Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Viðhorf almennings virðist oft á tíðum einkennast af fyrir- litningu í garð emb- ættismanna þjóðar- innar, sem þeir hafa áunnið sér í gegnum árin með embættis- verkum sínum. Stjórnleysi ásamt vafasamri og ómark- vissri fjármálastjórn hefur viðgengist með óhóflegum lántökum árum saman, sem síðan var varið af stjórnvöldum, um góð- æri væri að ræða. Fjórflokknum má helst líkja við eiginhagsmunaklíku ásamt ger- spilltum flokksforingjum sem virð- ast þjást af athyglissýki. Stjórn- völdum var ljóst hvert stefndi síðustu misseri og vikurnar fyrir fall bankanna þar sem útvaldir gátu leyst út fjármuni upp á tugi milljarða ásamt vinum, kunn- ingjum og vandamönnum til að koma fjármunum sínum í skjól. Það getur varla talist eðlilegt að einn ráðuneytisstjóri eigi síðan að axla ábyrgð vegna innherjasvika. Má helst álykta að landinu sé og hafi verið stýrt af siðlitlum og jafnvel takmörkuðum embættis- mönnum sem hafa lítið sem ekkert viðskiptavit, sbr. Icesave-samning- ana sem ítrekað hefur verið reynt að þröngva upp á þjóðina. Formaður Sýslumannafélags Ís- lands er ósáttur við gagnrýni Samtaka hagsmunafélags heimil- anna. Honum finnst ekki rétt að samtökin ásaki heila stétt lög- lærðra sýslumanna um lögbrot með skrifum sínum sem eiga að hafa einkennst af upphrópunum og órökstuddum fullyrðingum og séu ekki samtökunum sæmandi. Ekki væri óeðlilegt að formaður Sýslumannafélagsins myndi líta í eigin barm og velta fyrir sér hvort ekki væri um að ræða dómgreindarbrest hjá sumum sýslumannsembættum sem hann er í forsvari fyrir, varðandi aðfarir að skuldugum heimilum og fyrir- tækjum. Ítrekað hefur sýnt sig að vafa- samar aðgerðir hafa verið í gangi í útburðarmálum t.d. sem hafa snúið að kolólöglegum mynt- körfulánum þar sem bankar og aðrar fjár- málastofnanir hafa farið offari, dómar hafa fallið ítrekað um ólöglegan gjörning á innheimtu. Eðlilegast væri að sumir emb- ættismenn færu að skilja að þótt þeir séu skreyttir með borðum, medalíum og gylltum hnöppum, stundum óverðskuldað, þá eru þeir ekki hafnir yfir góða stjórnsýslu. Það virðist einkenna forsvars- menn margra fyrirtækja að skammta sér og sínum ofurlaun ásamt ómældum bitlingum og arð- greiðslum hvort sem rekstur stendur undir því eða ekki. Lítill hvati er til að lækka laun yfir- stjórnar; þó svo að um milljóna taprekstur sé að ræða á þjóðin að borga og enginn axlar ábyrgð. Ekki getur talist eðlilegt að auðg- ast á kostnað samborgara sinna, sem hefur sýnt sig með verkum sem endurspeglast víðs vegar í samfélaginu. Þetta fyrirkomulag virðist vera orðið frekar regla en undantekning þar sem gömlu góðu gildin skipta engu lengur, ekki einu sinni þótt um opinber fyrir- tæki sé að ræða. N1 sölsaði markvisst undir sig ný fyrirtæki og virtist aldrei fá nóg og getur tæplega verið til eft- irbreytni. Framkvæmdastjórinn kemur síðan ítrekað fram í fjöl- miðlum með patentlausnir á öllu, þó svo félagið hafi þurft milljarða afskriftir og verið í fararbroddi með eldsneytishækkanir í gegnum árin. Væntanlega lítur hann svo á, eins og svo margir aðrir, að það sé öllu öðru að kenna um ófarirnar