Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Kjarnorkuáætlun Írana og fyrirhug- að eldflaugaskot Norður-Kóreu- manna voru efst á baugi á ráðstefnu um kjarnorkuöryggi sem hófst í Seúl í gær. Forseti Kína, Hu Jintao, sagði í samtali við Barack Obama, Banda- ríkjaforseta, í gær að Kínverjar litu eldflaugaskotið alvarlegum augum en Obama sagði á sunnudag að Kína, helsti bandamaður Norður-Kóreu, gæti ekki lengur hunsað ítrekaðar ögrandi yfirlýsingar og aðgerðir. Þá sagði Obama í gær tímann vera að renna út varðandi viðræður um kjarnorkuáætlun Írana. Alls taka þjóðarleiðtogar 53 landa þátt í ráðstefnunni en markmiðið með henni er m.a. að komast að sam- komulagi um að takmarka notkun á auðguðu úrani, sem hægt er að nota til vopnagerðar. Hefur talsverður ár- angur náðst frá því að fyrsti fund- urinn af þessu tagi var haldinn 2010 en ýmis lönd hafa ýmist eytt eða los- að sig við birgðir sínar og þá hafa mörg lönd gripið til aðgerða til að tryggja að úranbirgðir sínar falli ekki í hendur hryðjuverkamanna. Talið er að um 1.600 tonn af auðg- uðu úrani séu til í heiminum og 500 tonn af plútóníum en Obama sagði í gær að einn hnefi af efninu dygði til að verða hundruðum þúsunda að bana. Hefur Alþjóðakjarnorkumála- stofnunin staðfest 20 tilfelli á síðustu tveimur áratugum þar sem auðguðu úrani eða plútóníum hefur verið stol- ið eða þess saknað. Samhliða ráðstefnunni tilkynntu þrír stærstu framleiðendur ísótópa sem notaðir eru í heilbrigðisþjónustu að þeir myndu smám saman hætta að notast við þá tegund úrans sem einnig er hægt að nota til vopnagerð- ar við framleiðslu sína. Ísótóparnir eru t.d. notaðir til að greina krabba- mein og aðra sjúkdóma en hætta hefur verið talin á að hryðjuverka- menn gætu komist yfir þau efni sem notuð eru til framleiðslunnar og nýtt sér þau til vopnagerðar. AP Kjarnorka Lee Myung-bak, forseti Suður-Kóreu, og Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, brosa fyrir blaðamenn. Leiðtogar ræddu Íran og Norður-Kóreu  53 þjóðarleiðtogar funda um kjarnorkuöryggi í Seúl Kjarnorkumál » Áætlað er að um 20 þúsund kjarnaoddar séu til í heiminum en þar af eigi Bandaríkjamenn um 8.500 og Rússar um 10.000. » Obama hyggst ræða fækkun kjarnavopna við Vladimir Pútín þegar þeir funda í maí. » Næsta ráðstefna um kjarn- orkuöryggi verður haldin í Hol- landi árið 2014. Kvenréttinda- frömuðurinn Gloria Steinem hefur lýst yfir stuðningi við Barack Obama í komandi forseta- kosningum og segir í nýju kosn- ingamyndbandi að það sem hafi áunnist í kvenréttindabaráttunni síðustu 50 ár verði að engu nái repúblikani kjöri. Undanfarin misseri hefur réttur kvenna til fóstureyðinga átt undir högg að sækja í Bandaríkjunum og í mörgum ríkjum hafa verið sett lög sem setja ákveðin skilyrði fyrir að- gerðinni, t.d. að kona gangist undir ómskoðun og hlusti á hjartslátt fóstursins áður en hún tekur ákvörðun. „Ef þú hefur hlustað á forsetaefni repúblikana í forkjörinu, þá veistu að hver einn og einasti þeirra myndi gera fóstureyðingar ólögleg- ar og margar tegundir getnaðar- varna útlægar,“ segir Steinem. „Hvort konur geta eða geta ekki ákveðið hvenær og hvort þær eign- ast börn er sá einstaki þáttur sem ræður mestu um hvort við erum heilbrigðar eða ekki, hvort við er- um menntaðar eða ekki, hverjar lífslíkur okkar eru og hvort við get- um verið virkir þátttakendur í þess- um heimi eða ekki,“ segir hún. BANDARÍKIN Repúblikanar ógn við réttindi kvenna Gloria Steinem Embætti ríkissaksóknara í Svíþjóð hefur gefið út ákæru á hendur átta einstaklingum sem grunaðir eru um stórfelld fíkniefnaviðskipti á ár- unum 2006-2010. Fólkið er talið tengjast fíkniefna- hring