SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Blaðsíða 35
12. febrúar 2012 35
inn þvott sem tusku og þvo hann svo
nokkrum sinnum í viðbót …“
Þær segja að vegalengd sem þær fari á
10 mínútum takir Tógóbúa 25 mínútur að
ganga. „Við höfum vissulega gott af því
að hætta að flýta okkur og gefa kappið
við klukkuna upp á bátinn,“ segja þær og
hlæja.
Vinkonurnar segjast ekki hafa viljað
fara á mis við reynsluna af mánaðardvöl í
Tógó. „Þetta var okkur hollt og við mun-
um búa að þessari lífsreynslu alla tíð. Við
getum eiginlega ekki beðið eftir því að
koma þangað einhvern tíma aftur.“
Þær eru ekki í vafa um að margir Ís-
lendingar geti lagt hönd á plóginn í Tógó.
Til dæmis kosti 77 evrur á mánuði, um
12.500 krónur, að halda uppi einu barni í
þorpi hjá Spes. Neyðin sé mikil í Tógó og
með slíku framlagi fækki um eitt barn á
götunum. „Enginn getur gert allt en allir
geta gert eitthvað. Við ákváðum að
styrkja eitt barn ásamt nokkrum vinum
okkar; erum nú „foreldrar“ stráks sem
heitir Oliver. Þegar kreppan skall á
þurftu sumir að hætta að styrkja Spes og
þá missti Oliver „foreldra“ sína en nú
tókum við hann að okkur. Það er ótrú-
lega lærdómsríkt að upplifa hvað aðrir
þurfa að búa við eftir að vera uppalinn
við þau forréttindi sem Íslendingar eru
vanir.“
Konur í Tógó láta sig ekki muna um að bera mikil þyngsli á höfðinu. Hlegið var að íslensku stelpunum þegar þær vildu það ekki.
Skoppa og Skrítla, ef marka má bolinn... Margt er öðruvísi í Tógó en uppi á Íslandi. Þvottaaðstaða er til að mynda töluvert öðruvísi en Íslendingar eiga að venjast.
Krakkarnir eiga varla neitt en eru samt lífsglaðir og yndislegir,
syngja mikið og eru ánægðir, segja vinkonurnar í viðtalinu.
Börn í þorpum Spes í Tógó eru afskaplega glöð og
ánægð, að sögn Pálínu og Guðrúnar Öglu.
’
Eftir um það bil tvær vikur
áttuðum við okkur á því að
við vorum farnar að elska
börnin næstum því eins og þau
væru okkar eigin.
Tógó
Íbúar: 6,6 milljónir (áætlað 2009)
Stærð: 56.785 km2 (55% af stærð
Íslands, sem er 103.000 km2)
Opinbert tungumál: Franska en
þjóðtungur eru margar; m.a. mál
sem einnig eru notuð í fleiri löndum
við Benín-flóann; tungurnar ewe,
mina og aja; kabiyé er talað á
sléttunum í norðurhluta landsins.
Landið er lýðveldi og hlaut sjálf-
stæði frá Frökkum 27. apríl 1960.
Kpalimé
Lomé
Sokode
Dapaong
Kara
GANA
BENÍN
BÚRKÍNA-FASÓ