SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Blaðsíða 8
8 8. janúar 2012
Ákvörðun Angelu Merkel um að
tefla Wulff fram til forseta 2010
var umdeild á sínum tíma og þótti
ákvörðun hennar til marks um að
hún gæti ekki hafið sig yfir flokks-
línur. Þingið kýs forsetann og það
var ekki fyrr en í þriðju atkvæða-
greiðslu að hann fékk nægan
stuðning í embættið. Þeim, sem
gagnrýndu valið á Wulff hvað
harðast, þykir sem réttmæti þeirr-
ar gagnrýni hafi nú komið fram.
Wulff gekk í flokk kristilegra
demókrata 1975 og kleif þar upp
metorðastigann. Í mars 2003
varð hann forsætisráðherra í
Neðra-Saxlandi og gegndi því
embætti til 30. júní 2010 þegar
hann var kjörinn forseti.
Þingið í Neðra-Saxlandi spurð-
ist fyrir um hagsmunaárekstra í
sambandi Wulffs við vin sinn, auð-
manninn og frumkvöðulinn Egon
Geerkens, á meðan hann var þar
enn við völd. Hann neitaði því og
nefndi ekki 500.000 evra (tæp-
lega 80 milljóna króna) lán, sem
Edith, eiginkona Geerkens, hafði
veitt honum 2008 til húsakaupa.
Wulff gaf út yfirlýsingu 22. des-
ember þar sem hann baðst afsök-
unar og kvaðst hefðu átt að gera
hreint fyrir sínum dyrum fyrr.
Pólitískur stuðningur við Wulff
hefur minnkað og Merkel hefur
látið nægja að gefa út stuttorðar
stuðningsyfirlýsingar án þess að
fjalla efnislega um málefni
Wulffs.
Þagði um lánið þegar spurt var um tengsl
Hús Christians Wulffs, forseta Þýskalands, í Burgwedel, skammt frá
Hannover, höfuðborg Neðra-Saxlands. Hann tók lánið til að kaupa það.
Reuters
Christian Wulff, forseti Þýskalands, er íeldlínunni þessa dagana. Lán, sem hannfékk hjá eiginkonu auðugs verktaka oggamals vinar á lágum vöxtum til þess að
borga fyrir húsnæði, hefur vakið mikla gagnrýni
og ekki bætti úr skák þegar upplýstist að hann
hefði hringt í Kai Diekmann, ritstjóra dagblaðsins
Bild, og haft í hótunum við hann í skilaboðum,
sem hann skildi eftir á símsvara hans, ef hann birti
frétt um húsnæðislánið í blaði sínu.
Húsnæðislánið komst í hámæli snemma í des-
ember og síðan hefur fyrirspurnum fjölmiðla rignt
yfir forsetaembættið og kröfur um að hann segði
af sér farið vaxandi. Á miðvikudag kom Wulff
fram í sjónvarpi í því skyni að lægja öldurnar. Í
tuttugu mínútna viðtali kvaðst Wulff hafa gert
„alvarleg mistök“ þegar hann hringdi í Diekmann.
Um leið sagði hann að sér hefði liðið eins og
„fórnarlambi“ þegar hann frétti á embættisferð í
útlöndum að í Bild ætti að fjalla um lánið frá
eiginkonu vinar hans. Hann sagði að um vin-
argreiða hefði verið að ræða og bætti við: „Ég
myndi ekki vilja vera forseti í landi þar sem ekki
er hægt að fá lánað hjá vini sínum.“
Wulff kvaðst hins vegar ekki hafa nein áform
um að segja af sér. „Ég mun sinna skyldum mín-
um með ánægju, ég tók þær að mér til fimm ára,“
sagði hann. Kvaðst hann vonast til þess að þegar
kjörtímabili sínu lyki 2015 myndu verk hans sýna
að hann hefði verið „góður og farsæll forseti“.