með starfsemi víða í Evrópu en flestar ákærurnar eru vegna fíkniefnafundar árið 2010, þegar lögregluyfirvöld gerðu 1,4 tonn af kókaíni frá Kólumbíu upptæk á seglbát undan eyjunni Martinique í Karíbahafinu. Lagt hefur verið hald á eignir fólksins í fimm löndum að andvirði milljarðs íslenskra króna. SVÍÞJÓÐ Grunur um stórfelld fíkniefnaviðskipti Stjórnvöld í Kína stefna að því að setja nýjar reglur á árinu til að tak- marka vatnsnotkun m.a. golfvalla og skíðasvæða í og umhverfis höf- uðborgina Peking. Vatnsskortur hefur plagað íbúa Peking undanfarin ár og hafa yfir- völd gripið til ýmissa umdeildra að- gerða til að ráða fram úr málum en með takmörkum árangri. Samkvæmt nýju reglunum verð- ur stórum vatnsnotendum, s.s. 75 golfvöllum borgarinnar, skammt- aður vatnskvóti og gjald innheimt af þeim fyrir alla umframnotkun. KÍNA Þurfa að greiða fyrir vatn umfram kvóta Í gær hófst málflutningur fyrir hæstarétti Bandaríkjanna um um- deilt heilbrigðisfrumvarp Baracks Obama Bandaríkjaforseta en niður- staða réttarins er talin munu hafa víðtæk áhrif bæði fyrir bandarískt samfélag og forsetakosningarnar í nóvember. Fjöldi fólk safnaðist sam- an fyrir utan dómshúsið, ýmist til að sýna stuðning sinn eða mótmæla, og höfðu einhverjir beðið í röðum frá föstudegi til að verða vitni að fyrir- tökunni í þéttsetnum réttarsalnum. Stuðningsmenn frumvarpsins, sem varð að lögum í mars 2010, fagna því að það tryggir 32 milljónum ótryggðra Bandaríkjamanna sjúkra- tryggingar en andstæðingar þess, m.a. þau 26 ríki sem sækja málið fyr- ir hæstarétti, segja það brjóta gegn borgaralegum réttindum fólks, þar sem það skyldar það til að kaupa sér sjúkratryggingu. Mikið undir fyrir Obama Í frumvarpinu, The Patient Pro- tection and Affordable Care Act, eru mörg ákvæði sem munu bæta rétt tryggingakaupa en tryggingafélög- um verður m.a. óheimilt að neita að tryggja fólk með fyrirliggjandi eða ólæknandi sjúkdóma. Þá verður þeim skylt að greiða fyrir getnaðar- varnir en því hafa ýmsar trúarhreyf- ingar mótmælt harðlega. Lögmenn ríkisstjórnarinnar og ríkjanna 26 munu fá sex klukku- stundir til að flytja mál sitt en munn- legur málflutningur fyrir réttinum varir yfirleitt í klukkustund og mun þetta vera í fyrsta sinn í 45 ár sem aðilar fá svo langan tíma til að setja fram rök sín. Verði það niðurstaða réttarins að lögin haldi verður það mikill sigur fyrir Obama, enda hafa umbætur í heilbrigðismálum verið eitt af hans helstu baráttumálum. Falli úrskurð- urinn á hinn veginn, gæti það reynst honum dýrt í nóvember. Niðurstaðan gæti reynst afdrifarík  Hæstiréttur fjallar um „Obamacare“ AFP Lög Niðurstöðunnar er vænst í júní. Talsmenn Afríkusambandsins, Evr- ópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna sögðu í gær sigur Macky Sall í forsetakosningunum í Senegal á sunnudag sigur lýðræðisins og for- dæmi fyrir önnur Afríkuríki. Sall bar sigurorð af sitjandi for- seta, Abdoulaye Wade, með miklum meirihluta atkvæða en framboð Wa- des var mjög umdeilt þar sem hann hefur þegar setið tvö kjörtímabil, sem er hámarksseta í embættinu skv. núgildandi stjórnarskrá. Óttast hafði verið að Wade myndi gera tilraun til að halda í embættið þrátt fyrir að hafa lotið í lægra haldi en eftir að úrslitin urðu ljós, óskaði hann Sall til hamingju með sigurinn. Forseti Frakk- lands, Nicolas Sarkozy, sagði niðurstöðuna „afar góðar fréttir fyrir Afríku almennt og Senegal sérstaklega“. Úrslitum senegölsku for- setakosninganna fagnað Macky Sall SJÓNARHÓLL Þar sem gæðagleraugu kosta minna Reykjavíkurvegur 22 | S. 565 5970 | sjonarholl.is Hágæðagler á góðu verði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.