Morgunblaðið - 14.05.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 14.05.2012, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012 ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐRÚN KARLSDÓTTIR, áður til heimilis Dalatanga 6, Mosfellsbæ, er lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 8. maí, verður jarðsungin frá Guðríðarkirkju Grafarholti föstudaginn 18. maí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Jón Vigfússon, Edda Melax, Günter Schmid, Stefán Már Jónsson, Hrefna Lind Borgþórsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Bæring Sigurbjörnsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, HELGA VALBORG PÉTURSDÓTTIR, Holtateigi 28, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 8. maí. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 18. maí kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahúsið á Akureyri. Alúðarþakkir til starfsfólks sjúkrahússins fyrir góða umönnun og hlýju. Þú lifir í hjörtum okkar. Arnþór Björnsson, Anna Sigríður Arnþórsdóttir, Tryggvi Jónsson, Birna Margrét Arnþórsdóttir, Steinar Magnússon, Drífa Þuríður Arnþórsdóttir, Mark Siddall, ömmu- og langömmubörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVEINBJÖRN SVEINBJÖRNSSON, lést á Sjúkraskýli Bolungarvíkur laugardaginn 12. maí sl. Skúli Sveinbjörnsson, Ásgerður Magnúsdóttir, Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, Arnar Vilhjálmsson, og barnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞÓRUNNAR NÖNNU RAGNARSDÓTTUR frá Vogi við Raufarhöfn. Sérstakar þakkir sendum við Óskari Þór Jóhannssyni lækni og starfsfólki krabbameinsdeildar LSH. Fyrir hönd vandamanna, Jóhann Hólmgrímsson. ✝ Jóhanna Sig-rún Ingólfs- dóttir fæddist á Siglufirði 19. mars 1930. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 4. maí 2012. Foreldrar henn- ar voru Jóhanna Soffía Pétursdóttir, f. 2. nóvember 1904, d. 13. júní 1970, og Ingólfur Árnason, f. 26. mars 1899, d. 12. maí 1974. Systkini hennar eru Ásdís Auð- ur, f. 1928, Helgi, f. 1931, Ás- maki Madi Björgvinsson, þeirra börn eru Alexander Magnús og Ana Johanna. Svali H., f. 24. maí 1967, maki Inga Sigrún Jóns- dóttir, þeirra börn eru: Ástþór Atli, Hrannar Davíð og Ingi- björg Sigrún. Áður átti Jóhanna Þórunni Friðriksdóttur, f. 21. október 1949, hennar börn eru; Hrafnkell Tumi, Jóhanna og Anna Rán. Jóhanna lauk námi frá Hús- mæðrakennaraskóla Íslands 1954 og fór síðar til Svíþjóðar til náms í stjórnun og stýringu stóreldhúsa á sjúkrahúsum. Hinn 1. janúar 1958 tók hún við starfi forstöðumanns eldhúss Landspítalans og stýrði því út starfsævina eða til 1. apríl 2000. Útför Jóhönnu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 14. maí 2012, og hefst athöfnin klukkan 13. geir, f. 1935, og Friðrik, f. 1937. Ás- geir og Friðrik lét- ust á barnsaldri og Helgi lést árið 2003. Jóhanna ólst upp á Siglufirði til 10 ára aldurs, síðan á Ólafsfirði, en tví- tug flutti hún til Reykjavíkur og bjó þar til dauðadags. Jóhanna giftist 18. júní 1968 Björgvini Magn- ússyni, f. 22. apríl 1922, d. 17. maí 1996. Synir þeirra eru: Zop- hónías Hróar, f. 18. júní 1964, Sæll frændi. Þannig var amma vön að heilsa mér frá því ég man eftir mér og þar til hún var hætt að muna sjálf. En þótt orð og at- vik gleymdust þá vissi ég að hún þekkti