SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Blaðsíða 33
8. janúar 2012 33
heima eru norðurljósin eins og þokuslæða
en þarna dönsuðu þau á næturhimninum.
Það var stórkostleg sjón.“
Á næsta áfangastað, bænum Paulatuk,
urðu íbúarnir jafn undrandi og annars
staðar þar sem okkar menn stöldruðu við.
Þremur dagleiðum frá Paulatuk var
komið til Kugluktuk. „Þarna búa sannir
ínúítar og við fengum flottar móttökur í
bænum. Þegar við stoppuðum á ytri höfn-
inni til þess að taka myndir af bílunum
með bæinn í baksýn, kom röð af sleðum á
móti okkur. Þarna gistum við á hóteli þar
sem voru myndir af Vilhjálmi Stefánssyni
uppi um alla veggi og það var virkilega
gaman að sjá. Þetta er það austasta sem
hann fór í leiðöngrum sínum.“
Í Kugluktuk neyddist hópurinn til þess
að breyta ferðaáætlun sinni. „Vegna þess
hve hlýtt var orðið og ísinn farinn að
þynnast svo mjög þarna langt fyrir sunn-
an, brotnaði undan bíl á ísvegi, og því
lokuðu yfirvöld öllum akstri um þá. Einn-
ig gætti sjávarfalla orðið á þeim slóðum
sem við hugðumst aka og því var ekki
hægt að treysta á ísinn.“
Þetta var í mars. „Heimamenn sögðu
okkur að ef við vildum ná bílunum heim
fyrir sumarið yrðum við að keyra aftur
suður til Yellowknife og eftir að atkvæði
voru greidd í hópnum varð það úr.“
Tekið með kostum og kynjum
Hópnum var tekið með kostum og kynj-
um þegar komið var til Gimli í leiðinni
austur um aftur. „Okkur þótti ákaflega
vænt um að fá að segja nokkur orð við
Vestur-Íslendingana. Við buðum til sögu-
stundar og það var alveg fullt út úr dyr-
um. Þeir voru allir sem einn ákaflega
montnir af samlöndum sínum. Við kom-
um líka við á elliheimilinu þar sem margt
fólk talaði íslensku, jafnvel þó að það
hefði aldrei komið til Íslands. Það var
verulega gaman.“
Ómar segir ferðina hafa verið ævintýri
sem menn upplifi ekki nema einu sinni á
ævinni. „En vinnan var líka gríðarlega
mikil, bæði ferðin sjálf og undirbúning-
urinn. Þetta útheimtir líka mikla fjarveru
og mikil útgjöld, enda er bókin tileinkuð
konum okkar og fjölskyldum. Allir sýndu
okkur mikinn skilning.“
En hvers vegna að fara í slíka ferð?
„Útþráin er mikil og ég hafði líka áhuga
á að upplýsa fólk fyrir vestan um okkur,
og meiningin er líka að upplýsa fólk hér
heima um þessi héruð, til heiðurs þeim
sem fóru til Vesturheims fyrir aldamótin
1900,“ segir Ómar.
Áður en haldið var af stað fóru fimm-
menningarnir á Vesturfarasetrið á Hofs-
ósi, til þess að heiðra minningu þeirra sem
þaðan fóru á sínum tíma. „Þar sáum við
mynd af skipi fyrir utan Hofsós, drekk-
hlöðnu fólki sem var að fara. Það var dá-
lítið sérstakt að þegar við vorum í Gimli, í
lok ferðar, rákumst við á þessa sömu
mynd.“
Heimamenn voru víða svartsýnir, eins
og fram hefur komið, en það var aldrei
vafi í huga þeirra Ómars að halda áfram.
„Við vissum hvað við gætum; erum vanir
íslenska hálendinu, sem er svo miskunn-
arlaust að fáir sem ekki hafa reynt trúa því
hvernig veður geta orðið þar. Maður er
búinn að vera í þessu frá barnæsku og
eitthvað hlýtur að hafa lærst.“
Í haust var haldið útgáfuteiti vegna
bókarinnar og kvikmyndarinnar og þar
var á meðal gesta Atli Ásmundsson, ræð-
ismaður Íslands í Manitoba. „Hann hélt
erindi og skjallaði okkur þannig, fyrir að
við værum landi og þjóð til sóma, að við
erum enn rauðir í kinnum!“ segir Ómar.
Honum er umhugað um samskipti
þjóðanna tveggja. „Í kvikmyndinni er sýn
Friðþjófs á lífið á þeim svæðum sem við
fórum um. Kanada er gríðarlega áhuga-
vert land og heimamenn mjög norrænir í
hugsun. Við eigum meiri samleið með
þessari þjóð en mörgum öðrum, enda
hefur Íslendingum í Kanada mörgum
farnast mjög vel.“
Aðstæður voru oft erfiðar. Ef bíll festist dró sá næsti hann upp og aldrei urðu nein alvarleg óhöpp.
Ljósmynd/Friðþjófur Helgason
’
Við vissum hvað við
gætum; erum vanir
íslenska hálendinu,
sem er svo miskunnarlaust
að fáir sem ekki hafa reynt
trúa því hvernig veður geta
orðið þar. Maður er búinn
að vera í þessu frá barn-
æsku og eitthvað hlýtur að
hafa lærst.
Leiðin til
Tsiigehtchic
Yellowknife-Tsiigehtchic-Yellowknife
Yellowknife
Wrigley
Norman Wells
Fort Good Hope
Tsiigehtchic
Inuvik
Tuktoyatuk
Paulatuk
Pearce Point
Clifton Point
Kugluktuk
Lupin Mine
Halifax
Saskatoon
Peace River
Tsiigehtchic
Yellowknife
Calgary Gimli
Toronto
Halifax-Yellowknife-
Tsiigehtchic-Yellowknife
Yellowknife-Gimli-Halifax
Morgnarnir á Mackenzie-fljótinu voru fallegir þegar sólin gægðist upp fyrir sjóndeildarhringinn.
Ferðalangarnir í Markerville, á slóðum Stephans G. Stephanssonar. Frá vinstri: Halldór Sveinsson, Ómar
Friðþjófsson, Karl Rútsson, Kristján Kristjánsson og Friðþjófur Helgason.