Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 33
The Young and Carefree Ískalt en rómantískt popp. sprelligosalegt en endaði dálítið úti í skurði. Atary var sömuleiðis dúett, skip- aður tveimur vinum sem hafa spilað saman í tólf ár, liðlega helming æv- innar. Lögin voru fremur hefð- bundnar háskólarokksballöður með gruggblæ. Samsöngur þeirra félaga var góður og einkanlega fór annar þeirra, Sævar Logi, miklum hamför- um í söngnum. Það mætti segja að hann hafi nánast farið yfir strikið í ástríðufullri túlkuninni en einlægnin bjargaði honum. ReTroBot sögðust spila „elektrón- ískt indírokk“ í kynningartexta og verður henni trauðla betur lýst. Með- limir komu ákveðnir til leiks, í sam- stæðum sviðsfötum og sviptu upp stuðvænu setti og salurinn var óðar á þeirra bandi. Lagasmíðar voru helst til þunnar en yfir það var breitt með áðurnefndri ástríðu og spilagleði. Enn og aftur kvað við nýjan tón er hljómsveitin Treisí sneri í gang. Just- in Bieber eirir engu og er nú kominn inn á Músíktilraunir. Hér var á ferð- inni fölskvalaust plastpopp, söngv- arinn Júlí Heiðar söng með bjartri og orkuríkri röddu yfir melódískt há- skólarokk sem var, jú, sæmilegt til síns brúks en lítið meira en það. Audio Team voru og á melódískum lendum, en meira í hreinu, amerísku tilfinningarokki. Söngkonan bar sveitina uppi, sviðsmanneskja af Guðs náð og sveitin bara býsna efni- leg. In the Company of Men hafði m.a. á að skipa hinum mjög svo lit- ríka söngvara, Andra Kjartani Jak- obssyni Andersen, sem hefur heiðrað Tilraunirnar alloft með nærveru sinni, m.a. með sveitinni Vulgate. Ekki stóð á kraftinum frekar en vanalega og Andri eins og kolvitlaust dýr í búri uppi á sviði. Tónlistin var blanda af frjálsum djassi og öfg- arokki, ekki ósvipað því sem John Zorn var að gera með Naked City. Áhorfendur voru á bríkinni í gegnum lögin tvö en um leið má líka greina ákveðin þreytumerki í þessu öllu saman. Justin Case er skipuð ungum mönnum og tók og þátt í fyrra. Ný- bylgjurokk sveitarinnar féll í fremur grýttan jarðveg og enn vantar upp á samhæfingu og almenna stefnumót- un. Hvergerðingarnir End of Days luku svo kvöldinu með fremur hefð- bundnu bílskúrsrokki og greinilegt að hér voru menn að stíga fyrstu skrefin. Salurinn kaus svo RetRoBot inn í úrslit en dómnefndin hleypti Aeterna áfram. Audio Team Söngkonan stóð sig með miklum sóma. Snjólugt Sveitin var djúpt í sporum áhrifavaldanna. Justin Case Samhæfing í fötum sem tónum. MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Á toppi íslenska aðsóknarlistans trónir kvikmyndin The Hunger Games. Það má með sanni segja að þessi mynd hafi náð til kvikmynda- húsagesta bæði hér á Íslandi og um allan heim en myndin er nú í þriðja sæti yfir bestu frumsýningarhelgi allra tíma en aðeins The Dark Knight og Harry Potter & The Deathly Hallows: Partur II hafa átt betri opnunarhelgi. Ólíkt stórmynd- inni John Carter frá Walt Disney sem kostaði nærri 250 milljónir doll- ara og hefur fengið dræmar mót- tökur sem gæti kostað Disney allt að 150 til 200 milljónir dollara í tapi malar The Hunger Games gull með rúmar 155 milljónir dollara í aðsókn í Bandaríkjunum einum og hátt í 60 milljónir dollara utan Bandaríkj- anna. Kostnaður við gerð mynd- arinnar er um 80 milljónir dollara og því strax kominn gífurlegur hagn- aður af gerð hennar. Síðast en ekki síst hefur myndin einnig fengið frá- bæra dóma gagnrýnenda um alla heim. Í öðru sæti listans er íslenska stórmyndin Svartur á leik en hún var í 3 vikur á toppi listans. Það er engin skömm að því að hrapa niður í annað sæti fyrir mynd eins og The Hunger Games og geta aðstand- endur myndarinnar verið ánægðir með þær frábæru móttökur sem ís- lenskir bíóhúsagestir hafa veitt myndinni. Friends With Kids kemur ný inn á listann og hoppar beint í 3. sætið. Hérna er á ferðinni gamansöm og rómantísk mynd um vini sem ákveða að eignast saman barn en sleppa öllu veseninu sem fylgir því að vera í sambandi. Myndin hefur fengið fína dóma og leikstjórinn Jennifer West- feldt hefur tekist vel til með þessa mynd. Vonbrigði helgarinnar hlýtur að vera John Carter en myndin hrapar úr öðru sæti listans niður í það fimmta. Myndin sem átti að vera ein af stærri myndum ársins hefur átt erfitt uppdráttar og ekki laðað að þann fjölda sem framleiðendur hennar, Walt Disney, gerðu sér von- ir um. Bíóaðsókn helgarinnar Hungurleikarnir með risaopnun um helgina AP Bíó The Hunger Games á toppnum. Bíólistinn 23.