SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Blaðsíða 37
12. febrúar 2012 37
Fyrir tvo
Ávextir og jógúrt er einfaldur og fljótlegur
morgunverður og má útbúa á marga vegu.
Hráefni
Melóna
Epli
Pera
Ástaraldin
Jógúrt, t.d. grísk jógúrt
Áhöld
Skurðarbretti
Hnífur
Skálar til að bera fram
Aðferð
1. Skerðu ávextina í hæfilega stóra bita.
2. Settu jógúrt í skál. Það má líka hræra
saman jógúrt og súrmjólk. Þetta er sér-
staklega gott ef notuð er grísk jógúrt þar
sem hún gerir súrmjólkina svo mjúka og
bragðgóða.
3. Skerðu ástaraldinið í tvennt. Kreistu það
aðeins yfir skál til að safinn fari ekki út um
allt. Skafðu svo fræin úr með skeið en
reyndu að fá ekkert af þessu hvíta með því
að það er ekki gott á bragðið.
4. Blandaðu ástaraldinfræjum og safa sam-
an við jógúrtina og settu svo ávexti yfir.
Jógúrt með ávöxtum
Um 30 kökur
Þessar kökur eru í uppáhaldi hjá mörgum
krökkum.
Hráefni
150 g Rice Krispies
200 g súkkulaði
6 msk. síróp
120 g smjörlíki
Áhöld
Pottur
Sleif
Skeiðar
Múffuform
Aðferð
1. Bræddu saman smjörlíki, síróp og súkku-
laði í potti.
2. Bættu Rice Krispies saman við og
hrærðu vel.
3. Settu um 1 msk. af blöndunni í hvert
múffuform og kældu svo allar kökurnar vel.
Hægt er að skreyta kökurnar með ýmsu
öðru en kökuskrauti. Prófaðu að nota kók-
osmjöl, smátt saxaðar hnetur, rifið súkku-
laði (á kaldar kökur), rúsínur, smátt saxaða
þurrkaða ávexti, gojiber eða skrautsykur.
Súkkulaði er til í ótal mismunandi gerðum.
Prófaðu að nota dökkt súkkulaði (yfir 60%)
eða hvítt súkkulaði til að fá mismunandi
bragð. Því dekkra sem súkkulaðið er því
hollara er það.
Rice Krispies-kökur
Fyrir fjóra
Grjónagrauturinn er alltaf jafn vinsæll.
Hann er góður, einfaldur og ódýr.
Hráefni
3 dl hrísgrjón
2 dl vatn
1 l mjólk
½ tsk. salt
1 dl rúsínur (má sleppa)
Kanilsykur (til að setja út á grautinn þegar
hann er borðaður)
Áhöld
Pottur
Mælikanna eða desilítramál
Sleif
Aðferð
1. Settu vatn og grjón saman í pott. Settu á
vægan hita á eldavél og láttu sjóða í 5-10
mínútur. Passaðu að vatnið sjóði ekki al-
veg í burtu.
2. Settu um ½ l af mjólk út í pottinn. Þegar
suðan kemur upp skaltu lækka hitann og
láta grautinn malla í um 30 mínútur. Bættu
meiri mjólk út í grautinn eftir þörfum. Salt-
aðu hann núna.
3. Þegar grauturinn er tilbúinn skaltu setja
rúsínurnar út í pottinn og leyfa þeim að
hitna í gegn.
Grjónagrautur
Rauðar rósir eru tengdar Valentínusardegi órjúfanlegum böndum.
Reuters
Matur fyrir
ástfangna
Hver stenst
jarðarber með
súkkulaði?
Ekki gleyma að gleðja hundinn!
AP
Valentínusardagur er dagur elskend-
anna. Á þessum degi er líka tilvalið
að borða ýmislegt góðgæti sem sett er
í rétta búninginn fyrir ástfangna.
Valentínusardagurinn er haldinn
hátíðlegur hinn 14. febrúar sem er á
þriðjudaginn þannig að enn er tími til
stefnu til að finna réttu gjöfina handa
betri helmningnum.
Þeir sem vilja gleðja elskuna sína
ættu að minnsta kosti að fá ein-
hverjar hugmyndir að (s)ætum
glaðningi á meðfylgjandi myndum.
Auðvitað er mögulegt að kaupa eitt-
hvað í verslun en líka er hægt að
föndra sitthvað í eldhúsinu, ann-
aðhvort frá grunni eða skreyta til
dæmis tilbúnar kökur eða búa til ást-
arjátningu úr ávöxtum.
Bleikar bollakökur.Fagmannlega gert.