SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Side 24

SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Side 24
24 8. janúar 2012 að taka hana á orðinu,“ greinir Jóhanna Maggý frá. „Ég hafði aldrei komið til New York áður og vissi því ekkert út í hvað ég var að fara. Ég fékk því pabba til að koma með mér. Hann dvaldi með mér í borg- inni í tvær vikur. Við borðuðum góðan mat á hverjum degi og áttum notalega daga saman. Pabbi er mikill snillingur og er ofarlega á vinsældarlista mínum. Hann stofnaði veitingahúsið Saffran sem býður upp á heilsufæði. New York var stærra dæmi en ég bjóst við. Það var erfitt að komast inn í skólann og námið var ekki síður erfitt. Stundum er gott að vera pínu kærulaus því allt gekk þetta upp á endanum. Ég stakk mér í djúpu laugina og mér gekk ótrúlega vel í inntökuprófinu. Námið átti vel við mig þótt ég þyrfti að læra mörg ný orð í ensk- unni. Þegar ég hafði stundað nám við skólann í eitt ár var mér boðið að kenna skyldunnar. Annars er ég í eðli mínu for- vitin og yfirleitt upptekin við að skoða, sjá og rannsaka. Ég hafði ekki áður ferðast á framandi slóðir en hafði komið í Dóminíska lýðveldið. Ég fór bara til þess- ara venjulega staða eins og aðrir Íslend- ingar, London, Prag, Austurríki og Norð- urlandanna.“ Í djúpu lauginni í New York Eftir eitt ár í Afríku lá leiðin aftur heim til Íslands. „Þegar ég kom heim langaði mig ekki í bóklegt nám heldur vildi dansa og hreyfa mig. Það á betur við mig. Ég var kynnt fyrir pilates og féll eiginlega strax fyrir því. Mér fannst svo frábært hvernig þessar æfingar gátu hjálpað fólki með hina ýmsu kvilla að líða betur líkamlega. Ég stundaði nám hjá Liisu Johansson í Pilates Studio og það var hún sem hvatti mig að fara til New York í áframhaldandi nám. Mér fannst það hljóma vel og ákvað stökkva á það,“ segir Jóhanna Maggý. Guðmundur og Villi ráku áður Tower guesthouse á Íslandi og blómabúð í Bankastræti. Við rekstrinum í Greyton tóku þeir í október 2004 en höfðu áður verið á ferðalagi um S-Afríku þar sem þeir fengu hugmyndina. „Mér fannst þetta ótrúlega spennandi tækifæri,“ segir Jóhanna Maggý en fjölskylda hennar vissi ekkert um þessa ákvörðun fyrr en eftir að hún hafði ráðið sig til starfa í Afríku. „Núna hugsa ég um þennan tíma með mikilli gleði og vildi gjarnan fara aftur á þessar slóðir. Ég ferðaðist töluvert um Afríku á þessu ári sem ég dvaldi þar og það var dásamleg upplifun. Meðal annars keyrði ég frá Höfðaborg til Mósambík. Síðustu mánuðina sem ég dvaldi þarna ákvað ég að taka starfi á litlum búgarði þar sem ég hjálpaði til við að reka rollur og þess háttar sveitastörf. Á sunnudögum var veitingastaður opinn á búgarðinum og þá hjálpaði ég til þar. Þeir sem áttu búgarðinn voru Afríkubúar í vinahópi Guðmundar og Villa. Mig langaði að prófa að vinna við þessar afrísku aðstæður á búgarði og það var ómetanleg lífs- reynsla,“ segir Jóhanna Maggý. „Greyton er lítið sveitaþorp, þar er engin götulýsing en mjög afslappað and- rúmsloft. Enginn banki og asnar og kýr ganga um götur. Þarna vaxa ávaxtatré og afar fallegur þjóðgarður er stutt frá. Bú- garðurinn er í tuttugu mínútna aksturs- fjarlægð þaðan. Ég kann ótrúlega vel að meta líf án klukku og að vakna við fugla- söng á morgnana. Þarna leið mér vel og var aldrei hrædd,“ segir hún ennfremur en þess má geta að Guðmundur og Villi eru enn með hótelið sitt í Greyton. „Mér fannst mjög sérstakt hvað það var í rauninni lítið mál að taka svona skyndiákvörðun og fljúga út í allt annan menningarheim. Ég fékk aldrei heimþrá nema kannski þegar ég setti Vilhjálm Vil- hjálmsson á fóninn. Þá saknaði ég fjöl- J óhanna Maggý var aðeins nítjánára þegar tveir gestir á Vegamót-um, Guðmundur Aðalsteinn Þor-varðarson og eiginmaður hans, Vilhjálmur Jón Guðjónsson, buðu henni að koma til Suður-Afríku að vinna. Þeir höfðu þá nýlega keypt hótel í þorpinu Greyton sem er skammt frá Höfðaborg. Jóhanna Maggý sló til og upplifði æv- intýraríkt ár. Þaðan lá leið hennar til New York þar sem hún dvaldi næstu tæp fimm árin. Núna býr Jóhanna í Mílanó á Ítalíu ásamt ítölskum sambýlismanni sínum, Fabio Volo, sem er stórstjarna í heima- landi sínu. Fabio er kvikmyndaleikari, leikstjóri, tónlistarmaður, útvarpsmaður og rithöfundur. Hann hefur átt nokkrar metsölubækur á Ítalíu og nýjasta skáld- sagan, Le prime luci del mattino, sem kom út í október situr í fyrsta sæti met- sölulista ítalskra bókabúða. Fabio Volo er þekktur fyrir rómantískar skáldsögur og 2. desember sl. var frumsýnd ný kvik- mynda á Ítalíu, Il giorno in più, þar sem hann leikur eitt aðalhlutverkið en mynd- in er gerð eftir einni af bókum hans. Jóhanna Maggý hafði ekki hugmynd um þegar hún flutti til Ítalíu frá New York með kærasta sínum að hann væri svona frægur. „Það var eiginlega sjokk að upplifa það,“ segir hún og kímir. Það gerðist þó eitt og annað í lífi Jó- hönnu Maggýar áður en hún kynntist hinum ítalska Fabio. Blaðamaður fékk hana til að rifja upp ævintýrarík und- anfarin ár. Við sveitastörf í Afríku „Faðir minn, Haukur Víðisson mat- reiðslumaður, rak veitingahúsið Vega- mót þar sem ég vann með skólanum. Þar kynntist ég Guðmundi og Villa. Þeir voru nýbúnir að kaupa hótel og veitingastað í Greyton, S-Afríku og buðu mér að koma með. Án umhugsunar ákvað ég að Vissi ekki að kærastinn var stórstjarna Jóhanna Maggý Hauksdóttir lifði fremur fá- brotnu lífi þegar hún starfaði sem þjónn á veitingahúsinu Vegamótum fyrir sjö árum. Hún þurfti ekki að hugsa sig um tvisvar þegar henni bauðst að fara til Suður-Afríku og starfa á hóteli sem tveir Íslendingar voru ný- búnir að festa kaup á. Sú ferð varð upphafið að nýju og ævintýraríku lífi. Elín Albertsdóttir

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.