mig. Hún var alltaf stór hluti af til- veru minni. Hjá henni bjó ég fyrstu æviárin og hélt upp á jólin langt fram á fullorðinsár, hjá henni hélt ég upp á ferminguna mína og lét skíra fyrsta barnið mitt. Hún lifði tímana tvenna. Æskuheimili hennar á Siglufirði leystist upp á kreppuárunum vegna ístöðuleysis föður og veik- inda móður og henni var komið í fóstur til Ólafsfjarðar. Átján ára kynntist hún lífsreyndum manni og varð barnshafandi að móður minni áður en hann hvarf á vit nýrra ævintýra. Í kjölfarið flutti hún til Akureyrar þar sem hún réð sig til starfa á Akureyrarspít- ala. Það varð henni til láns að yf- irhjúkrunarkona spítalans, Jó- hanna Guðmundsdóttir, tók hana upp á sína arma og leyfði henni að hafa barnið í herbergi sínu á spítalanum í vinnutímanum en þá tíðkaðist að heilbrigðisstarfsfólk byggi þar. Saman litu þær til með barninu og deildu uppeldinu æ síðan. Með stuðningi nöfnu sinnar gat hún menntað sig og var að loknu námi ráðin forstöðukona við eldhús Landspítalans en þeirri stöðu gegndi hún þar til hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Hún starfaði án þess að strita, hafði mikið verksvit og stýrði stærsta eldhúsi landsins þannig að allt virtist gerast nánast af sjálfu sér. Hún tókst á við and- streymi og áföll af æðruleysi og seiglu. Það voru hennar svör. Hún var yfirleitt orðvör, gat verið dul og var ekki allra en fólk- ið hennar vissi alltaf hvar það hafði hana og hvað hún var tilbú- in til þess að gera fyrir það þegar á reyndi. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt hana að. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Jóhanna Gunnlaugsdóttir. Látin er fyrrverandi forstöðu- maður eldhúss Landspítala, Jó- hanna Ingólfsdóttir, hún gegndi forstöðu þess í meira enn 40 ár, en hún hóf störf árið 1958 og lauk sínum starfsferli með ritun sögu eldhússins. Hún var menntaður hússtjórnarkennari, lærði um sjúkrahúsfæði í Svíþjóð og fékk síðar starfsleyfi matarfræðinga nr. 1. Jóhanna var á sínum tíma framsýn, hún fór til Kaupmanna- hafnar og kynnti sér eldhúsrekst- ur og eldhússkipulag á ríkisspít- alanum þar og nýtti sér þá reynslu við skipulag nýs eldhúss Landspítalans sem tekið var í notkun árið 1973, þá stærsta framleiðslueldhús landsins. Jóhanna var meðal stofnenda Félags matráðskvenna árið 1963- 64 sem nú er Félag næringar- rekstrarfræðinga, sat í stjórn þess og vann að útgáfu blaðs fé- lagsins. Hún lét sér annt um fræðslu og fagmennsku starfsmanna eld- húsa, hélt mörg námskeið og stóð að því ásamt Bryndísi Steinþórs- dóttur og Vigdísi Jónsdóttur að koma á laggirnar námi fyrir starfsmenn eldhúsa, löggiltu matartækna- og matarfræðinga- námi. Jóhanna var mikill braut- ryðjandi hvað varðar eldhús- rekstur og fagmenntun starfsmanna. Hún fylgdist vel með og sótti nokkrar ráðstefnur erlendis. Jóhanna er flestum félögum okkar minnisstæð sem sterkur karakter. Jóhönnu kynntumst við sem nemar eða undir stjórn hennar sem starfsmenn eldhúss- ins. Hún var góður stjórnandi, fagmaður fram í fingurgóma og framsýn. Minnisstætt er hve Jó- hanna var fylgin sér og hve hag- sýn hún var. Hún var jafnframt mikill jafnréttissinni og höfðingi. Með þessum orðum vottum við Jóhönnu virðingu og aðstandend- um samúð okkar. Blessuð sé minning hennar. F.h. Félags næringarrekstrar- fræðinga, Olga