SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Blaðsíða 2
2 12. febrúar 2012 Við mælum með Öll helgin Vetrarhátíð í Reykjavík stendur fram á sunnudag. Þema ársins er Magnað myrkur! Markmið Vetrarhátíðar er að lýsa upp mesta skammdegið með viðburðum og uppákomum af ýmsu tagi, stórum sem smáum. Borgarbúum og gestum gefst tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá án endurgjalds. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Vetrarhátíð í Reykjavík 24 Að lesa og lesa list er góð Nærri fjörutíu ára gamall draumur Sigrúnar Klöru Hannesdóttur rætt- ist þegar Barnabókasetrið á Akureyri var stofnað. 26 Stofustáss í Stokkhómi Allt það nýjasta í norrænni hönnun kemur fram á húsgagnasýningu í Stokkhólmi þar sem fjögur íslensk hönnunarfyrirtæki hafa kynnt vörur sínar síðustu daga. 28 Skylda mín að taka þátt … Salmann Tamimi kom til Íslands einungis 16 ára gamall og hefur búið hér á landi síðan. Hann segir fordóma í garð múslima fara vaxandi. 31 Lagarfljótsormurinn og frændkyn Sögur af vatnaormum hafa lengi verið á kreiki með þjóðum heimsins og allt til okkar daga, bæði á norður- og suðurhveli. Þetta eru oftar en ekki feiknaskepnur að vexti og stundum grimmar. 38 Rey-nir sitt besta Dularfulla nýstirnið Lana Del Rey er heitasta nafnið í skemmtanabransanum vestra um þessar mundir. 40 Bróðir Gandhi á vegg Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Bróðir minn á sérstakt heið- urssæti á heimilinu. Mynd af honum hangir í forstofunni. Lesbók 42 Meðvitaðir og ómeðvitaðir fordómar Fjöruverðlaunin verða afhent í Iðnó á morgun. Gestur verðlaunahátíð- arinnar er rithöfundurinn og grínistinn Sandi Toksvig. 44 Mozart ljóðanna „Skemmtilega háðsk án þess að vera hávær,“ sagði Geirlaugur Magnússon skáld um pólska nóbelsverðlaunahafann Wislöwu Szym- borsku. Hún lést í byrjun mánaðarins. 18 36 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Eyþóri Arnalds. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Krist- insdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson. Augnablikið Fæ ég 160 þúsund? Hvað segið þið umþað? Það er nú ekki mikið fyrir Snæfells-jökul; það fylgir honum mikill máttur!“ Uppboðshaldarinn Tryggvi Páll Frið- riksson í Galleríi Fold stendur á sviðinu og við hliðina á honum stendur málverk Þorbjargar Höskuldsdóttur að því er virðist tveim fótum. Stundum eru málverkin sem boðin eru upp í bux- um og stundum pilsi. Áreiðanlegar heimildir herma að þetta séu fætur starfsmanna, sem halda á verkunum til sýnis. Blaðamaður treður sér í sæti framarlega á milli tveggja búralegra manna, sem líta á hann ólund- arlega og eru ekkert að gefa olbogarými. Annar þeirra hvíslar: – Settistu nokkuð á tyggjóið sem ég setti í stól- inn? Blaðamaður hikar. – Við sjáum það þegar þú stendur upp, bætir hann við. Fleiri jöklar eru boðnir upp. „Þá er það næsta, Eyjafjallajökull!“ segir Tryggvi. „Ég kann því miður ekki að segja það á ensku.“ Jökullinn er sleginn á 100 þúsund. Þó að hann sé boðinn upp á gamaldags íslensku. Því fylgir undarleg tilvistarkrísa fyrir varkára menn að bjóða í málverk á uppboði. Skelfingin við að hlýða á niðinn í peninga vaxandi straumi veldur því að maður lamast. Af hverju fór Nína Sæmundson bara á 42 þúsund? Verra með Elías B. Halldórsson sem ég missti af á 85 þúsund. Og af hverju bauð ég ekki í Rósku eftir Dag Sigurð- arson? „Fæ ég 800 þúsund króna boð í Ásgrím?“ spyr Tryggvi. Málverkið er af Svarfaðardal. Sumir segja það fallegasta dal á Íslandi. En það vantar bæinn Sökku á málverkið, svo ekkert tilboð berst og það er tekið aftur inn. Og auðvitað er Kjarval boðinn upp. Þrír fyrir einn. Þrjú konuandlit, eitt á baki málverksins og annað í eyra konunnar. Fyrsta boð er 50 þúsund í hvert andlit. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Tryggvi býður upp málverk eftir Hafstein Austmann. Jöklarnir seldir Hringadrótt- inssinfóníunni Sinfóníu- hljómsveit Ís- lands flytur Hringadróttinssinfóníuna eftir Howard Shore í Hörpu á fimmtudag og föstudag kl. 20. Stjórnandi er Erik Ochsner og einsöngvari Nancy Allen Lundy. Einnig koma fram Hljómeyki, Kór Áskirkju o.fl. Góa og baunagrasinu Risinn, gamla konan, fallega ríka stelpan, sjálfspilandi harpan, hænan sem verpir gulleggjum og allir þorpsbú- arnir mæta til leiks á Litla sviði Borgarleikhússins. Gói leikur Jóa og Þröstur Leó sér um rest. – fyrst og fre mst ódýr! 33%afslátturDÚ NDUR- VERÐ 998kr.kg Verð áður 1498 kr. kg Grísakótilettur

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.