Morgunblaðið - 27.03.2012, Side 27
Í starfsnámi hjá EFTA-
dómstólnum
Ingunn var ritari við skrifstofu
bankastjórnar Seðlabanka Íslands
sumrin 2001 og 2002, sinnti laga-
nemastörfum við lögfræðistofuna
Landslög sumrin 2003-2005 og Lo-
gos, lögmannsþjónustu 2006-2007
og var í starfsnámi hjá EFTA-
dómstólnum í Lúxemborg sumarið
2007. Að námi loknu starfaði Ing-
unn hjá Landslögum á árunum
2007-2009 en hóf störf sem lögfræð-
ingur hjá Skeljungi 2009 og hefur
starfað þar síðan.
Ingunn kenndi lögfræði við Há-
skóla unga fólksins – Sumarskóla
2008-2009, kenndi skaðabótarétt við
lagadeild Háskóla Íslands 2008-
2009 og sinnti stundakennslu í
einkaleyfarétti við lagadeild Há-
skóla Íslands 2010.
Námið helsta áhugamálið
Ingunn æfði og keppti í körfu-
bolta með KR á unglingsárunum til
átján ára aldurs. Hún sat í stjórn og
var gjaldkeri Nemendafélags Versl-
unarskóla Íslands á námsárunum
þar, var framkvæmdastjóri Úlfljóts,
tímarits laganema við Háskóla Ís-
lands, og hefur setið í stjórn bóka-
útgáfunnar Codex í nokkur ár.
Ingunn segist hafa verið mikill
námshestur alla tíð og að fátt hafi
náð að glepja hana frá náminu. Það
sé kannski meginástæða þess að
hún var ekki á kafi í öðrum áhuga-
málum á námsárunum. Þá segir
hún að í sér blundi áhugi á lanbún-
aði og sveitastörfum, enda sjálf
komin af íslenskum og norskum
bændaættum.
Móðir Ingunnar lýsir henni svo
að hún sé sérlega iðin, umhyggju-
söm móðir og vinmörg enda búi hún
yfir svo miklu jafnaðargeði að hún
skipti nánast aldrei skapi.
Fjölskylda
Ingunn giftist 2008 Hjalta Þór
Pálmasyni, f. 6.5. 1981, verkfræð-
ingi hjá Mannviti. Hann er sonur
Pálma Kristinssonar verkfræðings
og Sigríðar Friðriksdóttur, uppeld-
is- og kennslufræðings og leiðsögu-
manns.
Dóttir Ingunnar og Hjalta Þórs
er Ylfa Hjaltadóttir, f. 9.3. 2010 og
síðan er annað barn á leiðinni sem
hefur verið stílað upp á að fæðist á
þjóðhátíðardegi Norðmanna, 17.5.
nk.
Hálfsystir Ingunnar, samfeðra,
er Sonja Kro, f. 1.3. 1973, leikskóla-
kennari, búsett á Akureyri en mað-
ur hennar er Stefán Hallsson málm-
iðnaðarmaður og eru börn þeirra
Hallur Hólm Stefánsson og Anna
María Stefánsdóttir en dóttir Sonju
er Birgitta Björk Bergsdóttir.
Alsystur Ingunnar eru Anna Val-
dís Kro, f. 12.12. 1978, leikskóla-
kennari, búsett í Reykjavík; Lilja
Sólveig Kro, f. 4.11. 1989, nemi í
hagfræði við Háskóla Íslands en
kærasti hennar er Hannes Ellert
Reynisson, verkfræðingur hjá Sam-
herja.
Foeldrar Ingunnar eru Arvid
Kro, f. 13.9. 1952, bóndi á Lóma-
tjörn, og Valgerður Sverrisdóttir, f.
23.3. 1950, bóndi á Lómatjörn og
fyrrv. alþm. og ráðherra.
