SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Blaðsíða 43
8. janúar 2012 43
P.D. James -
Death Comes to Pemberley
Eitt helsta meistaraverk
enskra bókmennta er
Pride and Predjudice eftir
Jane Austen. Óteljandi
bækur hafa verið skrif-
aðar eftir eða uppúr þeirri
bók og ekkert lát á - á síð-
ustu árum hafa komið út
tugir bóka þar sem Eliza-
beth Bennet og Fitzwilli-
am Darcy glíma gíma við allt frá smáglæpum
til uppvakninga. Þrátt fyrir það þótti tíðindi að
P.D. James, drottning ensku glæpasögunnar,
skyldi hafa skrifað morðgátu sem gerist á
heimili Darcy-hjónanna, en það kom fáum á
óvart hve bókin var vel skrifuð og skemmtileg.
Umberto Eco –
The Prague Cemetery
Fyrir ríflega hundrað ár-
um birtist í Rússlandi
lygaskjal sem sagði frá
leynireglu gyðinga sem
hygðist leggja undir sig
heiminn. Ritið reyndist
lífseig lygi, kom meðal
annars út á íslensku
1951, og átti sinn þátt í
hörmulegum ofsóknum
og morðum á gyðingum á tuttugustu öld-
inni. Þessi skáldsaga Ecos segir eins-
konar sögu uppruna ritsins. Óþokkinn í
bók Ecos, Simone Simonini, sem smíðar
falsskjalið, er uppspuni en í bókinni birt-
ast einnig ýmsar raunverulegar persónur.
Haruki Murakami -
1Q84
1Q84 er býsna mikið
verk og magnað sem
kom fyrst út í þremur
bindum í Japan. Ekki er
gott að rekja svo mikla
bók í stuttu máli, en
hún gerist árið 1984, í
heimi sem er þó frá-
brugðinn þeim sem við
þekkjum. Sagan hefst
þar sem stúlkan Aomame situr í leigubíl í
Tókýó á leið í verkefni. Önnur aðalpersóna
bókarinnar er kynnt í næsta kafla, Tengo,
sem ráðinn er til að endurskrifa handrit að
skáldsögu, en kemst fljótlega á snoðir um
að ekki er allt sem sýnist.
Alan Hollinghurst -
The Stranger’s Child
Margir tóku því illa þeg-
ar skáldverk Alans Holl-
inghursts datt út af
stuttlista Booker-
verðlaunanna sl. sum-
ar, enda margra mat að
þar væri komin ein
helsta enska bók árs-
ins, ef ekki sú helsta.
Hollinghurst hefði og
verið vel að verðlaununum kominn, enda
fáir stílistar honum fremri, og bókin er af-
bragð, ekki síst fyrir þá sem þekkja til sög-
unnar af Rupert Brooke sem liggur undir,
myndarlegasta unga manni í Englandi og
minningu hans
Ali Smith -
There But For The
Ali Smith er einkar lagin
við að beita tungumál-
inu, en sjaldan hefur
henni tekist eins vel
upp og í þessari und-
irfurðulegu bók. Í miðju
matarboði stendur einn
gestanna upp, fer upp
á aðra hæð hússins og
læsir sig inni í svefn-
herbergi. Þegar húsráðendur forvitnast
um hann neitar hann að koma út, vill
reyndar ekki ræða við neinn, og þar við sit-
ur. Bókin fjallar þó ekki um atvikið sem
slíkt heldur um ummerki þeirra sem við
þekkjum og umgöngumst í lífi okkar.
Neal Stephenson –
Reamde
Neal Stephenson er yf-
irleitt að velta fyrir sér
sömu spurningunni; því
hvernig upplýsingar ber-
ast á milli manna og
hvernig fólk vinnur úr
upplýsingum. Áður hef-
ur hann skrifað bækur
um upplýsingastreymi á
sautjándu og átjándu
öld en í Reamde er Stephenson að velta
fyrir sér okkar tímum þegar upplýsingar
berast á milli manna á ljóshraða, þegar
við erum alltaf tengd og höfum alltaf að-
gang að öllu, eða höldum það í það
minnsta.
Ota Pavel -
Hvernig ég
kynntist
fiskunum
Einar Falur
Ingólfsson
- Án vega-
bréfs
Margrét
Örnólfs-
dóttir -
Með heim-
inn í vas-
anum
Styrmir
Gunn-
arsson -
Ómunatíð
Ólafur
Gunn-
arsson -
Meist-
araverkið
og fleiri
sögur
Ingunn
Snædal -
Það sem
ég hefði
átt að
segja
Úlfar Þor-
móðsson -
Farand-
skuggar
Steinar
Bragi -
Hálendið
Herta
Müller -
And-
arsláttur
Vigdís
Gríms-
dóttir -
Trúir þú á
töfra?
Fleiri forvitnilegar bækur
Christopher Hitchens –
Arguably
Christopher Hitchens
lést á árinu og varð
mörgum harmdauði,
enda leitun að öðrum
eins stílista, hvort sem
hann var að fletta ofan
af móður Teresu eða
Osama bin Laden. Í Arg-
uably eru 107 greinar,
bókadómar, aðfaraorð
bóka, vangaveltur um
stjórnmál, trúarbrög og hvaðeina. Alltaf er
Hitchens beittur og málefnalegur, enda
frábærlega beittur og skemmtilegur, hvort
sem maður er sammála honum eða ekki.
