Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ÁbendingarStefaníuÓsk- arsdóttur, lektors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um stjórnarskrármálið, sem birtar voru í Morgunblaðinu í gær, ættu að duga til þess að Jó- hanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sjái að sér og hætti við þjóðaratkvæðagreiðsluna í sumar. Stefanía bendir á fáránleik- ann við þá aðferð sem bjóða á almenningi upp á við endur- skoðun stjórnarskrárinnar. Minnihluti þingmanna, nánar tiltekið þrjátíu þingmenn, ákváðu skipun stjórnlagaráðs þvert á dóm Hæstaréttar. Þetta stjórnlagaráð skilar svo ónot- hæfu frumvarpi að nýrri stjórn- arskrá til þingsins og í stað þess að þingið lagfæri stjórn- arskrárdrögin, skrifi þau upp á nýtt, eða – sem best væri – hætti við þessa vitleysu, þá er ákveðið að bera ónothæfu drög- in undir þjóðaratkvæði. Þeir sem ráða ferðinni telja með öðrum orðum að þeir hafi ekki umboð til að endurskoða tillögur nefndar, svokallaðs stjórnlagaráðs, sem þeir hafa sjálfir skipað. Þess í stað á að setja almenning í þá stöðu að greiða atkvæði um drög sem all- ir vita að geta aldrei orðið að stjórnarskrá. Spurningin sem fólk á að svara í atkvæðagreiðsl- unni er sem sagt platspurning, sett fram í þeim eina til- gangi að Jóhanna og félagar geti var- ist falli á Alþingi. Stefanía bendir á að sam- kvæmt stjórnarskránni fer Al- þingi með það vald að setja lög og um samþykkt stjórnarskrár eða stjórnarskrárbreytinga gilda ákveðnar reglur sem mælt er fyrir um í stjórnarskránni sjálfri. Ekki er gert ráð fyrir að þingið biðji um leyfi til að setja lög en kosningar fara fram á milli til að hægt sé að sam- þykkja breytingar á stjórn- arskrá. Stefanía bendir á að verið sé að setja málið í ein- hvern búning lýðræðis, en þetta sé ekki raunverulegt lýðræði því ekki sé verið að biðja fólk að samþykkja eða synja tillögum stjórnlagaráðsins, aðeins verið að biðja um leyfi til að Alþingi vinni þær betur og leggi svo fram frumvarp. „Maður spyr af hverju vinna þeir ekki frumvarp og leggja svo fyrir okkur,“ segir Stefanía. Ástæðan er vitaskuld sú sem að framan er nefnd. Vilji Jó- hönnu og félaga stendur ekki sérstaklega til þess að sam- þykkja nýja stjórnarskrá, enda gera allir sér grein fyrir því að þess gerist engin þörf. Það eina sem Jóhanna vill fá út úr málinu er að þurfa ekki að mæta kjós- endum fyrr en að ári liðnu. Það er lýðskrum en ekki lýðræði að láta kjósa um ekki neitt} Gervilýðræði Ekki hefur ennfengist hald- bær skýring á því hvers vegna Ríkis- útvarpið kastaði sínu besta heima- lagaða sjónvarps- efni, Spaugstofunni, yfir til samkeppnisaðilanna. Sá þáttur var mildandi þáttur fyrir þá mörgu sem ósáttir eru neyddir til að vera áskrifendur að þess- um hlutdræga miðli. Sem betur fer er ekki allt annað efni mislukkað og margir gera gott innlent dagskrárefni fyrir stofnunina, og það iðulega án þess að kosta miklu til. Popp- punktur og Landinn hafa þann- ig verið góð dæmi um slíka við- leitni. Það var því einkar dapurlegt að þurfa að horfa upp á að stjórnendur RÚV skuli hafa látið eftir sér að troða grunnhyggnislegum og leiði- gjörnum áróðri um Evrópusam- bandið inn í Landann. Augljóst var af málatilbúnaðinum að þessir erindrekar mátu það svo að ekki síst landsbyggðarfólk væri áhorfendur þessa dag- skrárþáttar og rétt væri því að reyna að veifa seðlabúntum ESB framan í það fólk. Áróðurstilburð- irnir voru á lágu plani og því allt að því meiðandi fyrir þá áhorfendur sem hafa notið þessa þáttar hingað til. Ísland mun, eins og öllum er kunnugt nema hugsanlega áróðursdeildinni á RÚV, sam- anlagt greiða meira til ESB en það mun fá þaðan, ef tekst að svíkja landið inn í sambandið. Það verður því aldrei meira fé aflögu til byggðastuðnings eftir slíka inngöngu en fyrir hana, hversu afkáralega og áróð- urskennt sem dæmið er sett upp. Og það er