Morgunblaðið - 27.03.2012, Side 26

Morgunblaðið - 27.03.2012, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Ég er hættur að vinna fyrir löngu, er orðinn gamall og búinn,“sagði Hreinn Edilonsson sem er 75 ára í dag líkt og Svavartvíburabróðir hans. „Ég vann hjá Pósti og síma í fjörutíu ár, fyrst í útivinnu og svo í innivinnu síðustu árin.“ Hreinn er Snæfellingur, fæddur og uppalinn í Stóra-Langadal á Skógarströnd. Hann fór snemma að heiman. „Ég var fyrst á sjónum og svo hjá Rafveitu ríkisins í fjögur ár. Þá þvældist ég um allt land og var orðinn hálfleiður á því,“ sagði Hreinn. Hann settist að í Reykjavík og hefur búið við Brávallagötu í um 40 ár ásamt Stefaníu Jennýju Valgarðsdóttur, eiginkonu sinni. Hreinn kvaðst ekki ætla að halda sérstaklega upp á afmælið í dag. Þeir tvíburabræðurnir, Hreinn og Svavar, héldu sameiginlega upp á sjötugsafmælin fyrir fimm árum. Þeir eru eineggja tvíburar. „Við vorum líkir þegar við vorum krakkar en erum það ekki núorðið,“ sagði Hreinn. Svavar hélt tryggð við Snæfellsnesið, settist að í Stykkishólmi og býr þar. Edilons-nafnið kom inn í fjölskylduna eftir að amma Hreins, Þór- dís Ívarsdóttir, vann á yngri árum hjá Edilon Grímssyni í Hafnar- firði og nefndi hún son sinn Edilon eftir honum. Hreinn hélt nafninu á lofti og á Edilon fyrir son. En hvað hefur Hreinn lært af lífinu? „Það er að vera heiðarlegur og koma heiðarlega fram. Íslendingar þurfa meira á því að halda.“ gudni@mbl.is Hreinn Edilonsson er 75 ára í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Tvíburi Hreinn á Svavar fyrir tvíburabróður. Þeir eru 75 ára í dag. Það er mikilvægt að vera heiðarlegur I ngunn Agnes Kro fæddist á Akureyri en ólst upp á Lómatjörn í Grýtubakka- hreppi til fimm ára aldurs og var síðan í Reykjavík á veturna eftir það. Verslunarskóladúx Ingunn var í Melaskóla og Haga- skóla, stundaði nám við Versl- unarskóla Íslands og lauk þaðan verslunarskólaprófi sem dúx vorið 2000, lauk stúdentsprófi frá Versl- unarskóla Íslands sem dúx vorið 2002, stundaði nám í lögfræði við Háskóla Íslands og lauk BA-prófi þaðan 2005, lauk jafnframt lög- fræðinámskeiðum við Óslóarhá- skóla í skiptinámi þar 2006 og lauk MA-prófi í lögfræði með fyrstu ágætiseinkunn frá Háskóla Íslands 2007 og öðlaðist hdl.-réttindi árið 2008. Ingunn Agnes Kro 30 ára Snjóaveturinn mikli Ingunn og Ylfa í snjónum í vetur nálægt heimili sínu í Kópavogi. Elliðavatn í baksýn. Geðprúður náms- hestur frá Lómatjörn Nýgift Ingunn og Hjörtur giftu sig á Þingvöllum og héldu veisluna í Valhöll. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. 60 ára Valgerður fæddist í Norðurfirði á Ströndum og ólst þar upp. Hún var í Barnaskóla á Finnbogastöðum og stundaði nám við Húsmæðraskólann á Staðarfelli. Störf Valgerður sinnti ýmsum störfum á yngri árum en hefur starfað hjá Land- mælingum ríkisins á Akranesi frá 1999. Hún hefur auk þess séð um börn og bú á barnmörgu heimili þeirra hjóna. Valgerður er fjárbóndi á Akranesi, hefur lengi haft mikinn áhuga á fjárbú- skap og situr nú í stjórn Fjáreigenda- félags Akraness. Fjölskylda Eiginmaður Valgerðar er Lár- us Þór Ólafsson, f. 29.3. 1954, lengi sjó- maður á bátum og togurum frá Akranesi en hann hefur nú starfað í Noregi. Börn Valgerðar: Gyða Gunnarsdóttir, f. 15.6. 1973, bankastarfsmaður, búsett í Kópavogi en maður hennar er Gunnar Karl Þórarinsson, starfsmaður Háfells og eru dætur þeirra Ingigerður Ósk og Þórgunnur Lára; Ólöf Lára Lárusdóttir, f. 21.11. 1977, hjúkrunarfræðingur, búsett á Akranesi en maður hennar er Stefán Jóhann Hreinsson skrifstofumaður og er dóttir þeirra Rakel Sif; Sigurbjörn Lár- usson, f. 26.2. 1980, starfsmaður hjá Þorgeiri & Ellert, búsettur á Akranesi en kona hans er Erla Karlsdóttir skrifstofumaður en dóttir hans er Friðbjörg; Vilborg Lárusdóttir, f. 3.7. 1989, nemi í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri; Heiðar Þór Lárusson, f. 7.7. 1992, nemi, búsettur á Akranesi. Systkini Valgerðar eru Guðrún Sveinbjörnsdóttir, f. 1938, búsett á Akranesi; Þor- gerður Sveinbjörnsdóttir, f. 1940, búsett í Reykjavík; Gestur Sveinbjörnsson, f. 1943, búsettur á Akranesi; Sesselja Sveinbjörnsdóttir, f. 1946, búsett á Akranesi; Heiðrún Sveinbjörnsdóttir, f. 1948, , búsett á Eystra-Miðfelli í Hvalfjarðarsveit; Guðjón Sveinbjörnsson, f. 1948, búsettur á Akranesi. Foreldrar Valgerðar voru Sveinn Valgeirsson, f. 1906, d. 1995, bóndi í Norð- urfirði, og Sigurrós Jónsdóttir, f. 1910, d. 1994, húsfreyja frá Asparvík á Strönd- um. Valgerður Sveinbjörnsdóttir GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 HREINSIEFNI FYRIR HEITA POTTA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.