Morgunblaðið - 27.03.2012, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 27.03.2012, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú kýst að vernda vin þinn í dag og munt gera allt sem í þínu valdi stendur til þess að hjálpa þessari persónu. 20. apríl - 20. maí  Naut Þótt þér finnist þú lifa í vernduðu um- hverfi, þarftu ekki að horfa lengi í kring um þig til að sjá að ýmislegt er að gerast. Slak- aðu bara á og horfðu á úr fjarlægð. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er auðvelt að segja, bara að ég hefði vitað það sem ég veit núna. Dagurinn hentar mjög vel til skapandi breytinga í tengslum við miðlun eða skemmtanabrans- ann. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Upplagður dagur til að sinna fjármál- unum og gera ráðstafanir á því sviði. Vertu sveigjanlegur og sýndu samstarfsmönnum þínum skilning og velvilja. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Eyddu ekki tímanum í bið eftir aðstoð annarra heldur notaðu eigin hæfileika til þess að ganga frá málunum. Vandinn hverfur smátt og smátt við það. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gættu þess að láta fólk ekki hafa of mikil áhrif á þig því það hefur þú reynt áður. Þú leggur þig allan fram í starfi og það vekur almenna hrifningu yfirmanna þinna. 23. sept. - 22. okt.  Vog Fáein skynsamleg orð hjálpa fjölskyldu- meðlimum við að halda sig við sameiginlega stefnu. Leggðu þig fram um að ná sáttum sem eru þér nauðsynlegar upp á framtíðina. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vitrar manneskjur hvetja þig hugsanlega til þess að takast á við veikleika þína. Leyfðu þögninni að leika um þig svona af og til. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gættu þess að lofa ekki upp í ermina í ákafa þínum til þess að leggja vini lið. Saklaust daður og ánægjulegt félagslíf lífga upp á daginn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú átt það alveg skilið að lyfta þér upp, ef þú bara gætir þess að hóf er best á hverjum hlut. Stattu fast á þínu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ábending frá vini kann að koma þér að gagni fjárhagslega í dag. Hugmyndir þínar um umbætur geta breytt miklu fyrir þig og þá sem eru í kringum þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú átt góða möguleika á að ná tak- marki þínu, ef þú sýnir dugnað og hefur ör- yggið í fyrrúmi. Haltu öllum verkefnum að- skildum og raðaðu þeim upp í forgangsröð og leystu þau síðan eitt af öðru. Eiríkur Páll Sveinsson sendikveðju: „Var að lesa vísnaþátt- inn í blaði dagsins. Fann þá hjá mér löngun til að senda þér smáljóð, ef kalla má svo, sem ég gerði fyrir margt löngu á fyrsta ári mínu í HÍ.“ Smáljóðið nefnist Harmasaga úr tíma (í verkfræðideild) og er frá árinu 1954: Svefnlaus og timbraður sit ég hér dottandi, sendlingar myrkursins ertandi, glottandi, innan í kúpunni hamra þeir hlæjandi, hrópa og kalla þar hvergi neitt vægjandi. Bræða í augnlokin blý, grjót og hraunsalla, brátt skrifar höfuðið 0-kúrfu einhalla, rennur nú sitjandinn rótt út af bríkinni runa af kokhljóðaveðráttu ríkjandi. Máttlaus á gólfinu líkaminn liggjandi landa í draumunum maðurinn þiggjandi. Vakna þó bráðlega, hæddur af herrunum í hringiðu liggjandi af þverstæðum R-unum. Strax upp á fæturna reyni að rísa þá, rýnandi í tómið með glyrnurnar framan á. Tekst þó ei upprisan, sit ég þar syfjaður á sál bæði og líkama eymslunum klyfjaður. Út er ég borinn, mig svimar og svitna ég, samviskan þyngir mig, líðan er bölvanleg. Lofa ég sjálfum mér iðrandi og uppgefinn að ei láti tæla mig helvítis Bakkusinn. Í Vísnahorni 3. mars sl. eignaði „vísnavinur“ þessa stöku Kristjáni Jónssyni Fjallaskáldi og sagði hana „eftirlætisvísu frá táningsárunum“: Eg