Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012
Verð 7.900 kr.
2 litir
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
Ný sending
FLOTTAR FERMINGARGJAFIR
HJÁ JÓNI OG ÓSKARI
Ísmen silfurhálsmen
zirkonia-steinar
8.100 kr.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
Hekla silfurhálsmen
með zirkonia-steini
13.900 kr.
www.jonogoskar.is Laugavegi 61 / Smáralind / Kringlan
Hekla silfurhringur
með zirkonia-steini
14.500 kr.
Hekla silfurlokkar
8.000 kr.
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Dreymir þig nýtt eldhús!
Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús
og allar innréttingar sem hugurinn girnist.
Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði
alla leið inn á þitt heimili.
SVARTAR KLASSÍSKAR TILBOÐ 17,900,-
GALLABUXUR TILBOÐ 14,900,-
Mörg snið/síddir
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Aðhaldsföt
Sundbolir
Tankini
Bikini
Náttföt
Undirföt
Sloppar
YÜØ f|zâÜÄtâz
Mjóddin s. 774-7377
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það hefur verið áhugamál mitt í
mörg ár að byggja þessa reiðhöll.
Það er mikill metnaður til að gera
vel í þessu bæjarfélagi,“ segir Her-
mann Th. Ólafsson, útvegsbóndi í
Grindavík. Hann hefur tekið að sér
að annast byggingu myndarlegrar
reiðhallar á nýja hesthúsasvæðinu í
Grindavík.
Lengi hefur verið unnið að undir-
búningi reiðhallar á vegum Hesta-
mannafélagsins Brimfaxa, Grinda-
víkurbæjar og áhugamanna. Bærinn
hefur lofað 50 milljóna króna fram-
lagi og ríkið 7 milljónum. Hermann
segir að einstaklingar vilji einnig
leggja þessu máli lið.
Allt á fullu
Málið hefur ekki komist í fram-
kvæmd, fyrr en nú. Hermann er
hrossaræktandi og framkvæmda-
stjóri útgerðarfélagsins Stakkavík-
ur. Hann sóttist eftir því að fá um-
boð hestamannafélagsins til að
annast verkið. Samkomulag við Her-
mann var samþykkt á fjölmennum
fundi í Brimfaxa á dögunum. Her-
mann ábyrgist að höllin komist upp
fyrir þá peninga sem félaginu standa
til boða og brúa það bil sem upp á
vantar. Segist hann hafa sínar leiðir
í því. Nefnir að áformað sé að byggja
tvö 80 hesta hesthús við reiðhöllina
og sala á lóðunum geti verið mik-
ilvægur þáttur í fjáröflun fyrir verk-
efnið.
Keypt verður stálgrindarhús frá
Landstólpa, 26 sinnum 70 metrar að
gólfflatarmáli. Er það nákvæmlega
eins hús og reiðhöll hestamanna-
félagsins Mána í Keflavík sem Suð-
urnesjamenn líta mikið til. Ekki hef-
ur verið samið
um uppsetningu
hússins en Her-
mann segir að
hugur sé í hesta-
mönnum að vinna
sem mest í sjálf-
boðavinnu til að
klára verkið.
Höllin á að vera
orðin fokheld 1. júlí enda er það skil-
yrði þess að styrkur fáist úr þeim
sjóði ríkisins sem ætlaður er til að
styðja byggingu reiðhalla. Vonast er
til að hægt verði að taka reiðhöllina í
notkun næsta haust.
„Þetta breytir öllu. Það er svipað
með hestamennskuna, körfuboltann,
fótboltann, júdóið og fleiri greinar
að góð aðstaða setur okkur á annað
plan. Fleiri munu stunda hesta-
mennskuna, við fáum betri hesta og
betri knapa og tamningamenn,“ seg-
ir Hermann.
Þoli ekki að tapa
Hermann hefur verið öflugur bak-
hjarl íþróttanna í Grindavík, ekki að-
eins hestamennskunnar. „Ég er
mikill Grindvíkingur og hef metnað
fyrir mitt bæjarfélag. Það rekur mig
áfram í þessu. Ég þoli ekki að tapa í
neinum íþróttum,“ segir hann.
Áætlað er að 80 til 100 hestar séu
á húsi í Grindavík í vetur. Þeir kom-
ast allir fyrir á nýja Brimfaxasvæð-
inu og vel það, ef þar tekst að byggja
hesthús fyrir 160 hesta. Hermann er
þess fullviss að áhugi á hesta-
mennsku muni aukast með bættri
aðstöðu og ekki útilokað að hún leiði
til þess að fólk flytjist til bæjarins.
Á nýja félagssvæðinu er gert ráð
fyrri góðum reiðleiðum, keppnis-
völlum, fleiri lóðum fyrir hesthús og
landi til sumarbeitar.
Aðstaða Áformað er að byggja tvö hesthús við reiðhöllina í Grindavík. Reiðhöllin er fjær.
Metnaður til að
gera vel í bænum
Hermann Ólafsson ábyrgist bygg-
ingu reiðhallar fyrir Grindvíkinga
Hermann Ólafsson