en græðgistefnu félagsins. Óábyrg og galin fjármálastefna hefur við- gengist víðs vegar í atvinnulífinu undanfarin ár, sem þjóðin mun súpa seyðið af um ókomin ár, hvort sem embættismenn verða í afneitun eða ekki. Fjármálalífið einkennist af óvandaðri stjórnsýslu, þar sem stjórnvöldum og öðrum embætt- ismönnum er fyrirmunað að stoppa upp í hriplekt regluverk. Siðblindan er alger þar sem ítrek- að er gert út á að afskrifa skuldir sínar með markvissu og vafasömu kennitöluflakki. Þjóðarskuldirnar aukast jafnt og þétt og óráðlegt er að útiloka annað hrun miðað við ábyrgðar- og stjórnleysið sem ein- kennir samfélagið. Það þarf engan reikningshaus til að sjá að þjóðin stendur ekki undir 33 milljarða vaxtabyrði vegna gjaldeyrisvara- forða, ásamt tuga milljarða vöxt- um af ríkisskuldum. Líklega verð- ur innherjaupplýsingum aftur komið til útvalinna til að bjarga fjármunum sínum þegar næsta áfall dynur yfir. Þá tekur hið nýja Ísland við sem svo margir eru búnir að bíða eftir, en verður bara í annarri mynd en vænst var, þá fær frumskógarlögmálið að njóta sín ef að líkum lætur. Elítan mætir í Hörpuna sína öðru hvoru sem er niðurgreidd af löndunum í kringum okkur, með lánum sem þau fengu síðan ekki greidd. Eftir erfiði vinnuvikunnar er gott að ylja sér við ljúfa söng- tóna sem einnig eru niðurgreiddir af skattborgurum landsins. Ekki spillir fyrir að ná að berja nýjustu freigátu landsins augum gegnum ljósum prýddan glerhjúpinn, þar sem hún liggur stífbónuð við hafn- argarðinn og norðurljósin endur- speglast á ógnvekjandi fallbyssu- kjaftinum sem fannst á gömlum ryðkláf, en er talinn brúklegur ennþá. Freigátan er öllum stund- um í viðbragðsstöðu ásamt vösk- um sjóliðum þegar kallið kemur, til að halda á miðin og verja fisk- auðlindirnar fyrir ribböldum sem gera sér ekki grein fyrir að LÍÚ telur þau vera stjórnarskrárvarinn rétt sinn. Eftir Vilhelm Jónsson Vilhelm Jónsson » Þjóðarskuldirnar aukast jafnt og þétt og óráðlegt er að útiloka annað hrun miðað við ábyrgðar- og stjórnleysið sem einkennir samfélagið. Höfundur er fjárfestir og fyrrverandi atvinnurekandi. Guð blessi þjóðina Við hjónin styðjum dr. Sigurð Árna Þórðarson til emb- ættis biskups Íslands. Við kunnum vel við notkun hug- taksins mannlífstorg um kirkjuna, þar sem allir eiga að fá rými fyrir hugsanir sínar og skoðanir. Með því hug- taki er fjölbreytileika mannlífsins líka fagnað, á því torgi sitja allir við sama borð sem jafningjar. Kirkja sem hlúir að börnum, fjölskyldum, einstaklingum, eldri borgurum, bágstöddum og sínum eigin þjónum og starfsfólki er kirkja sem er trú hlutverki sínu. Við treystum Sigurði Árna til að leiða áfram mannlífstorgið til lífsins og gleð- innar og leggja því til margþætta reynslu og andlegt fóð- ur. Meira: mbl.is/greinar Dr. Sigurður Árni og biskupsþjónustan Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur í Laufási, Sunna Dóra Möller, æskulýðsfulltrúi í Akureyrarkirkju. Biskupskosningar Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Fjarðargata 13-15 ~ 220 Hafnarfjörður ~ Sími 565 5666 fjordur.is Vinaleg verslunarmiðstöð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.