SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Blaðsíða 25

SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Blaðsíða 25
8. janúar 2012 25 hygli allra nærstaddra. Sama var þegar við tókum okkur frí saman í Puglia á Ítal- íu. Þá brá mér við að sjá hversu mikil stjarna hann var,“ segir Jóhanna Maggý en vill þó ekki gera of mikið úr þessari frægð þessa nýjasta „tengdasonar“ Ís- lands. Það má þó fá staðfestingu á því með því að gúgla hann en það hefur Jó- hanna Maggý aldrei gert. „Ég veit að mamma gerði það en ég hef sleppt því.“ Hún segir að Fabio sé vinnuþjarkur en þau séu dugleg að bregða sér í stutt frí. Einnig hefur henni verið boðið heim til fjölskyldu hans sem býr töluvert í burtu. Jóhönnu Maggý var vel tekið en hún mun vera fyrsta stúlkan sem kynnt er fyrir fjölskyldunni. Fabio hefur ekki áður ver- ið í sambúð og er barnlaus. Hann er 39 ára og hún 26 ára. „Ég finn ekki mikið fyrir aldursmun okkar, enda segja margir að ég sé gömul sál. Það virðist heldur ekki skipta máli að við komum úr ólíkum menningarheimum,“ segir hún. „Við höfum við verið dugleg að hafa kósíkvöld heima og elda góðan mat. Hann er snilldarkokkur. Fabio er ekki týpískur Ítali. Hann eldar, þvær þvott og tekur til en það er yfirleitt ekki karl- mannsverk hér í landi. Ég hef ekki enn lesið bækur hans, enda ekki langt komin í að læra ítölsku. Fabio fór á bókamess- unna í Frankfurt þar sem Ísland var í að- alhlutverki. Bækur hans hafa verið þýdd- ar á frönsku og þýsku en því miður ekki á íslensku. Ég gleymi því alltaf að hann sé stórstjarna hér en þegar ég fer út í búð þá er ég minnt á það,“ segir Jóhanna Maggý og hlær. Þegar hún er spurð hvort búið sé að ákveða brúðkaupsdaginn svarar hún því neitandi. Jóhanna Maggý er ákveðin í að koma til Íslands um jólin og ætlar að dvelja í nokkrar vikur og kenna pilates hjá Liisu. „Fabio kemur um áramótin. Hann langar mikið til að kynnast Íslandi og hlakkar til,“ segir þessi ævintýrakona. að endurnýja starfssamning við Pilates-skólann. „Ég var ekki viss hvort mig langaði til að setjast að í New York þótt tími minn þar hafi verið ynd- islegur. Ég átti mjög góða ítalska vinkonu sem ég kynntist þarna . Hún bauð mér að koma með sér heim og dvelja á Ítalíu í mánuð. Ég ákvað að flytja til Ítalíu. Ég var alltaf heilluð af tungumáli vinkonu minnar auk þess sem ég er alin upp af kokki og hef ástríðu fyrir mat, sérstaklega ítölskum mat. Mig langaði mikið til að kynnast menningu Ítalíu að eigin raun. Ég er svo heppin að hafa menntað mig í fagi sem ég get starf- að við um allan heim óháð tungu- málum,“ segir Jóhanna Maggý en stuttu seinna urðu breytingar á lífi hennar. „Ég var kynnt fyrir Fabio Volo í boði hjá ítölskum vinum mínum. Þá varð ekki aftur snúið með ákvörðun mína að flytja til Ítalíu. Fabio hefur dvalið mik- ið í New York þar sem hann á íbúð. Þar situr hann oft við skriftir og var þar allt síðasta sumar. Ég held að forlögin hafi leitt okkur saman. Það er ótrúlega fyndið að ég hafi tekið ákvörðun um að flytja til Ítalíu áður en ég kynntist honum. Við erum hamingjusöm og náum vel saman. Mér fannst hann klár og duglegur en hafði ekki hugmynd um hversu fræg- ur hann er á Ítalíu. Mér