Úr frændgarði Ingunnar Agnesar Kro
Sigríður
Guðmundsdóttir
Guðni Eyjólfsson
frá Apavatni
Valgerður Jóhannesdóttir
húsfr. á Lómatjörn
Guðmundur Sæmundsson
b. á Lómatjörn
Johanna Kro
húsfr. í Bokn
Martin Simonsen
b. í Hauge í Klepp Komune
Justina Simonsen
húsfr. í Hauge
Ingunn Agnes
Kro
Arvid Kro
b. á Lómatjörn
Valgerður Sverrisdóttir
fyrrv. alþm. og ráðh.
Sverrir Guðmundsson
oddviti. á Lómatjörn
Jórlaug Guðrún Guðnadóttir
húsfr. á Lómatjörn
Ingrid Kro
húsfr. í Hauge
Magne Kro
b.í Hauge í Klepp Komune í Noregi
Martin Kro
b. í Bokn, eyju í Stafangerfirði
Guðný Sverrisdóttir
sveitastjóri Grýtubakkahrepps
Sigríður Sverrisdóttir
kennari á Grenivík
Valtý
Guðmundsson
Sigurbjörg
Guðmundsdóttir
Sigríður Schiöt
organisti og söngstjóri
Valtýr Björnsson
íþróttafréttam.
Valgarð Egilsson
læknir og rith.
Í réttunum Ingunn Agnes reynir að
mæta í Gljúfársrétt á hverju hausti.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012
95 ára
Anna Einarsdóttir
85 ára
Guðmundur Bjarnason
Gunnar Runólfsson
80 ára
Baldur Bjarnason
Garðar S. Ásbjörnsson
Geirþrúður Charlesdóttir
Skafti Jónsson
Þór Aðalsteinsson
75 ára
Gyða Guðjónsdóttir
Hreinn Edilonsson
Svavar Edilonsson
Vilborg Guðjónsdóttir
70 ára
Guðlaugur Guðlaugsson
Hörður Símonarson
Laufey Jörgensdóttir
Margrét Margeirsdóttir
Úlfhildur Geirsdóttir
Þröstur Bergmann
Söring
60 ára
Hanna Sigurðardóttir
Hörður Kristinsson
Pétur Steinþórsson
Reynir Ólafsson
Sólveig Jóhannesdóttir
Örn Ólafsson
50 ára
Guðmundur Helgi
Guðmundsson
Gunnlaugur M. Hauksson
Hanna Rún Gestsdóttir
Reynir Garðar Gestsson
Savapa Gunnarsson
Þorgerður Þórisdóttir
40 ára
Artur Janusz Pazdzior
Ásta Hrund Jónsdóttir
Darrel Ray Canada
Guðrún Fjóla
Guðbjörnsdóttir
Haukur Garðarsson
Kristín Daníelsdóttir
Marek Narewski
30 ára
Ágúst Freyr Svanbergsson
Guðríður Sveinsdóttir
Hafdís Björk Jensdóttir
Hallvarður J.
Guðmundsson
Hákon Jónsson
Konrad Sujkowski
Ólöf Haraldsdóttir
Sóley Ösp Karlsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Sigurður Ragnar
fæddist í Keflavík en ólst
upp í Vogum frá fjögurra
ára aldri. Hann lauk stúd-
entsprófi, er löggiltur
áfengis- og vímuefnaráð-
gjafi en rekur Kerfi – fyr-
irtækjaþjónustu, með föð-
ur sínum.
Dætur Súsanna Elín, f.
2007; Signý Ósk, f. 2008.
Foreldrar Guðmundur
Sigurðsson, f. 1945, og
Sigrún Ósk Ingadóttir, f.
1948, húsmóðir.
Sigurður Ragnar
Guðmundsson
30 ára Sigurður Gunnar
Hjartarson fæddist á Ak-
ureyri og ólst þar upp, á
Ólafsfirði og í Reykjavík.
Hann hefur starfað hjá
Hreinsitækni ehf. frá 1998.
Kona Katrín Sif Antons-
dóttir, f. 1986, nemi.
Synir þeirra: Stefán Gretar,
f. 2008, og Alexander
Ágúst, f. 2010.
