SunnudagsMogginn - 12.02.2012, Qupperneq 39
12. febrúar 2012 39
Höfundar og unnendur ástarsagna í
Oklahoma eru í uppnámi þessa dag-
ana eftir að aðstandendur ástar-
sagnakeppninnar „Meira en galdur“
bönnuðu höfundum, sem senda
sögur í keppnina að þessu sinni, að
skrifa um ástir fólks af sama kyni.
Frjálst er að skrifa um ástir karls og
vampíru, konu og varúlfs en ekki
karls og karls og konu og konu. Þar
við situr. Höfundar hafa í kjölfarið
hugleitt að sniðganga keppnina og sagði einn þeirra,
Courtney Milan, það galið að setja mönnum skorður
með þessum hætti. „Ástarsögur hverfast ekki bara um
ást heldur ekki síður það að finna sig í samfélaginu.“
Teprulegar ástarsögur
Ekkert svona,
strákar!
Það er leiðinleg lífsreynsla að festast í
lyftu – hvað þá tvisvar sama daginn.
Þessum ósköpum varð maður nokkur í
Chicago fyrir á dögunum. Ballið byrjaði
þegar lyftan, sem hann var einn í, stað-
næmdist milli hæða 21. og 22. í háhýsi
í miðborg Chicago að kvöldlagi. Mað-
urinn hélt ró sinni og bjallaði í slökkvilið-
ið sem brást skjótt við. Greiðlega tókst
að ná manninum út úr lyftunni en þar
sem hún sat áfram föst var manninum hleypt inn í
næstu lyftu við hliðina. Skipti þá engum togum að hún
festist líka. Aftur tók maðurinn upp símann og aftur
leysti slökkviliðið hann úr prísundinni. Í það heila tók
ferð mannsins niður bygginguna þrjár klukkustundir.
Leiðinlegar lyftur
Lyftu mér
hærra?
sem hún virtist líða áfram í rólegheitum úti á Faxaflóa, en áður en far-
kostirnir lentu var floginn hringur um höfuðborgina. Lendingin var
klukkan 20.45,“ segir í frétt Morgunblaðsins um málið.
Sem fréttamaður Sjónvarpsins fylgdist Ómar Þ. Ragnarsson með
komu geimferjunnar og óskaði eftir því að fá að fljúga Cessna-vél sinni
TF-FRU í góðri sjónlínu við breiðþotuna. Leyfi til slíks fékkst ekki.
„Mig minnir að við sjónvarpsmenn höfum leyst þetta með því að koma
okkur fyrir uppi í turni Hallgrímskirkju þar sem við höfðum frábært
útsýni þegar þotan tók lágflug yfir þverbraut Reykjavíkurflugvallar,“
segir Ómar sem seinna átti þess kost að skoða geimferju NASA vestur í
Bandaríkjunum. Var svo staddur á Canaveral-höfða þar vestra
snemma í ágústmánuði 1997 þegar geimferjunni Discovery var skotið á
loft, en þá var Íslendingurinn Bjarni Tryggvason í áhöfn.
„Þó sjónvarpið sé sterkur fjölmiðill getur maður aldrei miðlað til
fulls hve stórkostlegt er að fylgjast með geimskoti. Hávaðinn er stór
hluti af áhrifamætti stundarinnar. Svalirnar sem við stóðum þar sem
við horfðum á geimskotið hristust og titruðu eins og í jarðsjálfta,“ segir
Ómar Ragnarsson um geimskotið þegar Discovery tók á loft með of-
urkrafti og var hálfri níundu mínútu seinna á braut um jörðu í 296 km
hæð. Tók þá við ellefu daga geimferð með 176 ferðum umhverfis jörð-
ina. Fyrir fámenna þjóð var hins vegar stóra málið að Íslendingur væri í
áhöfn – og í viðtali við Morgunblaðið nefndi forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, sem var viðstaddur, hið stóra samhengi sögunnar,
sem birst hefði á örskotsstundu, saga landkönnuða frá Ingólfi Arn-
arsyni og Leifi Eiríkssyni til Bjarna Tryggvasonar, sem er eini Íslend-
ingurinn sem komist hefur hátt upp í geim.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Flaug lágt yfir
höfuðborgina
þar sem hún
virtist líða áfram í
rólegheitum úti á
Faxaflóa, en áður en
farkostirnir lentu var
floginn hringur um
höfuðborgina
Ómar Þ.
Ragnarsson.
hefur sent frá sér breiðskífu undir merkjum við-
urkenndrar útgáfu. Frumburðurinn, Born to Die,
kom ekki í plötubúðir fyrr en um síðustu mán-
aðamót.