Wulff slapp ekki klakklaust frá sjónvarpsviðtal-
inu. Ritstjórn Bild hafnar þeirri útleggingu hans að
hann hafi í reiðilestri sínum á símsvaranum aðeins
ætlað að koma því til leiðar að umfjöllun blaðsins
yrði frestað um einn dag. Hann hefði greinilega
ætlað að stöðva fréttina. Blaðið hefur farið fram á
að fá að birta skilaboðin þannig að hið rétta komi í
ljós, en forsetinn neitar. Wulff benti á að hann
hefði síðar beðist afsökunar og ritstjórinn fallist á
afsökunarbeiðnina. „Með því var málið afgreitt
milli okkar. Og þannig ætti það að minni hyggju
að vera,“ skrifaði hann.
Nú hafa einnig komið fram fullyrðingar um að
hann hafi orðið tvísaga um lánið sjálft. Wulff hélt
því fram í sjónvarpsviðtalinu að láninu frá eigin-
konu vinar hans hefði verið breytt í bankalán og
það hefði verið frágengið í lok nóvember, áður en
umfjöllun fjölmiðla um málið hófst. „Á þessu
sviði gildir einnig handsal þegar samkomulag er
gert við banka,“ sagði Wulff.
Nú hefur hlutaðeigandi banki gefið út yfirlýs-
ingu um að það sé ekki rétt. Reyndar hafi verið
munnlegt samkomulag, en það hafi ekki lagalegt
gildi. „Lýsing Wulffs í viðtalinu er röng,“ sagði
Günter Hörmann, yfirmaður hjá bankanum, og
bætti við að lánasamningur tæki ekki gildi fyrr en
eftir undirritun. Samkvæmt bankanum var
samningurinn um lánið ekki sendur út fyrr en 12.
desember og hann undirritaði 21. desember,
rúmri viku eftir að fjölmiðlafárið hófst.
Staða Wulffs skánaði aðeins í augum almenn-
ings eftir viðtalið. Samkvæmt könnun Infratest
fyrir þýska ríkissjónvarpið, ARD, daginn eftir
viðtalið voru 56% á því að hann ætti að sitja
áfram, en aðeins 47% voru þeirrar hyggju daginn
áður. Wulff situr áfram, en staða hans hefur
veikst. Á fréttavef Der Spiegel sagði að alkunna
væri að enginn pólitískur leiðtogi vildi láta kjósa á
ný um forseta. „Því fær Wulff að sitja áfram. Um
sinn.“
Forseti Þýska-
lands í eldlínunni
Fékk fyrirgreiðslu frá auðug-
um vini og hótaði fjölmiðlum
Christian Wulff, forseti Þýskalands, tók í gær á móti barnakór, sem
nefnist Sternsinger og syngur jólalög, í Bellevue-kastala í Berlín.
Reuters
Wulff var á forsíðum allra fjölmiðla eftir sjónvarps-
viðtalið þar sem hann baðst afsökunar á miðvikudag.
Reuters
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
„Sá sem ætlar nú að gera mál
og vanda forsetans að „valda-
baráttu“ á milli æðsta manns
ríkisins og stærsta blaðs
landsins er sannarlega á al-
gerum villigötum,“ sagði Kai
Diekmann, ritstjóri Bild, í
grein í blaði sínu og bætti við
að blaðið væri alls ekki í ein-
vígi við Christian Wulff for-
seta.
Átök milli for-
seta og blaðs
Verðin
gilda f
rá 4. ja
n. - 5. f
eb.
www.
ILVA.isSAVONA
Vasi. H
35 cm
. Ýmsir
litir. Ve
rð 3.99
5,- NÚ
2.395,
-
JELLYF
ISH
9.900
............
............
............
...
sparaðu
5.000
BIRCH
Borðst
ofustó
ll m/dö
kkblár
ri sess
u. Hvít
málað
birki/M
DF. Ve
rð 12.90
0,- NÚ
7.500,
-
20-60
% afsl
áttur
glerská
pur
59.900
............