-25. mars 2012 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd The Hunger Games Svartur á Leik Friends With Kids Project X John Carter The Vow Journey 2: The Mysterious Island Act of Valor Un monstre à Paris (Skrímsli í París) Alvin og íkornarnir 3 Ný 1 Ný 3 2 4 6 5 10 7 1 4 1 2 3 3 5 2 7 15 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 EGILSHÖLL 16 16 L L 7 7 7 ÁLFABAKKA 10 7 7 7 7 12 12 12 VIP 16 16 FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA VANESSA HUDGENS, MICHAEL CAINE OG DWAYNE „THE ROCK“ JOHNSON TRYGGJA ÓSTÖÐVANDI BÍÓSKEMMTUN MÖGNUÐ ÞRÍVÍDD L L SELFOSS FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS. PLEASANT SURPRISE - C.B, JOBLO.COM  - New York Times  - Time Out New York  - Miami Herald  „Hin brjálæðislega fyndna Project X er málið. Hún fer alla leið er auk þess kærulaus og tilbúin í fjörið. Hverjum líkar ekki við það?“ Rolling Stone Geðveikt grín í geggjuðustu partýmynd allra tíma! FRIENDS WITH KIDS kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D FRIENDS WITH KIDS VIP kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D PROJECT X kl. 8 - 10:10 2D JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:40 3D JOHN CARTER kl. 10:10 2D THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D JOURNEY 2 kl. 5:50 2D A FEW BEST MEN kl. 8 2D HUGO Með texta kl. 5:30 2D STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN M/ ísl. Tali kl. 5:50 2D 12 12 7 7 KRINGLUNNI 16 FRIENDS WITH KIDS kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D PROJECT X kl. 6 - 8 - 10:10 2D JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:40 3D 7 12 16 AKUREYRI FRIENDS WITH KIDS kl. 8 - 10:10 2D PROJECT X kl. 8 2D JOHN CARTER kl. 10:10 3D FRIENDS WITH KIDS kl. 8 - 10:20 JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 - 10:20 SKRÍMSLI Í PARÍS m/ísl. tali kl. 6 KEFLAVÍK 12 12 16 THE HUNGER GAMES kl. 10:10 2D FRIENDS WITH KIDS kl. 8 - 10:20 2D PROJECT X kl. 8 2D JOHN CARTER kl. 5:30 3D SKRÍMSLI Í PARÍS m/ísl. tali kl. 6 2D UM LAND ALLT BRIDESMAIDS eru æðisleg í þessari frábæru gamanmynd „SCOTT EFFORTLESSLY STEALS THE SHOW“ – L.S. EW.com „SEXY, SOPHISTICATED AND SAVVY“ – P.H. Boxoffice Magazine „FRIENDS WITH KIDS IS THE BEST BREEDER MOVIE IN YEARS“ – D.E. NEW YORK MAGAZINE „KRISTEN WIIG IS SERIOUSLY GOOD“ – P.T. ROLLING STONE Kristen Wiig, Jon Hamm, Maya Rudolph og Chris O’Dwod úr FRIENDS WITH KIDS kl. 8 - 10:20 2D PROJECT X kl. 8 - 10:10 - 10:40 2D JOHN CARTER kl. 5:20 2D JOHN CARTER kl. 5:20 - 8 3D JOURNEY 2: THE MYSTERIOUS ISLAND kl. 5:40 3D THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl tali kl. 6 3D Nýttu svalirnar allt árið um kring idex.is - sími: 412 1700 - merkt framleiðsla Skjól Lumon svalagler veitir skjól gegn rigningu og roki. Mjög einfalt er að opna svalaglerið og renna því til og frá. Hljóð- og hitaeinangrun Svalaglerin veita hljóð- og hita- einangrun sem leiðir til minni hljóðmengunar innan íbúðar og lægri hitakostnaðar. Óbreytt útsýni Engir póstar eða rammar hindra útsýnið sem helst nánast óbreytt sem og ytra útlit hússins. Auðveld þrif Með því að opna svalaglerið er auðvelt að þrífa glerið að utan sem að innan. Stækkaðu fasteignina Með Lumon svalaglerjum má segja að þú stækkir fasteignina þína þar sem þú getur nýtt svalirnar allan ársins hring. hefur svalaglerin fyrir þig!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.