Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012 Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. • - með öllu inniföldu - Tyrkland frá aðeins 124.900 kr. Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í 10 nátta ferð til Tyrklands þann 12. júní. Í boði er m.a. frábær sértilboð á Hotel Eken með öllu inniföldu á ótrúlegum kjörum. Aðeins örfá herbergi í boði - bókaðu strax! 12. júní í 10 nætur Frá kr. 124.900 í 10 nætur - Allt innifalið m.v. tvo fullorðna og tvö börn í fjölskylduherbergi á Hotel Eken í Bodrum með allt innifalið. Verð 149.900 kr. m.v. tvo í herbergi á hotel Eken með allt innifalið. Skúli Hansen skulih@mbl.is Ólafur Ragnar Grímsson forseti hóf kosningabaráttu sína í gær og opn- aði af því tilefni kosningaskrifstofu við Laugaveg 88. „Hún er mjög góð, þetta er tilhlökkunarefni og tækifæri til þess að fara vítt og breitt um landið og ræða við fólk um forsetaembættið, framtíðina, stöðu þjóðarinnar, lærdómana af reynslu síðustu ára en umfram allt eðli forsetaembættisins og stöðu þess meðal þjóðarinar,“ segir Ólaf- ur aðspurður hvernig tilfinning væri að fara út í svona kosninga- baráttu. Að sögn Ólafs ætlar hann í fundaferð um landið ásamt forseta- frúnni, Dorrit Moussaieff, en funda- ferðin, sem hjónin kalla „Samræðu um allt land“, hefst í dag þegar þau fara í heimsókn til Grindavíkur. Segir mikið í húfi fyrir þjóð- ina Kosningabarátta Ólafs að þessu sinni er sú umfangsmesta síðan hann bauð sig upp- haflega fram árið 1996 en sjálfur segist hann telja að mikið sé í húfi í kosn- ingunum. „Ég tel að nú þegar hafi aðrir frambjóð- endur dregið upp þannig mynd af valkostunum í þessum kosningum að það sé mikið í húfi fyrir þjóðina, hér er um grafalvarlegt mál að ræða og það yrði of seint fyrir þjóð- ina, ef hún velur forseta sem ekki vill beita sér í erfiðum og umdeild- um málum, að kvarta þá,“ segir Ólafur. Vilja „þægari forseta“ Ólafur segir Jóhönnu Sigurðar- dóttur forsætisráðherra hafa verið í ýmiss konar leiðöngrum gegn sér allt frá því að hann tók ákvörðun um að vísa Icesave-málinu til þjóð- arinnar. Spurður hvort hann sjái einhverja flokkadrætti í núverandi kosningum segir Ólafur: „Það er al- veg ljóst að kjarninn í kringum Jó- hönnu Sigurðardóttur hefur haft það að kappsmáli, núna í rúmt ár, að finna frambjóðanda gegn mér, það er opinbert leyndarmál.“ Hann segir þetta ekki eiga við um alla stuðningsmenn Samfylking- arinnar og að þvert á móti hafi margt ágætis samfylkingarfólk komið að söfnun meðmælenda hans. „En kjarninn í kringum for- manninn í flokknum hefur hins veg- ar verið þeirrar skoðunar að það væri betra að fá þægari forseta,“ segir Ólafur og bætir við: „Ég tek eftir því að varaformað- ur flokksins, Dagur B. Eggertsson, fer strax fram á völlinn í dag til þess að gagnrýna mig á fyrsta degi kosningabaráttunnar. Þannig að nú blasir það við að formaður flokksins talaði gegn mér á flokksstjórnar- fundi Samfylkingarinnar og vara- formaður flokksins fer gegn mér á fyrsta degi kosningabaráttunnar.“ Ólafur: „Mikið í húfi fyrir þjóðina“  Segir Jóhönnu hafa leitað að mótframbjóðanda í rúmt ár Morgunblaðið/Eggert Kosningaskrifstofa Ólafur Ragnar hóf kosningabaráttu sína með formlegum hætti í gær þegar hann opnaði kosn- ingaskrifstofu á Laugarveginum. Kosningabarátta forsetans hefur ekki verið jafn umfangsmikil síðan árið 1996. Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is Hvorki Skútustaða- né Tjörnes- hreppur munu taka þátt í einka- hlutafélagi um kaup og leigu Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum, og ólíklegt er að Þingeyjarsveit taki þátt. Áætlað er að hlutafélag sem sveitarfélögin stofnuðu í kringum verkefnið kaupi ríflega 70% hlut í Grímsstöðum. Stofnfundur félagsins var haldinn á föstudaginn. Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur gefið út að afar ólíklegt sé að hún taki þátt í verkefninu. Að sögn Arnórs Benónýssonar, varaoddvita sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar, kom á óvart hversu litlar upplýs- ingar eru til staðar um verkefnið. „Manni kemur á óvart að plönin séu ekki orðin mótaðri miðað við allan þann tíma sem þetta hefur tekið og stærð fjárfestingarinnar,“ segir Arnór. „Við munum leggja til að Þingeyjarsveit taki ekki þátt.“ Sam- kvæmt upplýsingum Arnórs er ein- ing innan sveitarfélagsins um þá af- stöðu. „Okkur finnst það einfaldlega ekki vera hlutverk sveitarfélagsins að taka þátt í einkahlutafélagi með svo óljós plön.