Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 32
Ég held svei mér þá að éghafi sjaldan upplifað jafnfjölbreytta flóru tónlistará einu Músíktil- raunakvöldi og á sunnudagskvöldinu, er þriðja undanúrslitakvöldið var haldið. Allur skalinn, allt heila gall- eríið var þarna uppi á sviði, allt frá harðasta skriðdrekarokki til mýkstu tilfinningatóna. Það var hljóð- gervlapoppsveitin The Young and the Carefree sem hóf leik. Greinilegt að dúettinn Hurts var þarna til grundvallar en fleira var í blöndunni, Depeche Mode og Human League og hátimbrað drama að hætti Simple Minds og fleiri erki-níunda áratugar sveita. Skemmst frá að segja stóð sveitin sína plikt með miklum sóma. Söngvarinn stóð sig frábærlega, röddin rám og tilfinningaþrungin og lögin voru haglega samsett með góðri stígandi þó þau hefðu reyndar vel þolað ögn meira ris og aðeins fleiri krúsídúllur. Ásjón lék nokk skringilegt popp- rokk, yfir því ókennileg tíunda ára- tugs ára og hljómsveitin Skunk An- ansie poppaði upp í hausinn óforvarandis. Ýmsu var ábótavant á þessum bænum, lagasmíðar óspenn- andi, þéttleika vantaði og söngkonan, þrátt fyrir sæmilegasta hressleika, náði ekki að gæða framvinduna nægi- legu lífi. Snjólugt hefur tekið þátt í Tilraun- unum áður og var við sama heygarðs- hornið. Dramatískt popp í anda Coldplay og Diktu og var síðara lagið meira að segja óður til hinnar fyrst- nefndu – en hljómaði svo nákvæm- lega eins og lag með þeirri síð- arnefndu! Það er orðið tímabært að Snjólugtar-menn fari að leita upp eigin stíl í stað þess að herma hann kórrétt eftir öðrum. Dauðarokkssveitin Aeterna kom þá inn eins og svalur norðanþeyr. „Raddbandabeitirinn“ Örvar Ingi bauð af sér góðan þokka og náði saln- um á sitt band áður en nóta var sleg- inn. Tónlistin, hrátt dauðarokk, gekk vel upp og rann áfram örugglega eins og skriðdreki. Áhersla var á grúvið fremur en tæknileikfimina sem spillir oft fyrir sveitum af þessum toga. Ae- terna hafði þetta auka „eitthvað“ sem skilur svo oft á milli, tók þetta á út- geisluninni og auðheyranlegum áhuganum. DJ Nietzsche var um margt nokk- uð frumleg sveit. Fyrsta lagið var gætt rökkurbundnum Morricone- áhrifum, andrúmsloftið afslappað en um leið skuggalegt. Meðlimir, sem voru tveir, skimuðu um á ókönnuðu svæði og því framtaki ber að fagna. Síðara lagið var í senn ögrandi og Atary Tónbræðurnir sungu eins og þeir ættu lífið að leysa. DJ Nietzsche For óhikað inn á ókunnar, hættulegar lendur. End of Days Bílskúrsrokk sem kom alla leiðina frá Hveragerði. In the Company of Men Algerlega kolvitlausir menn! Ljósmyndir/Björg Sveinsdóttir Treisí Bieberinn er mættur á Músó! Austurbær Músíktilraunir (3. undanúrslitakvöld) Þriðja undanúrslitakvöld Músíktilrauna 2012, sunnudaginn 25. mars. ARNAR EGGERT THORODDSEN TÓNLIST Ásjón Undir áhrifum frá rokki sem gerði sig best á 10. áratugnum. Allt heila galleríið 32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Toppmyndin á Íslandi í dag 44.000 manns DV HHHH FBL HHHH FT HHHH MBL HHHH PRESSAN.IS HHHH KVIKMYNDIR.IS HHHH HUNGER GAMES Sýnd kl. 5:20 - 7 - 10 PROJECT X Sýnd kl. 8 - 10 SVARTUR Á LEIK Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15 STERK BYRJUN, MANN ÞYRSTIR Í MEIRA! T.V. - Vikan/Séð og Heyrt HHHH HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐ -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR 800 kr. 800 kr. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ MBL DVPRESSAN.IS KVIKMYNDIR.IS STERK BYRJUN, MANN ÞYRSTIR Í MEIRA! T.V. - VIKAN/SÉÐ OG HEYRT ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ 48.000 MANNS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% HUNGER GAMES KL. 4 - 5 - 8 - 10.20 - 11 12 HUNGER GAMES LÚXUS KL. 5 - 8 - 11 12 ACT OF VALOR KL. 8 - 10.30 16 THE VOW KL. 5.30 - 8 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 TÖFRATENINGURINN KL. 3.30 L ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.30 L BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS HUNGER GAMES KL. 6 - 9 - 10.30 12 ACT OF VALOR KL. 8 - 10.30 16 THE VOW KL. 5.40 - 8 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 LISTAMAÐURINN KL. 5.45 L HUNGER GAMES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 ACT OF VALOR KL. 10 16 SVARTUR Á LEIK KL. 8 16 THE VOW KL. 6 L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.