SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Side 9

SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Side 9
12. febrúar 2012 9 Bandaríkjamenn héldu í vikunniáfram árásum á hryðjuverka-menn innan ættbálkasvæðaPakistana. Á annan tug meintra vígamanna féllu. Árásirnar nú eru gerðar án samvinnu eða samþykkis hérlendra stjórnvalda og vekja ekki bara reiði al- mennings heldur líka spurningar um til- gang en afleiðingar eru ljósari. Pakistan er púðurtunna ef marka má al- þjóðlega fjölmiðla á borð við Newsweek og skilgreint sem eitt hættulegasta land heims um þessar mundir. Ekki endilega hættulegt ferðamönnum heldur miklu fremur hættulegt heimsfriði og það land sem nú fóstrar flesta af alþjóðlegum hryðjuverkamönnum íslamista. Í þessu gamla bandalagsríki Banda- ríkjanna í Aust- urlöndum hefur Am- eríkuhatur náð nýjum hæðum og er líklegt til að sameina lands- menn í landi þar sem stjórnmálin ein- kennast af sundurlyndi og grófum ásök- unum um spillingu. Sumt í landslaginu hér er Íslendingi harla kunnuglegt svo sem þegar forsætis- ráðherra og hæstiréttur takast á með stór- yrðum. Það eina sem heldur hlífiskildi yfir hinum óvinsæla Alif Asif Zardari forsætis- ráðherra er að hans helsti andstæðingur kærir sig ekki um að taka við þeirri ef- anhagslegu óreiðu sem landið er í. Næstur til valda á eftir núverandi forsætisráð- herra er ekki endilega leiðtogi stjórn- arandstöðunnar eins og heima heldur herinn sem hefur fjórum sinnum á hálfri öld hrifsað völdin í sínar hendur. Það sem helst ógnar Zardari eru ásak- anir um spillingu og peningaþvætti en bæði honum og forsetanum hefur verið stefnt fyrir hæstarétt. Árás inn á viðkvæmt sjálfstjórnarsvæði Héraðið Waziristan þar sem meintir víga- menn voru felldir í tveimur árásum í vik- unni tilheyrir fjalllendi á mörkum Pak- istan og Afganistan. Það er ekki nema að hluta undir pakistanskri stjórn. Þetta er sjálfstjórnarsvæði ættbálkahöfðingja og griðastaður jafnt hryðjuverkamanna, eit- urlyfjabaróna og vopnasala. Völd pakist- anska hersins birtast fyrst og fremst í möguleika hans til að loka svæðinu fyrir umheiminum en ómannaðar orrustuflug- vélar og flugskeyti Bandaríkjanna skeyta lítið um slíkt bann. Ættbálkahöfðingjar þessara svæða njóta ýmissa forréttinda í Pakistan og hafa t.d. yfir sjálfskipuðum þingsætum að ráða. Þeir voru líka í eina tíð taldir helstu vinir hins vestræna lýðræðis og það má rekja stöðuna í dag til þess tíma. Vestrænir leið- togar hafa fyrr farið flatt á íhlutun mála í heimi hinna stoltu og ósveigjanlegu Phastuna sem byggja fjöllin beggja vegna landamæra Pakistans og Afganistans. Á þessu sama svæði náðu heimamenn að auðmýkja heimsveldi bæði Rússa og Breta á 19. öld. Osama var þeirra maður, ekki okkar „Mér er alveg sama þó að Bandaríkja- mönnum líki einn daginn vel við menn eins og Osama bin Laden og ráði hann í sína þjónustu. Eða þó að þeim líki illa við hann næsta dag. Mér líkar við ekki við þessa menn, hvorki Obama né Osama sem var upphaflega ekkert annað en málaliði CIA. Hann var þeirra maður, ekki okkar,“ segir Rafiq Gundapur í Rawalapindi. Hann er Phastuni, fyrrverandi stjórnmálamaður og samstarfsmaður Ali Bhutto, tengda- föður Zardaris