Morgunblaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 29
sammála um það en mér fannst
þetta meiriháttar. Hún átti það
jafnvel til að ákveða hvort við
fengjum okkur hvítvín á laugar-
dagskvöldi „til að slappa aðeins
af saman“ eins og hún sagði. Al-
veg dásamleg í alla staði. Hún
þreyttist ekki á að spyrja um sitt
fólk og fylgdist með öllum.
Ég átti áður tvo uppkomna
stráka og hún vildi vita allt um
þeirra hagi alveg eins og þeir
væru hennar. Þau hjón Brandur
og Perla hafa á undanförnum ár-
um verið hér hjá okkur um flest
jól síðan við hófum búskap, það
voru góðir tímar sem við áttum
saman.
Mig langar með þessum fá-
tæklegu orðum að þakka henni
Perlu tengdamóður minni sam-
fylgdina sem var allt of stutt. Ég
á eftir að sakna þess að heyra
ekki í þér, við áttum oft góð sam-
töl. Og ég skal passa gullmolana
okkar, „ég rétt ræð ef ég geri það
ekki“. Ég stend við það sem ég
lofaði. Það verður ekkert vol og
víl, eingöngu góðar minningar að
ylja sér við. Takk fyrir að taka
mér og mínum svona vel, elsku
Perla mín.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
(Ásbjörn Morthens.)
Guðlaugur (Gulli).
Það er alveg sama hvað við
verðum gömul það er alltaf erfitt
að sjá á eftir ættingjum sínum og
vinum.
Hún var skírð Perla. Það geta
ekki allir staðið undir fallegum
nöfnum en hún stóð sannarlega
undir sínu nafni og var ekta perla
í mínum huga.
Við áttum saman yndisleg
uppvaxtarár í Vestmannaeyjum
og vorum nánast eins og tvíburar
þar sem við erum fædd á sama
ári. Perla var fædd í janúar og ég
er fæddur í nóvember. Perla
fékk stundum það hlutverk að
passa litla bróður sinn og ég
hugsa að það hafi ekki alltaf ver-
ið auðvelt fyrir hana enda var ég,
að annarra sögn, uppátektar-
samur og mikill strákur í mér.
Perla var yndisleg systir.
Eftir gosið í Vestmannaeyjum
flutti ég upp á land þar sem húsið
mitt fór undir hraun en systir
mín hafði flutt upp á land nokkr-
um árum áður. Það var þó hugg-
un að vita af Perlu uppi á landi
því nógu erfitt var að flytja við
svona aðstæður.
Perla átti marga vini í Vest-
mannaeyjum og við það að flytja
upp á land þá stækkaði vinahóp-
urinn töluvert en hún hélt alla tíð
tryggð við sína gömlu vini sem
fluttu aftur heim (til Eyja) eftir
gosið.
Perla var alltaf svo lífsglöð, fé-
lagslynd og elskaði að ferðast.
Alveg fram á það síðasta stóð
hugur hennar til ferðalaga og
ætlunin var að fara utan í byrjun
sumars en örlögin tóku í taum-
ana. Nú er hún komin í ferðalag-
ið sem við öll eigum eftir að fara
og hver veit nema þar geti Perla
ferðast um heiminn.
Systir mín var lánsöm í einka-
lífi sínu og eignaðist góðan eig-
inmann. Börn þeirra, tengda-
börn og barnabörn hafa létt þeim
lífið í veikindum þeirra og hvað
er meira virði en að þau sem eru
manni kærust sýni það með ást
og virðingu eins og þau hafa gert.
Ég vil gera orð Steingríms
Thorsteinssonar að mínum orð-
um hvað varðar Perlu: „Fögur
sál er ávallt ung.“
Benna og börnum sendi ég
mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Sturla bróðir.
Sagt er að móttökuritarar séu
andlit heilsugæslustöðvanna.
Það er því mikilvægt að til þeirra
starfa veljist fólk með góða hæfi-
leika í mannlegum samskiptum
og þægilega nærveru. Perla
hafði slíka mannkosti og var val-
in til starfans við Heilsugæslu-
stöðina Sólvangi í Hafnarfirði,
sem hún svo gegndi um árabil.
Perla setti strax mark sitt á
starfsemi stöðvarinnar og þá sér-
staklega á móttökuna. Svo mikil
og jákvæð áhrif hafði hún á sitt
starfsumhverfi að samstarfsfólk
hætti að tala um móttökuritara
en þess í stað voru þær sem unnu
frammi í móttöku kallaðar „perl-
urnar“. Perla var hvers manns
hugljúfi, aðsópsmikil með tæra
rödd, fylgin sér, drífandi og var
ekki að mikla hlutina fyrir sér.
Hún var mikill gleðigjafi og
hrókur alls fagnaðar þegar því
var að skipta. Perla lét af störf-
um við heilsugæsluna árið 2001
vegna aldurs. Þrátt fyrir glímuna
við alvarlegan sjúkdóm á síðustu
árum glataði hún aldrei lífsglöðu
yfirbragði sínu, því hélt hún al-
veg þar til yfir lauk. Heilsugæsl-
an sér nú á eftir góðum starfs-
félaga. Við sem vorum svo
lánsöm að vera samtíða Perlu við
stöðina minnumst hennar með
hlýhug og söknuði. Fyrir hönd
starfsfólks stöðvarinnar færum
við Brandi, börnum og fjölskyldu
hennar innilegar samúðarkveðj-
ur.