“ Formleg ákvörðun verður tekin á næsta sveitarstjórn- arfundi eftir tvær vikur. Eins og fyrr segir tekur Tjör- neshreppur ekki þátt. „Það var að- allega hlutafélagsformið sem fólki leist ekki á,“ segir Steinþór Heið- arsson oddviti. „Hér er þó búið að telja fólki lengi trú um að stóriðja sé alveg á næsta leiti og þær væntingar hafa jákvæð áhrif á afstöðu fólks gagnvart þessu verkefni. Þetta eru þó mjög ómótaðar hugmyndir og hafa ekki verið kynntar almennilega fyrir fólki hér,“ segir Steinþór. Bergur Elías Ágústsson sveit- arstjóri Norðurþings segir eðlilegt að útfærsla verkefnisins sé ekki full- mótuð á þessu stigi málsins.„At- vinnuþróunarfélögin hafa unnið að útfærslu á framkvæmdinni og eru nú að taka á móti athugasemdum og ábendingum. Þess vegna liggur ekki skýrt fyrir hvernig þetta kemur til með að verða, eðli málsins sam- kvæmt.“ Bergur segir ekki hægt að segja til um hvenær samningur muni liggja fyrir, „við bíðum og sjáum hvernig málin þróast, en því verður að sjálfsögðu sýndur fullur skilningur ef sveitarfélög kjósa að vera ekki með.“ Ónógar upplýsingar um Grímsstaðaáform  Fleiri sveitarfélög draga sig úr þátttöku í verkefninu „Allir viðurkenna að hér sé um að ræða mikilvæga sameign þjóðarinnar og þess vegna, sé horft til þess, þá tel ég al- mennt séð að fá mál séu betur til þess fallin að fara til þjóð- aratkvæðis en einmitt frum- vörp um skipan fiskveiði- stjórnar og auðlindagjald þjóðarinnar í þeim efn- um,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. Fá mál betur til þess fallin ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA UM KVÓTAKERFIÐ Skúli Hansen skulih@mbl.is Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, gagnrýndi fréttaflutning RÚV af forsetakosningunum í gær. „Eins er ljóst að RÚV á sér mjög sérkennilegan feril í öllum þessum málum frá áramótum og þegar fréttastjóri RÚV gaf út yf- irlýsingu fyrir skömmu og gagnrýndi aðra fjölmiðla fyrir hlutdrægni þeirra um forsetakosningarnar þá fannst mér nú mikið á skorta að hann nefndi bjálkann í auga RÚV sjálfs,“ sagði Ólafur Ragnar í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. Hann bendir einnig á að sam- býlismaður Þóru Arnórsdóttur, for- setaframbjóðanda, hafi unnið gegn sér í áróðursfrétt á sömu dögum og verið var að leggja grundvöll að framboði Þóru. „Því þegar verið var að gera þá könnun, sem „Betri val- kostur á Bessastaði“ beitti sér fyrir með samþykki Þóru og hennar fólks, að velja á milli mín, hennar og nokk- urra annarra frambjóðenda, þá not- aði sambýlismaður Þóru, Svavar Halldórsson, aðstöðu sína á frétta- stofu Sjónvarpsins til að koma 20. mars með frétt sem hafði tilefni það að búið væri að ákveða hvenær for- setakosningarnar færu fram; það var nú ákveðið fyrir mörgum áratugum síðan, en síðan var öll fréttin hæg- lega samanklippt til þess að sá tor- tryggni og efa í minn garð,“ sagði Ólafur. Svara forsetanum „Þessar ávirðingar forsetans eru tilhæfulausar og ómaklegar. Ég ætla að stilla mig um að hafa um þau önnur orð, a.m.k. opinberlega,“ segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri, spurður út í gagnrýni forsetans í garð Ríkisútvarpsins. Spurður út í þessa sömu gagn- rýni segir Óðinn Jónsson, frétta- stjóri RÚV: „Ólafur Ragnar Gríms- son verður bara að fá að ráða því hvernig hann hagar sinni kosninga- baráttu.“ Forsetinn gagn- rýnir fréttaum- fjöllun RÚV  Verður að ráða því hvernig hann hagar sinni baráttu, segir fréttastjóri RÚV Páll Magnússon Óðinn Jónsson „Það er af og frá enda er hún að senda sinn besta sol- dat, utanrík- isráðherra, sem sérstakan fulltrúa sinn og ríkisstjórn- arinnar í leið- angur með honum – en ekki gegn – í opinbera heimsókn í þessari viku til Tékklands,“ segir Össur Skarphéðinsson, ut- anríkisráðherra, spurður út í þær fullyrðingar Ólafs Ragnars að forsætisráðherra sé í herferð gegn sér, og bætir við: „Þar trúi ég að verði vinafundur fremur en óvinafagnaður, nema ver- öldin sé þá komin á hvolf. Þau Jóhanna eiga miklu meira hvort í öðru en þessi ummæli í augnablikshita gætu gefið til kynna.“ Að öðru leyti vildi utanríkis- ráðherra ekki tjá sig um málið en sagði öllum fyrir bestu „að anda í kviðinn.“ Trúi að verði vinafundur Á LEIÐ TIL TÉKKLANDS Össur Skarphéðinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.