mikið umhugsunar- efni að þau öfl á Íslandi, sem helst hanga enn á aðlögun að ESB, þvert gegn þjóðarvilja, eru einmitt hin sömu sem jafn- an hafa lagst harðast gegn stuðningi við hinar dreifðu byggðir landsins. Það gerir áróðurinn í Landanum enn lág- kúrulegri. Fróðlegt verður að sjá hvernig Óðinn Jónson, hæst- ráðandi RÚV, ákveður að fella ESB-áróður inn í Popppunkt. Það var dapurleg ákvörðun hjá RÚV að lækka risið á Landanum} Landinn skal láta áróðurinn í sig Þ að urðu miklar umræður á kaffistof- um landsins um kynlíf unglinga þegar velferðarráðherra lagði fram nýtt frumvarp fyrr í mán- uðinum. Ef frumvarpið verður að lögum fá ljósmæður og hjúkrunarfræðingar heimild til að ávísa getnaðarvarnarpillunni til kvenna. Tilgangurinn með frumvarpinu er að auka aðgengið að pillunni þar sem hún er rétta úrræðið. Með því á ekki að verða álíka auðvelt að fá pilluna og að kaupa brjóstsykur í búð en umræðan um frumvarpið varð samt á þá leið og fólk fór að hneykslast á því hvað þessi börn byrja að stunda kynlíf ung í dag. Það er samt staðreynd að meðalaldur þeirra sem byrja að stunda kynlíf hefur aldrei verið hærri en nú, eða 15,6 ár, og fóstureyðingum og þungunum hjá konum undir tvítugu hefur farið fækkandi. Frumvarpinu er samt m.a. ætlað að reyna að koma í veg fyrir ótímabærar þunganir unglingsstúlkna og fækka fóst- ureyðingum hjá þeim. Pillan ætti vissulega að koma í veg fyrir þau vandamál en eitt sem hún lagar ekki er eðlilegt viðhorf unglinganna til kynlífs. Pillan beinist eingöngu að stúlkunum, að þær verji sig fyrir þungun, en það þarf líka að vekja drengina til umhugsunar um þeirra ábyrgð í kyn- lífsathöfninni. Þessi umræða um aukna notkun pillunnar hjá unglingsstúlkum gæti jafnvel gefið drengjum þá skökku mynd af málum að það séu bara allar stelpur á pill- unni og þeir þurfi ekkert lengur að hugsa um sína ábyrgð. „Ég hélt hún væri á pillunni,“ er svo svarið þegar þeir fá fréttirnar um að þeir séu að verða feður. Það eru ekki aðeins börnin sem koma undir með óábyrgri kynhegðun. Pillan ver ekki gegn hinu sem getur fylgt með í kaupbæti, kyn- sjúkdómunum. Að eignast barn er nefnilega ekki það versta sem getur komið fyrir ungt fólk. Aldrei hafa fleiri greinst með HIV hér á landi en árið 2010, eða 24, og þeir voru bara einum færri í fyrra. HIV er ólæknandi sjúk- dómur sem getur leitt til dauða og verulega skertra lífsgæða ef ekki er brugðist við með viðeigandi lyfjagjöf sem stendur yfir alla ævi. Hátt í 2000 klamydíutilfelli greinast hér ár hvert. Klamydía getur leitt til ófrjósemi og þess að þetta unga fólk getur ekki eignast börn síðar á lífsleiðinni þegar löngunin til þess vakn- ar. Unglingar hafa alltaf verið þess eðlis að halda að það komi ekkert fyrir þá, þeir keyra hratt, eru hjálmlausir á hjóli og stunda kynlíf án varnar því þeir hugsa: „Það kemur ekkert fyrir mig …“ eða þangað til það kemur eitthvað fyrir þá. Smokkurinn er þeim kostum bú- inn að vera með tvíþætta vörn, gegn getnaði og kyn- sjúkdómum. Því verður að hamra inn í hausinn á fólki að nota smokkinn og það verður að gera smokkinn aðgengi- legan og ódýran fyrir unga fólkið. Það er ekki eingöngu skólanna að fræða unglingana um ábyrga kynhegðun, for- eldrar verða líka að sýna þar ábyrgð. Þeir verða að tala við börnin sín, ræða mikilvægi smokkanotkunar og kaupa handa þeim pakka ef þeir telja þess þörf. Ingveldur Geirsdóttir Pistill Öryggið á oddinn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Tannheilsa íslenskra barnaer í sjötta neðsta sæti afOECD-löndunum. Rúm-lega helmingur 6 ára barna á Íslandi er með allar tennur heilar á meðan 75% jafnaldra þeirra í Dan- mörku er með allar tennur heilar. Hjá 12 ára börnum hér eru 34% með allar fullorð- instennurnar heilar en hlut- fallið í Danmörku er 68%. Ástæðan fyrir þessum mikla muni liggur meðal annars í ójöfnu aðgengi að