SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Blaðsíða 29

SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Blaðsíða 29
12. febrúar 2012 29 íslam. Þriðjungur mannkyns fylgir íslam og það er til skammar að Íslendingar hafi ekki aðstöðu fyrir svo stóran hóp.“ Fylgja kona þín og börn íslam? „Konan mín, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, tók ísl- amstrú sex árum eftir að við kynntumst. Það var hennar ákvörðun. Íslam boðar að ekki eigi að þvinga neinn til að taka trú. Konan mín fór að kynna sér íslam og vildi taka þá trú. Ég á fimm börn, tvö með fyrri konunni og þrjú með seinni konunni, og níu barnabörn. Börnin mín eru músl- imar en eru misjafnlega trúuð, eins og gengur og gerist. Það er ekki mitt að taka ávarðanir fyrir börnin mín þegar þau eru orðin fullorðin. Þau ráða sínu lífi.“ Þú ert félagsmaður í Vinstri-grænum, af hverju valdirðu þér þann flokk? „Mér finnst skylda mín að taka þátt í þjóðfélags- umræðunni og í stjórnmálum á sannfæring mín mesta samleið með Vinstri-grænum. Mér finnst Vinstri-grænir vera sá stjórnmálaflokkur sem kemst næst því að boða réttlátt samfélag. Ég trúi því að það eigi að vera jafnræði milli fólks og á sama tíma á einstaklingsfrumkvæði að fá að njóta sín. Maður á að koma vel fram við náungann og þeir sem búa við ríkidæmi eiga að deila því með þeim sem minna eiga.“ Hvort líturðu á þig sem Íslending eða Palest- ínumann? „Hvað er að vera Íslendingur? Mér þykir vænt um Ísland, bæði land og þjóð, en mínar rætur eru í Palestínu. Ég veit að ég á aldrei aftur eftir að búa þar en ég mun alltaf berjst fyrir réttindum Palest- ínumanna því við höfum verið beittir órétti.“ Þegar ég hafði samband við þig fyrir þetta við- tal sagðistu vera í veikindafríi. Hvað gerðist? „Ég fékk fyrir hjartað og það var settur í mig gangráður. Ég er að jafna mig. Rétt fyrir jól var ég einn heima og fann fyrir sting. Ég ákvað að hringja í sjúkrabíl og það var farið með mig á spítala þar sem ég fékk rafstuð og síðan gangráð.“ Varstu ekkert hræddur? „Ekkert sérstaklega. Ég er trúaður og finn gíf- urlegan styrk í því að leita til Allah og Kóransins þegar ég er í vandræðum og um leið slappa ég af. Ég fékk ekki að ráða því að ég fæddist og ég fæ ekki að ráða því hvenær ég dey. Af hverju ætti ég að vera hræddur? Auðvitað vil ég vera lengur með fjöl- skyldunni minni en þótt ég myndi lifa fimmtíu ár í viðbót myndi mér finnast nákvæmlega það sama, ég myndi ekki vilja fara frá fjölskyldunni. Þannig að það er best að reyna að halda sér á lífi eins lengi og hægt er en ef guð ákveður að taka mann til sín þá er ekkert við því að gera. Ég hlakka ekki til að deyja en ég hræðist ekki dauðann. Einhvern tíma förum við öll til guðs.“ ’ Fordómar og hatur eru ekki í eðli Íslendinga en blossa upp annað slagið. Oft eru það ungir karlmenn sem standa fyrir þessu. Ég er búinn að vera á Íslandi í fjörutíu ár og þessir menn hafa verið að alast upp á þeim tíma og eru að senda mér og trúbræðrum mínum sora. Það finnst mér afskaplega dap- urlegt að horfa upp á. Salmann Tamimi: Fólk var mjög indælt við mig. Ég fann ekki fyrir fordómum. Ég var bara bjáninn sem drakk ekki brennivín, það var bara litið á það sem mitt tap. Hér hef ég hitt indælt fólk og það hefur haldið mér í landinu. Morgunblaðið/Golli

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.