SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Side 40

SunnudagsMogginn - 08.01.2012, Side 40
40 8. janúar 2012 Lífsstíll Á nýju ári finnur maður fyrirgleði og eftirvæntingu. En umleið dálítilli óþreyju. Nú langarmann að koma fleiru í verk og láta draumana rætast. Það er best að lifa í núinu en samt að plana hluti ætli maður sér að gera þá. Segi ég í það minnsta. Þess vegna er gott að skrifa niður lista. Setja á blað það sem mann langar til að gera þetta árið og ca hvenær. Hafa svo ekki frekari „áhyggjur“ af því fyrr en nær dregur. Nema jú ef maður ætlar að safna í ferðasjóð. En þá er bara að skunda í bank- ann strax í dag og láta setja það upp. Svo er bara að einblína á daginn í dag og njóta litlu hlutanna. Vitandi að einn daginn ætli maður að gera þetta og hitt. En ekki þannig að maður einblíni á það of mikið. Þetta ár hefur sérstaka merkingu fyrir mig því í sumar mun ég komast á fertugs- aldurinn. Mér finnst dálítið skrýtið að þrítugsárið mitt sé komið strax. Enda fannst mér ég hafa orðið 25 ára bara í fyrra. En mér sýnist sem það sé bara ágætt að eldast. Maður verður ánægðari og ákveðnari með tímanum. Hættir að hugsa hvernig ætli þetta verði og hitt? Hvernig og hvar verð ég 35 ára? Því þetta nefnilega bara rúllar allt saman áfram og gerist. Ætli sé ekki einmitt best að leyfa því að vera þannig. Láta sig fljóta dálítið og njóta. Eins er gott að vera þakklátur fyrir líf- ið. Því miður ná alls ekki allir að eldast, og deyja ungir. Það minnir mann ræki- lega á hve lífið er hverfult og brothætt. Því er best að fara vel með sig og lífið sem manni er gefið. Reyna að brosa eins mikið og maður getur, vera góður við náungann og sýna nærgætni og hlýju. Lifa þannig í sátt við sjálfa/n sig og tilveruna því þannig verður hún svo miklu betri. Ég hlakka til komandi árs og þeirra ævintýra sem það mun bera með sér. Um leið þakka ég þér fyrir lesturinn síðastliðið ár, lesandi góður, og býð þig velkominn í nýja ævintýraferð um árið 2012. Morgunblaðið/Ómar Ævintýraárið 2012 Lífið og tilveran María Ólafsdóttir maria@mbl.is Nýtt ár er hafið og nú er að stilla strengi sína. Lifa í núinu en samt hafa augastað á því sem mann dreymir um. Framundan eru mörg spennandi ævintýr. ’ En mér sýnist sem það sé bara ágætt að eldast. Maður verður ánægðari og ákveðnari með tímanum. Yfir jólahátíðina gefst kannski ekki endilega mikill tími til að rækta ástarsambandið þar sem fólk er oft á ferð og flugi. Í bókinni 1001 leið til að slaka á eftir Susannah Marriot er mælt með kossum og knúsi. „Hneykslið unglingana og kyssist og knúsist sem mest, það hefur sérlega róandi áhrif. Samkvæmt bandarískri könnun er fólk sem snert er reglulega skapbetra, það finnur sjaldnar til kvíða, þunglyndis eða svefnleysis, ónæmiskerfið er sterkara og það á auðveldara með að vinna á streitu. Skiptist á að nudda hendur og fætur hvort annars við sjónvarpið og strjúkið hvort öðru fyrir svefninn, gleymið hvers- dagslegum áhyggjum og einbeitið ykkur að því sem skiptir mestu máli.“ Bókin er gefin út af Sölku. Kyssist og knúsist Það hljómar næstum því of einfalt en eitt besta ráðið til að standast freistingar er að eiga ekki gotterí af ýmsu tagi í skápunum. Þannig er auðveldara að vera ekki sífellt að nasla og frekar að baka sér eitthvað gott þegar kemur helgi eða gera eftirrétt. Sumir eiga erfitt að með standast snakk en það getur verið misfitandi. Brauðstangir sem fást í pakka úti í næstu verslun ku vera ágætar. Ídýfur er líka gott að gera sjálfur því þannig ræður maður hvað fer í þær. Chilíbaunaídýfa er til að mynda gerð úr einni dós af nýrnabaunum, hráum lauk, hvítlauksrifi, rauðu chilí, sítrónu, kúmeni, salti og sinnepsfræjum. Best er að gera ídýfuna í matvinnsluvél og krydda smám saman eftir smekk. Slík ídýfa er fitulítil og hana má líka nota ofan á hrökkbrauð. Þessa uppskrift er að finna á vefsíðunni ivillage.co.uk. Nú er ágætt að taka smá skurk í heilsumálunum eftir hátíðarnar. Gott nasl í skápnum Nú er rétti tíminn til að kaupa sér buxurnar eða skóparið sem þú hefur horft á löngunaraugum síðan fyrir jól. Útsölurnar eru nú í fullum gangi og um að gera að nýta tækifærið til að gera góð kaup. Erlendis myndast víða biðraðir við vinsælustu verslanirnar þar sem fólk veit að allt verður selt á miklum afslætti. Þá er nú betra að geta sýnt þolinmæði til að standa í röð. Ýmis góð kaup hefur maður gert á útsölum í gegnum árin en líka hin mestu mistök. Gott er að hafa í huga hvort maður muni í raun nota flíkina eða hlutinn, sama á hversu góðu verði hann er. Útsölur geta líka verið kjörnar til að kaupa litlar afmælisgjafir handa þeim sem af- mæli eiga á næstu mánuðum. Þá er bara vert að hafa í huga að kaupa kannski frekar fylgihluti og annað slíkt þar sem ekki er hægt að skipta því sem keypt er á útsölum. Fyrir mann sjálfan er fínt að muna eftir árs- tíðum og öðru slíku framundan. Nú gefst gott tækifæri til að kaupa sér nýjan kjól eða fallegan fylgihlut með fína, klassíska kjólnum Úthugsuð útsölukaup Reuters

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.