Morgunblaðið - 27.03.2012, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Vinsældir oddvita ríkisstjórnarflokk-
anna, þeirra Jóhönnu Sigurð-
ardóttur og Steingríms J. Sigfússon-
ar, hafa aldrei verið minni ef marka
má mælingar Þjóðarpúls Capacent
Gallup á ánægju með störf ráðherra.
Frá því að fyrri ríkisstjórn Jóhönnu
tók við völdum 1. febrúar 2009 hafa
vinsældir Jóhönnu farið úr 65,4%
niður í 18,40% og vinsældir Stein-
gríms úr 44,5% í 22,90%. Vinsældir
annarra ráðherra, sem voru í fyrri
ríkisstjórn Jóhönnu, hafa einnig
dvínað, hlutfallslega mest hjá Ög-
mundi Jónassyni innanríkisráðherra.
Eftir að Ögmundur kom aftur inn í
síðari ríkisstjórn Jóhönnu hafa vin-
sældir hans haldist svipaðar. Í síð-
ustu fjórum könnunum Capacent
Gallup hafa á bilinu 18-19% verið
ánægðir með störf Össurar Skarp-
héðinssonar utanríkisráðherra en
hlutfallið var um 28% í fyrri rík-
isstjórn í febrúar 2009.
Svandís óvinsælli
Ánægja með störf Svandísar Svav-
arsdóttur umhverfisráðherra hefur
minnkað nokkuð frá síðustu könnun
Capacent Gallup, eða úr 21,1% í nóv-
ember 2010 í 16,3% núna í marsmán-
uði. Engin könnun var gerð á störf-
um ráðherra á síðasta ári. Vinsældir
Katrínar Jakobsdóttur, Guðbjarts
Hannessonar og Katrínar Júl-
íusdóttur hafa aukist nokkuð frá síð-
ustu könnun en langmestar eru vin-
sældir fyrstnefnda ráðherrans, eða
43,2%. Þess skal getið að Katrín Júl-
íusdóttir hefur verið í fæðingarorlofi
frá áramótum. Þá kom Oddný G.
Harðardóttir fjármálaráðherra inn í
ríkisstjórn en tæp 20% í könnun
Capacent Gallup segjast vera ánægð
með störf hennar. Oddný er einnig
starfandi iðnaðarráðherra í fjarveru
Katrínar.
Árni Páll með 11,7%
Ef skoðaðar eru vinsældir þeirra
fyrrverandi ráðherra sem setið hafa
í ríkisstjórnum Jóhönnu Sigurðar-
dóttur þá hefur minnst ánægja
mælst 11,7% hjá Árna Páli Árnasyni,
fv. efnahags- og viðskiptaráðherra, í
nóvember 2010. Hæst fór Árni Páll í
17%. Vinsældir Jóns Bjarnasonar
voru frá 13-18%, Kristjáns L. Möller
12-21% og Álfheiður Ingadóttir, fv.
heilbrigðisráðherra, náði einni mæl-
ingu í Þjóðarpúlsinum, eða 14% í
mars 2010. Utanþingsráðherrarnir
Gylfi Magnússon og Ragna Árna-
dóttir mældust hjá Gallup með 48-
65% vinsældir. Ragna fór hæst í
mars 2010, og hefur náð mestum vin-
sældum í síðari ríkisstjórn Jóhönnu,
en sjálf náði Jóhanna 65% í tíð fyrri
ríkisstjórnar eins og áður segir.
Í könnun Capacent Gallup í sept-
ember 2008, skömmu fyrir hrun,
nutu ráðherrar í ríkisstjórn Geirs H.
Haarde mismikilla vinsælda. Jó-
hanna naut þá mestra vinsælda sem
félagsmálaráðherra, eða með tæpt
61%. Vinsældir Geirs mældust þá
um 22% og höfðu minnkað úr tæpum
30% í apríl 2008. Mest
ánægja var með Geir
í september 2007,
eða tæp 70%. Í sept-
ember 2008 var
langminnst ánægja
með störf Árna M.
Mathiesen, þá-
verandi fjár-
málaráðherra,
eða aðeins 5,9%.
Vinsældir Jóhönnu aldrei minni
Mest ánægja með störf Jóhönnu Sigurðardóttur í febrúar 2009 í Þjóðarpúlsi Gallup Vinsældir
hennar hafa hrapað síðan úr 65 í 18% Vinsældir Steingríms og Svandísar hafa einnig dvínað
Samkvæmt Þjóðarpúlsi Capa-
cent Gallup eru mikil tengsl á
milli ánægju fólks með störf
einstakra ráðherra og þess
hvað það myndi kjósa í þing-
kosningum. Er þetta mest
áberandi hjá Jóhönnu, Stein-
grími og Svandísi. Enginn
þeirra sem myndi kjósa Fram-
sóknarflokkinn segist ánægð-
ur með störf Jóhönnu og að-
eins tæpt 1% þeirra sem
myndu kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn. Hins eru tveir af hverjum
þremur samfylkingarmönnum
ánægðir með störf Jóhönnu.
