Morgunblaðið - 27.03.2012, Blaðsíða 11
Vegurinn Krzysztof (fyrir miðju) ásamt göngufélögum rétt áður en þau komu að Portúgölsku landamærunum.
hinum ólíkustu tungumálum.“
Þegar hann kom á áfangastað, í
Santiago De Compostela, sem er
sagður þriðji heilagasti staður í
heimi fyrir kaþólikka á eftir Róm og
Jerúsalem, þá kom honum á óvart
hversu mikil leitun var að kirkju.
„En það sem kom mér mest á óvart
var íslenskt skilti sem varð á vegi
mínum í einu af gistihúsunum sem
ég gisti í á leiðinni. Þarna voru ótal
skilti með sömu setningunni úr
biblíunni á ólíkum tungumálum.
Mér til mikillar furðu var þessi setn-
ing á íslensku á einu skiltinu. Á því
stóð: „Ég hef sagt englum mínum að
gæta þín á veginum.“ Þessa setn-
ingu var ekki að finna þarna á
pólsku, samt eru Pólverjar mjög
katólskir en ekki Íslendingar og
þetta er jú pílagrímsganga. Mér
fannst þetta stórfurðulegt,“
segir Krzysztof og bætir við að
þó gangan hafi reynt heilmikið
á líkamlega, þá hafi hún verið
mikil andleg upplifun. „Margir
ákveða að ganga þennan veg
þegar þeir eru á vegamótum í
lífinu og svo var einnig um mig.
Þessi ganga hafði mikil áhrif á
mig og breytti mér, sem varð
meðal annars til þess að ári
síðar flutti ég til Íslands og
hef búið hér síðan.“
Fimm árum síðar, eða árið 2010
gekk Krzysztof aftur Jakobsveginn,
en þá lagði hann upp frá Sevilla. Sú
leið er kölluð Silfurvegurinn eða Via
Della Plata. „Endastöðin er sú
sama, Santiago De Compostela, en
þetta er eldri og erfiðari leið og
miklu fáfarnari. Hún er 200 kíló-
metrum lengri en fyrri leiðin og ég
hefði aldrei trúað því hvað það mun-
ar miklu að ganga 800 kílómetra eða
1000 kílómetra, þetta var miklu erf-
iðari ganga en sú fyrri. Ég var 42
daga á leiðinni. En ég vildi ögra mér
enn frekar.“
Kraftaverkavatnsbrúsi á ög-
urstund við vegkantinn
„Ferðin hófst í Andalúsíu sem
er frábært svæði að ganga um, en ég
var reyndar mjög þjakaður vegna
hitans því það voru yfir þrjátíu gráð-
ur, stundum nálægt fjörutíu gráð-
um. Ég drakk 12 lítra af vatni einn
daginn og það jók á erfiðið að þurfa
að bera mikið vatn, en það var mjög
langt á milli staða þar sem hægt var
að fá vatn. Eitt sinn þegar ég var
orðinn mjög þurr vegna vatnsskorts
fann ég vatnsbrúsa á veginum ein-
mitt þegar ég var að bugast. Vissu-
lega var vatnið í honum heitt, en það
svalaði mér samt. Og mér varð
hugsað til þess að sagt hefur verið
að þessi leið sé kraftaverkaleið.“
Einn á göngu í svarta myrkri
og snákahljóðin allt í kring
Hann segir að á Silfurveginum
sé náttúran villtari en á fyrri leið-
inni. „Ég þurfti til dæmis oft að
ganga í gegnum stórar hjarðir nauta
sem voru á beit í sveitunum. Þetta
var mikil lífsreynsla fyrir mig, mér
stóð ekki á sama að vera innan um
þessar stóru og sterku skepnur. En
þessar tvær leiðir eru ólíkar á marg-
an annan hátt. Í þeirri fyrri var ég
alltaf að hitta fólk en í þeirri seinni
gekk ég mestallan tímann einn.
Stundum var ég einn á göngu í kol-
svarta myrkri þar sem sá ekki
handaskil og ég heyrði hin ýmsu
hljóð sem mér var ekki vel við, til
dæmis frá snákunum sem fara á stjá
eftir að dimmir. Ég reyndi líka að
sofa undir berum himni einu sinni
en þá kom kýr að ónáða mig og ein-
hvers konar risastór froskur heim-
sótti mig líka.“
Ætlar að ganga hringinn um
Ísland og Vestfirði
Hann segir þessa miklu einvera
hafa reynt mikið á. „Meira að segja
Spánverjum finnst hálfgerð klikkun
að ganga Silfurveginn. Og ég verð
að játa að þegar ég var um það bil
hálfnaður hafði ég efasemdir um að
ég ætti að halda áfram. En ég
þrjóskaðist við og sé ekki eftir því.