Foreldrar Hjörtur Sigurðs-
son, f. 1961, verslunarstj.
og Laufey Sigurðardóttir, f.
1962, húsm.
Sigurður Gunnar
Hjartarson
Sverrir Haraldsson, lengst afsóknarprestur í Steinholti íBorgarfirði eystra, fæddist á
Hofteigi í Jökuldal 27. mars 1922 en
ólst upp í Mjóafirði.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1945 og
embættisprófi í guðfræði frá Háskóla
Íslands 1954.
Með námi og að námi loknu stund-
aði Sverrir lengi kennslu, blaða-
mennsku, þýðingar og önnur ritstörf.
Hann þýddi töluvert af afþreyingar-
og barnabókmenntum og sendi frá sér
þrjár ljóðabækur, Við bakdyrnar,
1950, Rímuð ljóð á atómöld, 1952, og
Að leikslokum, 1982.
Sverrir var ágætt skáld eins og
hann átti kyn til en furðu mörg þjóð-
þekkt skáld má finna í hans frænd-
garði.
Foreldrar hans voru Haraldur Þór-
arinsson, prestur á Hofteigi og í Mjóa-
firði, og Margrét Jakobsdóttir hús-
freyja. Móðir Haralds var Vilborg
Sigurðardóttir, hálfsystir Ingveldar,
móður Arnar Arnarsonar skálds.
Margrét var dóttir Jakobs, b. á
Brimnesi í Fáskrúðsfirði Péturssonar.
Móðir Jakobs var Margrét, systir
Þórarins, afa Gunnars Gunnarssonar
skálds. Sú Margrét var dóttir Hálf-
dánar, b. á Oddsstöðum á Sléttu, bróð-
ur Stefáns, langafa Einars Benedikts-
sonar skálds. Hálfdán var sonur
Einars Árnasonar, prests á Sauða-
nesi, og Margrétar Lárusdóttur
Scheving, systur Jórunnar, ömmu
Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Móðir Margrétar Jakobsdóttur var
Ólöf Stefánsdóttir, prests á Kol-
freyjustað Jónssonar, prests á
Krýnastöðum, bróður Helgu, ömmu
Stephans G. Stephanssonar. Jón var
sonur Guðmundar, b. á Krýnastöðum
í Eyjafirði Jónssonar, bróður Bene-
dikts Gröndal, yfirdómara og skálds,
afa Benedikts Gröndal, skálds og
náttúrufræðings.
Sverrir varð sóknarprestur í Desj-
armýrarprestakalli í 30 ár og kennari
við Grunnskóla Borgarfjarðar í tæp
30 ár.
Eiginkona Sverris var Sigríður
Ingibjörg Eyjólfsdóttir, lengi bók-
vörður við Lestrarfélag Borg-
arfjarðar, en hún lést 2008.
Sverris lést hins vegar 26.1. 1997.
Merkir Íslendingar
Sverrir
Haraldsson
40 ára Börkur fæddist í
Reykjavík, er verkfræð-
ingur, tæknimaður Gríms-
ness- og Grafningshrepps
og starfar sjálfstætt.
Eiginkona Sigurborg
Ólafsdóttir, f. 1968, kerf-
isfræðingur. Börn þeirra:
Dagrún Linda, f. 1992;
Brynjar Óli, f. 2001, og
Hanna Ósk, f. 2004.
Foreldrar Brynjar Har-
aldsson, f. 1947, tæknifr.
og Unnur Jónsdóttir, f.
1946, hjá Frostverki.
Börkur
Brynjarsson
Börn og brúðhjón
„Íslendingar“ er nýr efn-
isliður í Morgunblaðinu.
Þeir sem senda inn myndir
af ungbörnum eða brúð-
hjónum fá glaðning frá
Morgunblaðinu, áskrift í
einn mánuð.
Sendið mynd og texta á
islendingar@mbl.is
Ferskir og framandi fiskréttir
Hádegisverðartilboð
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is