Tæp 4% sjálfstæðismanna
segjast ánægð með störf
Steingríms á meðan ríflega
81% VG-liða eru ánægð með
störf síns formanns. Tæp 2%
framsóknarmanna og um 5%
sjálfstæðismanna eru ánægð
með störf Svandísar, á
meðan hlutfallið hjá VG
er 68%. Innan Samfylk-
ingar er lítil ánægja
með störf Ögmundar,
eða 19%, og að-
eins 55% innan
VG.
Mikil tengsl
við flokkana
ÞJÓÐARPÚLS GALLUPÁnægja með störf núverandi ráðherra
mælingar í Þjóðarpúlsi Capacent Gallup frá febrúar 2009
1) Febrúar 2009 2) September 2009 3) Mars 2010 4) Nóvember 2010 5) Mars 2012
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
1 2 3 4 5 1 2 3 4 5 1 2 3 4 5 1 2 3 4 5 1 2 3 4 5 1 2 3 4 5 1 2 3 4 5 1 2 3 4 5 1 2 3 4 5
Katrín
Jakobsdóttir
Guðbjartur
Hannesson
Katrín
Júlíusdóttir
Ögmundur
Jónasson
Steingrímur
J. Sigfússon
Oddný G.
Harðardóttir
Össur
Skarphéðinss.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Svandís
Svavarsdóttir
50,1%
43,2%
33,4%
17,6%
29,9%
39,6%
25,4%
44,5%
22,9%
19,6%
28,1%
19,4%
65,4%
18,4%
19,3%
16,3%
Nýr Landspítali
Háskólasjúkrahús
Haldinn verður opinn kynningarfundur á nýju deiliskipulagi fyrir Landspítala Háskólasjúkrahús í Ráðhúsi Reykja-
víkur, Tjarnarsal kl. 17–19 næstkomandi fimmtudag þann 29. mars. Um er að ræða lögboðinn kynningarfund.*
Einnig verða kynntar breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og aðalskipulagi Reykjavíkur** ásamt
breytingu á deiliskipulagi fyrir Hringbraut. Hvort tveggja tengist hinu nýja deiliskipulagi og er kynnt samhliða því.
Kynning þessi fer fram áður en tillögurnar verða teknar til afgreiðslu hjá borgaryfirvöldum.
www.skipbygg.is
www.nyrlandspitali.is
*skv. 4.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 **skv. 2.mgr.23.gr.sbr. 27.gr. og 2.mgr.30.gr. sbr.1.mgr.36.gr.skipulagslaga nr.123/2010
Sjá nánari kynningargögn á vef Reykjavíkurborgar,
www.skipbygg.is og á vef Nýs Landspítala www.nyrlandspitali.is
Tillögurnar verða einnig til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur og
þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14. Reykjavíkurborg
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðins
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Stoðvirki, sem sett voru upp í Tvísteinahlíð, of-
an heilsugæslustöðvarinnar við Engihlíð í
Ólafsvík, vörnuðu því að snjóflóð félli á heilsu-
gæsluna hinn 19. mars síðastliðinn. Flóðið átti
upptök upp undir brún hlíðarinnar frá fossi
bæjarlækjarins og inn að stoðvirkjunum.
Að mati Tómasar Jóhannessonar, sérfræð-
ings á sviði jökla- og ofanflóðarannsókna á
Veðurstofu Íslands, er greinilegt að stoðvirkin
hafa komið í veg fyrir miklu stærra flóð. Áætla
megi að 5.000-10.000 m³ af snjó hafi stöðvast í
grindunum sem er margfalt meira en rúmmál
snævarins í snjóflóðstungunni neðan stoðvirkj-
anna. „Gera má ráð fyrir að snjóflóðið hefði
orðið margfalt stærra, og jafnvel náð niður að
heilsugæslunni, ef stoðvirkin hefðu ekki dregið
úr snjómagninu sem fór af stað. Þetta er fyrsta
dæmið hér á landi um að stoðvirki á upp-
takasvæðum hafi komið í veg fyrir eða dregið
úr stærð snjóflóðs,“ segir Tómas.
Stoðvirki hafa á undanförnum árum verið
reist ofan byggðar til þess að draga úr snjó-
flóðahættu í Neskaupstað og á Siglufirði, auk
Ólafsvíkur. Þau eru algengasta snjóflóðavörn
fyrir byggð í Alpalöndum en ekki er mikil
reynsla af þeim við íslenskar aðstæður. Á
næstu árum er fyrirhugað að reisa umfangs-
mikil stoðvirki hér á landi, m.a. á Ísafirði og
Siglufirði.
Stoðvirki stöðvuðu
snjóflóð í Ólafsvík
Ljósmynd/www.vedur.is
Snjóflóð Horft niður yfir neðstu raðir stoðvirkja þar sem snjóflóðssnjór hefur hrannast upp.