Víst er eftirsjá að slíkum mönnum.
Karen Russell -
Swamplandia!
Swamplandia! segir frá
unglingsstúlku sem
elst upp í skemmti-
garði í Flórída þar sem
aðalskemmtunin er
þegar faðir hennar
glímir við krókódíla.
Móðir stúlkunnar er ný-
látin þegar sagan
hefst, en þó hún sé
ekki til staðar skiptir fjarvera hennar
miklu máli, ekki síst þegar hafa þarf
hemil á systrunum, enda hefði sú elsta
varla fallið fyrir draug. Sagan er í senn
grátbrosleg, bráðfyndin og ævintýraleg
og málfarið er stórbrotið.
Julian Barnes –
The Sense of an Ending
Í The Sense of an End-
ing rekur maður ævi-
minningar sínar af því
er hann og félagar hans
strengdu þess heit að
vera vinir að eilífu, en
ekki fer allt eins og þeir
ætla. Einn úr hópnum
sviptir sig lífi og þeir
sem eftir lifa gera hvað
þeir geta til að gleyma öllu saman, en þeg-
ar sögumaður er kominn á miðjan aldur
berst honum bréf frá lögfræðingi með
beiðni sem verður til þess að hann sér
æsku sína í nýju ljósi. Bókin hlaut Booker-
verðlaunin í haust og það að verðleikum.
Téa Obreht –
The Tiger’s Wife
Það vakti mikla athygli
þegar Téa Obreht hlaut
bresku Orange-
verðlaunin, helstu bók-
menntaverðlaun
kvenna, fyrir bók sína
The Tiger’s Wife, enda
fyrsta bók hennar og
hún yngsta konan sem
hlotið hefur þessi
merkilegu verðlaun.
Obreht sækir hugmynd að verkinu að ein-
hverju leyti í uppruna sinn, en fjöskylda
hennar flúði stríðsátök í Júgóslavíu, og inn
í söguna blandast vangaveltur um það
hvernig fer þegar lönd hverfa.
Oddný Eir Ævarsdóttir –
Jarðnæði
„Sjálfsæviskrif Þór-
bergs Þórðarsonar
koma einna helst upp í
hugann við lestur Jarð-
næðis. Yfir skrifunum
svífur sama einlægnin
og hnyttnin ... Oddný er
algerlega laus við allt
sem heitir tilgerð, text-
inn er sannur og meitl-
aður og gríðarlega fynd-
inn á köflum. Hér er engu ofaukið og
einskis vant og í heildina er þetta einlæg
og bráðskemmtileg bók, sneisafull af
skemmtilegum pælingum og fallegum
setningum.“ - alþ
Steinunn Sigurðardóttir –
Jójó
„Persónurnar eru
áhugaverðar og lifandi.
Textinn er meitlaður og
stílhreinn, engu að síð-
ur hlýr og húmorískur.
Steinunn nær góðum
tökum á þessu vand-
meðfarna efni, á köfl-
um reynir nokkuð á les-
andann, því hér er ekki
mikið um berorðar lýsingar ... Jójó er
áhrifamikil, skemmtileg og geysilega vel
skrifuð bók sem skilur lesandann eftir
með margar hugsanir löngu eftir að lestr-
inum er lokið. Til dæmis hvort allir eigi
skilið að fá lækningu.“ - alþ
Matthías Johannessen –
Söknuður
„Sjaldan hef ég hrifist
eins af ljóðabók við
fyrsta lestur og nýút-
kominni bók Matthíasar
Johannessen, Söknuði.
Hún er ort í kjölfar mik-
ils áfalls höfundar í
skugga láts eiginkonu
hans og sá missir, sorg-
in og söknuðurinn setja
mark sitt á þessa bók ... Það er ekki síst
opinská einlægni Matthíasar sem hrífur
mig í þessari bók og hæfileiki hans til að
miðla tilfinningum sínum og hugrenn-
ingum ... Í mínum huga er þetta einhver
besta bók hans.“ - sþh
Sölvi Björn Sigurðsson –
Gestakomur í Sauðlauksdal
„Bók Sölva Björns er
bráðskemmtileg. Sá stíll
sem menn skrifuðu á 18.
öld var þunglamalegur og
stundum uppskrúfaður.
Sölvi Björn tekst á við
þennan stíl og býr til fín-
an texta. Hann nær vel
andblæ þess tíma sem
hann lýsir. Það kann að
vera að sumum sem aldrei hafa lesið texta
frá 18. öld ...þyki stundum erfitt að ná sam-
bandi við bókina, en að lesa bók á að vera
áskorun. Þegar saman fer skemmtun og
áskorun, eins og í þessari bók, hefur sann-
arlega vel tekist til." - eó
Serbnesk-bandaríska skáldkonan Téa Obreht tekur við Orange bókmenntaverðlaununum
fyrir The Tiger’s Wife úr hendi Bettany Hughes í júní sl.
Reuters
Umsagnir um innlendar bækur
ársins eru úr bókadómum sem
birtust í Morgunblaðinu á árinu.
Skammstafanir undir dóma-
tilvitnunum vísa til eftirfarandi
gagnrýnenda:
alþ: Anna Lilja Þórisdóttir
efi: Einar Falur Ingólfsson
eó: Egill Ólafsson
ig: Ingveldur Geirsdóttir
sþh: Skafti Þ. Halldórsson
Ummæli
gagnrýnenda