Gunnarsdóttir formaður. Jóhanna Sigrún Ingólfsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma Jóhanna, Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson) Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Ástþór Atli, Hrannar Davíð og Ingibjörg igrún. ✝ Kristjana Þor-gilsdóttir fæddist í Reykja- vík 3. september 1926. Hún lést á Elliheimilinu Grund þann 5. maí 2012. Móðir hennar var Ragnhildur Ólafía Guðmunds- dóttir, f. 3. október 1898, d. 24. mars 1976. Faðir hennar var norskur og bjó lengst af í Reykjavík. Kristjana átti tvo bræður, þá Agnar Jósep Sigurðsson, f. 17. júní 1923, d. 7. júlí 1990 og Harald Jóhannesson, f. 18. maí 1928. Kristjana var í sambúð með Aðalsteini B. Einarssyni, f. 24. desember 1993, d. 22. ágúst 2011. Kristjana ólst upp hjá móður sinni lengst af á Framnesvegi 13, Reykjavík. Ung að árum fór hún út á vinnumarkaðinn, starfaði nokkur ár á Landakotsspít- alanum, en lengstan starfsdag átti hún í þvottahúsinu á Elli- heimilinu Grund í Reykjavík eða um 60 ár. Útför hennar fer fram í dag, 14. maí 2012, frá Neskirkjunni í Reykjavík kl. 15. Í dag kveðjum við Kristjönu Þorgilsdóttur. Hana Sjönu okk- ar eins og hún var alltaf kölluð. Í okkar lífi kemur alltaf að tímamótum og þinn tími var kominn. Það er erfitt að kveðja þig, Sjana mín, því það er svo stutt síðan við kvöddum hann föður minn og sambýlismann- inn þinn til 28 ára. Þið voruð alltaf svo góð hvort við annað, núna eruð þið saman á ný í himnaríki. Starfsfólki Grundar vil ég þakka fyrir veitta aðstoð við Sjönu á erfiðum um tímum. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Aðalsteinn Aðalsteinsson, börn og barnabörn. Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld. Ég kem á eftir, kanske í kvöld, með klofinn hjálm og rofinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld. Þessi vísa snillingsins Bólu- Hjálmars kemur ávallt upp í huga minn þegar ég heyri lát vina og samferðafólks, nú síð- ast frænku minnar Kristjönu Þorgilsdóttur, sem lést í Reykjavík þann 5. maí 2012. Segja má að við Sjana höfum frekar verið eins og systur eftir að móðir hennar og móðursyst- ir mín, öðlingskonan Ragnhild- ur Guðmundsdóttir, opnaði heimili sitt fyrir mér þegar ég á unglingsaldri átti ekki í mörg hús að vernda eftir skilnað for- eldra minna og upplausn heim- ilisins í kjölfarið. Síðan eru liðnir margir ára- tugir en þrátt fyrir það er minningin frá þessum tíma allt- af jafn fersk í huga mínum. Heimilið sem hin örláta hús- freyja stýrði af mikilli rausn stóð við Framnesveg nr. 13 í Reykjavík en þaðan á ég marg- ar ljúfar minningar sem tengj- ast Sjönu minni. Enn þann dag í dag fæ ég kökk í hálsinn þeg- ar ég fer fram hjá húsinu. Sjana frænka mín var sér- stakur persónuleiki. Aldrei heyrði ég hana segja styggð- aryrði um nokkurn mann þó við hin gerðum okkur oft sek um baktal þegar slettist upp á vin- skapinn og við töldum okkur eiga harma að hefna. Sjana dró sig þá gjarnan í hlé eða benti á spaugilegar hliðar málsins sem hún hafði sjálf komið auga á. Sjana var sannarlega vinur vina sinna. Hún var alla tíð samviskusöm og rækti starfa sinn með stakri prýði en hún starfaði í þvottahúsinu á Elli- heimilinu Grund í 60 ár. Hugurinn hvarflar oft aftur til áranna á Framnesveginum þegar við unglingarnir söfnuð- ust þar saman til að hlusta á