Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012 Er þitt fyrirtæki að borga of mikið í símkostnað á mánuði? Nú býður Svar tækni tvær leiðir til sparnaðar með IP símkerfum. Annarsvegar                                  ! "  !! #     $ %&  '    #        #    þinn. Við erum í síma 510-6000. Lækkaðu símreikninginn Öflugt IP símkerfi frá Snom 3 stk Snom 300 símtæki, 1 Snom 320 símtæki Snom hugbúnaðarleyfi fyrir allt að 10 notendur Snom IP símkerfi – 4 SÍMTÆKI 8.500 m/vsk Öflugt IP símkerfi frá Snom 5 stk Snom 300 símtæki, 1 stk Snom 320 símtæki Snom hugbúnaðarleyfi fyrir allt að 10 notendur Snom IP símkerfi - 6 SÍMTÆKI Stofngjald 39.900 m/vsk Mánaðargjald 10.500 m/vsk Stofngjald 39.900 m/vsk Mánaðargjald SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS Mikið úrval þráðlausra höfuðtóla Mikið úrval þráðlausra höfuðtóla Finnski farsímaframleiðandinn Nokia má muna fífil sinn fegurri. Síðustu árin hefur Nokia smám sam- an dregist aftur úr helstu keppinaut- um og greiningarfyrirtækin Stand- ard & Poor’s og Fitch Ratings lækkuðu á dögunum lánshæfi Nokia niður í ruslflokk. Reuters greinir frá því að til að rétta reksturinn af muni Nokia ganga fram af meiri hörku í að inn- heimta höfundargjöld af uppfinn- ingum fyrirtækisins. Nú þegar fær Nokia um 500 millj- ón evrur í þóknun á ári fyrir notkun tæknilausna sem fyrirtækið á einka- leyfi að. Markaðssérfræðingar spá því að fyrirtækið geti aukið þessar tekjur um mörg hundruð milljóna evra til viðbótar með því að ganga fram af meiri hörku við aðra fram- leiðendur. Framsal á einkaleyfunum gæti einnig komið til greina og mögulega verið milljarða evra virði en fyr- irtækið á eitt stærsta safn einka- leyfa í farsímageiranum. Nokia hefur þegar sent viðvör- unarbréf til nýliða á farsímamark- aðinum sem ekki hafa gert leyf- issamning við fyrirtækið. Í síðustu viku greip Nokia til aðgerða gagn- vart tveimur framleiðendum sem smíða tæki sem keyra Android- stýrikerfið frá Google, að því er Reuters greinir frá. Þá hefur Nokia höfðað mál á hendur HTC og ViewSonic fyrir brot á einkaleyfum og er því spáð að fyrirtækin ZTE, Huawei og Micro- max séu í sigtinu. ai@mbl.is Nokia undirbýr einkaleyfaslag Reuters Tregða Markaðurinn hefur ekki tekið vel við síðustu útspilum Nokia eins og snjallsímanum Lumia 900.  Gæti skapað hundruða milljóna evra tekjur Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Norskir fjölmiðlar hafa mikið fjallað um Eimskip síðustu vikurnar en ís- lenska skipaflutningafyrirtækið hóf á síðasta ári siglingar milli Norður- Noregs og Bandaríkjanna, með við- komu á Íslandi. Lára Konráðsdóttir er for- stöðumaður Eimskips í Noregi. „Þetta er eina beina fragtsigl- ingaleiðin frá Noregi til Norður- Ameriku, en þar hefur skipið við- komu m.a. á Nýfundnalandi og Bost- on,“ segir hún. „Skipið siglir frá bænum Sortland en þangað er safn- að vörum frá vestur- og norður- Noregi, m.a. með okkar skipum sem sigla eftir ströndinni.“ Sáu glufu í áætluninni Árlega hefur Eimskip að jafnaði ferjað um 10-12.000 tonn af frystum fiski frá Noregi á Bandaríkjamark- að, en flutningarnir hafa farið í gegnum Bretland og þaðan yfir haf- ið með umlestun í Reykjavík. Lára segir að glufa hafi myndast í sigl- ingaáætlunum Skógarfoss og var ákveðið að láta slag standa og reyna siglingar beint frá norður-Noregi. Siglt er á 4 vikna fresti og hefur flutningaskip Eimskips því haft 7 viðkomur síðan í október. „Þessir flutningar hafa gengið mjög vel og á þessum 7 mánuðum er flutn- ingamagnið orðið jafnmikið og við höfðum áður flutt frá sama svæði á heilu ári,“ segir Lára. Verði framhaldið jafngott er sennilegt að siglingunum verði hald- ið áfram og jafnvel að ferðum verði fjölgað. Lára segir þessa nýju sigl- ingaleið skapa alls kyns tækifæri fyrir seljendur og kaupendur beggja vegna Atlantsála. „Þetta er hag- kvæmasta leiðin til að flytja vörur sjóleiðina frá Norður-Ameríku til Norður-Skandinavíu. Ekki er bara um að ræða möguleika fyrir fisk- framleiðendur og kaupendur heldur má líka reikna með að þessi sigl- ingaleið gagnist fyrir flutninga á neytendavörum og til að ferja tæki og tól til olíuvinnslu, iðnaðar og byggingarstarfsemi.“ Búslóðir og lambalæri? Fyrir Íslendinga segir Lára að nýja siglingaleiðin geti t.d. opnað greiðari leið inn á norður-skandinavíska og rússneska markaðinn fyrir alls kyns vörur sem nýst geta í iðnaði og fram- leiðslu, s.s. umbúðir, eða neyt- endavörur á borð við landbúnaðar- afurðir. Eins sé þetta hagkvæmasta leiðin fyrir einstaklinga að koma gámi með búslóð milli Íslands og Norður-Noregs. Eimskip er með á bilinu 13-15 skip í siglingum við Noregsstrendur, þar af þrjú sem sigla frá norður-Noregi til Englands og Hollands. Frá vest- ur- og norður-Noregi er uppistaðan í starfseminni flutningar á frystum fiski á brettum en undanfarið ár hef- ur aukning orðið í flutningum á þurr- og iðnaðarvöru. Starfsmenn Eimskips í Noregi eru um 50 talsins, með starfsstöðvar víða um landið, frystigeymslu við Sortland og Kirke- nes og aðstöðu í geymslum í Tromsö og Aalesund. Eina beina leiðin er frá Noregi til Bandaríkjanna  Ný flutningaleið Eimskips gengur vel og vekur mikla athygli í Noregi  Hafa á sjö mánuðum flutt árs- magn af varningi  Getur opnað möguleika fyrir íslenska aðila í Norður-Skandinavíu og Rússlandi Vörur Lára á hafnarbakkanum í Sortland. Nýja siglingaleiðin segir hún að sé sú hagkvæmasta til að koma vörum frá Banda- ríkjunum og Íslandi til Norður-Skandinavíu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.