forsætisráðherra. Rafiq er einn örfárra sem fást til að tjá sig við blaðamann Morgunblaðsins undir nafni en þessi sömu sjónarmið einkenna marga þá sem eru hófsamir í stjórnmálum í Pakistan. Hér gleymist það ekki að upp- haflega var það CIA og bandalagsríki Bandaríkjanna sem komu fótunum undir mujahedin-skæruliðana og málaliða á borð við Osama bin Laden. Þetta var á þeim tíma hluti af kalda stríðinu þar sem öllu skipti að flæma Sovétríkin út úr Afg- anistan. Pakistan var milliliðurinn sem sá um að koma sex milljörðum dollara frá CIA og ómældum fúlgum annars staðar frá til íslamistanna og skapa þeim grundvöll sem fátækt samfélag Pakistana í dag kipp- ir ekki í burtu á einni nóttu. Þó Pakistan grundvalli tilvist sína á mú- hameðstrú fer því fjarri að róttækir ísl- amistar hafi verið eða séu sterkir í pakist- önskum stjórnmálum. Þeir hafa ekki náð lengra en að ráða yfir smáflokkum í þinginu og njóta vinsælda á afmörkuðum svæðum. Fyrir innrás Sovétríkjanna í Afganistan 1979 voru pakistanskir herfor- ingjar nær allir veraldlega þenkjandi og fráhverfir öfgasjónarmiðum í trúmálum. Þjóðsögur segja að þeir drekki viskí á tyllidögum en slíkt er forboðið af trú- arástæðum og vitaskuld bannað með lög- um hér í skraufþurru múslimalandi. En hvað sem líður viskídrykkju þá hef- ur náið samband hersins við mujahedin- skæruliða breytt afstöðu margra lyk- ilmanna. Það mátti fyrst greina lítilsháttar breytingu í sömu átt með valdatöku klerkastjórnarinnar í Íran sem varð tæpu ári áður en Sovétmenn réðust inn í Afgan- istan. Zia Ul-Hag hershöfðingi sem þá réð hér, svaraði tíðindum frá Íran með því að lýsa yfir að Pakistan væri nú íslamskt ríki en alvaran bakvið þá yfirlýsingu er um- deild. Það sem fyrst og fremst grundvall- aði íslamsvæðingu stjórnkerfis og hers var hið vanhelga bandalag Bandaríkjamanna og mujahedin-skæruliðanna. Stjórnin telur herinn á bandi Al-Qaeda Almenningur í Pakistan er tilbúinn að tjá sig frjálslega um forsætisráðherrann Zar- dari, ekkil eftir fyrri forsætisráðherra, Be- nazir Bhutto, og þá ekki síður um forset- ann, Yousaf Raza Gilani. Hér eru flestir sammála um að þeir séu spilltir og van- hæfir. En þegar kemur að hernum gegnir öðru máli. Þeir eru á varðbergi sem illa er við völd hersins því njósnarar hans geta jafnvel birst í líki bláeygra Evrópumanna. En meðal viðmælenda Morgunblaðsins hér í Pakistan eru ótrúlega margir sem telja herinn mikið skárra afl en hina spilltu stjórnmálamenn. Óttinn við herinn er ekki ástæðulaus því leyniþjónusta hans, ISI, er, eins og systurstofnanir hennar víða um heim, þekkt að ógnarverkum, pyntingum og morðum. Jafnvel hátt settir diplómatar og gæðingar stjórnvalda óttast hér um líf sitt þegar stofnunin sýnir klærnar. Það er því ekki annað hægt en að taka ofan fyrir þjóðarleiðtogunum Zardari og Gilani sem hafa nú í vetur talað tæpi- tungulaust um herinn. Forsetinn kallaði hann ríki í ríkinu og lét að því liggja að hann væri ekki saklaus af því að hafa hjálpað Osama bin Laden. Gagnrýnendur Gilanis í blaðadálkum hafa þó frekar viljað setja ummæli hans á reikning heimsku en hugrekkis! CIA treystir ekki pakistanska hernum Það er tæplega reiknað með því að þeir fé- lagar