SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Blaðsíða 12

SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Blaðsíða 12
12 12. febrúar 2012 Mánudagur Gerður Kristný Ef ég ætti bíl þyrfti ég sífellt að vera að ketilbjöllu- þjálfa eða eltast við hreindýr til að hafa efni á þeim. Ég er yfir mig þakklát fyrir að hafa aldr- ei nokkurn tímann fjárfest í öðru ökutæki en reiðhjóli. Þórdís Elva Þorvalds- dóttir er stolt leggöng, eins og tíðkast að kalla konur með skoð- anir. Þriðjudagur Elísabet Kristín Jök- ulsdóttir Það eru allir byrjaðir að kalla mig Frú Elísabet, tveir bún- ir að gera það á Facebók í dag, ég ætla láta klippa á mig hanakamb og hann á að vera bleikur, fá mér vígtennur og horn uppúr hryggsúl- unni Föstudagur Andri Snær Magna- son ... minnir að í Teigagerði hafi stund- um verið drukkið laffi, það var kaffi með mjög mikilli mjólk í glasi. Ég er kominn af laffilepjandi alþýðufólki í 108 Reykjavík. Fésbók vikunnar flett Þegar velja á fartölvu er gott að velta því fyrir sér til hvers á að nota tölvuna og hvar: verður hún í fanginu framan við sjónvarpið, notuð inni í tölvu- herbergi, á flakki uppi í sumarbústað eða í sífelldu sumarleyfi í útlöndum svo dæmi séu tekin. Í mörgum til- fellum er betra að fá sér borðtölvu, ódýrara og einfaldara, en í öðrum er fólk kannski að leita að spjaldtölvu frekar en fartölvu. Eins og getið er hér til hliðar eru far- tölvur ólíkar og ber oft mikið á milli. Sú var tíðin að allir vildu kaupa sem öflugastar vélar og vissulega á það enn við, sérstaklega eru leikja- áhugamenn spenntir fyrir öflugum apparötum. Tölvunotkun hefur þó breyst svo mikið á undanförnum ár- um, í stað forrita sem gera sífellt meiri kröfur til örgjörvaafls og minnis byggist notkunin að stærstu eða öllu leyti á netvafri, tölvupósti, fésbók- arhjali og tísti. Til þess þarf ekki öfl- ugar vélar, eða ekki ýkja öflugar í það minnsta og stundum er nóg að fá sér spjaldtölvu eða bara betri síma. Fartölvu til hvers? Fartölva, borð- tölva, spjaldtölva eða snjallsími? Lenovo tók við ThinkPad línunni hjá IBM og hefur haldið vel á merkinu finnst mér. E520 er þannig fín vél fyrir flesta, traustur kassi, stór skjár (15,6") og frábært lyklaborð. Dæmi- gerð skólavél. Í vélinni sem ég prófaði er Intel i5 2.40 GHz ör- gjörvi, en mér skilst að líka sé hægt að fá hana með Intel i3. Hún er ansi þung, enda stór um sig. Skjákortið er á móðurborðinu, Intel GMA HD 3000, og ekkert til að hrópa húrra yfir, en dugir fyrir flesta vinnslu. Skjárinn er þokkalegur, 15,6" HD LED glampafrír með 1366 x 768 díla upplausn, en ekki ýkja bjartur. Óvís- indaleg prófun benti til þess að hann væri not- hæfur utandyra, en þó ekki í mikilli vetrarsól. Ekki skortir tengi á vél- inni. Að vísu er ekki á henni kvíartengi, enda ekki fyrirtækisvél, en hún er með fimm USB 2.0 tengi og eitt þeirra eSATA samhæft, VGA skjátengi og HDMI sjónvarpsútgang. Það er líka á henni 34 mm ExpressCard rauf og Ethernet-tengi. Einnig er í henni kortalesari. Minnið er 4 GB 1333 MHz, diskurinn 500 GB. Það er DVD-RW drif í vélinni sem ég væri til í að skipta út fyrir auka- rafhlöðu, enda er rafhlaðan í henni ekkert sérstök. Á vélinni er upp sett 64 bita Windows 7 Professional og fylgir Office starter 2010 (Word og Excel) Dæmigerð skólavél Það er sitthvað fartölva sem nota á í skóla og heimilisvafstri eða á vegum fyr- irtækis. Lenovo E522 er gott dæmi um dæmigerða skólavél sem dugir líka vel fyrir almenna notkun heimafyrir. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.