Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É g vildi ögra sjálfum mér. Þess vegna ákvað ég fyrir sjö ár- um að takast á við verulega langa göngu- leið, hinn 800 kílómetra langa Jak- obsveg. Ég hafði hjólað mikið alla mína ævi og tekið þátt í hjólakeppn- um en mig langaði að gera eitthvað annað,“ segir Krzysztof Karcz sem árið 2005 gekk þessa fornu píla- grímsleið sem liggur frá Roncesval- les til Santiago De Compostela á Spáni og er kölluð St. James way, upp á enska tungu. Krzysztof var tuttugu og átta daga á leiðinni og segir þessa píla- grímsgöngu vissulega hafa verið nokkuð erfiða. „Ég var reyndar í góðu hjólaformi og það kom sér vel, ég gat gengið allt að fimmtíu kíló- metra á dag en flestir sem fara þessa leið ganga 25-30 kílómetra á dag.“ Hitti fólk frá öllum heims- hornum á leiðinni Krzysztof fór einn í ferðina löngu og mælir með því. „Því þá kynnist maður betur fólkinu sem maður hittir á leiðinni, en það kom mér á óvert hversu margt fólk var að ganga þessa leið. Og það kemur alls staðar að úr heiminum. Göngu- félagar mínir voru til dæmis frá Síle, Argentínu, Brasilíu, Mexíkó, Nýja- Sjálandi, Jamaíka, Japan, Kóreu, Malí, Suður-Afríku og ótal Evr- ópulöndum. Þessi ganga er því sér- lega alþjóðlegt ævintýri og ég fékk frábært tækifæri til að æfa mig í Ég vildi ögra sjálfum mér Hann hefur tvisvar gengið Jakobsveginn, pílagrímsferðina fornu. Fyrst fór hann algengari leiðina sem er 800 kílómetrar en síðan fór hann lengri leiðina, 1.000 kílómetra, erfiðari og fáfarnari. Göngurnar segir hann vissulega hafa verið erf- iðar en líka góðar göngur inn á við, þær hafi breytt honum. Calzada de Bejar Hér er hann nákvæmlega hálfnaður á Silfurveginum. Englar Íslensku orðin úr Biblíunni vöktu mesta undrun hans. Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir heldur úti frábæru bloggi undir slóðinni barbie- tec.com. Hún breytti um lífsstíl, steig upp úr sófanum og fór út að hlaupa, eins og hún orðar það sjálf. Hún set- ur sér markmið og vill vera hvatning fyrir aðra. Eftir að hún hafði tekið mataræðið í gegn byrjaði hún að hlaupa og studdist við c25k hlaupaprógramm- ið. Hún setti sér þá strax það mark- mið að ná sama árangri í hlaupum og hún hafði náð í matarmálum. Og gekk vel. Á einu ári missti hún 46 kg sem gjörbreytti hugarfari hennar til offitu og matar. En í nóvember 2010 greind- ist hún með brjóstakrabbamein og eins og gera mátti ráð fyrir hefur læknismeðferðin haft mikil áhrif bæði á holdafar hennar og hreyfingu. En það er baráttuhugur í henni og all- ir hefðu gott af því að fylgjast með skrifum þessarar ungu konu. Vefsíðan www.barbietec.com Kona Ein af þeim myndum sem Sigrún Þöll hefur teiknað í veikindum sínum. Hlaupari í baráttu bloggar Þó sífellt fjölgi þeim sem láta vetur- inn ekki stoppa sig í hjólreiðum, held- ur fá sér nagladekk og annan búnað til að komast um í snjó og erfiðri færð, þá eru margir sem leggja hjól- fákum sínum yfir kaldasta árstímann. En nú sér loksins fyrir endann á við- veru Kára konungs og vorið virðist vera handan við hornið, hlý gola farin að leika við kinn. Í þeim landshlutum þar sem allur snjór er farinn af veg- um og eða götum er um að gera að draga reiðhjólin fram úr geymslum og bílskúrum, smyrja þau og pússa og rifja upp hjólatakta síðasta sum- ars. Hressandi og sparar bensín. Endilega … … hjólið út í vorið hlýja Morgunblaðið/hag Hjólreiðar Eru skemmtilegar. Það var heldur betur tekið á því á Íslandsmeistaramótinu í júdó sem fram fór um helgina. Ármenningar voru sigursælir og Bjarni Skúlason vann fullnaðarsigur, bæði í opna karlaflokknum og í sínum þyngd- arflokki. Margrét Ragna var sterk- ust í kvennaflokknum, vann fulln- aðarsigur í öllum sínum glímum. Íslandsmót í júdó var haldið um helgina Mikil átök í júdóinu Fastur Handtökin voru hörð. Morgunblaðið/Ómar Stelpuslagur Kvenkynið gaf ekkert eftir í glímunni. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.