tannlæknisþjón- ustu hér á landi og vöntun á heild- rænu skipulagi þjónustunnar, en kostnaður hefur hér mikið vægi, segir Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir og verkefnisstjóri hjá embætti land- læknis og heilsugæslu höfuðborg- arsvæðis. „Við erum því miður ekki leng- ur með virkt norrænt velferðarkerfi í tannheilbrigðismálum eins og er annars staðar á Norðurlöndum. Þar er tannheilbrigðisþjónusta dekkuð af almannatryggingakerfinu og lögð mikil áhersla á forvarnir, aðgengið að þjónustunni er gott og allir eru kallaðir inn í skoðun, eftirlit og með- ferð eftir þörfum. Við erum ekki með neitt slíkt kerfi, hér er einkarekin tannlæknisþjónusta og foreldrar bera mikla ábyrgð á tannheilbrigði eigin barna auk þess að greiða tann- læknismeðferð að stórum hluta úr eigin vasa.“ Endurgreiðsluhlutfall lækkar Endurgreiðsluhlutfall Sjúkra- trygginga Íslands af kostnaði við tannlæknaþjónustu barna hefur dregist saman, er nú ekki nema 35%- 45% en gjaldskráin sem Sjúkra- tryggingar styðjast við er orðin nokkurra ára gömul og í engum takti við það sem er í gangi í dag. Þrýstingur hefur farið vaxandi undanfarin ár á að hækka endur- greiðsluhlutfallið eða réttara sagt að hækka styrk til foreldra vegna tann- viðgerða barna. „Meðan kostnaður- inn við að fara með barn til tann- læknis er svona mikill veigrar ákveðinn hópur sér við að leita eftir tannlæknisþjónustu. Við eigum að hafa möguleika á að láta laga skemmda tönn og það á ekki að kosta okkur hlutfallslega meira en ef við lendum í öðru áfalli með líkam- ann,“ segir Hólmfríður. Sjúkratryggingar og Tann- læknafélag Íslands voru með samn- ing sín á milli og buðu 3, 6 og 12 ára börnum í ókeypis forvarnarskoðun hjá tannlæknum einu sinni á ári. Hólmfríður segir þann samning hafa verið í gildi milli 2007 og 2010 og gengið ágætlega en svo hafi sam- starfið siglt í strand. Örfáir tann- læknar vinni þó eftir samningnum enn í dag. Samningurinn er í endur- skoðun hjá velferðarráðuneytinu. Eitt af því sem Hólmfríður vill leggja aukna áherslu á er forvarn- arstarfið og efla enn frekar samstarf heilsugæslu, leik- og grunnskóla. „Í Skotlandi bursta þeir tennur barna í leikskólum og hafa síðustu fjögur ár- in náð niður tíðni tannskemmda þar. Eitt af því sem við höfum verið að skoða er einmitt þessi leið og fram- kvæmd er hafin í nokkrum leik- skólum hér á landi og lofar góðu. Við höfum mikinn áhuga á að koma tann- burstun af stað alls staðar á landinu. Börn eru í dagvistun átta tíma á dag og það er einn liður í almennu hrein- læti að hugsa um að hreinsa tenn- urnar um miðjan daginn. Við erum að vinna þetta með foreldrum en ekki fyrir þá og þetta er ein leið til að fækka tannskemmdum hjá íslensk- um börnum,“ segir Hólmfríður. Tennur barna verði burstaðar í leikskólum Hjá tannlækni Tannheilsa barna á Íslandi er slök m.v. önnur Norðurlönd. Hólmfríður Guðmundsdóttir Barnaheill-Save the Children á Íslandi stendur fyrir málþingi á Grand hóteli í Reykjavík kl. 9 í fyrramálið. Yfirskrift málþings- ins er Heilbrigðar tennur: Mann- réttindi eða forréttindi? Þar munu tala Guðbjartur Hann- esson velferðarráðherra, Sig- urður Benediktsson, formaður Félags tannlækna, Hólmfríður Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri hjá embætti landlæknis, og Inga B. Árnadóttir, prófessor við tannlæknadeild HÍ. Skv. barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna, sem Ísland hefur staðfest, eiga börn rétt á að njóta besta mögulegs heilsu- fars sem hægt er að tryggja, s.s. með læknisaðstoð og heilbrigð- isþjónustu. Barnaheill skorar á alla hlutaðeigendur að samein- ast um að finna leið út úr því öngstræti sem tannheilsa ís- lenskra barna virðist komin í og stendur fyrir undirskriftasöfn- un á www.barnaheill.is. Mannrétt- indi eða forréttindi? MÁLÞING BARNAHEILLAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.