djass og dansa við tóna út- varpsútsendingar ameríska hersins. Margt af þessu unga fólki er nú farið og mikið skelf- ing saknar maður þess. En hver veit nema við eigum eftir að hittast fyrir hinum megin og dansa saman við ljúfa tóna. Hver veit. Sjana frænka mín var góð manneskja sem engan særði en lagði á hinn bóginn alltaf gott til með gleði sinni og góðri kímni. Guð blessi Sjönu. Ásta Þórðardóttir. Elsku Sjana mín. Mig langar að segja nokkur orð hér þar sem ég kvaddi þig ekki því þú fórst frekar skjótt. Þú varst alltaf svo góð við mig. Sýndir mér áhuga, gafst mér hluti og prjónaðir handa mér. Mér fannst alltaf svo gaman þegar þú komst til okkar eða við heimsóttum þig. Þú varst svo skemmtileg og kát. Ein besta minningin um þig er þegar þú komst og heimsótt- ir okkur til London þegar við bjuggum þar. Við gerðum margt skemmtilegt saman þar og héldum upp á afmælið þitt. Þér fannst svo gaman og hlóst svo mikið og skemmtir þér gríðarlega vel. Hvíl í friði, elsku besta frænka mín. Ég sakna þín og þykir endalaust vænt um þig. Góðum mönnum gefin var sú glögga eftirtekt. Að finna líka fegurð þar, sem flest er hversdagslegt. (J.K.) Mikael Ragnarsson. Mig langar að skrifa nokkur orð og minnast Sjönu frænku minnar, uppáhaldsfrænku minnar. Sjana var einstök kona og margt sem mátti læra af henni. Hún var einstaklega trygglynd og góð manneskja. Sýndi ekkert nema hlýju í minn garð og endalausa þolinmæði. Sjana vann í þvottahúsinu á Grund í yfir 50 ár og man ég að stundum tók hún strætó út á Nes á kvöldin til að passa mig þegar ég var lítill og þá var hún oft svo þreytt en samt var hún alltaf góð við mig og aldrei pirruð og þreytt á mér þótt oft hefði verið ástæða til. Sjana frænka gaf mér alltaf flottustu jólagjafirnar og var alla tíð ákaflega gjafmild. Sjana var hress og skemmti- leg og naut sín best í kringum fólk, með fjölskyldu sinni og vinum. Hún lét sig aldrei vanta í nein boð og lék á als oddi. Hún var með lúmskan og beitt- an húmor. Við bræðurnir höfð- um gaman af að stríða henni vegna þess hversu skemmtileg viðbrögð Sjönu voru og hún hafði gaman af þessu öllu sam- an. Sjana var einstaklega hlý og góð manneskja og átti auðvelt með að tjá og sýna væntum- þykju sína. Hún fylgdist vel með mér og fjölskyldu minni, spurði frétta af öllum og sýndi einlægan áhuga á öllu sem fram fór. Mér er minnisstætt þegar ég fékk brjósklos í bakið, þá hafði Sjana frænka miklar áhyggjur og leitaði til bæna- hrings til að láta biðja fyrir mér svo ég næði heilsu á ný. Þetta lýsir Sjönu minni vel. Alltaf að hugsa um aðra og væntumþykjan rík. Á ýmsu gekk í lífi Sjönu en alltaf sigraðist hún á erfiðleik- um og hélt áfram. Sjana fann sér góðan mann og sálufélga í Steina sínum og missti mikið þegar hann lést sl. haust og þá var eins og lífsneisti Sjönu slokknaði. Hún var leið og saknaði Steina mikið. Nú er hún komin til hans og pabbi hefur örugglega tekið fagnandi á móti Sjönu litlu systur. Með þessum fátæklegu orð- um langar mig að segja takk elsku Sjana frænka fyrir allt, þín verður sárt saknað. Minn- ing þín lifir. Brosið breitt og augun skær, bið guð þig að geyma, bestu þakkir, þú varst mér svo kær. Þér mun ég aldrei gleyma. (Guðný Sigríður Sigurðardóttir) Ragnar Agnarsson. Kristjana Þorgilsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.