Jóhann Ág. Sigurðsson
prófessor,
Emil L. Sigurðsson
yfirlæknir.
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
! "
" #
#
! $%%
&! # # ' ()
#
*
+,
!
-
.
/
0!
#
# 1 #
/
!
*
! 2! - !
!3
2 ! " !
-
! %
#
3
*
4 2! ( "5
$%%
( "5
'
! "
# $"%&' 1
!"
(
)&*
6 3# "
" ! 3 #
3
!
!"
(
)(* 7
#
!!
" 3
+,
!
(
!(
+
,! '"
6
+,
!
! "
-&. ," &"
8
!
1
9
:
%9
# ;
8!
(
!
"
" &! "
4
! / "
) -
4 ! (
!
0- 1 *
<
6
15
0" 8!
*"
8
;
8
3 # !
,
!
0'"
121 =;!
4
1
* ! !
0- *!3
4 79;";%
+,
!
/ >"
)
3/ !
) ?!;
#
4 5. )'
/2
8!
8
!9
!%!
6"
1 #"
6
* !
:;5
!
:
!
'
6
# !(
+ 7
#
9 ! 3;3
3 #
@
;
# 3 # + "
!
(
%
! ;
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Garðar
Garðsláttur - trjáklippingar -
mosaeyðing - beðahreinsanir
og öll almenn garðverk.
Uppl. í síma 777 9543.
Garðaþjónusta Hlyns.
Tökum garðinn í gegn!
Klippingar, trjáfellingar, beða-
hreinsanir, úðanir og allt annað sem
við kemur garðinum þínum.
Áratuga reynsla, skilvirk vinnubrögð
og umfram allt hamingjusamir
viðskiptavinir.
20% afsláttur eldri borgara.
Garðaþjónustan: 772-0864.
Gisting
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell
Njótið náttúrufegurðar Dýrafjarðar.
Orlofsíbúðir til leigu og hótelgisting.
Sími 456 1600.
gisting@hotelsandafell.com
Hljóðfæri
Castiglione
Ítölsk harmonika til sölu. 3ja kóra,
7/3 skiptingar. Gott hljóðfæri.
Verð kr. 190.000. Sími 694 3636.
Kassagítartilboð kr. 22.900.
Gítar, poki, aukastrengjasett
ól, stilliflauta, kennsluforrit.
Gítarinn ehf., Stórhöfða 27.
S. 552 2125.
www.gitarinn.is,
gitarinn@gitarinn.is
Atvinnuhúsnæði
Lítil og stór skrifstofuherbergi
til leigu í Ármúla og við Suðurlands-
braut. Hagstæð kjör.
Upplýsingar í síma 899 3760.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Saumavélar- saumavélaviðgerðir
Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali.
Viðgerðir á flestum gerðum sauma-
véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is
eða hringdu í s. 892 3567 eftir
hádegi alla daga.
Til sölu nýr frystiklefi m/frysti-
búnaði. Stærð 2100 x 2300 x 2200
mm. Verð kr. 1.200.000,- án/vsk.
Til afhendingar strax.
Uppl. senson@senson.is
S. 892-1474.
Verslun
Fjarstýrðir bílar, þyrlur, bátar
og m.fl.
Erum með úrval af fjarstýrðum
þyrlum, bílum, bátum, skipum og m.fl.
Netlagerinn slf. Dugguvogi 17-19
á 2. hæð, sími 517-8878.
Netverslun Tactical.is.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi, s. 551-6488
fannar@fannar.is -
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhaldsstofa með áratuga-
reynslu
Bókhald, ársreikningar og öll
skattþjónusta. Sanngjarnt verð.
Trúnaður og gagnkvæmt traust.
Fyrirtæki og samningar ehf.,
Suðurlandsbraut 46,
108 Reykjavík. S. 552 6688.
Þjónusta
Sandblástursfilmur
í öllum stærðum og gerðum fyrir
heimili og fyrirtæki. Sendið fyrir-
spurn á audmerkt@audmerkt.is
eða skoðið heimasíðu okkar
www.audmerkt.is
Ýmislegt
TILBOÐ - TILBOÐ -
Vönduð dömustígvél úr leðri, stök
númer. Tilboðsverð: 9.500 kr.
Sími 551 2070.
Glæsilegir push-up-haldarar
Teg. PRALINA - Flottur push-up í
A, B, C, D skálum á kr. 7.680..
Teg. FRESIA - Saumlaus í A, B, C, D
skálum á kr. 7.680.
Teg. SUMMER SKY - Saumlaus í
A, B, C, D skálum á kr. 8.680.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugardaga 10-14.
Þú mætir - við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Bátar
Óska eftir utanborðsmótor
60 til 90 hp
Óska eftir utanborðsmótor 70 til 90
hp á sanngjörnu verði!
e-mail: bjoggi11@mac.com
Sími 846 1674.
Björgvin Björgvinsson.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Þægileg og háþróuð kennslubifreið.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur, laga
ryðbletti, hreinsa garða og
tek að mér ýmis smærri
verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Byssur
Skotveiðivörur í úrvali
Hreinsisett, töskur, sjónaukar og m.fl.
Skotfæri í riffla á góðu verði.
Netlagerinn slf., Dugguvogi 17-19,
2. hæð. Vefsíða tactical.is
Einfalt að versla. S. 517-8878.