem
hafa vinnu eru andvirði þriggja bandaríkjadala
á dag; um 370 krónur.
Vinsæll og veit af því
„Íbúar landsins hafa í langan tíma sýnt mikla
bjartsýni og dreymt um „nýtt“ Senegal,“ sagði
N’Dour þegar hann tilkynnt framboð sitt í
vikunni. „Þeir hafa á ýmsan hátt farið fram á
að ég byði mig fram til forseta. Ég lagði við
hlustir. Ég heyrði,“ sagði hann. „Satt er það að
ég hef enga háskólagráðu – en það er ekki
nauðsynlegt til að vera forseti,“ bætti „Ís-
landsvinurinn“ við, en N’Dour kom fram á
Tónlistarhátíð í Reykjavík í Laugardalshöllinni
um miðjan júnímánuð árið 2000.
Youssou N’Dour var í fararbroddi þeirra
sem endurnýjuðu tónmál senegalskrar dæg-
urtónlistar með því að blanda saman þjóð-
legri tónlist og rafvæddu afrísku poppi. Hann
varð snemma gríðarlega vinsæll í Senegal, og
þá ekki síst fyrir texta sína sem þóttu mjög
djarfir í pólitísku tilliti. Hann tók síðar þátt í
starfi á vegum Amnesty International og fór
um heiminn með vestrænum stórstjörnum til
að hvetja fólk til að taka þátt í starfi samtak-
anna. Fyrir nokkrum árum sendi hann frá
sér plötu sem var samfelld hylling islamstrú-
ar.
Stjórnarskipti hafa jafnan verið friðsöm í
Senegal og ekki virðist mikill ótti fyrir hendi
um að það breytist. Þó sauð upp úr í fyrra-
sumar þegar Wade lagði til nýtt kosningafyr-
irkomulag sem talið var að myndi auka lík-
urnar á að hann næði endurkjöri og
almenningur hefur annað veifið mótmælt
kröftuglega ítrekuðu rafmagnsleysi í landinu.
Fyrir stuttu sló í brýnu með almennum
borgurum og óeirðalögreglu með þeim af-
leiðingum að 100 voru sárir eftir.
Karim, sonur forsetans og eiginkonunnar
Viviane Wade, er ráðherra í ríkisstjórn föður
síns og talið að hinn aldni forseti líti á soninn
sem ákjósanlegan eftirmann.
Dóttirin Sindjely Wade er sérlegur aðstoð-
armaður forsetans en þess má geta að Wade
hefur m.a. verið legið á hálsi fyrir að hygla
sínum nánustu og góðum vinum. Pólitískir
andstæðingar forsetans hafa jafnframt gagn-
rýnt hann hin síðar ár fyrir spillingu, að
hefta frelsi fjölmiðla og ýmis mannréttinda-
brot af öðru tagi.
Kosningarnar fara fram 26. febrúar. Deil-
ur hafa staðið yfir undanfarið um það hvort
Wade forseti geti yfirhöfuð setið þriðja kjör-
tímabilið. Stjórnarskrá landsins var breytt
fyrir nokkrum árum og skv. henni getur
forseti aðeins verið í embætti tvö kjör-
tímabil. Wade heldur því fram að hið fyrra
tímabil hans teljist ekki með því hann var
kjörinn áður en stjórnarskránni var breytt
og von er á úrskurði í þessu máli fljótlega.
Enginn á þó von á öðru en forsetinn verði í
framboði.
Stöðugt ástand
Lýðræði er talið standa á traustum grunni í
Senegal. Wade segist sannfærður um sigur í
kosningunum og gerði býsna lítið úr keppi-
nautunum, sem verða nokkrir eftir því sem
næst verður komist. Það er talið auka lík-
urnar á að forsetinn verði kjörinn.„Ég geng
til kosninga án nokkurrar mótspyrnu,“
sagði hann við franska fjölmiðla á fimmtu-
daginn. „Ég er við hestaheilsu og tilbúinn í
slaginn,“ sagði forsetinn, og neitaði fregn-
um um að hann væri heilsuveill.
Byggt á Guardian og AFP.
Söngvari
vill bjarga
Senegal
Youssou N’Dour
býður sig fram
til forseta
Youssue N’Dour syngur á tónleikum í Túnis í haust, þarlendum ungmennum til heiðurs. Arabíska vorinu var þar ákaft fagnað.
ReutersVikuspegill
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Lýðveldið Senegal er
við Atlantshafsströnd
Afríku. Það á landa-
mæri að Máritaníu í
norðri, Malí í austri
og Gíneu og Gíneu-
Bissau í suðri. Landið
er 197.000 ferkíló-
metrar að stærð,
tæplega tvöfalt
stærra en Ísland,
og íbúarnir um 14
milljónir. Höfuðborgin
er Dakar. Við hana er
kennd þekktasta rall-
keppni í heimi.
Senegalar
eru 14
milljónir
– fyrst og fre
mst
ódýr!
OPIÐ
LENGUR!
10-20
Breyttur opnunartími á
Akranesi, Bíldshöfða og Granda
Opið alla daga frá kl. 10-20