brá því heilmikið þegar við komum til Ítalíu og ég gerði mér grein fyrir frægð hans. Hann lætur það ekki trufla sig og við lifum mjög ein- földu lífi. Það er ekkert sem bendir til þess í fari Fabio að hann sé stjarna í heimalandi sínu,“ segir Jóhanna Maggý. Ný skáldsaga og bíómynd „Þegar við fórum fyrst út að borða átti ég ekki til orð. Fólk bað hann um eigin- handaráritun og hann fékk ósvikna at- verk að hún hafi náð sér svo fljótt sem raun varð. Læknar vilja þakka það vel þjálfuðum líkama en þeir hugðu henni ekki líf í fyrstu. Bróðir hennar, Hlynur, var við há- skólanám í Norður-Karólínu og var reynt að ná í hann í síma en tókst ekki. Jóhanna Maggý segir að þau hafi alltaf verið mjög ná- in og svo reyndist einnig á þess- ari stundu því hann fórbrotnaði á sama tíma. „Ég var á leið í vinnuna þegar ekið var í veg fyrir mig. Það var leigubíll sem kom á fleygiferð. Ég var hjálmlaus á reiðhjóli og varð fyrir alvarlegu höfuðhöggi. Fyrst á eftir lá ég meðvitundarlaus en man eftir þegar ég rankaði við mér að fyrsta hugsunin var; ekki deyja, ekki deyja. Það blæddi inn á heil- ann en virðist svo hafa gengið til baka. Ég fékk stóran skurð á hnakkann og gat ekki hreyft hendur eða fætur. Fingurnir hreyfðist svo ég var ekki lömuð en engu að síður gat ég ekki lyft handleggjum. Eftir spítaladvöl þurfti ég að vera daglega í eftirliti og þjálfun. Ég var kraftaverk í augum læknanna sem skildu ekkert hvernig mér tókst að sleppa svona vel. Þeir sögðu að ég gæti þakkað pilatesinu það hundrað prósent. Hryggurinn var þráðbeinn á myndum og óbrotinn. Þetta hefði farið miklu verr ef ég væri ekki í svona góðu formi. Það tók mig hins vegar langan tíma að styrkja líkamann aftur því ég gat ekki reimað skóna mína fyrst á eftir. Ennþá finn ég fyrir þessu í hálsi og baki en hef, allt frá því þetta gerðist, pínt mig áfram í pila- tesinu til að ná bata og það hefur góð áhrif.“ Frægur og fjölhæfur kærasti Síðastliðið vor var Jóhönnu Maggý boðið þar. Þetta var á sama tíma og efnahags- hrunið varð á Íslandi og þess vegna ekk- ert spennandi að fara heim. Ég var því heppin að fá þetta starf. Það er mikill áhugi á pilates í New York og er þekkt æfingarform í Bandaríkjunum. Sumir Ís- lendingar halda að pilates sé einhvers konar kvennaleikfimi en svo er alls ekki. Þetta er erfið þjálfun sem teygir vel á lík- amanum og gerir mikið gagn við ýmsum líkamlegum veikleikum, t.d. bakverkj- um. Ég læri eitthvað nýtt um líkamann á hverjum degi eftir því sem ég þjálfast meira,“ segir Jóhanna Maggý og bætir við að leikarar, ballettdansarar og fólk sem vinnur mikið með líkamann sé stór kúnnahópur. Alvarlegt bílslys Jóhanna Maggý var í New York í fjögur og hálft ár. Fyrir tveimur árum lenti hún í alvarlegu bílslysi og þykir mikið krafta- Ljósmynd/Íris Ann Sigurðardóttir Fabio Volo er ekki bara snilldarkokkur, heldur kunnur rithöfundur og leikur í kvikmyndum. ’ Ég var kraftaverk í augum læknanna sem skildu ekkert hvernig mér tókst að sleppa svona vel. Þeir sögðu að ég gæti þakkað pilatesinu það hundrað prósent. Jóhanna Maggý hefur jafn- að sig á alvarlegu bílslysi og hreiðrað um sig á Ítalíu.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.