En hvað var a’tarna? Haldiði að Del Rey hafi
ekki magalent í þættinum. Virkaði taugaóstyrk og
þótti syngja bæði Video Games og titillag plöt-
unnar illa – ef ekki beinlínis falskt. Ekki stóð á
viðbrögðum. Logi Bergmann Eiðsson þeirra
Bandaríkjamanna, Brian Williams, fullyrti að
þetta væri versta frammistaða í sögu Saturday
Night Live og leikkonan Juliette Lewis líkti Del
Rey við tólf ára gelgju að reyna að syngja og koma
fram heima í svefnherbergi. Sú Twitter-færsla var
raunar fljótt fjarlægð. Kynnir þáttarins, breski
leikarinn Daniel Radcliffe (betur þekktur sem
Harry Potter), fann sig knúinn til að bera blak af
Del Rey. „Svona slæmt var þetta ekki,“ muldraði
hann upp í vindinn.
Söngskýrendur vestra voru fljótir að benda á,
að þarna hafi vandi Del Rey birst í hnotskurn.
Hún sé með áhugaverða rödd sem hljómi vel í
upptökum en vegna taugaveiklunar missi hún
hana út og suður á tónleikum.
Vonandi kemur Lana Del Ray böndum á rödd-
ina fyrr en síðar – enda virðist æðið rétt að byrja.
Lana Del Rey vekur ekki síður áhuga tískuljóna en tónlistaráhugafólks.
Reuters
’
… leikkonan Juliette Lewis
líkti Del Rey við tólf ára
gelgju að reyna að syngja
og koma fram heima í svefn-
herbergi.
Á ofanverðum tíunda áratug síðustu aldar var ekki óal-gengt að íslenskir karlmenn (og örugglega kynbræðurþeirra af öðru þjóðerni) á öllum aldri köstuðu frá séreinu og öllu (nema þá helst spjörunum) og hlypu eins
og fætur toguðu að
skjánum til að missa
ekki af rómantíska
gamanþættinum Nort-
hern Exposure, sem
sýndur var hér heima á
Stöð 2. Aðdráttaraflið
var aðalleikkonan,
Janine Turner, sem
þótti blómlegast
sprund á þeim tíma,
alltént í sjónvarpi. Fór
hún með hlutverk
Alaskarósarinnar Mag-
gie O’Connell sem átti
í viðvarandi dað-
ursambandi við að-
komulækninn Joel
Fleischman, leikinn af
Rob Morrow, í fásinn-
inu í krummaskuðinni
Cicely.
Janine Turner fædd-
ist í Lincoln, Nebraska,
árið 1962 og verður því
fimmtug síðar á þessu
ári. Aðeins fimmtán ára fór hún að heiman til að leggja fyrir sig
fyrirsætustörf. Fyrirsetan þróaðist eins og svo oft yfir í leik í
sjónvarpsþáttum og þreytti Turner frumraun sína á skjánum í
ofurlitlu hlutverki í sápuóperunni sívinsælu Dallas árið 1980.
Hún lék smærri hlutverk í ýmsum þáttum næstu tíu árin en það
var ekki fyrr en hún landaði hlutverki Maggie O’Connor í Nort-
hern Exposure að Turner sló fyrst almennilega í gegn. Þátturinn
gekk við miklar vinsældir í fimm ár.
Faðir allra harðjaxla, Sylvester Stallone, var í hópi þeirra
manna sem gerðu sér grein fyrir aðdráttarafli Turner og fékk
hann hana til að leika aðalhlutverkið á móti sér í kvikmyndinni
Cliffhanger árið 1993. Má segja að það hafi verið hápunkturinn á
ferli Turner.
Eftir að Northern Exposure lagði upp laupana hefur lítið
spurst til Turner sem þó starfar ennþá við sjónvarp og kvik-
myndir. Árið 2004 skrifaði hún til að mynda og leikstýrði kvik-
myndinni Trip in a Summer Dress, sem hermir af viljasterkri
móður og börnum hennar.
Raunar eru einstæðar mæður sérstakt áhugamál Turner og ár-
ið 2008 sendi hún frá sér bók með því þjála nafni Holding Her
Head High: Inspiration from 12 Single Mothers Who Champio-
ned Their Children and Changed History. Hvorki meira né
minna!
Síðasta framlag Turner til sjónvarpssögunnar var að leika
móður ruðningshetju í þáttunum Friday Night Lights fyrir fá-
einum árum.
Turner er harður repúblikani af íhaldssamari gerðinni og
barðist með kjafti og klóm í þágu Söruh Palin, varaforsetafram-
bjóðanda, í kosningunum fyrir fjórum árum. Hún hefur látið
umtalsvert fé af hendi rakna í kosningasjóði Repúblikanaflokks-
ins.
Janine Turner býr ásamt dóttur sinni á nautabúgarði skammt
utan Dallas. Hún á ekki mann.
orri@mbl.is
Hvað varð um ...
Janine Turner eins og aðdá-
endur Northern Exposure
muna best eftir henni.
Janine Turner?
Turner hefur skipt yfir í ljóst hár í seinni tíð.