Þetta er ekki síður ganga inn á við,
einhverskonar afturhvarf til upp-
runans. Maður verður á einhvern
hátt pílagrímur í gegnum alla þessa
þreytu, sársauka, hita, rigningu,
kulda, einveru og harðneskjuna sem
pílagrímarnir upplifðu á sínum tíma.
Báðar þessar göngur breyttu mér,
þær höfðu mikil áhrif á mig. Ég
þroskaðist andlega þó að ég hafi
ekki áttað mig á því fyrr en eftir á,“
segir Krzysztof og bætir við að til að
komast alla þessa löngu leið þá sé
mjög áríðandi að fara ekki of hratt.
„Því þá geta komið álagsmeiðsli og
ef það gerist þá er ekki hægt að
ljúka ævintýrinu sem fólk er
kannski búið að láta sig dreyma um í
mörg ár.“ Og hann ætlar að halda
áfram að takast á við langar göngur,
einn góðan veðurdag ætlar hann að
ganga hringinn um Ísland og þar
innifalið ætlar hann að hafa Vest-
firðina.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012
live.is
Lífeyrissjóður verzlunarmanna | Kringlunni 7, 103 Reykjavík | Sími 580 4000 | skrifstofa@live.is
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
verður haldinn í dag, þriðjudaginn 27. mars
kl. 18 á Grand Hótel Reykjavík.
DAGSKRÁ FUNDARINS:
» Venjuleg ársfundarstörf
» Önnur mál
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á
ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 10. febrúar 2012
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ÍMY
N
D
U
N
A
R
A
F
L
/
LV
Ársfundur 2012
Frá því í haust hafa margir hlauparar
komið saman á hverjum laugardegi
klukkan ellefu við litlu brúna yfir Ell-
iðaánum rétt við Árbæjarlaug, til að
taka þátt í hlaupi sem gengur undir
nafninu parkrun. Parkrun er almenn-
ingshlaup sem er hlaupið út um víða
veröld og er þetta í fyrsta sinn sem
boðið hefur verið upp á það hér á Ís-
landi. Þetta er 5 kílómetra hlaup og
boðið er upp á tímatöku fyrir þá sem
vilja bæta tímann sinn.
Hlaup þetta hentar fólki á öllum
aldri í allskonar formi, lengra komn-
um og styttra komnum. Ekkert kost-
ar að taka þátt og aðeins þarf að
skrá sig þegar hlaupið er í fyrsta
sinn.
Allt er mjög frjálslegt í kringum
þennan félagsskap, fólk má vera með
kerru og þeir sem ekki hlaupa geta
gengið og einnig má vera með hunda
(ef passað er upp á að þeir verði alls
ekki fyrir hinum hlaupurunum).
Borgin hefur stutt vel við parkrun
og er búin að merkja brautina mjög
vel. Á þessari leið er mikil náttúru-
fegurð bæði sumar og vetur. Leiðin
er svolítið krefjandi því á henni er
góð brekka. Parkrun er upplagt hlaup
fyrir til dæmis Árbæinga á öllum
aldri sem vilja hlaupa, skokka eða
ganga rösklega í sínu nærumhverfi,
allt eftir hentugleika hvers og eins.
Og það er gaman að vera hluti af
hlaupahópnum sem fer gjarnan í
sund í Árbæjarlaug eftir hlaup og
spjallar saman í heitu pottunum.
Hægt er að kynna sér parkrun bet-
ur á heimasíðunni www.parkrun.is
sem og á www.parkrun.org.uk.
Í fyrsta sinn á Íslandi í vetur
Morgunblaðið/Golli
Hlaup Hressandi útivera og hreyfing.
Parkrun
Morgunblaðið/Ómar
Gjörningur Stundum var engu líkara en listrænn skúlptúr væri á ferðinni.
Kvikmyndir þar sem Jakobsveg-
urinn kemur við sögu:
The Milky Way, 1969, í
leikstjórn Luis Bunuel
Camino de Santiago,
1999, sjónvarpssería, leik-
stýrt af Robert Young.
Road To Santiago, (Al
final del Camino), 2009,
gamanmynd, leikstýrt af
Roberto Santiago.
The Way, 2010, drama,
leikstýrt af Emilio Estevez.
Mjólkur-
vegurinn
ÁHUGAVERÐAR MYNDIR
www.mundicamino.com