vil feginn óspilltur æskuveginn ganga, Og svo deyja ölvaður undir meyjarvanga. Hið rétta er, að stakan er eftir Frið- rik Hansen vegavinnuverkstjóra á Sauðárkróki, eins og fram kemur í bréfi Birgis R. Rafnssonar og leið- réttist það hér með. Skýringin er sú, að „vísnavinurinn“ ruglaði saman tveim stökum keimlíkum eins og alltaf getur hent. Staka Fjallaskálds- ins ber yfirskriftina „Óskin“: Ó, að ég hreyfðist hinsta sinn hýrður víns af tári og bana yrði beður minn bjartrar drósar nári. Ragnar Böðvarsson orti sumarvísur á Rangárvöllum: Hrjúfu, gráu hrauni undir hægt við lága gróðurrein, lindin smáa langar stundir leikur blá og tandurhrein. Brokið hringar blöð og sveigir, blærinn syngur þýtt við grein. Umfeðmingur arma teygir ungan kringum víðitein. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af sumri og hlæjandi sendlingum myrkursins G æ sa m a m m a og G rí m ur Fe rd in an d H ró lf ur h ræ ð ile gi S m á fó lk G re tt ir ÉG ER AÐ VERÐA 27 MAÐUR SKYLDI ÆTLA ÞAÐ ÉG HEFÐI GETAÐ SAGT ÞÉR AÐ ÞÚ VÆRIR EKKI ÖRUGGUR ÞARNA BARA EITTHVAÐ SPENNANDI HVAÐ MÁ BJÓÐA ÞÉR FRÚ? FÆRÐU OKKUR BÁÐUM BARA EITTHVAÐ SPENNANDI NÚNA ER HANN AÐ VINNA Á GRUND ÉG VEIT AÐ ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ KÆTA GÖMLU KONURNAR, EN ÉG ÁTTI VIÐ MEÐ ÞVÍ AÐ LEYFA ÞEIM AÐ KLAPPA ÞÉR... MAÐUR SKYLDI ÆTLA AÐ ÉG HEFÐI VITKAST MEÐ ÁRUNUM HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ FÁ Í MATINN Í KVÖLD? HVAR ER GRÍMUR AÐ AFPLÁNA SAMFÉLAGSÞJÓNUSTUNA NÚNA? ...EKKI MEÐ ÞVÍ AÐ LEYFA ÞEIM AÐ STINGA PENINGUM Í PUNGBINDIÐ ÞITT! Barátta Manchester-liðanna, Cityog United, um Englandsmeist- aratitilinn í knattspyrnu verður at- hyglisverðari með hverri vikunni sem líður. Lengi vel hafði hið nýríka City frumkvæðið og eftir að þeir heiðbláu kjöldrógu nágranna sína fyrr í vetur á þeirra eigin heimavelli, Old Trafford, héldu margir að það yrði aðeins formsatriði að klára mót- ið. Annað hefur komið á daginn. Eins og svo oft áður lúrir United í hælum keppinautarins og sætir svo lagi þegar nálgast vorið og tekur fram úr. Á þessum árstíma tapar lið- ið helst ekki leik. Eftir slæmt tap gegn Newcastle í fyrsta leiknum eft- ir áramót hefur United fengið 28 stig af 30 mögulegum. Einu stigin sem liðið tapaði voru gegn Chelsea á Brúnni, þegar það jafnaði leikinn eftir að hafa lent 3:0 undir. x x x Fyrir utan innbyrðisviðureigninagegn City, sem fram fer á Man- chester-leikvanginum 30. apríl, á United mjög auðvelt leikjapró- gramm fyrir höndum og enginn ætti að verða hissa vinni liðið alla þá leiki, sjö að tölu. Það þýðir að City þarf ekki aðeins að vinna leik sinn gegn erkifjendunum, heldur alla hina leiki sína sjö líka, þeirra á meðal útileiki gegn Arsenal og Newcastle United, til að landa sínum fyrsta meist- aratitli frá árinu 1968. Það verður ekki létt verk. Gleymum því heldur ekki að United hefur jafnt og þétt étið upp markatöluforskot nágranna sinna á umliðnum vikum. Mögulega mun markamunur ráða úrslitum. x x x Flestum sparkskýrendum ber sam-an um að Sir Alex Ferguson hafi oft haft betri mannskap í höndunum en undanfarin tvö tímabil, samt vann United deildina í fyrra og er á góðri leið með að gera það aftur nú. Er furða að menn velti fyrir sér hvort það skipti í raun engu máli hverjir skrýðast búningi Manchester Unit- ed svo lengi sem gamli maðurinn stendur í brúnni. Hvernig væri að United keypti Charlie Adam, Jordan Henderson og Stewart Downing fyr- ir næstu leiktíð og gerði þá líka að meisturum? víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyr- ir vini sína. (Jh. 15, 13.) Hárburstinn sem leysir allar flækjur Dreifingaraðili Bylting fyrir hársára, frábær fyrir sítt hár og fyrir börnin Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.