Zardari og Gilanti verði endurkjörnir og sennilegasti arftaki í lýðræðislegum kosningum er talinn krikketleikarinn Imran Khan, en hann hefur lofað þjóð sinni að leysa öll hennar vandamál á 90 dögum. Það á við um verðbólguna sem er hér í hæðum, erlendar skuldir sem sliga landið, hryðjuverkaógnina og rafmagns- leysið en rafmagn er skammtað og tekið af í nokkrar klukkustundir á dag í flestum héruðum og borgarhverfum landsins. Stefna Imran Khan og flokks hans Tehreek e-Insaf er um margt hófsöm, t.d. í trú- málum, en einkennist vitaskuld af lýð- skrumi. Flokkurinn hefur svo að und- anförnu tekið upp harða andstöðu við Bandaríkin en það er hér mjög til vinsælda fallið, bæði meðal hinna hófsömu múslima og hinna. Eins og fyrr var rakið í pistli í Morg- unblaðinu hafa samskipti Bandaríkjanna og Pakistans stórversnað á undanförnum misserum og þar ráða miklu mannvíg bandarískra hermanna og erindreka innan landamæra Pakistans. Einhverjum kann að þykja að Banda- ríkjamönnum sé nokkur vorkunn að hafa viljað vega höfuðóvin sinn, Osama bin Laden, þar sem hann sat í náðum í klukkustundar fjarlægð frá Islamabad, höfuðborg Pakistans. Það verk var unnið í blóra við pakistanska herinn og það er enginn vafi að CIA deilir þeirri skoðun með forsetanum að í baráttunni við hryðjuverk sé hernum illa treystandi. Samsæri eða heimska En áframhaldandi víg á meintum hryðju- verkamönnum innan viðurkenndra landamæra Pakistan þjóna engu nema því að skapa hundrað nýja fyrir hvern einn sem veginn er. Hvað sem tækni Banda- ríkjamanna líður eru pakistönsk stjórn- völd þrátt fyrir allt margfalt sennilegri til að ráða niðurlögum vandans, enda raun- verulegur stuðningur almennings í land- inu við hryðjuverk ekki fyrir hendi. Þegar að er gáð er stuðningur við heit- trúarstefnur íslamista líklega minni í Pak- istan en fjölmörgum múslimalöndum og daður herforingjanna við íslamista byggist meir á valdapólitík en sannfæringu. En hvað vakir þá fyrir Bandaríkjamönnum? Svarið er ef til vill hluti af flókinni gátu. Við getum gripið til heimskukenningar sem margir Pakistanar trúa þegar kemur að skiptum Gilanis við herinn og sagt að sama eigi við um loftárásir Bandaríkja- manna hér innan Pakistans. Árásirnar verða allavega ekki færðar í bókhald hug- rekkis þegar til þeirra eru notaðar ómann- aðar flugvélar. Önnur leið er að trúa langsóttri samsær- iskenningu sem mjög víða má heyra. Kasmírskur blaðamaður sem Morg- unblaðið hitti í Rawalapindi hvíslar að mér grunsemdum sínum þó ekkert bendi til að nokkur utan okkar tveggja skilji ensku í litla kaffihúsinu við Zaddar-markað. „Þetta er allt hluti af samsæri CIA og heimsvaldastefnu Bandaríkjanna. Þeir sjá enga aðra leið út úr þessu en að skapa hér nógu mikinn glundroða til þess að geta réttlætt hernaðaríhlutun í Pakistan eins og í nágrannaríkjunum Afganistan og Írak.“ Bjarni Harðarson skrifar frá Pakistan. Að kveikja í púðurtunnu Niður með Ameríku, hrópaði þessi gamli sveitamaður en varð eins og myndin sýnir strax vinalegri þegar hann hafði áttað sig á að blaðamaður var ekki Bandaríkjamaður. Bænastund í Peshawar. Bjarni Harðarson Ljósmyndir/Bjarni Harðarsson

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.