............
............
.......
sparaðu
40.000
BIRCH
Skápu
r. Hvítm
álað b
irki/MD
F. 110x
55x210
cm.
Verð 9
9.900,
- NÚ 59
.900,-
BIRCH
Sjónva
rpsská
pur. Hv
ítmála
ð birki
/MDF.
151x50
x51 cm
.
Verð 5
9.900,
- NÚ 35
.900,-
BIRCH
Sófab
orð m/
2 skúff
um. Hv
ítmála
ð birki
/MDF.
140x8
0x48 c
m. Ver
ð 39.90
0,- NÚ
23.900
,-
stóll
7.500
............
............
...........
sparaðu
5.400
borð
39.900
............
............
............
........
sparað
u 30.00
0
JELLY
FISH
Stóll m
/loftb
olta. B
lár. H6
1 cm.
Verð 14
.900,-
NÚ 9.9
00,-
BIRCH
Borðst
ofubo
rð m/i
nnbyg
gðri fra
mleng
ingu. H
vítmál
að
birki/M
DF. 20
0/280
x100x7
8 cm.
Verð 6
9.900,
- NÚ
39.900
,-
Bjóðu
m upp
á
vaxtal
aust
lán til
6 mán
aða sendu
m um a
llt land
GAUD
Y GLO
BE
Kúluljó
s. Ø36
cm.
Verð 8
.995,- N
Ú 5.99
5,-
Ýmsir li
tir.
GAUDY
GLOBE
5.995
............
............
...........
sparaðu
3.000
HORS
E
Hvítur
hestur
. 17x14,
5 cm.
Postul
ín. Verð
1.695,-
NÚ 99
5,-
OWL
Sparib
aukur,
hvít ug
la. H18
cm.
Verð 3.
495,- N
Ú 2.79
5,-
40%
............
............
...........
af BIRC
H
Verðin gilda frá 4. jan - 5 f b
SAVONAVasi. H35 cm. Ýmsir litir. Verð 3.995,- NÚ 2.395,-
JELLYFISH
9.900.......................................sparaðu 5.000
BIRCH
Borðstofustóll m/dökkblárri sessu. Hvítmálað
birki/MDF. Verð 12.900,- NÚ 7.500,-
20-60% afsláttur
glerskápur
59.900...........................................sparaðu 40.000
BIRCH
Skápur. Hvítmálað birki/MDF. 110x55x210 cm.
Verð 99.900,- NÚ 59.900,-
BIRCH
Sjónvarpsskápur. Hvítmálað birki/MDF. 151x50x51 cm.
Verð 59.900,- NÚ 35.900,-
BIRCH
Sófaborð m/2 skúffum. Hvítmálað birki/MDF.
140x80x48 cm. Verð 39.900,- NÚ 23.900,-
stóll
7.500...................................sparaðu 5.400
borð
39.900............................................sparaðu 30.000
JELLYFISHStóll m/loftbolta. Blár. H61 cm.
Verð 14.900,- NÚ 9.900
BIRCH
Borðstofuborð m/innbyggðri framlengingu. Hvítmálað
birki/MDF. 200/280x100x78 cm. Verð 69.900,- NÚ
39.900,-
Bjóðum uppávaxtalaustlán til 6 mánaða
sendum um allt land
GAUDY GLOBEKúluljós. Ø36 cm.Verð 8.995,- NÚ 5.995,-Ýmsir litir.
GAUDY GLOBE5.995...................................sparaðu 3.000
HORSE
Hvítur hestur. 17x14,5 cm.
Postulín. Verð 1.695,- NÚ 995,-
OWL
Sparibaukur, hvít ugla. H18 cm.
Verð 3.495,- NÚ 2.795,-
40%...................................af BIRCH
ILVA Korputorgi, 112 Reykjavík
sími 522 4500 www.ILVA.is
NÝR ÚTSÖLUBÆK INGUR